Morgunblaðið - 27.11.2006, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„Ég sé mikið eftir þessu víti sem ég
klúðraði, það var algjört kæruleysi,
en er ánægður með nýtinguna enda
landsliðsmaður í marki Stjörnunnar,“
sagði Jóhann Gunnar við Morgun-
blaðið að leik loknum. „Við vorum
ekki góðir í fyrri hálfleik en fórum yf-
ir málin í leikhléinu, vissum að þeir
eru þyngri en við og okkur myndi
takast að sprengja það. Í síðari hálf-
leik keyrðum við á þá af fullum krafti
og það skilaði árangri.“
Í stórum dráttum dugar lýsing Jó-
hanns á síðari hálfleiknum. Eftir að
nokkuð jafnt var á með liðunum fyrir
leikhlé, þar sem þó heimamenn voru
nær ávallt skrefi á undan, skorti leik-
menn Stjörnunnar kraft til að klára
leikinn. Liðið skoraði aðeins átta
mörk í öllum hálfleiknum, þar af voru
sex þeirra á fyrstu fimmtán mínútun-
um en þá kom gríðarlega góður leik-
kafli hjá Frömurum sem hreinlega
settu upp varnarmúr fyrir framan
mark sitt og þau skot sem sluppu í
gegn fóru annaðhvort framhjá eða
Björgvin Páll Gústafsson, markvörður
liðsins, varði.
Það segir sína sögu að Björgvin
varði ekki nema ellefu skot í leiknum
öllum en Stjarnan skoraði alls tuttugu
mörk. Roland Eradze, markvörður
Stjörnunnar, varði hins vegar fimm-
tán skot.
Átta mörk í röð hjá Fram
Um miðbik síðari hálfleiks var stað-
an 22:18 en þrettán og hálfri mínútu
síðar var komin upp gjörbreytt staða,
29:18, og hreint út sagt ótrúlegt að
sjá getuleysi Stjörnumanna á þessum
leikkafla. Þeim tókst aldrei að brjót-
ast í gegnum vörnina og voru hvað
eftir annað þvingaðir til að taka skot
utan af velli, oftast nær úr ómögu-
legri stöðu – þrátt fyrir að Brjánn
Bjarnason, hinn sterki varnarmaður
Fram, fengi reisupassann á 49. mín-
útu.
Á sama tíma voru leikmenn Stjörn-
unnar sérlega óheppnir í vörninni og
fengu t.a.m. dæmd á sig fimm víta-
köst og þrjár brottvísanir.
Ekki má gera lítið úr því að mjög
sterka leikmenn vantaði í Stjörnu
ið, s.s. Patrek Jóhannesson og T
Kalandadze sem tóku út leikbann,
Frömurum til hróss má segja að
hafi þeir nýtt sér til hins ýtrasta. Þ
voru afar lunknir við að finna glufu
vörn gestanna sem oft á tíðum hö
engin önnur ráð en að brjóta af sé
oft klaufalega, sbr. þau þrettán v
köst sem Fram fékk í leiknum.
Ellefu marka sigur sýnir vissul
ekki getumuninn á liðunum en ljós
að Kristján Halldórsson, þjál
Stjörnunnar, á verðugt verkefni fr
undan við að endurvekja sjálfstra
leikmanna sinna og finna út hv
vegna þeir voru vart virkir síðu
fimmtán mínútur leiksins. Liðið
sem stendur í fimmta sæti deildari
ar, með sex stig eftir átta leiki líkt
Haukar, en Fylkismenn eru m
fimm stig í sjöunda sæti og með
til góða.
