Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2007, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Árna Tómas Ragnarsson
ÍLesbókargrein um daginn fjallaði ég umvanda Íslensku óperunnar, sem felst íhratt minnkandi aðsókn að sýningumhennar. Ég rakti litla aðsókn m.a. til vit-
lauss verkefnavals, en á síðustu árum hafa oft
verið valdar til sýningar óperur, sem hvergi
njóta mikilla vinsælda. Ég benti á að á tiltölulega
skömmum tíma hefur árleg aðsókn að meg-
inverkefnum Óperunnar, sem að jafnaði eru um
tvö á ári, dottið úr 20–30 þúsund manns niður í
um sex þúsund. Ég leyfi mér að halda því fram
að í hvaða fyrirtæki eða stofnun sem er, flug-
félagi eða leikhúsi, hefði slíkt hrun í miðasölu
kallað á háværa gagnrýni og kröfu um brýna úr-
lausn.
Nú hef ég fengið tvær andmælagreinar í síð-
ustu Lesbókum þar sem hvorugur aðilinn mót-
mælir hruni aðsóknar heldur leitast við að rétt-
læta það. Höfundar virðast ekki skilja alvöru
málsins og er ég því knúinn til að árétta mál
mitt, en vísa a.ö.l. til fyrri greinar (sem lesa má á
mbl.is eða musik.is).
Tenór talsmaður Óperunnar
Tenórsöngvarinn frækni, Gunnar Guðbjörnsson,
andmælti mér fyrst. Ég ætla ekki að staldra við
margt í grein Gunnars, sem gefur tóninn í upp-
hafi með því að segja að: „Leikhús á Íslandi eigi
að forðast að einskorða sig við verkefni til gull-
tryggðrar aðsóknar.“ Síðan gerir hann lítið úr
gildi þess að sýningar fái góða aðsókn o.s.frv.
Hann sakar mig um vanþekkingu á óp-
erumálum, sem vel má vera rétt. Þó vil ég taka
fram að ég fylgdist náið með og tók þátt í rekstri
Íslensku óperunnar um 10 ára skeið og öðlaðist
við það meiri þekkingu á óperurekstri en bæði
núverandi óperustjóri og stjórnarformaður Ís-
lensku óperunnar höfðu þegar þeir hófu störf.
Ég held raunar að ekki þurfi mikla þekkingu til
að átta sig á því að aðsóknartölur skipta miklu
máli við rekstur óperuhúsa þótt auðvitað beri að
hafa fleira í huga í því sambandi.
Í vörn sinni fyrir verkefnavali Íslensku óp-
erunnar segir Gunnar að „nauðsynlegt sé að
byggja upp nýja kynslóð áhorfenda“. Hann virð-
ist telja að til þess sé betur fallið að sýna lítt
þekktar óperur á borð við Flagari í framsókn,
sem ekki hafa notið almennra vinsælda, en óp-
eruperlur á borð við Carmen og La traviata, sem
sýndar yrðu í þriðja eða fjórða sinn á Íslandi – á
50 árum! Þessar óperur eru þó enn ásamt öðrum
kassastykkjum uppistaðan í verkefnavali flestra
óperuhúsa heims. Ég vil líka leyfa mér að benda
á að nú eru liðin 22 ár síðan Carmen var sett á
svið Óperunnar, 21 ár frá Il trovatore, 15 ár frá
Rigoletto o.s.frv. Heilu kynslóðirnar hafa þannig
ekki fengið tækifæri til að kynnast þessum
meistaraverkum á Íslandi og litlar líkur á því að
aðrir hafi þegar fengið sig fullsadda á þeim á
meðan framboðið er ekki meira en raun ber
vitni.
Í niðurlagi greinarinnar mærir Gunnar óp-
erustjóra sinn „fyrir það hugrekki að leyfa óp-
erunni að fá að vera meira en skemmtun, nefni-
lega listform“. Með þessum orðum endurspeglar
Gunnar það hugarfar, sem að baki grein hans
býr. Ég geri ráð fyrir því að fleirum en mér finn-
ist hann þar gera næsta lítið úr þeim listrænu af-
rekum, sem unnin hafa verið af íslenskum óp-
erusöngvurum og öðru óperulistafólki á Íslandi í
rúma hálfa öld; afrekum sem íslenskur almenn-
ingur hefur kunnað vel að meta miðað við að-
sóknartölur.
