Morgunblaðið - 27.11.2006, Qupperneq 1
Ásgeir Örn, Guðjón Valur og Ólafur í lykilhlutverkum >> 4
SILFURMAÐURINN
50 ÁR SÍÐAN VILHJÁLMUR EINARSSON FÉKK SILFUR-
VERÐLAUN Á ÓLYMPÍULEIKUNUM Í MELBOURNE >> 7
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Eggert var kynntur fyrir stuðnings-
mönnum liðsins fyrir leikinn og hon-
um til aðstoðar var dóttursonur
hans, Eggert Aron Guðmundsson.
„Þetta var mikilvægur sigur og ég
viðurkenni það alveg að ég var
spenntur og fagnaði sigrinum eins
og leikmenn liðsins. Það var mikil-
vægt að landa sigri og ég þarf líklega
að læra að njóta augnabliksins á
meðan vel gengur. Það er alls ekkert
víst að ég verði alltaf sá vinsælasti á
svæðinu,“ sagði Eggert í léttum tón
og vísaði í reynslu annarra stjórn-
arformanna sem hafa ekki átt sjö
dagana sæla þegar illa hefur gengið.
Ekki rætt við Chelsea
West Ham hefur mikið verið í
fréttum enskra fjölmiðla um helgina
þar sem enski landsliðsmaðurinn
Shaun Wright-Phillips, leikmaður
Chelsea, er sagður vera í sigtinu hjá
Eggerti. „Við höfum ekki rætt form-
lega við Chelsea og það er alveg ljóst
að við ætlum ekki að greiða svipaðar
upphæðir fyrir leikmenn og Chelsea
hefur gert á undanförnum árum.
Þetta mál með Wright-Phillips er á
algjöru frumstigi. Við vorum ekki
ánægðir með að fréttir af þessu máli
kæmu úr herbúðum Chelsea, enda
höfum við ekki rætt formlega við fé-
lagið.“
Eggert segir að hann sem stjórn-
arformaður muni ekki skipta sér af
agavandamálum í herbúðum liðsins.
Það sé verkefni knattspyrnustjór-
ans, Alans Pardews. Argentínumað-
urinn Carlos Tevez rauk heim á leið
eftir að honum var skipt út af í síðari
hálfleik gegn Sheffield Utd. „Áhorf-
endur tóku vel á móti Tevez er hann
fór af velli. Hann tók hinsvegar þá
ákvörðun að yfirgefa völlinn og það
er eitthvað sem Pardew mun taka á
og leysa.“
Breskir fjölmiðlar greindu einnig
frá því í gær að Alan Pardew ætlaði
sér að líta nánar á lífsvenjur leik-
manna liðsins hvað varðaði veðmál
og peningaspil. Roy Carroll, mark-
vörður liðsins, hefur nýlokið við með-
ferð vegna spila- og áfengisfíknar.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leik-
menn West Ham eru í umræðunni
vegna veðmála. Vandamál Carroll
gefur til kynna að leikmenn liðsins
stundi veðmál og ég ætla mér að
taka á þeim málum áður en það verð-
ur stórt vandamál,“ segir Pardew.
„Þetta var
stór stund“
AP
Nafnarnir Eggert Magnússon og dóttursonur hans Eggert Aron Guðmundsson á Upton Park.
ÞETTA var stór stund og stemn-
ingin á Upton Park hreyfði við
manni – miklar tilfinningar hjá
stuðningsmönnum og greinilegt að
fólk er ánægt með að óvissunni um
framtíðareigendur félagsins er lok-
ið,“ sagði Eggert Magnússon,
stjórnarformaður West Ham, en
hann sá lið sitt leggja Sheffield Utd,
1:0, í fyrsta leik liðsins eftir að Egg-
ert og Björgólfur Guðmundsson,
stjórnarformaður Landsbankans,
eignuðust meirihluta í félaginu.
„Stemningin hreyfði við manni“
EINAR Örn Jónsson, horna-
maður hjá þýska 1. deildar lið-
inu GWD Minden gerir sér
vonir um að geta leikið með
liði sínu gegn Wetzlar í þýsku
deildinni um næstu helgi, en
leikurinn er afar mikilvægur
báðum liðum sem eru í fall-
baráttu. Einar meiddist
vinstra megin á mjöðminni
fyrir þremur vikum og hefur
ekkert æft síðan og átt erfitt
með æfingar. „Þetta eru fer-
lega leiðinleg meiðsl sem erf-
itt er að meðhöndla. Ég má
ekkert taka á þá finn ég undir
eins fyrir því, sagði Einar í
samtali við Morgunblaðið í
gær, þar sem hann fylgdist
með úrslitaleik Super-Cup-
keppninnar í handknattleik í
Köln.
Einar Örn kom til GWD
Minden í sumar eftir eins árs
veru hjá Torrevieja á Spáni.
Fátt hefur gengið hjá Mind-
en-liðinu á þessari leiktíð og
er það á meðal þeirra neðstu,
hefur að-
eins unnið
þrjá leiki.
„Það má
bara ekk-
ert bera út
af í svona
fámennum
hópi. En
ég stefni á
leikinn við
Wetzlar á sunnudaginn og
þangað til vona ég það besta,“
sagði Einar Örn Jónsson.
Einar Örn Jónsson
Einar Örn á batavegi
eftir meiðsli á mjöðm
LOGI Geirsson meiddist á 26.
mínútu í leik Lemgo og Gum-
mersbach í Super-cup-keppn-
inni í handknattleik á laug-
ardaginn. Hann fékk slæmt
högg á öxlina og er talið að
hann hafi nær því hrokkið úr
vinstri axlarlið en dottið í lið
aftur. Logi var að vonum von-
svikinn í samtali við Morgun-
blaðið enda hefur hann verið
afar óheppinn hvað varðar
meiðsli um nokkurn tíma.
„Ég verð væntanlega frá
keppni í tvær vikur og missi
þar af leiðandi af bikarleik á
miðvikudaginn og Evrópuleik
um næstu helgi í Frakklandi.
Stefnan er að vera með á ný
gegn Kiel um aðra helgi,“
sagði Logi sem lék skiljan-
lega ekkert meira með í
keppninni um helgina og
fylgdist með leiknum við
Medvedi frá Rússlandi í gær
úr áhorfendastúkunni.
Lemgo vann þann leik, 37:33,
eftir að hafa verið 17:20 undir
í hálfleik. Það var ekki síst
fyrir stórleik Christians
Lichtlein, markvarðar
Lemgo, sem sigur vannst en
hann átti stórleik.
„Auðvitað eru það alltaf
vonbrigði að verða fyrir
meiðslum en það verður að
horfa á jákvæðu hliðarnar og
þær eru að þetta hefði getað
orðið verra,“ sagði Logi enn-
fremur þegar Morgunblaðið
hitti hann að máli fyrir leik
Lemgo og Medvedi í gær.
Logi frá keppni í tvær
vikur vegna meiðsla
íþróttir mánudagur 27. 11. 2006 íþróttir mbl.is