Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.2007, Blaðsíða 8
ur. Árið 2003–04 spiluðu hljómsveitirnar fyrir 28
milljónir áheyrenda. Ennfremur er fullyrt að
bandarískar sinfóníuhljómsveitir hafi sýnt fram á
8% hagnað á ársgrundvelli 2003–2004 meðan að
kostnaðaraukningin hljóðaði upp á 7%. Hér skal
þó áréttað að rit þetta er gefið út með það fyrir
augum að styrkja ímynd sinfóníuhljómsveita í
Bandaríkjunum og hugsað sem andsvar við nei-
kvæðum niðurstöðum ýmissa rannsókna og
kannana, á borð við sænsku úttektina, sem komið
hafa fram á síðustu árum.
Breið skírskotun SÍ
Ef litið er til talna um áheyrendur SÍ á árunum
1992–2004 verður þróunin að teljast mjög já-
kvæð. Á þessu tímabili hefur greiðandi gestum
fjölgað úr 17.553 í 31.824. Samkvæmt stefnu-
mörkun SÍ fyrir 2004–09 sem unnið var að starfs-
árið 2001–02 er „stefnt að því að fjöldi áheyrenda
aukist umtalsvert á tímabilinu 2004–2009; úr
26.500 seldum miðum starfsárið 2002–2003 í um
31.000 á starfsárinu 2008–2009“. Hljómsveitin
hefur nú þegar náð þessu markmiði sínu. Raunar
náðist það strax starfsárið 2003–04, þegar fjöldi
greiðandi tónleikagesta var 31.824. Í ljósi þess má
spyrja hvort hljómsveitin þurfi ekki setja sér há-
leitara markmið þar sem hún undirbýr nú flutn-
inga í nýtt tónlistarhús með helmingi stærri tón-
leikasal. Þessar tölur sýna þó glöggt að SÍ hefur
breiða skírskotun og hefur tekist að auka umtals-
vert við áheyrendafjöldann á síðustu árum.
Eins og sést á misvísandi tölum frá Bandaríkj-
unum og Svíþjóð, jákvæðum áheyrendatölum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands og varnaðarorðum
fólks í bransanum á borð við Evelyn Glennie og
Norman Lebrecht fer tvennum sögum af raun-
verulegum áhuga almennings á sinfónískri tónlist
og tónleikum. Heimildum mínum ber þó saman
um að almennt séu sinfóníuhljómsveitir ekki að
tvöfalda áheyrendafjölda sinn á milli ára. Það
virðist vera ærið verkefni fyrir þær að halda í
horfinu með þrotlausum og markvissum sam-
skiptum við áheyrendur. Það er því ljóst að róður
Tónlistarhúsið Salurinn verður viðarklæddur og tekur 1.800 manns í sæti. Þar verða tónleikar með
Eftir Örnu Kristínu Einarsdóttur
arna@b11.cc
T
ölvugrafískar myndir af fyr-
irhuguðum sal Tónlistar- og
ráðstefnuhússins í Reykjavík
sýna okkur troðfullan sal af
prúðbúnu fallegu fólki og
hljómsveit á sviði. Þessi mynd
framkallar fiðring í magann
og tilhlökkun því loksins,
loksins mun tónlistin eignast hús yfir höfuðið og
Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) heimili sem sómi
er að. Um þessar mundir spilar SÍ fyrir að með-
altali 600 manns í sal sem rúmar rétt um 900. Sal-
ur nýja tónlistarhússins mun hins vegar taka
1.800 manns í sæti. Allir sem reynt hafa þekkja
muninn á því að spila fyrir fullum sal eða hálf-
tómum. Sá munur getur haft mikil áhrif á flutn-
inginn og tónleikaupplifunina í heild.
Í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu verða þrír salir
sem liggja hlið við hlið, tónleikasalur sem tekur
1.800 manns, æfingasalur fyrir 450 manns og ráð-
stefnusalur sem rúmar 750 manns auk 180 manna
salar á neðri hæð. Gert er ráð fyrir að ýmis starf-
semi geti átt sér stað í sölunum samtímis án trufl-
unar. Einnig er hægt að nýta allt rýmið fyrir
stærri viðburði. Æfingaaðstaða verður fyrir
hljóðfæraleikara og minni hópa, upphit-
unarherbergi, hljóðfærageymslur, búnings-
herbergi, skrifstofur, fundaherbergi og fleira.
