Morgunblaðið - 27.11.2006, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
HJÖRTUR Hjartarson, knatt-
spyrnumaður frá Akranesi, var val-
inn besti leikmaðurinn í NAIA-
háskóladeildinni í Bandaríkjunum
en keppni þar lauk á dögunum.
Hjörtur, sem nú er genginn til liðs
við Þrótt, hlaut þessa viðurkenn-
ingu annað árið í röð. Innan NAIA
eru 350 litlir háskólar sem ekki fá
aðgang að keppni stærstu háskól-
anna í landinu.
Hjörtur og Kári Ársælsson, varn-
armaður úr Breiðabliki, voru valdir
í 11 manna úrvalslið deildarinnar
en þeir leika báðir með Auburn-
háskóla. Lið þeirra var slegið út í
16 liða úrslitum í lokakeppni há-
skólanna í þessum mánuði.
Jóhann Hreiðarsson úr Þrótti, fé-
lagi þeirra í liði Auburn, var valinn
í úrvalslið númer tvö í deildinni, og
var því í hópi þeirra sem taldir voru
í 12.–22. sæti yfir bestu leikmenn-
ina.
Fjórði leik-
maður Auburn,
Ágúst Þór
Ágústsson úr
Breiðabliki, sem
lék með Fjölni
sem lánsmaður í
sumar, var valinn
í úrvalslið númer
þrjú, sem og
Björn Viðar Ás-
björnsson, sem er nýgenginn til liðs
við Víking frá Fylki, en hann spilar
með Webber-háskóla. Lið Björns
komst í undanúrslit háskólakeppn-
innar.
Hjörtur aftur sá besti í NAIA-deildinni
Hjörtur Hjartarson
MÖGULEIKAR spænska knatt-
spyrnufélagsins Barcelona á að
styrkja lið sitt með leikmanni utan
Evrópu jukust verulega í gær þeg-
ar mexíkóski varnarmaðurinn
Rafael Marquez fékk tvöfalt rík-
isfang og telst nú líka spænskur
ríkisborgari.
Lið í spænsku 1. deildinni mega
aðeins vera með þrjá leikmenn frá
löndum utan Evrópubandalagsins
og Evrópska efnahagssvæðisins í
sínum leikmannahópum. Barcelona
var með þann kvóta fullnýttan því
hjá félaginu eru þeir Ronaldinho
frá Brasilíu og Samuel Eto’o frá
Kamerún, auk Marquez. Þeir Jav-
ier Saviola og Lionel Messi eru frá
Argentínu en eru með tvöfalt rík-
isfang.
„Þetta eru góðar fréttir fyrir
okkur því nú getum við bætt í hóp-
inn, en við ætlum ekki að flýta okk-
ur í þessum efnum,“ sagði Frank
Rijkaard, þjálfari Barcelona, á
blaðamannafundi fyrir helgina..
Barcelona getur
bætt við leikmanni
Pavel Ermol-inskí gerði
13 stig þegar lið
hans, Axarguia,
lagði varalið Real
Madrid á föstu-
dagskvöldið,
88:74. Pavel lék í
rúmar 20 mínútur
og tók 6 fráköst
og gaf fjórar stoðsendingar.
Jakob Örn Sigurðsson og félagarhans hjá Vigo í spænsku deild-
inni töpuðu fyrir Plasenica-Galco á
heimavelli sínum, 85:82. Jakob stóð
fyrir sínu, gerði 13 stig og gaf sjö
stoðsendingar. Hann var ekki í byrj-
unarliðinu að þessu sinni en lék í 26
mínútur.
Finnska liðið ToPo, sem LogiGunnarsson leikur með, tapaði
á heimavelli á föstudaginn fyrir
Porvoon Tarmo 94:83. Logi var
stigahæstur í liði ToPo með 24 stig
og hann gaf líka flestar stoðsend-
ingar, fjórar talsins, og tók einnig
fjögur fráköst. Logi var í byrj-
unarliðinu og lék í 39 mínútur.
Körfuboltadómarinn RögnvaldurHreiðarsson, dæmdi í gær sinn
1.000. leik á vegum KKÍ, þegar hann
dæmdi leik Grindavíkur og Snæfells
í bikarkeppninni. Hann er aðeins
annar dómarinn sem nær þeim
áfanga en hinn er Jón Otti Ólafsson
sem síðan hætti þegar hann hafði
dæmt 1.673 leiki. Rögnvaldur
dæmdi sinn fyrsta leik 22. janúar
1995 en það var viðureign KR og
Grindavíkur í bikarkeppni stúlkna.
