Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2007, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Guillermo del Toro hefur lengiverið talinn til forvitnilegri leikstjóra en eftir Völundarhús Pans (El Laber- into del Fauno) hljóta næstu myndir hans að teljast skyldu- áhorf. Sú næsta er Hellboy 2: The Golden Army sem verið er að kvikmynda í þessum rit- uðum orðum en í kjölfarið mun hann leikstýra At the Mountains of Mad- ness, byggða á samnefndri bók hroll- vekjumeistarans H.P. Lovecraft. Sögur Lovecraft virðast skapaðar fyrir del Toro og því er vonandi að loksins verði til almennileg bíómynd eftir sögu Lovecraft, en af rúmlega þrjátíu kvikmyndaaðlögunum sagna hans er Re-Animator frá árinu 1985 sú eina sem ekki hefur lent í rusla- kistum kvikmyndasögunnar.    Hitler var ekki bara illa við gyð-inga og aðra ekki-aría, honum var líka meinilla við alla list sem og óþarflega fallegar borgir sem ekki voru þýskar. Um þetta fjallar heimildarmyndin The Rape of Eu- ropa, þar sem fjallað er um til- raunir Hitlers til þess að má út stóran hluta Evr- ópskrar listasögu. Gripdeildir nasista á evrópskum listasöfnum voru alls ekki tilvilj- unarkenndar, þeir voru með ítarlega lista yfir verk sem ýmist átti að eyði- leggja eða færa yfir í þýsk listasöfn, flest í gríðarstór einkasöfn Hitlers og Görings. En sem betur fer voru safnstjórar á Louvre og fleiri lista- söfnum viðbúnir og meðal annars eyddi Mona Lisa stríðinu í trékassa á frönsku sveitabýli. Engu að síður varð skaðinn heilmikill, mikið af list gyðinga var eyðilagt og mikið er um ránsfeng sem enn er ófundinn (þar á meðal ránsfengur Rússa frá Þýska- landi). Þetta hatur virðist fyrst og fremst hafa verið sprottið af af- brýðisemi, Hitler var neitað um inn- göngu í listaskóla í Vín sama ár og þekktir málarar af gyðingaættum á borð við Gustav Klimt fengu inn- göngu, en þónokkrir gyðingar voru í matsnefndinni. Hann var einnig öf- undsjúkur út í París sem honum þótti óþarflega falleg fyrir ó-þýska borg og ætlaði að leggja hana í eyði en það varð París til bjargar að seinna fékk hann þær grillur í höf- uðið að endurbyggja heimaborg sína, Linz í Austurríki, á þann veg að Par- ís myndi falla algerlega í skuggann og því yrði óþarfi að eyða henni. Ég meina, hvern hefur ekki dreymt um rómantíska helgarferð til Linz?    Spólið til baka. Er þetta ekki ofgott til þess að vera satt? En Be Kind Rewind er í alvörunni um það bil að verða að veruleika og þar mun Michel Gondry (sem gerði alla ind- ístrákana sem voru of kúl fyrir Titanic ástfangna af Kate Winslet í Eternal Sunshine of the Spotless Mind) leikstýra villingnum Jack Black í hlutverki starfsmanns mynd- bandaleigu sem verður það á að eyði- leggja allar spólurnar – en í staðinn fyrir að panta fleiri (já, eða bara fara út í DVD) bregður hann á það ráð með samstarfsmönnum sínum að endurgera allar myndirnar – þannig að í aðeins einni bíómynd fáum við útgáfu Gondry og Black af The Lion King, Back to the Future, Ghostbus- ters, RoboCop, Rush Hour, Driving Miss Daisy og fleiri klassíkerum. KVIKMYNDIR Guillermo del Toro Jack Black sem Miss Daisy. Adolf Hitler Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu Hvert er hlutverk heimildarmynda? Þessari spurningu er hægt að svaraá ýmsa vegu. Halda mætti fram að íeinhverjum skilningi fangi heimild- armyndir veruleikann, að þær varpi ljósi á við- fangsefni sitt, hvert svo sem það nú sé, og geti þannig verið gagnlegar, gagnrýnar, skemmti- legar, jafnvel uppfræðandi. Einhver myndi kannski benda á að þær sýni okkur heiminn, a.m.k. ákveðna persónulega mynd af heiminum, auk þess sem þær geti reynst