Í dag nýtist neonlýst gluggalaus kaffistofa
hljómsveitarinnar sem upphitunarherbergi fyrir
tónleika. Á kvennasnyrtingunni fara konurnar í
kjólana og hrúgast fyrir framan spegilinn til að
setja á sig varalit og spreyja hárið. Aðstaða karl-
anna er með svipuðu móti.
Þegar komið er upp á sviðið blasir við hljóm-
sveitinni bíósalur hannaður með það fyrir augum
að sýna kvikmyndir með græjurnar í botni.
Hvers eiga strengjahljóðfæri að gjalda við slíkar
aðstæður? Og þó svo að hljómurinn sé ekki al-
slæmur á sviðinu sjálfu, þá er það áfall fyrir hljóð-
færaleikarana að setjast út í sal og átta sig á því
að öll sú mikla vinna og alúð sem lögð er í tónlist-
arflutninginn berst ekki lengra en fram í miðjan
sal.
Þetta hefur verið aðstaða SÍ síðan hún flutti úr
Þjóðleikhúsinu árið 1961. Það er því löngu tíma-
bært að hljómsveitin komist í viðunandi húsnæði
þar sem hún hefur möguleika á því að dafna og
blómstra enn frekar.
25% fækkun í Svíþjóð
En þrátt fyrir tilhlökkunarfiðring yfir því að
draumurinn um tónlistarhúsið sé nú loks að verða
að veruleika örlar líka á kvíðabeyg. Á sama tíma
og SÍ undirbýr flutning í helmingi stærri sal ber-
ast fréttir utan úr heimi um fækkun tónleikagesta
á sinfóníutónleika. Í nýlegri úttekt, sem sænska
menntamálaráðuneytið lét gera á stöðu rík-
isstyrktra sinfóníuhljómsveita þar í landi, er
dregin upp afar dökk mynd. Þar kemur fram að á
árunum 1998–2003 hafi áheyrendum fækkað um
25%. Í úttektinni er bent á að ef sú þróun héldi
áfram, án aðgerða, muni ekki nokkur hræða vera
eftir í sænskum tónleikasölum árið 2018.
Skýrslan olli töluverðu umróti í sænsku menn-
ingarlífi þegar hún kom út í mars 2006 en í henni
er bent á þá þversögn sem kemur fram í þróun á
starfsumhverfi sænskra sinfóníuhljómsveita und-
anfarin ár. Aldrei áður í sænskri sögu hefur jafn-
mikið verið flutt af sinfónískri tónlist. Aldrei áður
hafa jafnmargir hámenntaðir tónlistarmenn verið
útskrifaðir úr tónlistarháskólum sem jafnframt
hafa aldrei verið fleiri. Aldrei hafa sjálfstætt
starfandi tónlistarmenn heldur verið fleiri. Á
sama tíma hefur tónleikagestum fækkað umtals-
vert á milli ára. Þetta misræmi í þróun framboðs
og eftirspurnar gerir það að verkum að upp er
kominn ákveðinn óróleiki innan stéttarinnar.
Að mati breska tónlistargagnrýnandans og rit-
höfundarins Norman Lebrecht eru Norðurlöndin
fimm árum á eftir þeirri neikvæðu þróun sem
hefur átt sér stað annars staðar í hinum vestræna
heimi og lýsir sér í því að sinfóníuhljómsveitir
verða að takast á við þær staðreyndir
að áheyrendum fækkar stöðugt,
að möguleikar til þess að útvega styrki hafa
skroppið saman,
að launa- og rekstrarkostnaður eykst sífellt,
að plötu- og diskaútgáfa er af skornum
skammti og
að tækifærum til alþjóðlegra tónleikaferða hef-
ur fækkað.
Hlutverkið endurmetið
Lebrecht bendir á að Norðurlöndin hafi mögu-
leika á að forða sér undan þessum voða með því
að taka af skarið og endurmeta og skilgreina
hlutverk sinfóníuhljómsveita í nútímasamfélagi.
Á þeim nótum er nýlegt opið bréf sem skoski
slagverksleikarinn Evelyn Glennie ritar til for-
svarsmanna sinfóníuhljómsveita og rakið var hér
á síðum Morgunblaðsins fyrir stuttu. Þar vekur
Evelyn athygli á þeirri staðreynd að sinfón-
íuhljómsveit með framúrskarandi hæfileikaríkum
tónlistarmönnum á í mestu erfiðleikum með að
fylla 1.000–2.000 manna sali þótt miðaverði sé
stillt í hóf. Á sama tíma fer þokkalega hæfi-
leikaríkur unglingur létt með að fylla 50.000
manna íþróttaleikvang þótt miðar séu á upp-
sprengdu verði. Evelyn er þeirrar skoðunar að
hinn klassíski heimur hafi ekki lengur efni á því
að líta fram hjá því hvað áheyrendur vilji og það
sé hlutverk sinfóníuhljómsveita að þjóna þeim.
