Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 18

Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ,     $   &    + ,   -    + 4                .    + B   B    3   :             /00 1   ) ,   "  F;; 4            4           0 '   $         /00!  +        0 6**H    F;;         '     '            : $     (     $ /22 1  -$       '  3 4     ! Spron byggir samkeppnishæfni sína á ábyrgu og hæfu starfs- fólki sem nýtur sjálfstæðis í starfi, ávinnur sér traust viðskiptavina og veitir þeim framúrskarandi lipra og skjóta þjónustu. Í öllu starfi og samskiptum bæði innbyrðis og gagnvart viðskiptavinum er áhersla á TRAUST, FRUMKVÆÐI og ÁRANGUR. Skemmtilegt og lifandi SPRON leitar að kraftmiklu og lifandi sölufólki í úthringiver SPRON í hlutastörf á kvöldin. Starfið felst í þátttöku í skemmtilegum átaksverkefnum SPRON samsteypunnar þar sem góð laun fást fyrir góðan árangur. Hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða sambærileg menntun • Reynsla og/eða áhugi á sölu • Hæfni í mannlegum samskiptum • Jákvætt viðhorf Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágústa Hjaltadóttir, verkefnastjóri sölusviðs SPRON sparisjóðs, í síma 550 1200. Umsóknir óskast sendar til starfsmanna- þjónustu SPRON á netfangið starfsmannathjonusta@spron.is fyrir 1. október n.k. – fyrir allt sem þú ert Verk- og tæknifræðingar VSB Verkfræðistofa ehf. Hafnarfirði auglýsir eftir verk- eða tæknifræðingum til starfa að eftirtöldum meginverkefnum:  Hönnun burðarvirkja.  Hönnun lagna- og loftræsikerfa.  Umsjón og eftirlit með framkvæmdum. Starfsreynsla, þekking á AutoCAD og helstu hönnunarforritum er æskileg en ekki skilyrði. Leitað er að einstaklingi þar sem fagmennska og metnaður er í fyrirrúmi við lausn verkefna. Hæfni og áhugi viðkomandi hefur áhrif á þróun í starfi. Frekari upplýsingar gefa Stefán Veturliðason og Sveinn Áki Sverrisson í síma 585 8600 eða á netföng stefan@vsb.is og aki@vsb.is VSB Verkfræðistofa ehf. er fjölhæf verkfræðistofa sem sinnir verk- fræðilegri ráðgjöf og býður viðskiptavinum mjög fjölbreytta þjónustu á sviði verkfræði. Starfseminni er skipt í 2 svið, byggingasvið og umhverfis- og framkvæmdasvið. Boðnar eru heildarlausnir við um- sjón verklegra framkvæmda, frá forsögn og frumathugunum að lokaúttekt. Starfsmenn eru 28. VSB er aðili að FRV (Félagi ráðgjafar- verkfræðinga). Nánari upplýsingar á heimasíðu www.vsb.is. BIRNA Gunnlaugsdóttir aðstoðar fólk með sértæka námsörðugleika við að ná betri færni í lestri og skrift. Og árangurinn hefur ekki látið á sér standa, enda er afstaðan til lesblindu stöðugt að breytast til hins betra. Vinna bug á lesblindu „Tilrauna- kennsla fyrir lesblinda hófst hjá Mími árið 2002 og síðan þá hafa yfir 100 fullorðnir einstaklingar lokið 95 stunda námi samkvæmt námskránni „Aftur í nám“. Námið má meta til allt að 7 eininga á framhaldsskólastigi,“ segir Birna. „Aftur í nám“ tekur yfir níu vikna tímabil og felst í sjálfsstyrk- ingu, einkatímum í lesþjálfun, ís- lenskunámi og tölvunotkun. Að því loknu hafa nemendur yfir aðferð- um að ráða til að vinna bug á les- blindu sinni, en árangur af náminu hvílir ekki hvað síst á áframhald- andi þjálfun þeirra í aðferðunum. „Aðferðirnar, sem við notum, eru óhefðbundnar og byggjast meðal annars á þrívíddarskynjun, en einstaklingar með lesblindu hugsa alla jafnan á myndrænni hátt en aðrir,“ segir Birna. Erfitt skref Það er ekki auðvelt fyrir full- orðið fólk að viðurkenna að það eigi við sértæka námsörðugleika að stríða og skrefið getur verið erfitt fyrir marga að skrá sig á námskeið til þess að fá aðstoð. „Breidd nemendahópsins, sem sótt hefur námskeið hjá okkur er gífurleg, bæði á hvern hátt sér- tækir námsörðugleikar hamla fólki í lestri og skrift, og eins þegar lit- ið er til aldurs, kyns og starfa,“ segir Birna. Nemendur hafa verið á aldr- inum 18 til 65 ára, jafnt innflytj- endur sem íslendingar og meira að segja fólk sem lokið hefur nám- skeiðum á háskólastigi. Birna segir að vitneskjan um að hægt sé að bæta úr þessum örð- ugleikum hafi verið að mestu hulin samfélaginu og þar með mennta- kerfinu allt fram á síðustu ár. „Sem betur fer erum við Íslend- ingar farnir að vita og skilja bet- ur, og getum þannig komið í veg fyrir að börn með lesblindu lendi í hremmingum í skólakerfinu.“ Viss náðargáfa Birna segir að reynsla Mímis Símenntunar sé í samræmi við kenningar bandaríkjamannsins Ron Davis, sem sjálfur var les- blindur og málheftur. „Kenningar Davis ganga út á að lesblinda sé viss náðargáfa. Hin svokallaða fjölgreindarkenning telur manninn búa yfir fjöl- breyttum greindum, en lestur, skrift og reikningur eru bara þrjú af um það bil tíu færnisviðum mannsins,“ segir Birna. Samkvæmt kenningum Davis og reynslu af kennslu lesblindra, skara lesblindir oftar en ekki fram úr þegar um aðrar greindir er að ræða. Þessu má líkja við blinda, sem oft þróa næmari heyrn en aðrir. „Blindir skynja mun ljóss og myrkurs og þannig er það líka með lesblinda, þeir eru alls ekki blindir á öll orð og þessi „blinda“ tengist ekki greind á nokkurn hátt.“ Birna segir að fólk með les- blindu hugsi myndrænt og mynd- rænna en flestir aðrir, en geri sér þó oft ekki grein fyrir að ekki séu allir eins. „Erfiðleikarnir eru skiljanlega mestir þegar um afstæð hugtök er að ræða, enda gengur þeim erf- iðlegar að lesa orð sem ná yfir slík hugtök en orð sem eru myndræn,“ segir Birna. Þess má geta að Birna er að skrá í námskeið fyrir lesblinda í síma 580 1815 eða á netfanginu birna@mimir.is. Lesblinda er viss náðargjöf Fólk með sértæka námsörðugleika hefur löngum mætt litlum skilningi, bæði í menntakerfinu og í at- vinnulífinu. Við rædd- um við Birnu Gunn- laugsdóttur um málið. Birna Gunnlaugsdóttir Morgunblaðið/Árni Torfason Lesblinda Sértæk lesröskun er algengasta form sértækra þroskaraskana á námshæfni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.