Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 14
Madríd. AP, AFP. |
Aðskilnaðar-
hreyfing Baska,
ETA, lýsti í gær
sprengjutilræð-
inu í Madríd 30.
desember á hend-
ur sér. Hreyfing-
in sagði þó að
„varanlegt vopna-
hlé“ hennar væri
enn í gildi.
Tveir menn biðu bana og 26 særð-
ust þegar sprengja sprakk í fimm
hæða bílastæðahúsi við flugvöll í
Madríd 30. desember. ETA játaði á
sig verknaðinn í yfirlýsingu sem birt
var í baskneska dagblaðinu Gara,
sem er hlynnt stofnun sjálfstæðs rík-
is Baska á Spáni og hefur oft birt
slíkar yfirlýsingar frá aðskilnaðar-
hreyfingunni.
Alfredo Perez Rubalcaba, innan-
ríkisráðherra Spánar, kvaðst ekki
telja að hægt yrði að hefja friðarvið-
ræður við ETA eftir sprengjutilræð-
ið.
Í yfirlýsingunni lagði aðskilnaðar-
hreyfingin áherslu á að hún hefði
varað við tilræðinu rúmri klukku-
stund áður en sprengjan sprakk
vegna þess að hreyfingin hefði ekki
viljað valda manntjóni.
Hringt var þrisvar sinnum til að
vara við sprengjunni og spænska
lögreglan reyndi að rýma bílastæða-
húsið. Tveir innflytjendur frá Ekva-
dor biðu þó bana, en þeir voru sof-
andi í bíl í húsinu þegar sprengingin
varð.
ETA lýsti yfir „varanlegu vopna-
hléi“ fyrir níu mánuðum og það vakti
vonir um að stjórn Jose Luis Ro-
dríguez Zapatero, forsætisráðherra
Spánar, gæti hafið friðarviðræður
við hreyfinguna. Zapatero lýsti því
yfir eftir sprengjutilræðið í Madríd
að öllum samskiptum við fulltrúa
ETA hefði verið slitið.
ETA segir
vopnahlé
enn í gildi
Alfredo Perez
Rubalcaba
14 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti hyggst fjölga í herliði Banda-
ríkjamanna í Írak um allt að 20.000
manns. Munu hermennirnir verða
sendir til þeirra tveggja svæða, þar
sem ofbeldi hefur verið hvað verst,
þ.e. til höfuðborgarinnar Bagdad og
Anbar-héraðs í vesturhluta landsins,
en þar eru borgirnar Fallujah og Ra-
madi.
Bush flytur í kvöld sjónvarps-
ávarp en þar mun hann kynna fyrir
þjóð sinni til hvaða aðgerða hann vill
grípa í því skyni að snúa vörn í sókn í
Írak, þ.e. stilla til friðar og tryggja
stöðugleika og öryggi þannig að
hægt verði að fara að kalla banda-
ríska hermenn heim frá landinu.
Bush hefur á undanförnum dögum
verið að hitta þingmenn, bæði demó-
krata og repúblikana, og kynna fyrir
þeim nýja stefnumörkun sína. Hafði
fréttastofan Associated Press í gær
eftir nokkrum þeirra að Bush vildi
fjölga um allt að 20.000 í herliðinu, en
fyrir eru hátt í 140.00 hermenn.
Demókratar, sem nú hafa meiri-
hluta í báðum deildum Bandaríkja-
þings, eru klofnir í afstöðu sinni til
þess hvort rétt sé að veita Bush fjár-
heimild til að fjölga í bandaríska
hernum í Írak og m.a. segir Carl Le-
vin, nýr yfirmaður hermálanefndar
öldungadeildarinnar, að hann telji
aðeins koma til greina að samþykkja
beiðni Bush ef forsetinn skrifi jafn-
framt upp á að byrjað verði að kalla
hermenn heim innan sex mánaða.