mikilvægar heim- ildir um atburði líðandi stundar. En einhver ann- ar myndi e.t.v. kjósa að leggja minni áherslu á staðreyndagildi og trúverðugleika heimild- armynda, heimildarmyndir séu alltaf í ákveðnum skilningi huglæg sköpunarverk mætti benda á í þessu samhengi, og „sannleikurinn“ sem þar birt- ist sé ávallt takmörkunum háður. Halda mætti fram að heimildarmyndir, einmitt vegna þess að þær séu svo nátengdar umfjöllunarefninu og hlutleysissjónarmiðum, og birti að því virðist veruleikann ómiðlaðan, geti verið hættuleg áróð- ursvopn, þær ljúgi og falsi í skjóli áreiðanleika ljósmyndarinnar og sannfæringarkrafts ímynd- arinnar. Viðbragðaflóra á borð við þessa blasir við þeg- ar viðtökusaga þeirra heimildarmynda sem vakið hafa athygli undanfarin ár er skoðuð. Fáar lista- afurðir eiga þess nefnilega kost að vekja viðbrögð á borð við þau sem heimildarmynd sem hittir naglann á höfuðið getur gert En spurningin sem lagt var af stað með hér í upphafi – hvert er hlut- verk heimildarmynda? – er að sumu leyti villandi. Heimildarmyndin sem kvikmyndaform hefur vit- anlega ekkert sérstakt hlutverk eða eðlislægt ætlunarverk, ekki fremur en önnur tjáningar- og listform, þótt vissulega megi benda á ákveðnar hneigðir eða frásagnarformgerðir sem geta talist einkennandi fyrir formið, t.d. átök við pólitískan veruleika, áherslu á reynslusögur einstaklinga, o.s.frv. En þess ber einnig að geta að heimild- armyndir, hvort sem þær birtast í sjónvarpi eða kvikmyndahúsum, geta, og hafa á stundum haft umtalsverð áhrif. Hér eru þá gjarnan á ferðinni pólitískar myndir, verk sem taka á hitamálum í samfélaginu og hafa jafnvel hugsjónir að leið- arljósi. Í fyrra gaf að líta eina slíka, An Incon- venient Truth með Al Gore, en þar var á ferðinni mynd sem sannarlega hitti naglann á höfuðið, bæði í efnisvali og miðlun umfjöllunarefnisins til áhorfenda. Viðbrögðin við myndinni voru mikil, hún varð vinsæl og fór víða, og varð hvati að miklum umræðum um heim allan um viðfangs- efnið, hlýnun jarðar og umhverfisspjöll iðn- aðarsamfélaganna. Sjá mátti ummælendur grípa til ýmiss konar stóryrða, ýmist til að hrósa mynd- inni eða lasta, en óhætt er að segja að frægð- arsaga Al Gores í eftir-varaforseta embætti sínu sem talsmaður góðra málefna, einkum umhverf- ismála, hafi náð áður óþekktum stjörnuglans og alheimsviðurkenningu með Óskarsverðlaununum sem heimildarmyndin hlaut fyrr á þessu ári. Sú upphefð bliknar þó samanborið við nýjustu fréttir: Al Gore og Friðarverðlaun Nóbels! Maðurinn sem tapaði árið 2000, og hefði þá allt eins getað horfið ofan í holu og gleymst að eilífu, hefur sannarlega endurskapað sjálfan sig. Og án þess að ég telji mig vera að halda fram vís- indalegri staðreynd leyfi ég mér að benda á að áðurnefnd heimildarmynd, An Inconvenient Truth, hafi sennilega haft ýmislegt með val aka- demíunnar að gera. Þarna var baráttu Gores miðlað um heim allan á áhrifaríkan hátt, ný og af- ar sjarmerandi mynd birtist af manninum sjálf- um, og hann festi sig í sessi sem frömuður á sviði umhverfismála. Hann varð í raun eitt af helstu andlitum hreyfingarinnar og áhrif stjörnuímynda geta verið mikil og náð langt, jafnvel inn í nób- elsakademíuna. Ef leggja á áherslu á þennan málaflokk liggur beint við að heiðra Gore, því að í krafti þessarar einu kvikmyndar er hann orðinn eins konar samnefnari baráttunnar. Máttur heim- ildarmynda getur verið mikill. Og kaldhæðnin leynir sér ekki. Gore tapaði ár- ið 2000 og Bush, sem varð forseti með dóms- úrskurði, bar höfuðið hátt. Nema hvað. Meðan allt heldur áfram að fara í handaskolum hjá Crawford-kúrekanum hlýtur hinn sigraði