Minni aðsókn margborgar sig?
Fyrir mörgum árum gerði kvikmyndaleikstjór-
inn Mel Brooks óborganlega gamanmynd, sem
hét The Producers. Í myndinni var sagt frá leik-
húsmönnum, sem höfðu komist að því að þeim
mun minni aðsókn sem leikrit þeirra fengi því
meira myndu þeir græða á uppsetningunni.
Þeirra versta martröð var því góð aðsókn. Það
var fyndið.
Svo virðist sem Íslenska óperan sé nú í þeirri
stöðu að þurfa að sýna óvinsælar óperur til að
geta haldið sér fjárhagslega á floti með því að
hafa sýningar sem fæstar. Nú þekki ég rekstr-
artölur Óperunnar ekki mjög vel, en mér skilst
að kvöldkostnaður við sýningar á óperum sé
talsvert hærri en skili sér til baka með miðasölu,
jafnvel þótt uppselt sé. Sem sagt, – því fleiri sýn-
ingar, þeim mun meira tap verður á öllu saman.
Samkvæmt Gunnari eru 6–12 sýningar „sá
fjöldi, sem er fjárhagslega framkvæmanlegur“.
Það finnst mér ekki fyndið.
Sá hængur er líka á röksemdum Gunnars að
ýmsar óperur, sem valdar hafa verið, trekkja svo
lítið að oft hefur ekki einu sinni náðst góð sæta-
nýting á þessar 6–12 sýningar. Með því að sýna
Carmen hefði þó alla vega verið uppselt á 6–12
sýningar í salnum, en ekki hálftómt eða miðar á
útsölu!
Háar niðurgreiðslur á miðaverði
Þetta má líka skoða í öðru ljósi. Á sl. hausti var
endurnýjaður samningur Íslensku óperunnar
við menntamálaráðuneytið um fast framlag rík-
isins til starfseminnar. Óperan mun nú fá um
150 milljónir króna á ári skv. samningnum og
hefur framlag ríkisins a.m.k. tvöfaldast á fáum
árum. Verkefni Óperunnar eru fyrst og fremst
uppsetning á tveimur óperum á ári. Eitthvað
smávegis annað er líka gert á vegum Óp-
erunnar, sem hefur þó tiltölulega lítinn kostnað
í för með sér. Drögum það samt frá rík-
isstyrknum sem nemur þriðjungi upphæð-
arinnar, þótt yfirdrifið sé. Þá er það einfalt
reikningsdæmi að gera ráð fyrir því að hver
meginuppfærsla Óperunnar sé niðurgreidd með
ríkisframlagi að upphæð a.m.k. 50 milljónir
króna. Miðað við þá aðsókn, sem verið hefur að
sýningum Óperunnar á undanförnum árum (3–
4000 manns á hverja uppfærslu, innifalið fullt af
boðsmiðum og miðar á niðursettu verði) er hver
miði niðurgreiddur af opinberu fé með um 10–
15 þúsundum króna. Það borgar sig sannarlega
að fara í óperuna! Því má líka bæta hér við að
þegar aðsóknartölur eru orðnar lágar er það
meira eða minna alltaf sama fólkið sem mætir
og nýtur niðurgreiðslnanna.
Ég held að ágreiningur minn við stjórn Óp-
erunnar um verkefnaval og afleiðingar þess
endurspegli ekki aðeins mismunandi listrænar
áherslur heldur miklu fremur hitt – hvernig al-
menningi sé best þjónað og takmörkuðum fjár-
munum sem best varið. Það væri tvímælalaust
til bóta fyrir umræðuna að fá opinberaðar tölur
um þróun í fjölda sýninga Óperunnar und-
anfarin ár, aðsóknarfjölda á hverja sýningu,
fjölda seldra miða og hvert sé hlutfall miðasölu í
heildartekjum Íslensku óperunnar, sem mig
grunar reyndar að hafi farið mjög hratt lækk-
andi þrátt fyrir hátt miðaverð.