„Okkur skorti kraft til að kl
leikinn og svo brotnuðum við bar
restina,“ sagði vonsvikinn þjál
Stjörnunnar í lok leiks. „Við vorum
mikið út af, með of margar klaufav
ur. Misstum alltaf menn út af þe
við vorum að nálgast þá, svo misst
við þrek og svo fór sem fór – reyn
var þetta fullstórt.“
Þriðji sigurinn í röð
ÍSLANDSMEISTARAR Fram eru
heldur betur að rétta úr kútnum eftir
brösulega byrjun í DHL-deild karla í
handknattleik. Liðið vann stórsigur,
31:20, á Stjörnunni á laugardag og eru
aðeins fjórum stigum frá toppliði HK,
en með leik til góða. Stjarnan mátti
sætta sig við sáran ósigur eftir að hafa
farið inn í síðari hálfleik einu marki
undir, 12:13. Jóhann Gunnar Ein-
arsson var markahæstur heima-
manna, skoraði tíu mörk en þar af
voru níu úr vítaköstum og var hann
með 90% nýtingu af vítalínunni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kraftmikill Haraldur Þorvarðason, línumaður Fram, brýst fram hjá Birni Óla Guðmundssyni, sem er ti varnar.
Feiknasterk vörn Fram var lykillinn að ellefu marka sigri á Stjörnunni í
Safamýri Gestirnir skoruðu aðeins tvö mörk á síðasta stundarfjórðungnum
(
!
"
!+
# %&' ' %
Eftir Ívar Benediktsson í Köln
iben@mbl.is
Í Super-Cup taka þátt sigurliðin þrjú
á Evrópumótunum ár hvert auk gest-
gjafa sem að þessu sinni var Gum-
mersbach. Liðið hafði lagt Lemgo í
undanúrslitum, 34:33, og Ciudad
Real, með Ólaf Stefánsson í broddi
fylkingar borið sigurorð af Medvedi
frá Rússlandi, 37:34, í hinum undan-
úrslitaleiknum sem fram fór á laug-
ardag.
Segja má að leikmenn Gummers-
bach hafi gert of mörg mistök, þá sér-
staklega í fyrri hálfleik. Staðan í hálf-
leik var 18:13, Ciudad Real í vil.
Ólafur Stefánsson lék nær allan leik-
inn með Ciudad og skoraði fjögur
mörk, þar af eitt úr vítakasti. Ljóst er
þó að hann er langt frá því að vera
orðinn góður í vinstri öxlinni en
meiðsli hafa hrjáð hann í allt haust.
Róbert Gunnarsson var jafn besti
leikmaður Gummersbach í úrslita-
leiknum, skoraði sex falleg mörk af
línunni og barðist vel í vörn. Guðlaug-
ur Arnarsson lék allan leikinn í vörn
Gummersbach og stóð fyrir sínu og
gaf Ólafi m.a. engin grið. Guðjón Val-
ur Sigurðsson var hinsvegar langt frá
sínu besta í sókninni, einkum í fyrri
hálfleik þar sem honum brást boga-
listin í sex skotum, þar af í fimm úr
opnum færum. Hann sótti í sig veðrið
í síðari hálfleik og skoraði þá fimm
mörk, þar af fjögur í hraðaupphlaup-
um. Guðjón var að vonum svekktur í
leikslok þegar Morgunblaðið náði af
honum tali. „Ég er afar svekktur út í
sjálfan mig vegna þess hversu illa ég
lék, einkum í fyrri hálfleik þegar ég
nýtti ekki fimm eða sex dauðafæri.
Þar lá munurinn á liðunum að loknum
fyrri hálfleik og því tek ég hluta taps-
ins á mig. Það er einfaldlega svo að
þegar leikið er gegn einu besta liði
heims þá má ekki gera svona mörg
mistök og við gerðum að þessu sinni,
ætli menn sér að vinna,“ sagði Guðjón
ennfremur.
