Morgunblaðið - 27.11.2006, Side 5
ulið-
Tite
, en
það
Þeir
ur á
öfðu
ér –
víta-
lega
st er
lfari
am-
aust
vers
ustu
er
inn-
t og
með
leik
lára
ra í
lfari
m of
vill-
egar
tum
ndar
a á
ka
m
ki
í
ög
gar
ynd-
g
r
na
seg-
nni
k-
ö
m
hve
g í
ð
ik.
t í
g er-
k-
r
bik-
um
ð og
kur
gegn
ar
-
u
að
ður
liðið
u-
n áð-
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2006 5
Indverjinn JeevMilkha Singh
lék vel á lokadegi
Casio-mótsins á
japönsku móta-
röðinni í gær en
hann lék 68
höggum eða fjór-
um höggum und-
ir pari. Singh,
sem var jafn Tetsuya Haraguchi
fyrir lokadaginn, fékk fimm fugla
(-1) og einn skolla (+1) á hringnum
en hann lék samtals á 16 höggum
undir pari vallar á Kuroshio vell-
inum í Japan.
Þetta er annað atvinnumóti sem
hann vinnur í ár en hann sigraði á
Volvo meistaramótinu á Evr-
ópumótaröðinni.
Michelle Wie frá Bandaríkj-unum lék á mótinu og komst
hún ekki í gegnum niðurskurðinn
þar sem hún lék á 17 höggum yfir
pari vallar á fyrstu tveimur keppn-
isdögunum. Þetta var í 12. skiptið
sem Wie reynir sig á karlamótaröð
en hún hefur einu sinni komist í
gegnum niðurskurð á karlamóti.
Margir atvinnukylfingar hafa gagn-
rýnt þátttöku Wie á karlamótum en
hún er 17 ára gömul en hefur ekki
fagnað sigri á atvinnumóti á
kvennamótaröð – enn sem komið
er. Það eru styrktaraðilar atvinnu-
mótanna sem bjóða Wie til keppni
enda vekur hún gríðarlega athygli
– þrátt fyrir slakan árangur.
Annað heims-bikarmót
keppnistímabils-
ins í alpagreinum
á skíðum fór
fram um helgina
í Aspen í Colo-
rado í Bandaríkj-
unum.
Kathrin Zettel
frá Austurríki sigraði í stórsvigi
kvenna en hún kom í mark á
2.16,10 mínútum en Tanja Poutiai-
nen frá Finnlandi var önnur, aðeins
0,28 sekúndum á eftir Zettel. Mich-
aela Kirchgasser frá Austurríki
varð þriðja 0,58 sekúndum á eftir
Zettel.
Þetta var fyrsti sigur hennar í
stórsvigi en hún er tvítug og hefur
aðeins tekið þátt á 8 heimsbik-
armótum á ferlinum.
Anja Pärson frá Svíþjóð féll úrkeppni í fyrstu umferð en hún
sigraði í samanlögðum árangri á
heimsbikarmótum sl. keppn-
istímabils í risasvigi.
Í Lake Louis í Kanada var keppt
í bruni karla í heimsbikarkeppninni
þar sem Marco Buechel frá Liech-
tenstein sigraði á 1.50,72 mínútum
en annar varð heimamaðurinn
Manuel Osborne-Paradis og Ítalinn
Peter Fill endaði í þriðja sæti.
Fólk sport@mbl.is
Fylkismenn virtust reiðubúnir að
rífa sig upp úr lægðinni sem þeir
hafa haldið sig í að undanförnu og
skoruðu grimmt en það spilaði inn í
að lítið bólaði á hinum öfluga varn-
arleik sem HK hefur sýnt í vetur
enda skoruðu Árbæingar úr 19 af 30
sóknum sínum fyrir hlé.
Stórkostleg markvarsla Egidijus-
ar Petkeviciusar fyrstu tíu mínútur
síðari hálfleiks lagði grunn að for-
ystu HK í fyrsta sinn en þar spilaði
líka inn í að Fylkismenn voru einum
færri þann tíma eftir tæpar brottvís-
anir. Kópavogsbúar voru samt ekki
tilbúnir til að fylgja eftir þriggja
marka forystu og þegar rúmar þrjár
mínútur voru eftir var staðan 31:29
Fylki í vil. Hófst þá mikið fjör. Þrjú
varin skot Egidijusar dugði HK til
forystu á ný en átta sekúndum fyrir
leikslok jafnaði Tomislaz Broz fyrir
Fylki. HK rauk í sókn og fékk síðan
vítakast fyrir vægt brot utan víta-
teigs. Fylkismenn urðu æfir og HK-
menn göptu en Valdimar skoraði.
„Bregðumst alltaf í lokin“
„Við hefðum alveg getað gengið
sáttir með jafntefli en það gekk ekki
með þessum dómurum,“ sagði Ás-
björn Stefánsson sem var mjög
drjúgur í horninu og skoraði 8 mörk
úr næstum jafnmörgum tilraunum.
Hann og Eymar Kruger sátu hjá í
síðasta leik Fylkis vegna veikinda en
báru nú uppi liðið. „Við höfum bætt
okkur mikið frá síðustu leikjum og
leikurinn nú var mjög skemmtilegur
en við bregðumst alltaf í lokin. Ég
veit ekki hverju er um að kenna en
sumir leikmenn verða bara stress-
aðir og klikka. Við erum tveimur
mörkum yfir þegar fimm mínútur
eru eftir sem á að vera borðleggjandi
en við virðumst of stressaðir í lokin
og missum leikinn niður.“ Tomislav
spilaði sinn fyrsta leik fyrir Fylki
eftir meiðsli en lítið fór fyrir honum.