Óperureikningsdæmi
Það vill svo til að núverandi óperustjóri var ein-
mitt að gera samning við fv. hagfræðiprófessor
og núverandi rektor Háskólans í Bifröst um ein-
hvers konar hagfræðirannsóknir á menning-
unni. Ég vil stinga upp á því að þeir byrji á að
reikna saman út eitthvað sem kalla mætti
„breytilegar hagstærðir í sambandi við aðsókn
að óperusýningum“.
Mig langar til að leggja fyrst fyrir þá lítil
dæmi og hjálpa svo aðeins til við svörin:
a) Ef það kostar 50 milljónir að setja upp óp-
eru, sem er sýnd aðeins átta sinnum, hversu
mikið kostar þá hver sýning? (Ekki kíkja strax,
en svarið er rúmar sex milljónir.)
b) En ef það er einnar milljón króna viðbót-
arhalli fyrir hvert kvöld sem sýnt er, hvað kost-
ar þá hver sýning? (Ekki kíkja alveg strax, en
svarið er rúmar sjö milljónir.)
c) En ef sýnt er 30 sinnum, t.d. Carmen?
(Þetta er miklu erfiðara svo hugsið ykkur vel
um!)
Nú má kíkja: Svarið er 50 milljónir deilt með
30 sýningum, sem gerir tæpar tvær milljónir
króna á kvöldi plús ein milljón í viðbótarhalla á
hverju kvöldi, sem gerir þá tæpar þrjár millj-
ónir króna í halla á hverri sýningu, sem er þá
meira en helmingi minni halli á hverja sýningu
en í fyrsta dæminu þar sem sýnt var átta sinn-
um.
Þannig mætti sýna skemmtilega óperu 30
sinnum fyrir minni pening en tvær leiðinlegar
óperur samtals 16 sinnum! Þá yrði hvert sæti
ekki lengur niðurgreitt með 10–15 þúsund krón-
um eins og nú er heldur með um sex þúsund
krónum. Miklu fleira fólk færi í Óperuna og um
leið fengju íslenskir óperusöngvarar, kór og
hljóðfæraleikarar miklu meira til að fást við en
nú er. Sem sagt – allra hagur!
Í stuttu máli þýðir þetta að hver óperuupp-
færsla, sem fær góða aðsókn (30 sýningar), er
miklu ódýrari en sú sem fær litla aðsókn (6–8
sýningar) enda var The Producers gamanmynd,
en ekki alvarleg hagfræðigreining frá Bifröst.
Þetta ætti nú meirihluti stjórnar Íslensku óp-
erunnar svo sem að skilja manna best því þeir
voru einmitt valdir til setu í stjórninni sem
fulltrúar efnahagslífsins (!), ef ég man rétt.
Hin háleita list blómstrar – fyrst nú?
Um grein Bjarna óperustjóra ætla ég ekki að
hafa mörg orð. Þar leggur hann mér til bæði orð
og skoðanir, sem ég hirði ekki um að leiðrétta.
Augljóst er af máli hans að hann hefur ekki
góða yfirsýn yfir hinn harða óperuheim þar sem
kassastykkin eru því miður alltof fá (20–30) og
eru t.d. óperurnar, sem hann nefnir, Öskubuska
og Brottnámið úr kvennabúrinu, hvorug í þeim
hópi; – meistaraverk eins og þau eru nú samt.
Bjarni segir m.a.: „Ég held hins vegar að ein-
hliða áhersla á fáar vinsælar óperur sé vísasta
leiðin til glötunar fyrir óperuhús sem hefur
metnað fyrir listformið og ber virðingu fyrir óp-
erulistamönnum og óperuáhugafólki. Eins sjálf-
sagt og það er að sýna hinar sígildu óperur fyrir
nýjar kynslóðir …“
Já, það vantar ekki fínu orðin eins og „list-
rænan metnað“ í þessa kalla, en er virkilega
hægt að verja allt með svona snakki? Er í lagi
að tala svona til þeirra, sem störfuðu við óp-
erusýningar á Íslandi í hálfa öld á undan
Bjarna? Höfðu þeir þá engan listrænan metnað
eða markmið? Og hvað er að marka orð óp-
erustjórans þegar – eins og fram kemur hér að
ofan – það eru t.d. 21 ár liðið frá síðustu sýningu
Carmen og samt er Óperan núna að fara að
sýna „nýjum kynslóðum“ lítt þekkta Stra-
vinsky-óperu!
