Morgunblaðið - 08.01.2007, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
GRETTIR, ÉG
ER KOMINN
HEIM
GLUKK!
HEIMSKA
HURÐ! ÁRANS
BINDI!
HANN KANN
SKO AÐ KOMA
VEL FYRIR UM
LEIÐ OG HANN
GENGUR INN
UM DYRNAR
ÉG HEYRÐI
AÐ ÞÉR LÍKAÐI
VIÐ NÝJA
KENNARANN
KALLI, NÝI KENNARINN
MINN ER BESTI KENNARINN Í
ÖLLUM HEIMINUM! HÚN ER
RÓS Á MEÐAL ÞYRNA!
HMMM
ÉG TRÚÐI EKKI
AÐ KERFIÐ GÆTI
BÚIÐ TIL SVONA
GÓÐA KENNNARA
SJÁÐU, MAMMA OG PABBI
ERU AÐ SETJA TÖSKUR Í
SKOTTIÐ! ÞAU HLJÓTA AÐ
VERA AÐ FARA Í FRÍ!
LOKSINS ERUM VIÐ MEÐ
HÚSIÐ ÚT AF FYRIR OKKUR!
VIÐ GETUM VAKAÐ EINS
LENGI OG VIÐ VILJUM, HORFT
Á SJÓNVARPIÐ OG BORÐAÐ
SMÁKÖKUR Í KVÖLDMAT
ERTU ENNÞÁ HÉRNA
UPPI? DRÍFÐU ÞIG!
HA? ÉG?
HVERT?
Í FRÍ! VIÐ
ERUM BÚIN
AÐ TALA UM
ÞAÐ Í
MÁNUÐ!
FRÍ MEÐ
ÞÉR OG
MÖMMU?
HVERNIG FRÍ
ER ÞAÐ
EIGINLEGA?
HVAÐ ERTU AÐ GERA? SAGÐIR ÞÚ MÉR
EKKI AÐ GEYMA
EGGIN ALLTAF UPPI?
HÆ ADDA!
HÆ LALLI!
HÆ DODDI! HÆ LINDA!
HÆ KRAKKAR!
ÞAÐ ER ORÐIÐ SVO
LANGT SÍÐAN. HVERNIG
HAFIÐ ÞIÐ ÞAÐ?
JÆJA...
ÉG...
LINDA, EKKI
FYRIR FRAMAN
BÖRNIN
VIÐ VERÐUM AÐ
KOMAST UNDAN!
ÞAÐ ER
VEFUR Á
GÖTUNNI!
ÉG ER
FASTUR!
ÞETTA ER EINS
OG FLUGNAPAPPÍR.
ÉG GET EKKI
HREYFT MIG
MEIRA
EINS OG
KÓNGULÓAR-
PAPPÍR, EN
ÞAÐ SKIPTIR
EKKI MÁLI
Sagnfræðingafélag Íslandsstendur fyrir fyrirlestraröðá vorönn þar sem sjónumer beint að samspili miðl-
unar og rannsókna.
Sverrir Jakobsson sagnfræðingur
ríður á vaðið á þriðjudag með fyr-
irlestri sínum Hvort kemur á und-
an, rannsóknir eða miðlun? „Ég
hyggst setja fram efasemdir um að
sú tilhneiging sagnfræðinga gangi
upp, að aðgreina sagnfræðistarfið í
rannsóknir annars vegar og miðlun
hins vegar, þar sem það fyrrnefnda
kemur á undan því síðarnefnda,“
segir Sverrir. „Við fyrstu sýn er
eðlilegt að komast að þeirri nið-
urstöðu að rannsókn komi alltaf á
undan miðlun þeirra upplýsinga
sem fræðin leiða í ljós, en ég held
því fram að í hverri rannsókn felist
tilteknar rannsóknarspurningar
sem taka alltaf mið af því sem svo á
að miðla, þ.e. þeim spurningum sem
sagnfræðingurinn ætlar sér að
svara.“
Einnig mun Sverrir ræða hlut-
verk kenninga og rannsóknarspurn-
inga: „Ég færi fyrir því rök að
sagnfræðingar hafi verið mjög fæln-
ir við að nota kenningar: þeir líti á
þær sem heftandi og íþyngjandi við
gerð rannsóknarspurninga, en þess
í stað notist þeir við eitthvað óskil-
greint sem kalla mætti heilbrigða
skynsemi en mætti allt eins kalla
fordóma, þar sem gengið er út frá
tiltekinni heimsmynd.“
Sverrir segir að sagnfræðirann-
sóknir myndu verða mun agaðri og
betri ef kenningum væri beitt í
meira mæli: „Sagnfræði sem skrif-
uð er án þess að efast um ýmsar
sjálfgefnar forsendur verður mjög
þægileg lesning, en ögrar ekki les-
andanum, og mun ég gagnrýna
hvernig t.d. það námsefni sem til er
í sagnfræði er kenningafælið og
varað við öllu sem kalla má lögmál,
án þess að boðið sé upp á eitthvað
annað sem komið getur í staðinn,“
segir Sverrir.
Sverrir segir mikið stundað af
góðri sagnfræði á Íslandi, en segir
hættu á að íhaldssemi innan fræði-
greinarinnar geti orðið til þess að
hún dragist aftur úr sambærilegum
greinum. „Ég vara í fyrirlestrinum
við þeim hugmyndum að sagnfræði
sé aðeins handverk, og að hún van-
ræki að spyrja gagnrýnna og ögr-
andi spurninga,“ segir Sverrir.
„Sagnfræðingar virðast einnig
hræddir við að hafa rangt fyrir sér,
sem kann að skýra þá hræðslu sem
má finna innan greinarinnar við að
skoða söguna út frá kenningum. En
vísindin snúast að miklu leyti um
það að hafa rangt fyrir sér, og mið-
ar fræðunum ekki áfram nema allir
hlutir séu skoðaðir með opnum
huga, settar fram tilgátur og hug-
myndir sem mátaðar eru við veru-
leikann – því jafnvel ef þær reynast
ekki réttar hefur vísindunum samt
miðað áfram í átt að sannleikanum.“
Sem fyrr segir flytur Sverrir
Jakobsson fyrirlestur sinn á þriðju-
dag, í fyrirlestrarsal Þjóðminja-
safns Íslands, kl. 12.05. Aðgangur
að fyrirlestraröð Sagnfræðinga-
félags Íslands er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar um næstu
fyrirlestra vorannar má finna á
slóðinni www.sagnfraedinga-
felag.net.
Sagnfræði | Fyrirlestraröð Sagnfræðinga-
félagsins á vorönn hefst á þriðjudag
Samspil rann-
sókna og miðlunar
Sverrir Jak-
obsson fæddist í
Reykjavík 1970.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum
við Sund 1990,
BA-prófi í sagn-
fræði frá Há-
skóla Íslands
1993, BA-prófi í grísku frá sama
skóla 2005, MA-prófi í mið-
aldafræði frá Leedsháskóla 1994 og
doktorsnámi við HÍ 2005. Sverrir
hefur fengist við kennslu, fræða-
skrif, ritstjórn og þýðingar. Hann
er nú stundakennari við Háskóla Ís-
lands
VERKIÐ Blessuð sért þú er eftir bandarísku listakonuna Kate Kretz.
Eins og sjá má er verkið af leikkonunni Angelinu Jolie og börnum henn-
ar þremur. Þau svífa yfir mynd af Wall Mart-verslunarkeðjunni og segir
Kretz myndina ádeilu á aðdáun á frægu fólki.
AP
Blessuð sé Angelina