Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2007 15
Eftir Jón B.K. Ransu
ransu@mbl.is
S
jónþingið gekk þannig
fyrir sig að skjámyndir
af verkum listakon-
unnar voru sýndar á
tjaldi, þrískipt eftir
þemanu; tíma, afstæði
og gildi. Rúrí greindi svo frá því sem
fyrir augun bar með einstaka inn-
leggi frá Laufeyju Helgadóttur,
stjórnanda þingsins. Þess á milli
spjölluðu þeir Halldór Björn Runólfs-
son og Gunnar Árnason við listakon-
una auk þess sem gestir utan úr sal
komu með fyrirspurnir. Að því loknu
var gestum boðið að skoða yfirlit á
verkum hennar á tveimur hæðum
menningarmiðstöðvarinnar. Var
þingið ágætlega sótt og athugavert
hve konur voru í miklum meirihluta.
Rúrí tilheyrir frekar fámennum
hópi íslenskra myndlistarmanna sem
taka afgerandi pólitíska afstöðu í
verkum sínum og vill listakonan
tengja það vissri réttlætiskennd sem
hún ólst upp við þar sem hún lærði að
standa með þeim sem henni fannst
vera misboðið.
Rúrí vakti fyrst athygli á áttunda
áratug síðustu aldar með róttækum
gjörningum eins og þegar hún murk-
aði niður Mercedes Benz með sleggju
og setti amerísku fánalitina (stars
and stripes) í íslenskan þjóðbúning.
Þessir gjörningar voru hrein og bein
helgispjöll sem deildu á efnishyggju
en sýndu jafnframt fram á hverf-
ulleika efnislegra gilda. Þessi hverf-
ulleiki átti eftir að fylgja verkum
Rúríar þótt öllu heimspekilegri og til-
vistarlegri spurningar tækju að móta
list hennar þegar á leið, eða þegar
listakonan hóf meðvitað að velta fyrir
sér tengslum manna og jarðar og al-
heims.
Hverfulleiki og gildi
Rústir bygginga sem listakonan vann
með um tíma sýna hverfulleika
menningar sem hvort tveggja getur
eyðst hægt í tíma og/eða í skyndi á
stríðstímum. Rústirnar eru gott
dæmi um þá tilhneigingu Rúríar að
kasta fram fleiri en einum möguleika
ásamt skýrum túlkunum og oft með-
vituðum þversögnum. Athyglisverður
punktur kom frá Halldóri Birni þegar
hann nefndi að sér þætti listaverk
Rúríar vera í senn rökræn og „su-
blime“ (ægifögur) og vísaði þar með
til rannsókna hennar á metranum og
tilraunum til að taka hið mælanlega
og gefa því ómælanlega ásýnd.
Metraverk Rúríar byggjast á vanga-
veltum um hvort ómælanleg fyr-
irbæri, eins og tilfinningar, séu í
rauninni til, sbr. vísindahyggju nú-
tímans. Með því að setja tommu-
stokka í ólíkar formrænar birting-
armyndir má segja að hún gefi
þessari rökrænu mælieiningu fag-
urfræðilegt gildi, þótt deila megi um
hvort það heyri undir ægifegurð í
þessu tilfelli. Hins vegar kemur ægi-
fegurð mjög sterklega fram í verkinu
„Glerregn“, þar sem brotið gler
hangir úr lofti og maður upplifir eitt-
hvað sem er lokkandi og ógnvekjandi
í senn.
Ægifegurð má líka tengja nátt-
úruundrum eins og regnboga, en
Rúrí hefur unnið með hverfulleika
regnbogans í verkum þar sem hann
brennur og bráðnar. Regnbogi er líka
þverstæðukennt fyrirbæri. Hann er
hverfull en táknfræðilega stendur
hann fyrir eilífa ást Guðs á manninum
og sáttmála þess efnis. Regnboginn
er á sinn hátt andstæður efnishyggju
vegna þess að það er ekki hægt að
fanga hann eða kaupa en er samt sem
áður táknmynd fyrir leit að auði þar
sem gullið er við enda hans. Regn-
bogi er óstöðugt fyrirbæri en er engu
að síður fastur við skynjun hvers og
eins. Þ.e. að hver manneskja skynjar
sinn eigin regnboga. Ef ég er að
ferðast í vesturátt og sé regnboga þá
ferðast regnboginn með mér. Ef ann-
ar maður ferðast sama veg í austurátt
og sér regnboga þá ferðast regnbog-
inn líka með honum. Regnboga er
hægt að mæla röklega í bylgjum eða
riðum en hann fær ekki tilvistarlegt
gildi fyrr en í skynjun einstaklings
því að manneskja byggir tilvist sína
fyrst og fremst á skynrænni upplifun.