og auð- mýkti Gore einhver virtustu verðlaun í heimi. Gore verður alheimsborgari meðan Bush festir sig í sessi sem misheppnaðasti stjórnmálamaður nýrrar aldar. Í þessum samanburði, í samslætti lífs mannanna tveggja og ólíkri framvindu, gefur að líta sögu um ris og fall, endurlausn og hörmu- leg endalok, stríð og hnattræna dramatík, hér er í raun að finna efni í heillandi heimildarmynd! Nóbellinn og Gore ERINDI » Gore verður alheimsborgari meðan Bush festir sig í sessi sem misheppnaðasti stjórn- málamaður nýrrar aldar. Eftir Heiðu Jóhannsdóttur heida@mbl.is Í áhorfendasal Verdi-leikhússins, að- alsýningarstað hátíðar þögulla kvik- mynda í Pordenone á Ítalíu (Le Gior- nate del Cinema Muto), ríkir lítið umburðarlyndi gagnvart truflandi há- vaða. Hver sá sem gerir sig líklegan til hósta ótæpilega eða snýta sér, hvísla eða seilast í brakandi snarlpoka, er umsvifalaust kveðinn í kútinn með höstugu sussi og áminn- andi augnatilliti úr öllum áttum. Og vei þeim sem gleymir að slökkva á farsímanum áður en kvikmyndasýningin hefst. Í umræddum sýning- arsal eru nefnilega saman komnir helstu sér- fræðingar og ástríðufólk um þöglar kvikmynd- ir, og kvikmyndalistina almennt í sinni upprunalegustu mynd, og í mörgum tilfellum er sýningin sem blasir við fyrsta og jafnvel eina tækifæri áhorfandans til þess að sjá við- komandi kvikmynd af filmu í mestu mögulegu gæðum, á stóru tjaldi og með lifandi tónlist- arflutningi. „Þöglar“ kvikmyndir Þöglar kvikmyndir er reyndar hálfgert rang- nefni. Þessi horfna aðferð kvikmyndagerðar er að mati fræðimanna og áhugafólks einstök list- grein, vegna þess að hún byggist á samspili sjónrænna ímynda, texta, og lifandi tónlistar (og stundum áhrifahljóða) sem verður jafn- framt að áberandi þætti í kvikmyndafrásögn- inni. Það er einmitt þetta samspil sem hefur skapað aukinn og endurnýjaðan áhuga á þögl- um kvikmyndum sem féllu um áratugabil í gleymskunnar dá og voru á heildina álitnar frumstæð og skopleg útgáfa af listgrein sem síðar náði mun meiri tæknilegri og frásagn- arlegri fullkomnun. Sá breiði hópur fræði- manna sem hefur á síðustu áratugum tekið að beina sjónum að þöglum kvikmyndum, og kvik- myndum frá árdögum miðilsins, hefur hins vegar hafið þær til vegs og virðingar á ný, og bent á sérstaka eiginleika listformsins, ekki síst hvað sjón- og hljómrænar frásagn- araðferðir og kvikmyndaleik varðar. Kvikmyndahátíðinni í Pordenone var komið á fót fyrir rúmum aldarfjórðungi af hópi fag- manna og áhugafólks um rannsóknir og varð- veislu þögulla kvikmynda og í dag má segja að hátíðin sé hjarta þess samfélags fólks sem hef- ur unnið tröllaukið starf við að skapa varð- veislu-, rannsóknar- og miðlunarramma um þennan mikilvæga hluta kvikmyndaarfleifð- arinnar. Þeir sem sækja hátíðina eru nefnilega ekki aðeins fræðimenn og áhugamenn, heldur einnig safnafræðingar sem hafa sérhæft sig í varðveislutækni og viðgerðum á gömlum kvik- myndum. Vegna sterkra tengsla hátíðarinnar við öflugustu kvikmyndasöfn heims, er Porde- none sá vettvangur sem nýjar uppgötvanir eru gjarnan frumsýndar á, t.d. sýndi hátíðin í ár sýnishorn 93 kvikmynda frá því um aldamótin 1900 sem fundust í fornmunaverslun fyrr á þessu ári og innihéldu m.a. kvikmyndir um píslarsögu Krists (þar er Kristur leikinn af barni, jafnvel í atriðinu þar sem hann er negld- ur á krossinn!). Sú uppgötvun sem mesta eft- irvæntingu vakti á hátíðinni var þó All at Sea 15 mínútna heimildarmynd frá árinu 1933 sem fannst nýlega í dánarbúi breska blaðamannsins Alistair Cooke. Þessi stutta og ljóðræna heim- ildarmynd fjallar um engan annan en Charlie Chaplin en myndin er tekin