Þekking á markaðnum
Eitt af grundvallaratriðum í markaðssetningu er
að þekkja markaðinn. Að vita eftir hverju kaup-
andinn er að sækjast og hverjir eru mögulegir
kaupendur. Eina leiðin til að átta sig á þörfum
neytandans er að kanna hug hans. Gerðar hafa
verið tvær kannanir á síðustu árum fyrir Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Markaðsrannsókn sem SÍ
fól Gallup að gera árið 2002 og áskrifendakönnun
sem ABS Fjölmiðlahús gerði árið 2004. Sam-
kvæmt markaðsrannsókn Gallup 2002 sögðust
um 29% þeirra 47%, sem aldrei höfðu farið á tón-
leika hjá SÍ, hafa mikinn áhuga á að fara. Í mark-
hópagreiningu Knight Foundation sem gerð var
árið 2000 á markaðssvæði 15 bandarískra sinfón-
íuhljómsveita kemur fram að takist hljómsveit-
unum að ná til aðeins helmings þeirra sem segj-
ast vera mjög áhugasamir um klassíska tónleika
en hafa ekki látið verða af því að fara myndi
áheyrendahópur hinna bandarísku hljómsveita
tvöfaldast.
Fyrir síðustu jól var kynnt markaðsátak sin-
fóníuhljómsveitarinnar undir nafninu Fyrsti
konsert er frír. Þar stendur áhugasömum aðilum,
sem aldrei hafa áður komið á tónleika, til boða
ókeypis miði. Að sögn Sváfnis Sigurðarsonar,
kynningarfulltrúa SÍ, hafa um 1.000 manns skráð
sig og um 600 manns fengið boð um að koma á
tónleika. Ekki liggur fyrir hversu margir hafa
þegið boðið. Að sögn Sváfnis er tilgangurinn með
átakinu sá að ná til þeirra sem standa fyrir utan
hinn hefðbundna áheyrendahóp. Hér skiptir eft-
irfylgnin öllu máli sem leið til að kynnast ein-
staklingum innan þessa hóps nánar, kanna hvað
vekur áhuga þeirra, eftir hverju þeir sækjast og
með hvaða hætti hægt sé að tryggja að þeir komi
aftur.
Þó gildir einu hversu öflug og markviss mark-
aðssetning er sé áhugi á klassískri tónlist ekki
fyrir hendi í samfélaginu almennt. Rannsóknir
sýna með afgerandi hætti að tengsl eru milli tón-
listaruppeldis og þess að hafa áhuga á klassískri
tónlist og að tónlistarmenntun og -fræðsla er
undirstaða þess að viðhalda áhuga á klassískri
tónlist.
Bandarískar sveitir í sókn
Þó svo að sænskar og evrópskar sinfón-
íuhljómsveitir glími við áheyrendakreppu virðist
sú staða almennt ekki vera raunin í Bandaríkj-
unum ef marka má rit sem samtök sinfón-
íuhljómsveita í Bandaríkjunum (The American
Symphony Orchestra League) gáfu út árið 2005
undir nafninu Music Matters. Þar kemur fram að
síðasta áratuginn hafi bandarískar hljómsveitir
leikið fyrir fleiri áheyrendur en nokkru sinni áð-
Sinfónían í takt við
Í FEBRÚAR síðastliðnum útskrifaðist Arna
Kristín Einarsdóttir með meistaragráðu í menn-
ingar- og menntastjórnun frá Háskólanum á
Bifröst. Rannsóknarritgerð hennar bar yf-
irskriftina Sinfónían í takt við tímann. Kveikjan
að ritgerðinni var spurningin um það hvernig
Sinfóníuhljómsveit Íslands muni farnast í nýju
og langþráðu húsi þar sem hennar bíður helm-
ingi stærri salur en í Háskólabíói. Arna Kristín
gegndi stöðu 2. flautu SÍ 2000–2004 og þekkir
greinarhöfundur því vel til aðstæðna. Greinin er
byggð á meistararitgerð Örnu.
8 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók