Morgunblaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 9. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
DAGUR VONAR
SPENNANDI AÐ SJÁ VIÐBRÖGÐ ÁHORFENDA
TUTTUGU ÁRUM EFTIR FRUMSÝNINGU >> 32
HEFUR LOSAÐ OKKUR
VIÐ SORPIÐ Í 50 ÁR
GÓÐ VINNA
HEIÐRAÐUR >> 19
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
HERÞYRLUR, að öllum líkindum bandarísk-
ar, gerðu í gær loftárás á fylgsni grunaðra liðs-
manna al-Qaeda hryðjuverkanetsins skammt
frá bænum Afmadow í suðurhluta Sómalíu.
Ónafngreindur sómalskur þingmaður sagði 31
óbreyttan borgara hafa látið lífið í árásinni,
annar sjónarvottur sagði 22 til 27 hafa fallið.
Aðgerðirnar komu í kjölfar loftárása AC-130
árásarflugvélar Bandaríkjahers í suðurhluta
landsins í fyrrinótt, en blaðið New York Times
hefur eftir embættismönnum bráðabirgða-
stjórnarinnar að yfir 50 hafi týnt lífi í árásunum.
Þá hafði AP-fréttastofan eftir sómölskum
herforingja, að minnst ein slík vél hefði gert
árás á búðir al-Qaeda á eyju suður af Sómalíu.
Íslamistar og meintir liðsmenn al-Qaeda voru
fyrir skömmu hraktir á flótta frá Mogadishu og
að landamærunum að Kenýju, eftir að her Eþí-
ópíu var sendur inn í landið. | 15
AP
Vígbúnaður SH-60F Seahawk-orrustuþyrla
lendir á USS Eisenhower-flugmóðuskipinu
undan ströndum Sómalíu á mánudag.
Blóðbað
í Sómalíu
Bandaríkjaher gerir
loftárásir á íslamista
JEPPAR, sólarlanda-
ferðir og sumarbú-
staðir eiga eitt sam-
eiginlegt: Allt eru
þetta fremur hvers-
dagslegir happdrætt-
isvinningar. John Bab-
bage, stofnandi
Europa International,
er sér líklega flestum betur meðvitandi um
þessa staðreynd, en fyrirtæki hans hefur
brotið blað í sögu happdrættis með því bjóða
vinningshöfum upp á um 825.000 króna ávís-
un á lýtalækningar að eigin vali.
Miðinn kostar aðeins rétt rúmlega 200
krónur og má greiða með sms-smáskilaboð-
um eða í gegnum síma. Í staðinn geta þátttak-
endur látið sig dreyma um gelísprautun í
andlit, hárígræðslu eða jafnvel fitusogs-
aðgerð, allt eftir því hvað hugurinn girnist.
Umrætt fyrirtæki var stofnað fyrir ellefu
árum í Prag og annast markaðssetningu fyrir
lýtalækna í borginni, einmitt þar sem ljón-
heppnir vinningshafar yrðu settir undir hníf-
inn. Bretar eru um 90 prósent viðskiptavina
en uppátækið hefur engu að síður verið harð-
lega gagnrýnt af þarlendum lýtalæknum,
sem segja það í besta falli smekklaust.
Andlitslyfting
í fyrsta vinning
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
SAMKOMULAG hefur tekist milli
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins og íslenskra stjórnvalda
um frekari tollalækkanir á land-
búnaðarvörum. Samkomulagið
verður lagt fyrir ríki Evrópusam-
bandsins í næstu viku.
ESB og Ísland gengu frá samn-
ingi um viðskipti með landbúnaðar-
vörur á síðasta ári og átti hann að
taka gildi um áramót. Ákveðið hef-
ur hins vegar verið að fresta gild-
istökunni til 1. mars, en þá eiga að
koma til framkvæmda aðgerðir til
lækkunar á matvælaverði sem rík-
isstjórnin boðaði sl. haust.
Valgerður Sverrisdóttir utanrík-
isráðherra segir að fulltrúar Ís-
lands hafi átt árangursríka fundi
með fulltrúum ESB í lok síðasta
árs.
„Það er sumsé verið að reyna að
freista þess að ná samkomulagi
fyrir 1. mars um frekari lækkun á
tollum og bættan markaðsaðgang.
Það kom fram á þessum fundi vilji
til að gera viðbætur á samkomu-
laginu [um viðskipti með landbún-
aðarvörur sem gert var sl. sumar].