upp á skemmtisigl- ingu sem Chaplin bauð Cooke með í. Úr varð einstök heimildarmynd sem sýnir Chaplin af- slappaðan í fríi, þar sem hann bregður m.a. á leik á þilfarinu og hermir eftir Napoleon og Gretu Garbo, með aðstoð skúringarkústs. René Clair, Weimar og Chicago Af öðrum þáttum sem bar hæst á hátíðinni í ár var m.a. sýningardagskrá helguð kvikmyndum franska leikstjórans René Clair frá því á þögla tímabilinu, en eftir Clair liggur einstakt safn kvikmynda frá þessum tíma, á borð við Paris qui dort sem segir frá næturverði í Eiffel- turninum sem vaknar einn morgun upp við þann vonda draum að gervallt mannlíf Par- ísarborgar hefur verið fryst í hreyfingu. Paris qui dort er dæmi um skapandi og sjálfsvísandi nálgun Clairs við kvikmyndamiðilinn, þar sem hann þreifaði sig áfram með ýmis frásagn- arbrögð og tækni sem frásagnir voru spunnar í kringum. Sérstök dagskrá var einnig helguð þýskri kvikmyndagerð frá Weimar-tímabilinu, en nálgunin var þó allt önnur en sú sem við er að búast þegar talað er um Weimar-kvikmynd- ir. Dagskráin miðaði að því að benda á að mun fjölbreytilegri kvikmyndagerð var ríkjandi í Weimar en sú sem frægust er og mest hefur verið hampað, þ.e. hin myrka og angistarfulla expressjóníska kvikmyndagerð sem kvikmynd- ir á borð við Das Cabinet des Dr. Caligari og Metropolis eru dæmi um. Aðeins lokamyndin á hátíðinni, Askja Pandóru (Die Büchse der Pan- dora), er úr röðum Weimar-kanónunnar, aðrar myndir í dagskránni spönnuðu allt frá gaman- myndum, til heimildarmynda og dramatískra kvikmynda sem sýndu fram á þá breidd sem öflugur kvikmyndaiðnaður tímabilsins hafði yf- ir að búa. Þriðji megindagskrárliðurinn voru sýningar á ævintýralegum verkum rússneska hreyfimyndagerðarmannsins Ladislas Stare- witch. Hátíðin var sérlega glæsileg í ár, en þá færði hún varanlega miðstöð sína aftur til bæjarins Pordenone á Norður-Ítalíu, eftir að hafa verið haldin í nágrannabænum Sacile um átta ára skeið meðan á byggingu nýs leikhúss stóð. Skiptar skoðanir voru reyndar um hentugleika Verdi-leikhússins til kvikmyndasýninga sökum takmarkaðs útsýnis af efri svölum, þótt hljóm- gæði hafi verið eins og best er á kosið, en þar er hljómsveitargryfja og flygill af bestu gerð. Því ekki má gleyma að kvikmyndahátíðin í Pordenone er öðrum þræði tónleikaviðburður. Hátíðin hefur lagt rækt við rannsóknir á tón- list þögulla kvikmynda og á völdum tónleika- sýningum sáu stærri eða smærri hljómsveitir um flutninginn. Eftirminnilegasta tónleikasýn- ing hátíðarinnar, og ein besta mynd hátíð- arinnar að mínu mati, var bandaríska kvik- myndin Chicago frá árinu 1927, en samnefndur síðari tíma söngleikur og kvikmyndaaðlögun eru byggð á sömu sögu. Kvikmyndin er byggð á leikriti eftir fyrrum blaðakonuna og rithöf- undinn Maurine Watkins, en Cecil B. DeMille keypti kvikmyndaréttinn og framleiddi mynd- ina. Útkoman er meistaraverk sem slær sam- tímaútgáfunni af Chicago margfalt við, en myndin var sýnd við dúndrandi tónlistarflutn- ing stórsveitarinnar Prima Vista Social Club, hljómsveitar sem sérhæfir sig í að flytja tónlist með þöglum kvikmyndum. Heimur þöglu myndanna KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Pordenone á Ítalíu er alfarið helguð þöglum kvikmyndum. Grein- arhöfundur sótti hátíðina í ár og kynntist því samfélagi ástríðufólks um kvikmyndagerð sem stendur að hátíðinni og sækir hana ár hvert. Frosin París Paris qui dort eftir René Clair segir frá næturverði í Eiffel-turninum sem vaknar einn morgun við þann vonda draum að gervallt mann- líf Parísarborgar hefur verið fryst í hreyfingu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.