Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2007, Qupperneq 1
Hans J. Wegner húsgagnahönn-uður er látinn, 92 ára að aldri.Hann var einn af fremstu hönn-uðum Dana og var þekktur víða
um heim fyrir stóla sína.
Að sögn Aðalsteins Ingólfssonar, for-
stöðumanns Hönnunarsafns Íslands, markar
fráfall Wegners nokkur tímamót í danskri
hönnunarsögu. „Með honum er horfinn sá
síðasti af sexmenningunum sem gerðu Dan-
mörku að stórveldi á vettvangi hús-
gagnahönnunar á árunum 1950–1965, en
nöfn þeirra eru nánast eins og töfraþula:
juhl, Jacobsen, Mogensen, Kjærholm, Pan-
ton og Wegner.“
Aðalsteinn skrifar grein í Lesbók í dag
um Wegner og segir meðal annars frá því
að það sem varð til þess að vekja heims-
athygli á hönnun Wegners hafi verið sú
ákvörðun hins útbreidda bandaríska tíma-
rits Interiors að fjalla um Stólinn undir yf-
irskriftinni „fegursti stóll í heimi“. Þetta
var árið 1950 og Wegner varð
heimsfrægur á einni nóttu.
Stóllinn var til dæmis notaður í
frægum sjónvarpskappræðum
Kennedys og Nixons árið 1961.
Þar með hafði fyrirbærið „Dan-
ish Design“ fest sig í sessi, seg-
ir Aðalsteinn.
Blöð í Danmörku og víðar
hafa minnst Wegners sem eins
af fremstu húsgagnahönnuðum
heims undanfarna daga. Politi-
ken segir að húsgögn hans,
einkum stólarnir sem hann sér-
hæfði sig í alla sína ævi, hafi
komið góðu orði á danska
hönnun um allan heim. „Ævi-
starf hans kom Danmörku á
kortið sem landi gæðahönn-
unar,“ segir Politiken og bætir
við að gæðin hafi náð allt frá
hugmyndinni og samhenginu til
efnisins og framsetningarinnar
og handverksins í verkum
Wegners. Hann hafi þess vegna
haft afgerandi menningarleg
áhrif. » 13
Sá síðasti af sex
meisturum danskrar
hönnunar látinn
Wegner Erlend blöð hafa minnst Wegners sem eins af
fremstu húsgagnahönnuðum heims undanfarna daga.
Listaverk eru umlukin aragrúa athugasemda,
upplýsinga sem eru svo yfirgengilega háværar
að rödd skáldsögunnar eða ljóðlistarinnar heyr-
ist varla. Ég lauk við bók Hermans fullur þakk-
lætis yfir því hversu fáfróður ég var. Hún veitti
mér þögn sem gerði mér kleift að hlusta á tæra
rödd þessarar skáldsögu sem er svona fögur
vegna þess hve óútskýrð og óþekkt hún er.“
Þannig kemst tékkneski rithöfundurinn Mil-
an Kundera að orði í grein um skáldsöguna
Svarta herbergi Damoklesar eftir hollenska rit-
höfundinn Willem Frederik Hermans en hana
telur Kundera vera eitt af best geymdu leynd-
armálum evrópskra bókmennta á síðustu öld.
Hermans fæddist í Hollandi árið 1921 og lést árið 1995 en síðan hafa landar hans litið á
hann sem merkasta skáldsagnahöfund sinn í seinni tíð. Frönsk þýðing á Svarta herbergi Da-
moklesar kom út hjá Gallimard-bókaútgáfunni á síðasta ári. » 10
Hollenskt bókmennta-
leyndarmál
Milan Kundera „Ég lauk við bók Her-
mans fullur þakklætis.“
Laugardagur 10. 2. 2007
81. árg.
lesbók
STJÖRNUSTRÍÐ Í 30 ÁR
HIÐ RÉTTA OG SLÉTTA ÆVINTÝRI HÖFÐAR NÚ TIL
ANDÚÐAR NÚTÍMAMANNSINS Á SJÁLFUM SÉR » 8–9
Enn einn harmleikurinn í sögu Önnu Nicole Smith » 2
Morgunblaðið/RAX
Lay Low „Við vorum svartsýn á þetta, fannst þetta glatað og maður var hræddur um að maður
ætti eftir að sjá eftir þessu,“ segir Lay Low um verðlaunaplötu sína í viðtali í Lesbók. » 4-5