Eru ekki allir sannfærðir – hvorki
demókratar né repúblikanar – um að
það muni nokkru máli skipta þó að
bandarískum hermönnum verði
fjölgað í Írak um nokkur þúsund.
Ástand þar sé of erfitt. Í gær féllu
a.m.k. 50 liðsmenn uppreisnarsveita
súnníta í aðgerðum íraskra og
bandarískra öryggissveita. Kom til
harðra bardaga á Haifa-stræti þegar
gerð var skyndiárás gegn vígjum
uppreisnarmanna þar.
Írakar flýja heimili sín
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna hefur biðlað til umheimsins
að beðið uml 60 milljónir Banda-
ríkjadala, um 4,2 milljarða ísl. króna,
svo hægt verði að aðstoða fólk sem
nú flýr ofbeldið í Írak.
Eftirgrennslanir Flóttamanna-
hjálparinnar (UNHCR) benda til að
einn af hverjum átta hafi flúið heimili
sitt og að um 50.000 manns fari á ver-
gang í hverjum mánuði. Eru þetta
mestu langtíma mannflutningarnir
af þessari tegund frá því að Palest-
ínumenn lentu á hrakhólum eftir
stofnun Ísraelsríkis 1948.
Bush vill fjölga hermönnum
um allt að 20.000 í Írak
AP
Bardagar Reykur stígur til himins á Haifa-stræti í Bagdad eftir að íraskir
og bandarískir hermenn réðust gegn vígjum uppreisnarmanna súnníta.
Einn af hverjum átta Írökum hefur flúið heimili sitt vegna ofbeldisins í landinu
Í HNOTSKURN
»Einn af hverjum átta Írökum,þ.e. 12%, hefur flúið heimili
sitt vegna ofbeldisins í landinu.
»UNHCR áætlar að um 1,7milljónir manna séu á ver-
gangi innan Íraks og að um tvær
milljónir manna hafi flúið yfir
landamærin; um ein milljón er
sögð vera flóttamenn í Sýrlandi
og 700.000 í Jórdaníu.
»Flestir írösku flóttamann-anna lifa við fátækt í ná-
grannalöndunum og í Sýrlandi,
svo dæmi sé tekið, sækir þriðj-
ungur íraskra barna ekki skóla.
»UNCHR varar við því aðþeim muni fjölga verulega á
þessu ári sem neyðist til að flýja
heimili sín, þó að þeir flýi ekki
Írak, og spáir því að talan verði
2,7 milljónir í árslok.
RÍKISSTJÓR-
INN í Kaliforníu,
repúblikaninn
Arnold
Schwarzeneg-
ger, lagði á
mánudag til að
nýtt kerfi sjúkra-
trygginga yrði
látið ná til svo til
allra íbúanna en
þeir eru um 36
milljónir. Um fimmtungur Kali-
forníumanna, þar af um milljón
ólöglegir innflytjendur, er ekki
með neina slíka tryggingu.
Schwarzenegger telur að kostn-
aðurinn við nýja kerfið verði um 12
milljarðar dollara eða um 840 millj-
arðar króna, að sögn The New
York Times. Kostnaður verður
greiddur með framlögum af hálfu
vinnuveitenda, ríkis og launþeg-
anna sjálfra. Læknar og sjúkrahús
verða einnig skylduð til að borga
ákveðið hlutfall af tekjum sínum til
að taka þátt í kostnaðinum. Trygg-
ingafélög munu greiða 85% af
hagnaði sínum til heilbrigðisþjón-
ustu og mun verða bannað að neita
að tryggja fólk vegna aldurs eða lé-
legrar heilsu.
Demókratar, sem eru með meiri-
hluta á Kaliforníuþingi, fögnuðu
ákaft tillögunum og þótt talsmenn
repúblikana væru tortryggnari
sögðust þeir vilja ræða hugmynd-
ina. Þrjú ríki hafa þegar komið á al-
mennu sjúkratryggingakerfi en
þess má geta að í Bandaríkjunum
er fyrir hendi kerfi er sér fátækum
fyrir sjúkratryggingum, Medicaid.