Hann er búinn að dæma 244 leiki í
úrvalsdeildinni.
Lokeren gerðimarkalaust
jafntefli á heima-
velli við Char-
leroi í belgísku
deildinni á laug-
ardaginn. Rúnar
Kristinsson fyr-
irliði var besti
leikmaður Loke-
ren sem þótti reyndar leika fremur
illa.
Gunnar Þór Gunnarsson var íbyrjunarliði Hammarby sem
sótti norska liðið Lilleström heim í
Skandinavíudeildinni í gær. Sænska
liðið tapaði 2:0 en Pétur Marteins-
son kom inn á sem varamaður í liði
Hammarby á 40. mínútu.
Ármann Smári Björnsson ogÓlafur Örn Bjarnason voru í
hjarta Brann-varnarinnar þegar
norska liðið tók á móti sænska liðinu
Helsingborg. Liðin skildu jöfn, 2:2,
en Ármann Smári lék ekki síðari
hálfleikinn. Kristján Örn Sigurðs-
son var ekki í liði Brann. Hels-
ingborg skoraði tvívegis, á 11. og 58.
mínútu áður en heimaliðið náði að
skora á 73. mínútu og jafna á þeirri
83.
Fólk sport@mbl.is
Í byrjun virtist sem Haukar ætl-
uðu að stinga af og hefna þar með
rækilega fyrir tapið í fyrstu um-
ferð mótsins. Þeir skoruðu fjögur
fyrstu mörkin og það virtist allt
vera í himnalagi hjá þeim en ekk-
ert gekk hjá gestunum. Það
breyttist þó og ÍR-ingar byrjuðu
smám saman að bíta fastar frá sér
og þeir jöfnuðu metin, 10:10, og þá
fannst Páli Ólafssyni, þjálfara
Haukanna, nóg komið og tók
leikhlé. Það virkaði því þegar fyrri
hálfleikur var allur höfðu heima-
menn þriggja marka forskot, 16:13.
Síðari hálfleikur var ekki ólíkur
þeim fyrri; Haukar með undirtökin
og forystuna en sprækir og bar-
áttuglaðir ÍR-ingar aldrei langt
undan og þeir hættu aldrei og þeir
fá stjörnu í kladdann fyrir það.
Litlu munaði að blálokin yrðu mjög
spennandi en Haukamenn svona
hálfhéngu á forystunni og unnu
verðskuldaðan sigur en teljast þó
klaufar að hafa ekki klárað dæmið
mun fyrr. Ráðleysislegur, tilviljun-
arkenndur og einstaklingsbundinn
sóknarleikur þeirra í síðari hluta
síðari hálfleiks var líkast til ástæð-
an fyrir að Haukar gerðu ekki út
um leikinn fyrr en barátta og vilji
gestanna á einnig sinn þátt í því.
Það munaði talsvert fyrir Haukana
að Arnar Pétursson lék ekkert með
vegna meiðsla en kappinn sá hefur
farið á kostum í varnarleiknum í
undanförnum leikjum og í raun
bundið vörnina saman. Haukar eru
klárlega á uppleið þótt þessi leikur
hjá þeim hafi verið ansi kaflaskipt-
ur.
Gestirnir úr Breiðholtinu sýndu
á köflum mjög góðan leik og það er
gaman að þessu liði. Kraftur og
fjör einkenna það og leikmenn þess
vilja klárlega spila hraðan leik og
hann hentar liðinu vel. Hins vegar
var óðagotið á þeim á köflum of
mikið og hefði jafnvægið verið að-
eins meira er ekki ólíklegt að upp-
skera þeirra hefði orðið eitt stig.
Þetta efnilega lið hefur tapað
mörgum leikjum naumt og ekki
þykir undirrituðum ólíklegt að
stigum þeirra fari fjölgandi á næst-
unni haldi liðið haus andlega, ef
svo má að orði komast. Það er öll-
um liðum erfitt að tapa mörgum
leikjum í röð en ÍR-liðið er ekki
nema hársbreidd frá því að snúa
dæminu við, enda býr mikið í lið-
inu.