Báðir aðilar lögðu fram tillögur þar
að lútandi. Það náðist á fundinum
bráðabirgðasamkomulag sem
verður lagt fyrir aðildarríki ESB
um miðjan janúar.“
Síðast þegar Hagstofan birti töl-
ur um samanburð á matvöruverði
hér á landi við verðlag í ESB var
verðlag á Íslandi 48% hærra en í 15
ríkjum ESB. Upplýsingarnar mið-
uðust við árið 2003. Tölur sem hag-
stofa Evrópusambandsins, Euro-
stat, birti vegna ársins 2005 sýna
hins vegar verðlag á Íslandi 62%
hærra en í ESB. Rósmundur
Guðnason, deildarstjóri vísitölu-
deildar Hagstofu Íslands, segir að
sterkt gengi krónunnar árið 2005
skýri nær alfarið þessa breytingu.
Eina marktæka breytingin sé að
verð á kjöti hafi hækkað. Árið 2003
var kjötverð á Íslandi 43% hærra
en í ESB en 2005 var þetta hlutfall
86%.
Samkomulag við ESB
um frekari tollalækkanir
!
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"$#
"%$
"$"
"""
&&
"'&
"('
")"
")%
"*%
"'(
"%#
"$&
"()
""'
""&
"#+
"##
"#)
""%
""(
!"#$
,
-
. -/
0 '##)
Gengi krónu | Miðopna
EKKI er líklegt, að þessi kona, sem
var að skoða papriku í Fjarð-
arkaupum í Hafnarfirði, hafi velt
því sérstaklega fyrir sér hvað hún
kostaði handan Íslandsála en eins
og fram hefur komið er verð á mat-
og drykkjarvöru 62% hærra hér á
landi en til jafnaðar í gömlu Evr-
ópusambandsríkjunum 15.
Ávextir og grænmeti eru 55%
dýrari hér en þar en kjötvara 86%
dýrari. Mestur er munurinn á
áfengi, 135% dýrara hér en í ESB,
og tóbakið 73% dýrara. Það, sem
kemur þó kannski mest á óvart er,
að liðurinn húsnæði, rafmagn og
vatn er 51% dýrari hér á landi en að
meðaltali í ESB. Þá má nefna fisk-
inn, sem er 35% dýrari hér. Morgunblaðið/Ásdís
Girnilegir
ávextir en
dýrseldir
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
KAUPÞING banki hefur á undanförnum
þremur mánuðum fært stóran hluta af eigin fé
sínu úr krónum í erlenda mynt og þá vænt-
anlega evrur. Víst má telja að bankinn sé nú
kominn með hátt í eða um 50% af eigin fé sínu,
sem er í kringum 300 milljarðar, í erlenda
mynt. Kaupþing banki tjáir sig ekki um hvort
bankinn hafi tekið stefnuna á að gera upp í
evrum en segir hlutfall erlendrar myntar vera
aukið til þess að verja eigið fé bankans. Sé það
hins vegar markmið bankans að fara í evrur er
ljóst að hann á ekki mjög langt í land með það,
ekki síst ef hann velur að halda eftir 20% af
eigin fé sínu í íslenskum krónum sem honum
er heimilt. Af því gefnu væri Kaupþing banki
væntanlega þegar kominn með 60% þess sem
hann þyrfti að breyta í evrur.
Hefur sótt um undanþágu
Kaupþing banki hefur nú staðfest við Morg-
unblaðið að hann hafi sótt um og fengið und-
anþágu hjá Seðlabanka Íslands í kringum al-
þjóðlegt hlutafjárútboð sitt í nóvember til þess
að fara umfram þau 30% mörk af eiginfjár-
grunni sem kveðið er á um í reglum Seðla-
banka Íslands. Ekki fæst uppgefið hversu
stóran hluta eigin fjár Kaupþingi er heimilt að
vera með í erlendri mynt en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins munu vera takmörk þar
á.
Kaupþing, Glitnir og Landsbankinn juku
nettó gjaldeyrisstöðu sína gríðarlega síðustu
þrjá mánuði ársins eða um 111,5 milljarða, þar
af um 81,4 milljarða í desembermánuði. Nokk-
uð víst er að langstærsta hluta þessar aukn-
ingar má rekja til Kaupþings; alþjóðlegt hluta-
fjárútboð skilaði bankanum um 56 milljörðum
og Kaupþing hefur upplýst að þeirri upphæð
hafi ekki verið breytt í krónur. Ljóst er að
Kaupþing banki hefur þar fyrir utan skipt um-
talsverðu af krónum fyrir evrur eða aðra mynt
á undanförnum vikum og mánuðum.
Kaupþing banki í evrur?
Þegar kominn með um helming af eigin fé sínu í erlenda mynt
♦♦♦