Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 2

Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag miðvikudagur 10. 1. 2007 íþróttir mbl.is íþróttir Gylfi Einarsson loks tilbúinn í slaginn með Leeds >> 11 STJARNAN SÆKIR AÐ VAL STJÖRNUKONUR LÖGÐU GRÓTTU Á SANNFÆRANDI HÁTT EN HK NÁÐI ÓVÆNTU JAFNTEFLI GEGN VAL >> 4 „Jú, þakka þér fyrir, ég er bara mjög hamingjusamur með þetta allt saman. Það hefur gengið vel hjá okk- ur síðan ég tók við og nú höfum við unnið fimm heimaleiki í röð,“ sagði Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari ÍR, eftir sigurinn í gær. Jón Arnar sagði að þannig vildu ÍR-ingar hafa það. „Við viljum hafa þetta þannig að Seljaskólinn sé okk- ar heimavöllur og við eigum hann. Hingað eiga ekki að koma lið sem telja það auðvelt að vinna okkur hérna,“ sagði þjálfarinn. Leikurinn í gær var jafn og spenn- andi og talsvert sveiflukenndur. Borgnesingar hófu leikinn á svæð- isvörn en skiptu í maður á mann í öðrum leikhluta. ÍR hélt sig hins vegar við maður á mann vörn allan leikinn og léku hana lengstum vel – sérstaklega í þriðja leikhlutanum. Tíu stig í röð snemma í fyrsta leik- hluta komu Skallagrími í 17:7, en ÍR svaraði með sjö stigum í röð. Undir lok leikhlutans var Skallagrímur 24:16 yfir en þá kom 21 stig frá ÍR á meðan gestirnir gerðu aðeins tvö. Staðan 27:26 eftir fyrsta leikhluta. Jafnræði var einnig í öðrum leik- hluta, Skallagrímur komst þó í 45:38 með því að gera 9 stig í röð um mið- bik hans. Í þriðja leikhluta var lítið skorað, ÍR náði þó að gera 23 stig og með frábærri vörn hélt liðið heimamönn- um í tíu stigum alveg þar til þeir gerðu þriggja stiga körfu í lok hans. Staðan 73:64 fyrir síðasta leikhluta. Með tveimur þriggja stiga körfum í upphafi minnkaði Skallagrímur muninn í þrjú stig en nær komst liðið ekki og reynsluboltinn Eiríkur Ön- undarson, sem hafði sig lítið í frammi nema undir lokin, gerði síðustu átta stig ÍR-inga. „Við lékum fína vörn í dag. Reynd- ar fengum við of mörg stig á okkur í fyrri hálfleik en bættum úr því í þeim síðari. Annars var þetta svipaður leikur og í deildinni fyrir áramótin,“ sagði Jón Arnar, þjálfari ÍR. Hreggviður Magnússon átti stór- leik hjá ÍR, skoraði grimmt og var drjúgur í fráköstum. Nate Brown er öruggur með boltann og því tapar liðið honum ekki oft. Steinar Arason átti flottan leik, lék mjög góða vörn á móti Jovan Zdravevski og gerði auk þess 15 stig með fimm þriggja stiga körfum. Hann hefði að ósekju mátt skjóta meira því hann hitti í fimm af sex skotum sem er mjög góð nýting. ÍR-ingar á siglingu Morgunblaðið/Kristinn Góður Hreggviður Magnússon lék vel fyrir ÍR í gær, hér verst hann gegn Pálma Sævarssyni. ÍR-INGAR eru í miklum ham í körfunni þessa dagana og í gær- kvöldi tryggði liðið sér sæti í und- anúrslitum bikarkeppni Lýsingar og KKÍ með því að leggja Skalla- grím í Seljaskóla, 92:88. Þetta er annar sigur ÍR á Skallagrími skömmum tíma því 29. desember hafði liðið betur í deildinni. Á Sel- fossi höfðu Keflvíkingar betur gegn liði FSu, 117:77 og tryggði sér einnig sæti í undanúrslitum en þar verða einnig Grindavík og Hamar/Selfoss. Skallagrímur lá öðru sinni í Seljaskóla Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is ÞEIR eru ekki margir stuðn- ingsmenn enska knattspyrnu- liðsins Liverpool sem hafa áð- ur upplifað að sjá lið sitt fá á sig sex mörk á heimavelli sín- um, Anfield. Það er hugsan- legt að einhverjir slíkir hafi verið á meðal áhorfenda í gærkvöld þegar lið þeirra fékk útreið gegn