Fyrirgefning syndanna
Náttúruvernd er Rúrí hugleikin og
þótti mér merkilegt að hlýða á hana á
þinginu tala um jörðina sem lifandi
veru og að mannfólkinu beri að lifa í
stöðuglyndi með jörðinni. Slíkt við-
horf kallar á mikla virðingu fyrir
náttúrunni og er þá eðlilegt að áð-
urnefnd réttlætiskennd gjósi upp
þegar náttúrunni er misþyrmt.
Framlag Rúríar á Feneyja-
tvíæringnum árið 2003, „Endangered
waters“, er það farsælasta í Fen-
eyjasögu Íslands. Sýningin hlaut
mikla athygli og umfjöllun í alþjóð-
legum listtímaritum. Aftur sköruðust
rökrænan og ægifegurðin eða mik-
ilfengleikinn. Framsetningin minnti á
einhvers konar skjalaskáp en þegar
skjölin voru dregin út úr skápnum
birtust gegnsæjar myndir af fossum
sem voru í útrýmingarhættu vegna
fyrirhugaðra virkjana, sumir þessara
fossa eru nú þegar horfnir, og upp-
tökur af fossnið ómuðu í rýminu.
Þetta var sjónlistar- og tónlistarverk
í senn.
Rúrí ber álíka réttlætiskennd
gagnvart manneskjunni og nátt-
úrunni. Sýningin „Paradís hvenær“ á
Kjarvalsstöðum árið 1998 var pólitísk
sýning sem fjallaði um óhugnað
stríðsástandsins í Júgóslavíu. Við
opnun sýningarinnar framdi listakon-
an átakamikinn gjörning þar sem hún
þreif gólfið í sýningarsalnum á meðan
litskyggnur af óhugnaði stríðsins
rúlluðu fyrir aftan hana. Konan var
þar með að þrífa upp óhugnaðinn og
mættust þar þverstæðukennd fyr-
irbæri; alúð og grimmd.
„Tileinkun“ er síðasti stórgjörn-
ingur Rúríar og einn sá magnaðasti.
Hann var framinn í Drekkingarhyl á
Þingvöllum í fyrra og tileinkaður 18
konum sem voru líflátnar í hylnum
fyrir að eiga börn utan hjónabands.
Er undursamlega fallegt að sjá lista-
konuna í hylnum að bera klæði á
þurrt – líkt og móðir sorganna í pieta-
stellingu með Krist í faðmi sínum –
og raða þeim með lotningu á sjúkra-
börur eins og hún sé að biðja þær fyr-
irgefningar fyrir hönd íslensku þjóð-
arinnar. Þrátt fyrir fegurðina nístir
mann óhugnaður, svartur blettur á
sögu okkar, sem manni ber að horfast
í augu við og ég er viss um að allir
geta tekið undir bón um fyrirgefn-
ingu er þeir sjá börurnar liggja í röð á
grasinu við hylinn.
Upptökur af þessum og öðrum
gjörningum Rúríar má sjá á sjón-
varpsskjám á efri hæð menningar-
miðstöðvarinnar. Þar eru einnig
nokkur smáverk sem virka sem sýn-
ishorn af annars stórhuga fram-
kvæmdum listakonunnar og á báðum
hæðum hússins má sjá ljósmyndir af
skúlptúrum, innsetningum og gjörn-
ingum sem listakonan hefur skapað á
33 ára starfsferli. Er sýningin og
sjónþingið samhangandi en þótt
þinginu sé lokið er vel hægt að njóta
sýningarinnar. Sérstaklega ef hugsað
er út frá heimildargildi. En eins og
listakonan minntist réttilega á eru Ís-
lendingar sérlega latir við að skrá
myndlist og safna heimildum. Hér er
því kjörið tækifæri til að kynnast
verkum Rúríar með aðgengilegum
hætti. Allavega næstu tvo mánuðina.
