Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2007, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2007, Page 9
er í Snorra-Eddu eða í Stjörnustríði reynist hið illa þeim mun hættulegra vegna þess að það er alls ekki annarlegt þó að það virðist framandi heldur er það þvert á móti hluti af okkur sjálf- um. Þeir þættir myndarinnar sem mér fannst erf- iðastir þegar ég var ellefu ára hafa síðan reynst áleitnastir, kennsla Yoda litla, efi og linka Loga Geimgengils og sú staðreynd að myndin endar ekki vel. Svo verða nánast ósýnileg straumhvörf rétt fyrir sögulokin þar sem Svarthöfði horfir á eftir Loga sleppa úr greipum sér, án þess að hafa fram að því sýnt á sér snöggan blett. En þegar sonurinn sleppur frá honum kæfir Svart- höfði ekki aðmírálinn sem bar ábyrgð á þessu axarskafti með Mættinum eins og hann hafði áð- ur gert við forvera hans heldur snýr sér bara við og gengur burt, aðeins hægari skrefum en vant er. Því að annars er Svarthöfði skálmari. Í nýju myndunum (einkum þeim tveimur seinustu) skundar hann alltaf eins og hann sé í latínu þar sem enginn gengur heldur skunda menn ýmist eða spássera. Þegar hann lendir flugvél stekkur hann úr henni og hleypur af stað. Þessa óþol- inmæði þekki ég úr eigin fari og hún á sinn þátt í aðdráttarafli Svarthöfða þar sem hún er æsku- merki en með öllu andstæð hinum rosknu jed- iriddurum sem jafnan eru yfirvegaðir – í því ljósi er kannski helsti veikleiki fléttunnar í nýju myndunum að það hafi hvarflað að nokkrum að Svarthöfði væri efnilegur jedi. En þessi yfirveg- un er kannski heldur fjarlægari ungum áhorf- endum myndanna en óþolinmæði Svarthöfða sem þrátt fyrir vélrænt yfirbragð er líkari þeim sjálfum. Þess vegna skapar það ákveðin kennsl þegar Svarthöfði röltir skyndilega rólega í átt að áhorfendunum, í stað þess að bölva og ragna við mótlætið, eins og illmenni gera stundum í ein- földum sögum. Ég hef líka alltaf verið asmaveikur, eins ósvalt og það nú er. En eins og allir vita á Svarthöfði erfitt með andardrátt og hann getur því ekki læðst aftan að mönnum – sem kemur sér vita- skuld illa fyrir illmenni. Þegar ég sá nýjustu myndina var ég sjálfur með asma vegna kvefs. En ekki aðeins ég heldur líka vélfinngálknið Grievous hershöfðingi, keisarinn illi og að lokum Svarthöfði þegar hann fær grímuna. Eitt merki- legasta einkenni Stjörnustríðs er sannfærandi asmi sem er sjaldgæfur í kvikmyndum því að jafnvel í bestu bíómyndum (til dæmis Mót- orhjóladagbókunum) fá annars ágætir leikarar ekki sannfærandi asmaköst. Svarthöfði er þar með eitt af mörgum fötluðum illmennum í af- þreyingarmyndum nútímans, en það er efni í aðra sögu. Þó að Stjörnustríð beinist beint að mér enda eðli einfaldra sagna að tala beint við mann, þá veit ég auðvitað að Svarthöfði er ekki með asma mín vegna heldur hefur þessi veikleiki hans þau áhrif að skapa almennan patos sem kom að góð- um notum þegar hann breyttist skyndilega í hetju í The Return of the Jedi (1983) og í nýrri myndunum þar sem við eigum að finna okkur í ungmenni á leið til skuggahliðarinnar. Grunn- urinn að þessu lokauppgjöri er lagður í þessu einfalda atriði þegar Svarthöfði gengur hægum skrefum burt frá glötuðu takmarki sínu – skemmtilega undirförult og djúpt atriði sem myndar skarpa andstöðu við verðlaunaafhend- inguna í lok fyrstu myndarinnar. Í seinasta kafla upphaflegu bíómyndaþrenningarinnar er svo merkingu fyrstu myndarinnar alveg snúið á haus því að þar er Svarthöfði hetjan og bjargar Loga Geimgengli úr klóm keisarans. Og fyrst þótti mér meira en lítið óviðkunnanlegt þegar gríman var tekin af Svarthöfða og hann reyndist vera frekar venjulegur maður. Því að ég hafði eins og líklega flestir lagt mann og búning að jöfnu – eins og hið snjalla íslenska nafn hans knýr okkur til. Í raun og veru var Stjörnustríð frá upphafi texti þar sem allt var öfugt við það sem sýndist í fyrstu. Vélmennin voru mennsk en mennirnir vélrænir. Óvætturin var ekki aðeins faðirinn heldur líka söguhetjan þegar upp var staðið. Það sem eftir stóð var bygging ævintýrisins. Sagan hefst þegar illu öflin eru ráðandi en þeim er að lokum steypt og hið góða erfir landið. Það tók þrjár tilraunir og í millikaflanum er endirinn reyndar ekki farsæll heldur aðeins viðunandi. Samt gerir þetta form ekki sömu kröfur og for- málinn sem Lucas kvikmyndaði síðar (1999– 2005). Vondikallinn er með asma Nýju kvikmyndirnar þrjár falla illa að ævintýra- formgerðinni að því leyti að frá upphafi liggur fyrir að þeim lýkur ekki aðeins með sigri hins illa og falli hins góða heldur lá fyrir að höfuð- atriðið yrði spilling og fall söguhetjunnar. Þetta var dregið fram í prýðilegu auglýsingaspjaldi fyrir fyrstu nýju myndina þar sem aðeins sést lítill drengur en sá varpar af sér skugga skrímsl- isins sem við vitum að hann mun breytast í. Eig- inlega segir þetta spjald söguna ekki síður vel en allar nýju myndirnar þrjár – í nútímanum er kynningin stundum betri en myndin. Nýju myndirnar gera það mjög erfitt að ræða bálkinn því að með þeim varð fyrsta myndin sú fjórða en sú fjórða sú fyrsta því að fyrri kaflinn gerist á eftir þeim seinni – sem raunar er ágætis óður til miðaldabókmennta þar sem vinsælar sögur af Örvar-Oddi leiddu til dæmis til þess að sögur föður hans og afa voru samdar í kjölfarið. Þegar síðari myndirnar þrjár komu í bíóhús var ég fullorðinn og tortrygginn (eins og hin fríkin) og varð fyrir vonbrigðum með myndina sem oft- ast er kölluð Episode I (1999). Henni var al- mennt illa tekið og margir sukku djúpt ofan í fúlismann. Til að láta reiðina ekki eyðileggja myndaflokkinn í heild sinni var mestri heift snú- ið gegn talandi Disneykengúru í litlu hlutverki. En kannski óttuðumst við gömlu áhorfendurnir að ævintýrið væri úrelt og heyrði til áttunda áratugnum, eins og appelsínugulu geimbúning- arnir í fyrstu myndinni. Og vildum ekki láta reyna á hvort það væri sígilt eða hyrfi einsog áttundi áratugurinn okkar hafði gert. En auðvit- að var aðalvandinn að í myndinni er Svarthöfði tíu ára og barnasálfræði er ekki styrkur amer- ískra kvikmynda. Í Attack of the Clones (2002) varð Svarthöfði unglingavandamál og það gekk upp með hjálp leikarans sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur þekktu sem drenginn úr Fíklaskólanum og er stöðugt í fýlu og reynir ekki einu sinni að heilla áhorfendur. Leikarinn sem leikur Svarthöfða ungan (Hayden Christensen) getur oft leikið vel en hins vegar eiga hefðbundin lögmál um leiklist illa við í Stjörnustríði og Svarthöfði er mun áhrifameiri sem goðsagnavera en sem mann- eskja sem þokkalegur leikari gæti komið til skila með hefðbundnum leiðum. Það sem þó tekst sæmilega er að láta áhorfandann smám saman taka sér stöðu með Svarthöfða og lenda í synda- fallinu með honum. Það sem seinni kvikmynd- irnar þrjár eiga að sýna fram á er að hið illa er ekki lengur faðir okkar heldur við sjálf. Lokakafli verksins (Revenge of the Sith, 2005) er sérkennilegasta kvikmyndin að því leyti að hún er varla sjálfstætt verk heldur landa- mærasaga, eins og kemur fram í lokin þegar þess er gætt að ljúka sögunni við 28 ára gamalt upphaf Stjörnustríðs, á tveimur sólum. Allar nýju myndirnar eiga það raunar sammerkt að bæta ekki miklu við söguna sem var undir yf- irborðinu í gömlu myndunum heldur sýna hana með miklum látum og brauki og bramli sem raunar er mjög í anda gömlu myndinna. Þeim tekst líka það ætlunarverk sitt að draga áhorf- endur sem hafa séð eldri myndirnar inn í eigin nostalgíu og einkum okkur upphaflegu áhorf- endurna sem líður eins og barni sem sér fortíð sína í svip og skilur margt betur sem áður var óskýrt. Núna skiljum við loksins hvers vegna Obi-Wan slökkvir á geislasverði sínu árið 1977 (það er auðvitað þessi spásögn um að það séu ör- lög