„Það eru einfaldlega alltaf von-
brigði að tapa úrslitaleik. Við erum í
boltanum til þess að vera á meðal
þeirra bestu og þegar komið er í úr-
slitaleik, sama í hvaða keppni það er,
þá viljum við vinna. Ég er afar von-
svikinn út í sjálfan mig fyrir að standa
mig ekki betur en raun varð á. Ég er
einn lykilmanna Gummersbachs-liðs-
ins og það skiptir öllu að sýna allar
bestu hliðarnar í stórleikjunum.“
Ásgeir lék báða leikina
Ásgeir Örn Hallgrímsson lék frá
upphafi til enda báða leikina með
Lemgo í Super-Cup. Hann hefur tek-
ið stöðu Florians Kerhmans í hægra
horninu. Auk þess þá var hann
fremsti maður í 5/1 vörninni sem
Lemgo lék lengst í báðum leikjum.
Ásgeir náði ekki að skora í undanúr-
slitaleiknum við Gummersbach, en sá
leikur tapaðist, 34:33, og fékk Ásgeir
úr litlu að moða. Hann var einu sinni
rekinn af leikvelli. Logi Geirsson lék
aðeins í fjórar mínútur í þeim leik áð-
ur en hann meiddist eins og greint er
frá annars staðar í blaðinu. Guðjón
Valur og Róbert skoruðu fimm mörk
hvor fyrir Gummersbach. Guðlaugur
Arnarson lék nær allan leikinn í vörn
Gummersbach.
Ásgeir hafði meira í frammi í leikn-
um við Medvedi um þriðja sætið í
gær. Hann skoraði þrjú mörk.
Ólafur
meistari
Guðjón Valur Sigurðsson
LÆRISVEINAR Alfreðs Gíslasonar
hjá þýska handknattleiksliðinu
Gummersbach töpuðu fyrir Evr-
ópumeisturum Ciudad Real, 36:31, í
úrslitaleik Super-Cup keppninnar í
handknattleik í Köln Arena í gær
að viðstöddum rúmlega 15.000
áhorfendum.
Morgunblaðið/RAX
GUÐMUNDUR Guðmundsson,
þjálfari Fram, var að vonum
ánægður með leik sinna manna
laugardag en benti á að í lið
Stjörnunnar hefði vantað sterk
menn. Ellefu marka sigur kom
honum þó á óvart. „Ég átti ekk
von á þessu, satt að segja, og í
raun spiluðu Stjörnumenn mjö
vel í fyrri hálfleik. Við hins ve
vissum það í leikhléi að við my
um taka þetta í þeim síðari, ég
var sannfærður um það.“
Guðmundur er afar ánægður
með hve ásigkomulag leikman
er gott um þessar mundir og s
ir reynsluna úr meistaradeild
Evrópu vera að skila sér inn í
deildina. Hann hrósaði vörn sin
sérstaklega fyrir síðari hálfleik
inn þegar liðið fékk aðeins tvö
mörk á sig á fimmtán mínútum
„og átta mörk í öllum hálf-
leiknum. Það segir mikið um h
vörnin var góð. Liðið er einnig
mjög góðu ásigkomulagi og við
nýttum okkur það í þessum lei
Ég held að við séum að komast
gang eftir meistaradeildina og
um kannski komnir í betra leik
form. Það skilar okkur þremur
sigrum í deildinni og einum í b
arkeppninni, þannig að við eru
búnir að vinna fjóra leiki í röð
það er mjög gott fyrir sjálfs-
traustið.“
Skemmtilegur fyrri hálfleik
Fram lék afar erfiðan leik g
Akureyri þremur dögum fyrir
leikinn á laugardag en ekki va
að sjá nein þreytumerki á leik-
mönnum. „Alls ekki og ég var
mjög ánægður með þá. Í raun
fannst mér fyrri hálfleikurinn
mjög skemmtilegur, hann var
hraður og þá spiluðu bæði lið
góðan handbolta. Við reyndar
duttum aðeins niður síðustu tíu
mínúturnar í fyrri hálfleik en a
öðru leyti fannst mér þetta góð
leikur,“ sagði Guðmundur en l
náði fimm marka forystu um
miðjan fyrri hálfleik en Stjörn
menn náðu að klóra í bakkann
ur en flautað var til leikhlés.
Var sann-
færður
um sigur