Áttum ekki að fá víti
Valdimar Þór var hetja HK með
13 mörk en samt ekki alveg sáttur.
„Það var mikil barátta en við vorum
alls ekki tilbúnir og það voru alltof
margir í okkar liði sem spiluðu mjög
illa svo þetta var mjög erfitt en stigin
voru ótrúlega sæt og dýrmæt,“ bætti
Valdimar við og taldi vítadóminn í
lokin ekki réttan. „Ég verð bara að
segja, þó að við höfum unnið, að
dómgæslan var sérstök. Það byrjaði
strax með að það var dæmdur ruðn-
ingur á allt og menn voru orðnir pirr-
aðir svo að leikurinn gat endað svona
en við áttum ekki að fá vítið í lokin,
það sá ég greinilega.“ Sem fyrr segir
var Egidijus góður, einnig Augustas
Strazdas.
Skrautleg dómgæsla setti svip sinn á leik Fylkis og HK í Fylkishöllinni
Kraftur Arnar Þór Sæþórsson gerði fjögur mörk fyrir Fylki í gær. Til varna er Egidijus Petkevvicius sem stóð sgi vel í marki HK.
HK-menn á toppinn eftir
hæpinn vítakastdóm
SKRAUTLEG dómgæsla í Fylk-
ishöll í gærkvöldi setti mestan svip
á leik Fylkis og HK í gærkvöldi.
Dómarar kórónuðu síðan daginn er
þeir dæmdu afar hæpið vítakast á
síðustu sekúndu en það nægði til að
Valdimar Þór Þórsson skoraði sig-
urmark leiksins, sem lauk með
34:33 sigri HK og skilaði HK efsta
sæti deildarinnar. Leikmenn
beggja liða, sem vissu vart hvaðan á
sig stóð veðrið í lokin, geta svo sem
líka litið í eigin barm því þeir voru
flestir frekar þunglamalegir.
!
"
* ,
# %&' ' %
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
ENSKI kylfingurinn Justin Rose sigraði í
gær á ástralska meistaramótinu í golfi sem
er hluti af Evrópumótaröðinni. Þetta er
fyrsti sigur hans á atvinnumóti frá árinu
2002 en hann sigraði á fjórum mótum á því
ári. Rose var í efsta sæti fyrir lokadaginn en
hann fékk m.a. þrefaldan skolla (+3) á loka-
hringnum sem hann lék á 73 höggum en
dugði til sigurs.
Rose lék samtals á 12 höggum undir pari,
276 höggum, og var tveimur höggum betri en
Ástralarnir Richard Green og Greg Chalmers. „Ég trúi því
varla að það séu liðin fjögur ár frá því ég sigraði síðast,“ sagði
Rose en hann er fyrsti sigurvegari mótsins frá árinu 2001 sem
er ekki ástralskur. Colin Montgomerie sigraði á þessu móti árið
2001. „Sjálfstraustið hefur vaxið hjá mér í þessari viku. Á þessu
ári hef ég verið nálægt því að sigra á nokkrum mótum og það er
gott fyrir alla kylfinga að landa sigri.“
Fjögurra ára bið Rose á enda
Slakur lokahringur
hafði ekki áhrif
Justin Rose
EGGERT Magnússon, stjórnarformaður enska úrvalsdeild-
arliðsins West Ham, sagði í viðtali við BBC á laugardag að það
væri mikill heiður fyrir félagið að David Beckham væri orðaður
við félagið en Eggert varðist allra frétta af gangi mála á leik-
mannamarkaðinum. Eggert var aðalviðmælandi þáttarins
ásamt hinum þekkta sjónvarpsþáttarstjórnanda, Michael Park-
inson, en hann ræddi um gang mála í krikketkeppni þar sem
enska landsliðið stendur í ströngu.
„David Beckham hefur sýnt það sem leikmaður Manchester
United og Real Madrid að hann er frábær leikmaður. Það er
heiður fyrir West Ham ef hann er orðaður við liðið,“ sagði Egg-
ert í þættinum BBC Radio 5 Live Sportsweek.
Eggert bætti því við að það væri í höndum knattspyrnustjór-
ans, Alans Pardews, að óska eftir þeim leikmönnum sem hann
teldi þörf á. „Ég er stjórnarformaður og það er knatt-
spyrnustjórinn sem gerir breytingar á liðinu. Að mínu mati er
ekki hægt að byggja upp lið þar sem stórstjörnur eru í hverri
stöðu,“ sagði Eggert.
Beckham orðaður við West Ham
Eggert verst frétta
af leikmannamálum
MARCO Buechel frá Liechtenstein gaf föður
sínum góða afmælisgjöf í Lake Louis í Kan-
ada á laugardag er hann sigraði á heimsbik-
armóti í bruni en Buechel var aðeins 5/100 úr
sekúndu á undan Manuel Osborne-Paradis
sem var á heimavelli. Buechel tileinkaði föður
sínum sigurinn en Norbert Buechel hélt upp
á sextugsafmæli sitt á laugardaginn.
Peter Fill frá Ítalu varð þriðji.
Austurríkismenn hafa verið sigursælir í
brunkeppninni í Lake Louis á undanförnum
árum. Frá árinu 1999 og fram til ársins 2005 var keppandi frá
Austurríki efstur á palli á heimsbikarmótum í bruni á þessum
keppnistað.
Austurríkismenn náðu sér ekki á strik að þessu sinni en Hans
Grugger varð fjórði og Fritz Strobl, sem hafði titil að verja á
þessu móti, endaði í 19. sæti. Michael Walchhofer sem sigraði í
samanlögðum árangri á heimsbikarmótinu í fyrra varð í 10. sæti.
Liechtenstein fagnaði sigri
Buechel tileinkaði
föður sínum sigurinn
Marco Buechel