Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.2007, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.2007, Qupperneq 9
» Heimildum mínum ber þó saman um að al- mennt séu sinfón- íuhljómsveitir ekki að tvöfalda áheyrendafjölda sinn á milli ára. Það virðist vera ærið verkefni fyrir þær að halda í horfinu … tónlist af öllum gerðum. SÍ gæti orðið þungur sé tekið mið af hinu al- þjóðlega umhverfi. Í raun er það gríðarleg bjart- sýni að gera ráð fyrir að hljómsveitin eigi mögu- leika á að tvöfalda eða jafnvel þrefalda áheyrendafjölda sinn í nýju húsi. Ekki nóg að bíða Umræðan um stærð tónleikasalarins hefur verið áberandi í íslenskum fjölmiðlum undanfarið. Hún hófst með grein sem verkfræðingurinn Ólafur Hjálmarsson ritaði og birtist í Lesbók Morg- unblaðsins 9. desember síðastliðinn. Þar setur Ólafur fram gagnrýni á stærð salarins út frá hljómburði og ómtíðni. Hann gagnrýnir að sal- urinn skuli hugsaður og hannaður bæði fyrir tal- að mál og tónlist og segir að tæknilegar tilfær- ingar með breytingar á ómtíma dragi úr gæðum hljómburðarins. Þar sem ég hef engar fræðilegar forsendur til að meta tæknilega útfærslu á saln- um legg ég ekki dóm á þessar athugasemdir hér. Hins vegar segir Egill Ólafsson í svargrein sinni 16. desember að ekki þurfi að hafa áhyggjur af því að salurinn sé of stór utan um áheyrendur SÍ þar sem verið sé að reisa hús til næstu 100 ára. Í framtíðinni eigi frítími fólks eftir að aukast – bæði með tilliti til hlutfallsfjölda þeirra sem komast á eftirlaun innan fárra ára (baby-boom-kynslóðin) og eins almennrar hagsældar. Þetta er sjónarmið sem ég tel afar varasamt þegar litið er til áheyrendaþróunar almennt. Þannig benda rannsóknir National Endowment for the Arts (NEA) í Bandaríkjunum til þess að skýr kynslóðaskipti séu á milli aðsóknar á hinar mismunandi listgreinar. NEA skiptir úrtaki sínu í fimm minni þýði:  Krepputímabil – fædd 1926–1935  Önnur heimsstyrjöldin – fæddir 1936–1945  Fyrra tímabil „barnakúfsins“ (baby boomers) – fæddir 1946–1955  Seinna tímabil „barnakúfsins“ – fæddir 1956– 1965  Barnalægð – fæddir 1966–1976 Samkvæmt NEA tilheyra flestir tónleikagestir kynslóðinni fæddri 1936–1945 en fæstir Barna- lægðinni, það er yngstu kynslóðinni. Yngsta kyn- slóðin sækir hins vegar frekar listasöfn en hinar eldri, sem er allrar athygli vert í sjálfu sér. Miðla þarf listinni Að mati Bonita M. Kolb, höfundar Marketing for Cultural Organisations, er engan veginn nóg fyrir menningar- og listastofnanir að bíða í rólegheit- um eftir því að aldurinn færist yfir yngri kynslóð- irnar til að ná í áheyrendur. Hafi það ekki verið partur af reynsluheimi einstaklinganna að sækja tónleika eða hlusta á klassíska tónlist eru afar litl- ar líkur á því að það muni verða hluti af lífi þeirra þegar aldurinn færist yfir. Eina svarið við þessu, að mati Kolb, er að finna leið til að miðla listinni með þeim hætti að það kveiki forvitni yngri kyn- slóðanna og opni fyrir þeim nýjan heim. Sígild tónlist þarf að heyrast, finnast og sjást eins og aðrar tónlistartegundir í fjölmiðlum og á almenn- um vettvangi. Þar liggur vaxtarbroddurinn sem getur með tímanum leitt til fjölgunar áheyrenda. Rannsóknir Kolb renna stoðum undir þá skoð- un að mikilvægt sé fyrir sinfóníuhljómsveitir að leggja sitt af mörkum til tónlistaruppeldis. Því miður er SÍ er langt frá fræðslumarkmiðum sín- um. Þannig kemur fram í stefnumótun hljóm- sveitarinnar að á árinu 2009 muni 14.189 skóla- börn hlýða á tónleika hljómsveitarinnar. Árið 2004–05 hafði heimsóknum skólabarna hins vegar fækkað úr 9.000 í 7.600 en það starfsár hafði verið stefnt að því að 13.635 börn kæmu á tónleika hljómsveitarinnar. Að sögn Þrastar Ólafssonar, framkvæmdastjóra hljómsveitarinnar, er ástæð- an sú að ekki hefur fengist nægilegt fjármagn til þessa þáttar. Sérstakur fræðslufulltrúi hljóm- sveitarinnar var ekki ráðinn inn fyrr en sl. haust þótt stefnt hafi verið að því mun fyrr. Huga þarf að grunninum Með byggingu Tónlistarhússins er horft til fram- tíðar. Vonir standa til þess að húsið verði ein helsta bygging landsins og kennileiti Reykjavík- urborgar líkt og óperuhúsið í Sydney. Ríki og borg gerðu með sér samkomulag árið 2002 um að leggjast á eitt í því að standa að byggingu tónlist- ar- og ráðstefnuhússins. Nauðsynlegt er að op- inberir aðilar horfi jafnframt til lengri tíma, fjár- festi í framtíðinni og standi vörð um tónlistarmenntun í landinu eigi starfsemi hússins að blómstra og snúast um meira en ráð- stefnuhald. Á þessu sviði er víða pottur brotinn. Taka má sem eitt dæmi af mörgum að öllum börnum í 1.–8. bekk ber samkvæmt lögum að fá tónmennta- kennslu einu sinni í viku. Úttekt Fræðslu- miðstöðvar Reykjavíkur (nú menntasviðs Reykjavíkurborgar) sem gerð var árið 2003 sýnir að einungis 8% skóla á Reykjavíkursvæðinu upp- fylla þetta lögboðna skilyrði. Flestir skólar hætta tónmenntakennslu eftir 4.–6. bekk og einungis um helmingur skóla á landinu býður yfirhöfuð upp á tónmenntakennslu. Á síðustu árum hafa jafnframt staðið yfir harðvítugar deilur milli sveitarfélaga og ríkisins um kostnaðarskiptingu vegna tónlistarmenntunar á framhaldsstigi. Deil- urnar hafa raskað starfi tónlistarskóla umtals- vert. Um leið og hið mikla Tónlistar- og ráð- stefnuhús rís, eins og stór ískristall upp úr sjónum, til vitnisburðar um hið þrautseiga tón- listarlíf sem þrifist hefur hér á norðurhjara ver- aldar þarf að huga að grunninum. Ríki og borg og helstu máttarstólpar klassískrar tónlistar á Ís- landi þurfa að taka höndum saman um að stórefla menntun og miðlun svo að hið tignarlega tónlist- arhús megi iða af lífi á komandi árum. Í næstu grein verður fjallað um reynslu Hallé Orchestra í Bretlandi og Los Angeles Philharm- onic í Bandaríkjunum af því að flytja í nýtt tón- listarhús og um áhrif flutninganna á starfsemi þeirra og aðsókn á tónleika. Af reynslu þessara hljómsveita má margt læra. tímann Höfundur er verkefnastjóri á skrifstofu menningar- og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ og flautuleikari. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.