Sumar listgreinar virðast lifa sæmilegu lífi án
þess að vekja áhuga almennings. Þar virðast
óháð og „háleit“ listræn markmið ein saman
geta ráðið ferð og listamenn fengið í friði að
sinna iðju sinni. Afstaða listamannsins er þá
hans einkamál, – hann tekur m.a. fjárhags-
legum afleiðingum af því að kjósa að höfða ekki
til markaðarins. Leikhús og óperuhús hafa
hingað til ekki nema í litlum mæli getað leyft sér
slíkan „munað“ heldur verið háð aðsókn að
miklu leyti enda rekstur þeirra dýr og kostaður
að hluta af aðgangseyri og að hluta af al-
mannafé. Sömu lögmál ættu að sjálfsögðu einn-
ig að gilda um óperuhús á Íslandi, – raunar býð-
ur einmitt mannfæðin ekki upp á annað en að
sýnd verði verk, sem njóta almenningshylli, –
þ.e. kassastykki, í enn ríkari mæli en gert er í
erlendum stórborgum.
Kassastykki óskast!
Hitt er svo annað að flestir myndu kjósa aukna
fjölbreytni í sýningavali óperuhúsa, þ.e. að það
væri æskilegt að kassastykkin í óperuheiminum
væru fleiri en þessar sömu 20–30 óperur og ver-
ið hafa í áratugi. Við þennan vanda glíma óp-
eruhús úti um allan heim og er erfitt við hann að
eiga af því að tónskáldin hafa alls ekki staðið í
stykkinu í tæp hundrað ár eða frá því Puccini
lauk næstum því við Turandot. Eftir það hefur
engin ópera verið samin, sem hægt er að kalla
kassastykki, – almenningur sækir nær ein-
göngu í óperur frá Mozart til Puccinis. Óp-
eruheimurinn er því farinn að minna á safna-
heiminn, sumir segja að óperan sé ekki lengur
lifandi listform. Það er sem betur fer ekki satt
því hún er að því leyti til sprelllifandi að frábær-
ir söngvarar halda áfram að koma fram og góð
tónlist lifir að eilífu. Ástríðurnar í brjóstum
fólks, sem gömlu verkin endurspegla svo vel,
hafa líka haldist óbreyttar og því hefur aðsókn
að gömlu óperunum aðeins minnkað lítillega í
heiminum síðustu árin þrátt fyrir ákafa sam-
keppni úr ýmsum áttum.
Ég vil í lokin leyfa mér að segja að þegar að-
sóknartölur eru skoðaðar þá blasir við að með
verkefnavali síðustu ára hefur stjórn Íslensku
óperunnar gert harða atlögu að óperuáhuga al-
mennings á Íslandi með því að rækta jarðveginn
fyrst og fremst fyrir aðeins fáa útvalda. Ég spyr
því; er þetta það sem almenningur og yfirmenn
menningarmála vilja? Eigum við að reka svona
óperustefnu? Fyrir mína hönd svara ég neit-
andi. Carmen.
Aflabrestur í óperunni!
Gamanmynd í Óperunni Í The Producers eftir Mel Brooks var sagt frá leikhúsmönnum, sem höfðu komist að því að þeim mun minni aðsókn sem
leikrit þeirra fengi því meira myndu þeir græða á uppsetningunni. Sama lögmál virðist vera haft að leiðarljósi í Óperunni um þessar mundir.
Deilan um verkefnaval og stefnumótun Ís-
lensku óperunnar heldur áfram. Sá sem hóf
umræðuna ritar nú aðra grein þar sem hann
heldur því meðal annars fram að Íslenska óper-
an sé nú í þeirri stöðu að þurfa að sýna óvinsæl-
ar óperur til að geta haldið sér fjárhagslega á
floti með því að hafa sýningar sem fæstar.
Höfundur er læknir.
»Miðað við þá aðsókn, sem
verið hefur að sýningum
Óperunnar á undanförnum ár-
um (3–4000 manns á hverja
uppfærslu, innifalið fullt af
boðsmiðum og miðar á nið-
ursettu verði), er hver miði nið-
urgreiddur af opinberu fé með
um 10–15 þúsundum króna.