Arsenal í átta liða úrslitum deildabik- arsins, 3:6, en þá eru þeir orðnir ansi aldraðir. Það eru nefnilega liðin 77 ár síðan Liv- erpool fékk síðast á sig sex mörk á An- field en það gerðist 19. apríl 1930 þegar Sunder- land vann þar stór- sigur, 6:0. Brasilíumaðurinn Julio Baptista var í aðalhlutverki hjá Arsenal því hann skoraði fjögur markanna, auk þess sem Jerzy Dudek, markvörð- ur Liverpool, varði frá honum vítaspyrnu. Liverpool varð fyrir enn meiri áföllum í leiknum því þeir Luis Garcia og Mark Gonzalez voru báðir bornir slasaðir af velli og Rafael Benítez, knattspyrnustjóri fé- lagsins, sagði eftir leikinn að hætt væri við því að báðir yrðu þeir lengi frá keppni. 3 Julio Baptista Arsenal með sex á Anfield, fyrst liða í 77 ár ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu fær líklega eng- an undirbúningsleik fyrir leikinn gegn Spánverjum í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer á sólareyjunni Majorka, miðvikudaginn 28. mars. ,,Við höfum reynt að útvega liðinu leik 7. febrúar sem er alþjóðlegur leikdagur en okkur hefur ekki orðið ágengt enn sem komið er og að óbreyttu þá spilum við engan æfingaleik fyrir leik- inn á móti Spánverjum,“ sagði Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, við Morgunblaðið. Íslendingum var boðið að spila leik gegn Svartfell- ingum í Podgorica þann 24. mars en því boði var hafnað þar sem landsliðsþjálf- aranum Eyjólfi Sverrissyni fannst leikurinn of nálægt leiknum við Spánverja. Íslendingar hafa lokið fjór- um leikjum í undankeppninni og er uppskeran í þeim leikj- um þrjú stig. Sigur vannst á N-Írum í Belfast, 3:0, í fyrsta leiknum en í kjölfarið fylgdu töp geg Dönum, 2:0, Lettum, 4:0, og Svíum, 2:1. Næstu leikir í riðlinum verða 24. mars þegar Spán- verjar taka á móti Dönum og Liechtenstein á móti N-Írum en fjórum dögum síðar mæt- ast Spánverjar og Íslend- ingar, Liechtenstein og Lett- ar og N-Írar og Svíar. Enginn æfingaleikur fyrir Spánarleikinn Y f i r l i t                                  ! " # $ %         &         '() * +,,,                 Í dag Sigmund 8 Viðhorf 24 Veður 8 Umræðan 24/25 Staksteinar 8 Afmæli 25 Viðskipti 12 Minningar 26/29 Erlent 14/15 Myndasögur 36 Höfuðborgin 17 Dagbók 36/41 Akureyri 17 Staður og stund 38/41 Suðurnes 18 Leikhús 34 Daglegt líf 19/21 Bíó 38/41 Menning 16,32/36 Ljósvakamiðlar 42 Forystugrein 22 * * * Innlent  Samkomulag hefur tekist milli framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins og íslenskra stjórnvalda um frekari tollalækkanir á land- búnaðarvörum. Tölur sem hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti vegna ársins 2005 sýna hins vegar verðlag á Íslandi 62% hærra en í ESB. » Forsíða  Maður sem glímdi við spilafíkn í mörg ár og tapaði tugum milljóna lýsir reynslu sinni í Morgunblaðinu í dag. Félagsmálaráðherra vill tak- marka aðgengi og fjölda spila- kassa. »Baksíða  Sigrún Björk Jakobsdóttir var í gær ráðin bæjarstjóri á Akureyri, fyrst kvenna. Hún sagði það ennþá frétt að kona væri ráðin í starf sem þetta, þó að vonandi þætti það ekki mikil frétt í framtíðinni, en ráðning sín væri vissulega mik- ilvægt skref fyrir konur. » 17  Öryrkjum heldur áfram að fjölga hér á landi og voru þeir tæplega 14 þúsund talsins í lok árs 2005. Örorka var mun algengari hjá konum en körlum og fór stig- vaxandi með aldri. Þá var örorka talsvert algengari hjá konum á landsbyggðinni en á höfuðborg- arsvæðinu. » 4 Erlent  Japanir hafa nú komið sér upp varnarmálaráðuneyti í fyrsta