Morgunblaðið - 27.11.2006, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2006 3
Viggó Sig-urðsson og
lærisveinar hans
hjá Flensburg
endurheimtu
efsta sætið í
þýsku 1. deildar
keppninni í hand-
knattleik með
sigri á Düssel-
dorf, 38:34.
Kiel komst upp að hlið Flensburg,
með 21 stig, með sigri á Wil-
helmshaven á útivelli 34:32.Gylfi
Gylfason skoraði 3 mörk fyrir Wil-
helmshaven.
Alexander Petterson skoraði 8mörk fyrir Grosswallstadt,
sem lagði Minden að velli 30:23. Ein-
ar Hólmgeirsson skoraði tvö mörk,
en Snorri Steinn Guðjónsson skor-
aði 7 mörk fyrir Minden.
Björgvin Björgvinsson og Krist-inn Ingi Valsson, skíðamenn
frá Dalvík, náðu sér ekki vel á flug á
alþjóðlegu móti í svigi sem haldið
var í Salla í Finnlandi á laugardag-
inn. Björgvin féll úr keppni í fyrri
ferð og Kristinn Ingi hafnaði í 49.
sæti. Þeir félagar renndu sér síðan
aftur niður brekkurnar í Salla í gær
og var Björgvin í 25. sæti, en Krist-
inn Ingi féll úr keppni í fyrri umferð.
Hollenska knattspyrnufélagið AZAlkmaar komst í gær í annað
sætið í hollensku deildinni þegar það
lagði Heerenveen 3:1 á útivelli.
Bæði Grétar Rafn Steinsson og Jó-
hannes Karl Guðjónsson léku með
Alkmaar og voru báðir með allan
leikinn.
Alþjóðalyftingasambandið hefuraflétt tveggja ára keppnisbanni
af lyftingasambandi Írans eftir að
sambandið greiddi um 28 millj. kr.
sekt til alþjóðasambandsins. Alls
féllu 9 keppendur frá Íran á lyfja-
prófi fyrir lyftingamót sem haldið
var í Dóminíska lýðveldinu fyrr á
þessu ári og í kjölfarið var íranska
lyftingasambandið úrskurðað í
tveggja ára keppnisbann.
Spænski hjólreiðamaðurinn IsaacGalvez lést aðfaranótt sunnu-
dags af völdum höfuðáverka sem
hann hlaut í hjólreiðakeppni í Dun-
kerque í Frakklandi. Galvez var 31
árs gamall og gerðist atvinnuhjól-
reiðamaður árið 2000 en hann sigr-
aði á 12 mótum á þessu ári.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Sem fyrr segir var um hörkuleik að
ræða og gekk oft mikið á. Valsmenn
byrjuðu betur og heimamenn virtust
ætla að halda sig við sama pró-
gramm og í síðustu leikjum, að lenda
undir og eiga svo á brattan að sækja
allt til loka. Það gerðist þó ekki því
eftir slakan sóknarleik framan af
kom gamli jálkurinn Rúnar Sig-
tryggsson inn á. Í markið kom svo
hinn kornungi Sveinbjörn Péturs-
son. Þessar skiptingar breyttu gangi
mála svo um munaði og Akureyring-
ar nýttu níu af ellefu síðustu sóknum
sínum í fyrri hálfleik og náðu þægi-
legri forystu, 14:11.
Valsmenn komu vel stemmdir í
síðari hálfleikinn og voru fljótir að
jafna metin. Þeir fóru svo að missa
menn út af en náðu samt að halda
frumkvæðinu í leiknum. Akureyr-
ingar áttu enn á ný í miklu basli í
sókninni en markvarsla og vörn
þeirra voru til fyrirmyndar. Þeir
nýttu t.a.m. aðeins þrjár af fyrstu
fjórtán sóknum sínum. Valsmenn
virtust ætla að hafa þetta en síðustu
mínúturnar hreinlega brotlentu þeir
á varnarmúr Akureyringa. Heima-
menn komust yfir þegar fimm mín-
útur lifðu og Valsmenn jöfnuðu um
hæl. Akureyringar skoruðu svo þrjú
síðustu mörkin á meðan Valsmenn
fundu ekki leið framhjá Hreiðari
markverði.
Vörn heimamanna skóp sigur
þeirra en enginn sýndi sérstaka
takta í sókninni. Markverðirnir
stóðu sig vel en Sveinbjörn gaf tón-
inn með flottri markvörslu strax og
hann kom inn á. Valsmenn spiluðu
einnig grimma vörn en skyttur
þeirra nánast hurfu í síðari hálfleik
eftir að hafa spilað vel þann fyrri.
Ólafur markvörður stóð sig vel en
hann dalaði þegar á leið.
Baldvin Þorsteinsson, annar Ak-
ureyringurinn í liði Vals, var fremur
súr í leikslok. „Þetta var lélegt hjá
okkur, vörnin reyndar fín en sókn-
arleikurinn varð okkur að falli eins
og fyrr í vetur. Við létum þá verja of
mikið og boltinn gekk ekki nóg. Bar-
áttan var fín en við fengum á okkur
óþarfa brottvísanir í seinni hálfleikn-
um sem héldu þeim inni í leiknum.