„Í það heila er ég ekki ánægður
með leik minna manna. Klaufa-
gangur og óðagot voru of einkenn-
andi og við töpuðum boltanum of
oft. Hins vegar var ég ánægður
með baráttuna, strákarnir gáfust
aldrei upp og það vantaði svo sann-
arlega ekki viljann. Hins vegar er
auðvitað erfitt að tapa hverjum
leiknum á fætur öðrum en ég vona
og trúi að dæmið snúist okkur í vil.
Ég er margoft búinn að segja við
strákana að ef við berjumst og höf-
um fyrir hlutunum þá munum við
uppskera og við verðum bara að
halda ótrauðir áfram veginn og það
munum við gera,“ sagði Erlendur
Ísfeldt, þjálfari ÍR.
Skrautlegur leikur
en skemmtilegur
HANN var nokkuð skrautlegur
leikur Hauka og ÍR á Íslandsmótinu
í handbolta karla sem fram fór á
Ásvöllum í gærdag. Heimamenn
höfðu að lokum nauman sigur,
31:29, eftir að hafa haft frum-
kvæðið svo til allan leikinn. Hauka-
menn voru yfirleitt skrefinu á und-
an þeim ÍR-ingum en gekk
bölvanlega að hrista þá af sér þrátt
fyrir fjölmörg tækifæri til þess.
Þessi leikur einkenndist af tals-
verðum hraða, óðagoti, þónokkrum
sveiflum og mörgum mistökum;
hann var þó aldrei leiðinlegur.
!
"
#$
# %&' ' %
Eftir Svan Má Snorrason
Spænskir fjölmiðlar segja að Barce-
lona hafi verið miklu betra liðið en
gengið erfiðlega að brjóta vörn Vill-
arreal á bak aftur og komst að Bar-
bosa markverði gestanna – allt þar
til Eiður Smári lét til sín taka. Hann
féll rétt innan vítateigslínu á 34. mín-
útu og dæmd var vítaspyrna. Mjög
harður dómur og sagði spænska
blaðið Marca meðal annars að hann
hefði leikið ágætlega þegar vítið var
dæmt og slakur dómari leiksins hefði
fallið í gildruna.
Staðan í leikhléi var 1:0 og
snemma í síðari hálfleik skoraði Eið-
ur Smári annað mark liðsins með
skalla eftir flotta sendingu frá
Iniesta sem bætti síðan þriðja marki
liðsins við sjálfur. Spænskir miðlar
segja að Eiður Smáir hafi verið
rangstæður en það hafi farið framhjá
dómaratríóinu.
Fjórða og síðasta mark leiksins
gerði síðan Ronaldinho þremur mín-
útur fyrir leikslok. Sérlega glæsilegt
mark. Hann fékk boltann inn í víta-
teig, tók hann niður á brjóstkassann
og tók síðan bakfallsspyrnu og sendi
boltann í netið. „Þetta er markið sem
mig dreymdi um að skora þegar ég
var lítill,“ sagði Ronaldinho um
markið. „Ég hélt að ég væri rang-
stæður en þegar það var ekkert
flautað og ég hafði náð valdi á bolt-
anum sá ég að hann var í nákvæm-
lega réttri hæð til að reyna bakfalls-
spyrnu,“ sagði Brasilíumaðurinn.
Frank Rijkaard, þjálfari Barce-
lona, sagði að leikurinn hefði ekki
verið eins auðveldur og úrslitin bæru
ef til vill með sér. Hann hrósaði Eiði
Smára fyrir leik hans. „Hann hefur
komið mjög sterkur inn í hópinn hjá
okkur, leikið mjög vel og það sem er
ekki síður mikilvægt er að hann fell-
ur vel inn í hópinn og leikur virkilega
vel fyrir liðið,“ sagði Rijkaard. Um
mark Ronaldinhos sagði þjálfarinn:
„Það var í einu orði sagt stórkost-
legt.“
Eiður Smári hefur nú gert fimm
mörk í spænsku deildinni.
Eiður Smári
skoraði og
fékk víti
EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyrirliði
íslenska landsliðsins í knattspyrnu,
kom mikið við sögu þegar Barce-
lona vann Villarreal 4:0 í spænsku
deildinni á laugardaginn. Eiður
Smári vann vítaspyrnu sem Ronald-
inho skoraði af öryggi úr, hans 50.
mark í spænsku deildinni, og síðan
skoraði Eiður Smári annað mark
Börsunga eftir frábæra sendingu
Iniesta.
AP
Fagnar Eiður Smári Guðjohnsen fagnar markin sínu gen Villarreal.