sinn síðan í seinni heimsstyrjöld og var tímamótunum fagnað með sér- stakri athöfn í Tókýó í gær. » 14  Mikið mannfall varð þegar Bandaríkjaher gerði loftárásir á fylgsni íslamista og meintra hryðjuverkamanna al-Qaeda í Sómalíu í fyrrinótt. Markmiðið með árásunum var að fella menn sem grunaðir eru um sprengju- árásir á sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa og Tansaníu árið 1998. » 15  George W. Bush Bandaríkja- forseti hyggst fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak um allt að 20.000 manns. Munu hermennirnir verða sendir til þeirra tveggja svæða, þar sem ofbeldi hefur verið hvað verst, þ.e. til höfuðborg- arinnar Bagdad og Anbar-héraðs í V-Írak. » 14 Viðskipti  Kaupþing banki hefur á und- anförnum þremur mánuðum fært stóran hluta af eigin fé sínu úr krónum í erlenda mynt og þá væntanlega evrur. Víst má telja að bankinn sé nú kominn með hátt í eða um 50% af eigin fé sínu, sem er í kringum 300 milljarðar, í er- lenda mynt. » Forsíða Eftir Andra Karl andri@mbl.is LÆKNARÁÐ Landspítala – há- skólasjúkrahúss hefur óskað eftir fundi með heilbrigðisnefnd Alþingis til að ræða álit ráðsins á frumvarpi heilbrigðisráðherra um heilbrigðis- þjónustu. Í álitinu segir m.a. að læknaráð telji svo mörgu vera ábótavant í frumvarpinu að skoða ætti hvort afgreiðslu þess ætti að fresta og vísa til nefndar að nýju. Í bréfi sem Friðbjörn Sigurðsson, formaður læknaráðs LSH, ritar Guðjóni Ólafi Jónssyni, formanni heilbrigðisnefndar Alþingis, segir m.a.: „Þrátt fyrir nafn frumvarpsins vekur það furðu hversu lítið er fjallað um heilbrigðisþjónustuna sjálfa, heldur fjallar frumvarpið að miklu leyti um vald ráðherra og for- stjóra heilbrigðisstofnana. Lækna- ráð LSH leggur ríka áherslu á að lögin taki til faglegrar ábyrgðar í heilbrigðisþjónustunni og að fagleg og rekstrarleg ábyrgð fari saman.“ Dregið úr aðhaldi að stjórn sjúkrahússins Í áliti læknaráðsins segir m.a. að í núgildandi lögum sé fagleg ábyrgð nokkuð skýr m.t.t. til lækninga en í frumvarpinu sem nú liggur fyrir Al- þingi sé ábyrgðin hins vegar óljós. Þannig sé dregið úr áhrifum yfir- lækna sérgreina læknisfræðinnar, hæfnismati við ráðningar sérfræði- lækna og áhrifum læknaráðs. „Auk þess er stjórnarnefndin í raun af- numin en það dregur úr aðhaldi eig- enda, þ.e. þjóðarinnar, að stjórn sjúkrahússins.“ Læknaráð nefnir nokkur atriði sem verði að vera skýr í lögum, s.s. ábyrgð lækningaforstjóra yfir lækn- ingastarfsemi, hlutverk fram- kvæmdastjórnar og ráðgefandi hlut- verk læknaráðs auk þess sem faglegt ráðningaferli þurfi að vera vel skilgreint í allar stöður yfir- lækna og sérfræðilækna á háskóla- sjúkrahúsum og auglýsa þurfi allar stöður. Þessir þættir eru að mati lækna- ráðs LSH skýrir í núgildandi lögum en ekki í fyrirliggjandi frumvarpi. Enginn fulltrúi var í undirbúningsnefnd Læknaráð telur frumvarpið ekki snúa að faglegri uppbyggingu heil- brigðisþjónustunnar og „í raun svo mörgu vera ábótavant í því frum- varpi sem fyrir liggur, að skoða ætti hvort fresta ætti frumvarpinu og vísa til nefndar að nýju.