Svarthöfða en ekki hans sjálfs að koma á jafnvægi í Mættinum) og hvers vegna Logi kemst upp með að ljúka ekki þjálfuninni sem faðir hans féll á (því að það er faðirinn sem á að sigra keisarann, ekki sonurinn, en Logi lærir aftur á móti að enginn vinnur neina glímu nema við sjálfan sig). Þetta eru auðvitað einkum smærri atriði en fyrir gamla Stjörnustríðsáhorf- endur er nauðsynleg útskriftarathöfn að sjá þennan lokakafla og standa í senn frammi fyrir lífi sínu og dauða enda eru myndirnar sex ævi- saga í öfugri röð og úr því að það tók þrjá ára- tugi að gera þær eru þær líka ævisaga okkar aðdáendanna og færa okkur beint til ársins 1977. Þar eiga nefnilega myndirnar heima og engin tækni kemur þeim þaðan. Í nýrri myndunum voru vélmennin höfð með en þau skipta miklu minna máli, einkum þegar nær dregur sögulokum og ekki má trufla sam- band okkar við Svarthöfða. Þó á C3PO eina átakanlegustu setningu seinustu myndarinnar, þegar skuggahlið Máttarins umlykur allt og hann segir: I feel so helpless, í sama tón og við höfum vanist á að hlæja að í hinum fimm mynd- unum. En þannig líður sjálfsagt mörgum í hvert sinn sem þeir sjá Bush Bandaríkjaforseta í sjón- varpinu. Svo að hláturinn verður holur, eins og í því vélmenni sem við erum. Það er eiginlega meira en lítið skrýtið að nú- tímamaðurinn skuli eiga svona auðvelt með að samsama sig vélmennum eða svörtu illmenni með asma. Og ekki síður að hugsjón þessarar sögu er á hinn bóginn fámennur hópur of- urmenna, jedireglan sem stendur vörð um lýð- veldið en er ekki fyrir hvern sem er, heldur krefst náttúrulegra hæfileika í bland við lærða þekkingu á Mættinum. Mátturinn er draumur um búddíska sjálfsstjórn og það eina sem er nú- tímalegt við þann draum er sú óbeit á tækni- væddu eðli nútímans sem í honum felst. Hinar miklu vinsældir Stjörnustríðs stafa því ekki af því að sagan sé í takt við tímann heldur er hún einmitt úr öðrum tíma og vegna þess að við er- um of ófullkomin fyrir jediregluna neyðumst til að finna okkur sjálf í vélmennum eða í óþreyju- fullu og spilltu illmenninu. Og hverfa að lokum inn í svarta búninginn sem síðan er fangelsi hans. Hann reynist mesti nútímamaðurinn og sá sem við skiljum best. Fall hans verður því okkar fall. Vinsældir Stjörnustríðs eru í raun fremur þversagnakenndar, eins og nútímamaðurinn yf- irleitt. George Lucas hefur orðið ríkur og fræg- ur á að skilja að samtíminn er á móti sjálfum sér (og raunar líka fyrir að finna upp nýtt hljóð- kerfi) og velgengni hans sýnir að sennilega er fátt meira gamaldags í upphafi 21. aldar en að vera ekki uppsigað við nútímann. Þess vegna reynir nútímamaðurinn að finna sig í ævintýri um reglu hinnar fullkomnu sjálfsstjórnar sem hann á næstum engan möguleika að ná og sem söguhetjan missir einmitt úr höndum sér þegar mest á reynir. Nútímamaðurinn virðist vera ófá- anlegur til að trúa á sjálfan sig – hann reynir kannski að trúa á draumsýn um hetju í ljósum júdóbúningi réttumþaðbil að öðlast nirvana en veit samt af sér illum og föstum inni í svörtu ólíf- rænu hylki. mennanna undinn og vildi ekki hugsa um geiminn en var nni,“ segir Ármann Jakobsson. Höfundur er bókmenntafræðingur. Revenge of the Sith Þriðji kaflinn í Stjörnustríði og síðasta myndin sem gerð var. Þessar seinni myndir eru ofhlaðnar nýrri kynslóð brellna og jafnast ekki á við fyrri þrennuna, að mati sumra. Fallið Nýju myndirnar falla illa að ævintýraformgerðinni, höfuðatriðið er spilling og fall söguhetjunnar. Return of the Jedi Logi geimgeng- ill og Hans Óli í lokauppgjörinu. » Okkur sjö ára áhorfendum fannst örugglega flestum fátt betra en að Hans Óli og Logi Geimgengill væru verðlaunaðir, eins og við vonuðumst kannski til að verða sjálf ef við stæðum okkur vel í skólanum eða á öðrum vettvangi. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2007 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.