Þetta gat svo dottið hvorum megin
sem var í restina. Þeir voru mjög
klókir og drógu úr tempóinu sem
hentaði þeim mjög vel. Það er svo
sem vel viðunandi að halda þeim í 25
mörkum en á móti kemur að 22 mörk
frá okkur er allt of lítið. En vörnin
hjá þeim var rosaleg, sú besta sem
við höfum mætt í vetur. Við eigum
leik gegn HK fljótlega og getum náð
efsta sætinu á ný fyrir jólafrí. Ann-
ars er mikið eftir og ómögulegt að
segja hvernig þetta endar.“
Annar Akureyringur og fyrrum
leikmaður KA sem nú spilar í Frakk-
landi, Jónatan Magnússon að nafni,
sat uppi í stúku og fylgdist með nýju
liði bæjarbúa. Hann var sáttur við
sína menn. „Þetta var ótrúlega
spennandi. Það var flott að sjá þessa
svakalegu vörn en ég segi bara pass
ef þú ætlar að spyrja mig um sókn-
arleikinn. Það var skrítið að sjá liðið
spila svona blandað en mér leið eins
og þetta væri bara mitt gamla lið.
Þarna eru svakalegir reynsluboltar
og ef þeir lenda í svona jöfnum leikj-
um eiga þeir að vinna þá.“
Valsmenn brotlentu
Akureyringar blanda sér í toppbaráttuna en Valsmenn létu toppsætið
í hendur HK úr Kópavogi eftir þriggja marka tap í hörkuleik á Akureyri
FYRIR norðan áttust Akureyringar
og Valsmenn við í hörkuleik í DHL-
deild karla í handknattleik. Jafn-
ræði var með liðunum nánast allan
leikinn og skiptust þau á að hafa
forystu. Heimamenn voru sterkari
á lokamínútunum og sigu þá fram-
úr. Niðurstaðan varð þriggja
marka sigur Akureyringa og fyrir
vikið misstu Valsmenn toppsætið í
hendur HK. Akureyringar eru enn
með í toppbarátunni, þremur stig-
um á eftir Val og fjórum stigum á
eftir Kópavogspiltum.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Vantar klístur Hörður Fannar Sigþórsson línumaður Akureyrar reynir að góma boltann í leik liðsins gegn Val í
gær en Hörður skoraði þrjú mörk í leiknum þar sem að Akureyri hafði betur og blandaði liðið sér í toppbaráttuna.
(
)
!
"
"
*
# %&' ' %
ÍSLANDSMEISTARALIÐ
Njarðvíkur er úr leik í bik-
arkeppni Lýsingar og KKÍ.
ÍR-ingar komu nokkuð á
óvart með því að leggja
Njarðvík að velli, 71:68, í 32
liða úrslitum. Njarðvíkingar
skoruðu aðeins 9 stig í öðr-
um leikhluta en staðan í
hálfleik var 40:26 fyrir ÍR.
Hreggviður Magnússon
skoraði 16 stig fyrir ÍR og
Ómar Örn Sævarsson tók 14
fráköst. Í liði Njarðvíkur
skoruðu Guðmundur Jóns-
son og
Brenton
Birm-
ingham 14
stig hvor.
Tinda-
stóll lagði
1. deildar
lið Breiða-
bliks
98:82.
Lamar Karim skoraði 27 stig
fyrir Tindastól sem leikur í
úrvalsdeild og Milojica
Zekovic var með 24 stig fyr-
ir Tindastól. Haukar og KR
áttust við en bæði lið eru í
úrvalsdeild. KR-ingar gerðu
út um leikinn í 1. leikhluta
sem endaði 31:17 en lokatöl-
ur leiksins urðu, 108:85, fyr-
ir KR. Brynjar Björnsson
skoraði mest fyrir KR eða 23
stig, Fannar Ólafsson tók 14
fráköst fyrir KR og Tyson
Patterson var með 18 stoð-
sendingar, auk þess skoraði
hann 13 stig. Kristinn Jón-
asson skoraði 23 stig fyrir
Hauka.
ÍR-ingar komu á óvart
Ómar Sævarsson.
GRINDAVÍK komst í gærkvöldi í 16 liða úr-
slit bikarkeppni Körfuknattleikssambands Ís-
lands og Lýsingar með því að leggja Snæfell,
87:82, í Grindavík.
Gestirnir úr Hólminum byrjuðu mun betur
í gær og voru með fína forystu eftir fyrsta
leikhluta, 26:15, og síðan 43:36 í leikhléi.
Grindvíkingar sneru dæminu við í þriðja leik-
hluta sem þeir unnu 27:13 og komnir með
forustu sem þeir létu ekki af hendi.
Steven Thomas var sterkastur Grindvík-
inga með 23 stig og átta fráköst en einnig
áttu Adam Darboe og Þorleifur Ólafsson góð-
an dag.
Hjá Snæfelli var Justin Shouse öflugastur
með 28 stig og fimm sinn-
um stal hann boltanum af
heimamönnum. Hlynur
Bæringsson var með 13
stig og 16 fráköst auk þess
sem hann átti fjórar stoð-
sendingar. Einnig átti Sig-
urður Þorvaldsson fínan
leik.
Af öðrum leikjum í bik-
arnum í gær má nefna að
Keflavík-b, með þá Guðjón Skúlason og Fal
Harðarson fremsta í flokki, lagði KFÍ 99:92 á
Ísafirði og A-lið Keflavíkur vann Hött, 116:59.
Hamar/Selfoss lagði B-lið Njarðvíkur 95:73.
Grindavík áfram í bikarnum
Þorleifur Ólafsson