“ Í ljósi þess að enginn fulltrúi læknaráðs LSH eða læknadeildar Háskóla Íslands átti sæti í undirbúningsnefnd frum- varpsins væri þá komið tækifæri til að koma sérstökum sjónarmiðum og röksemdum þeirra á framfæri með setu í nýrri nefnd. Fresta ætti frumvarp- inu og vísa til nefndar Læknaráð LSH telur mörgu ábótavant í frumvarpi um heil- brigðisþjónustu og vill fund með heilbrigðisnefnd Alþingis Í HNOTSKURN » Læknaráð LSH telur lögum heilbrigðisþjónustu faglega í hugsun og leitast við að skilgreina ábyrgð með ör- yggi sjúklinga að leiðarljósi. » Breytingar þurfi því aðskoða mjög vel þannig að öryggi sjúklinga skerðist ekki. » Læknaráðið telur mörguvera ábótavant í nýja frumvarpinu og telur að skoða ætti að fresta því og vísa til nefndar að nýju. Morgunblaðið/ÞÖK ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Brim hefur ákveðið að skrá fjóra Akureyrartog- ara félagsins í Reykjavík og segir Guðmundur Einarsson, forstjóri Brims, ástæðuna vera erfiðleika í samstarfi útgerðarinnar og Sjó- mannafélags Eyjafjarðar. „Við höfum ekki náð samstarfs- grundvelli við Sjómannafélag Eyja- fjarðar á þeim árum sem við höfum rekið útgerð hér á Akureyri. Sjó- mannafélagið hefur staðið í vegi fyrir öllum breytingum sem við höfum reynt að gera á útgerðinni. Félagið virðist telja það skyldu sína að verja hagsmuni sína án tillits til þess hvort breytingarnar leiði til góðs fyrir báða aðila og lítur á allar breytingar sem eitthvað hættulegt,“ segir Guð- mundur en hann segir mælinn hafa fyllst síðastliðið haust. „Þá stoppuðu skipin ekki alveg 30 tíma eins og kjarasamningar gera ráð fyrir en í kjölfarið fékk útgerðin á sig kæru. Hins vegar var engin krafa af hálfu útgerðarinnar að skipin færu út heldur lá ákvörðunin alfarið hjá skip- stjóranum og áhöfninni.“ Misnota ákvæði kjarasamninga Guðmundur segir að þegar kært var í haust hafi það verið í annað skiptið sem Sjómannafélagið hafi kært útgerðina en í sínum huga sé ekki vafi á að með þessu hafi Sjó- mannafélagið misnotað ákvæði í kjarasamningum. „Um er að ræða áratuga gamalt ákvæði í kjarasamningum sem kveð- ur á um að ef útgerðarmaður brjóti kjarasamning beri honum að greiða 400 þúsund krónur í félagssjóð við- komandi stéttarfélags. Hins vegar rennur ekkert til viðkomandi áhafn- ar. Þessu ákvæði var aldrei beitt þar til nýlega og að okkar viti er það ekki í neinu eðlilegu samræmi við meint brot,“ segir Guðmundur. Hann segist ekki búast við að skráning í Reykjavík muni leiða til frekari deilna við Sjómannafélag Eyjafjarðar. „Þegar menn ná ekki samkomulagi verður annar aðilinn að bakka. Í þessu tilfelli höfum við ákveðið að fara og erum þá ekki lengur háðir Sjómannafélagi Eyjafjarðar,“ segir Guðmundur. Tylliástæða fyrir brottför Konráð Alfreðsson, formaður Sjó- mannafélags Eyjafjarðar, vísar því alfarið á bug að Sjómannafélagið hafi ekki getað samið við Brim. „Staðreyndin er sú að það hefur hvorki verið erfitt að semja við Sjó- mannafélag Eyjafjarðar né mig sem fulltrúa sjómanna. Það eru til tveir samningar undirritaðir af mér sem báðir eru í gildi. Rök Guðmundar að erfitt sé að semja við Sjómannafélag Eyjafjarðar standast engan veginn,“ segir Konráð og hann vísar sömuleið- is á bug að félagið hafi kært útgerð- ina að tilefnislausu. „Um var að ræða augljós brot á kjarasamningum og þegar svo er háttað ber okkur skylda til að grípa til þeirra úrræða sem samningurinn kveður á um. Við erum vonsviknir yf- ir þessari ákvörðun Guðmundar, en hann er einfaldlega að finna sér blóraböggul til þess að framkvæma það sem hann hefur ávallt ætlað sér. Það er að flytja útgerðina í burtu frá Akureyri,“ segir Konráð að endingu. Ljósmynd/Þorgeir Stormasamt Kjarasamningar útgerðarfélagsins Brims og Sjómannafélags Eyjafjarðar hafa ekki gengið þrautalaust á undanförnum árum. Skipta um heima- höfn vegna deilna Tylliástæða, segir formaður Sjó- mannafélagsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.