Morgunblaðið/RAX
Rúrí í Drekkingarhyl „Tileinkun“ er síðasti stór-gjörningur Rúríar.
SÍÐASTLIÐINN laugardag var
haldið sjónþing í Gerðubergi þar
sem farið var yfir listferil Rúríar og
um leið opnuð sýning á verkum
hennar. Yfirskrift þingsins og sýn-
ingarinnar, Tími – Afstæði – Gildi,
endurspeglar þær vangaveltur sem
liggja að baki verkum hennar.
Ómælanlegar þver-
stæður – Um list Rúríar
Moegunblaðið/RAX
Jóel Pálsson „Eins og sönn stórstjarna lést Hamlet Gonashvili í ótímabæru slysi við fall úr
eplatré á hátindi ferils sins árið 1985 og dregur það síst úr áhrifamætti plötunnar.“
Hlustarinn
Hamlet með georgíska söngvaranum Ham-let Gonashvili er plata sem ítrekað hefur
ratað í spilarann hjá mér á undanförnum ár-
um. Gonashvili var þekktur söngvari og kenn-
ari í heimalandi sínu og oft nefndur „rödd“
Georgíu vegna frábærrar túlkunar sinnar á
þjóðlögum landsins. Gonashvili var glæsi-
menni; karlmannlegur, fágaður og minnti dá-
lítið á Omar Sharif í útliti. Með flauelsmjúkri
og rembingslausri tenórrödd sinni syngur
hann lög um vinnuna á akrinum, vögguvísur,
veiðivísur og ástarsöngva í slagtogi við félaga
sína í hinum frábæra Rustavi-kór. Einhver
óræð og tær fegurð liggur í tónlistinni sem er
dáleiðandi í einfaldleika sínum. Það er m.a.
haft eftir Igor Stravinski að hann hafi verið
sterklega innblásinn af hinum georgíska kór-
söng á seinni árum. Eins og sönn stórstjarna
lést Hamlet Gonashvili í ótímabæru slysi við
fall úr eplatré á hátindi ferils sins árið 1985 og
dregur það síst úr áhrifamætti plötunnar.
Fyrir áhugasama er hægt að grafa upp tón-
listarmyndband með Gonashvili á you-
tube.com
Jóel Pálsson tónlistarmaður
Lesarinn
Einhvern tíma á haustdögum náði ég mér íeintak af Book of Longing eftir Leonard
Cohen sem út kom 2006. Hér er um að ræða
uppsafnaðan ljóðaforða skáldsins frá síðustu
tveimur áratugum, en þess var í leiðinni
minnst að hálf öld var liðin frá útkomu fyrstu
bókar hans. Book of Longing er notaleg bók
með myndskreytingum höfundarins og má
segja að hann valsi á milli ljóða, söngtexta og
smáprósa, en teikningarnar eru flestar úr
frumhandritum og ljá verkinu skemmtilegan
blæ. Góð bók til að rifja upp gömul kynni af
Cohen sem hefur yfirleitt haft sterkari stöðu á
tónlistarsviðinu þótt hann sé fyrst og fremst
orðsins maður. Ég mæli með Book of Longing
fyrir aðdáendur Cohens, líka þá sem ekki hafa
gefið bókum hans gaum fram að þessu. Svo er
auðvitað viðbúið að bókin veki löngun lesand-
ans til að leggja við hlustir í beinu framhaldi
og þá er auðvelt að gleyma sér.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur.
Aðalsteinn Ásberg Book of Longing er góð til að rifja upp gömul kynni af Cohen sem hefur
yfirleitt haft sterkari stöðu á tónlistarsviðinu þótt hann sé fyrst og fremst orðsins maður.