Allir njóti
sjúkra-
trygginga
Arnold
Schwarzenegger
TALIÐ er að minnst 80.000 manns hafi safnast saman í
miðborg Manila í gær þegar Svarti Naðverjinn, 400 ára
gömul stytta af Jesú Kristi, var borin um götur borg-
arinnar á trúarhátíð sem kennd er við styttuna.
Spænskir trúboðar eru sagðir hafa komið með styttuna
til Filippseyja árið 1606 og margir landsmenn trúa því
að hún búi yfir guðlegum mætti. Mikill troðningur varð
þegar fólkið reyndi að snerta styttuna.
Reuters
Svarti Naðverjinn borinn um göturnar
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
JAPANAR hafa nú komið sér
upp varnarmálaráðuneyti í
fyrsta sinn síðan í seinni heims-
styrjöld og var tímamótunum
fagnað með sérstakri athöfn í
Tókýó í gær. Á yfirborðinu er
aðeins um nafnbreytingu að
ræða, ráðuneytið hét áður
varnarstofnunin en hinn nýi
forsætisráðherra landsins, Shinzo Abe, er með
breytingunni að efna kosningaloforð um að
styrkja ímynd ríkisins út á við.
Bandaríkjamenn hernámu Japan í stríðslok og
settu þjóðinni árið 1947 stjórnarskrá þar sem tek-
ið var fram að fylgt yrði stefnu friðar. Komið var á
fót svonefndum sjálfsvarnarsveitum sem aðeins
máttu beita vopnum ef ráðist væri á landið. Smám
saman hafa sveitirnar verið efldar en mestu um-
skiptin urðu þegar Japanar sendu nokkurt herlið
til að gæta friðar í sunnanverðu Írak eftir innrás-
ina 2003. Útgjöld til hermála eru hærri en í flest-
um ríkjum og búnaður allur afar nýtískulegur.
„Eftir lok kalda stríðsins hefur staða Japans í
öryggismálum tekið stakkaskiptum,“ sagði Abe
við athöfnina í gær. Hann lagði áherslu á að varnir
landsins yrðu undir borgaralegri stjórn. Abe er
fyrsti forsætisráðherra landsins sem fæddur er
eftir stríð og hyggst beita sér fyrir því að stjórn-
arskránni frá 1947 verði breytt. Hefur hann auk
þess látið samþykkja lög um að auka áherslu á
ættjarðarást í skólum. Mikil andstaða hefur verið
við slíkar hugmyndir meðal þjóðarinnar en kann-
anir sýna að sú afstaða hefur breyst á síðustu ár-
um, ekki síst vegna ótta við grannríkið Norður-
Kóreu sem sprengdi kjarnorkusprengju í októ-
ber.
Fer í opinbera heimsókn til Evrópu
Abe hélt í gær af stað í opinbera heimsókn til
Evrópu, þá fyrstu eftir að hann tók við embætti í
fyrra. Hann sagði í viðtali við breska ríkisútvarp-
ið, BBC, að Japanar gætu ekki sætt sig við að N-
Kórea yrði kjarnorkuveldi. Hins vegar þyrfti eng-
in þjóð að óttast Japana þótt þeir myndu nú leggja
meiri áherslu á að gæta hagsmuna sinna af festu.
Japanar hyggjast efla varnir sínar
Shinzo Abe
Netanya. AFP. | Ísraelskt tölvufyr-
irtæki hefur sett á markað lyga-
mæli sem hlaða má niður af netinu
og nota samhliða símtölum með
SKYPE-nettalsímabúnaðinum.
Lygamælirinn hefur notið vin-
sælda, en aðstandendur fyrirtæk-
isins, BATM, segja menn geta notað
hann til að átta sig á hvort viðmæl-
andinn sé að ljúga.
Taka þarf fram að menn eru ekki
á eitt sáttir um það hvort lygamæl-
ar – hvað þá lygamælar sem not-
aðir eru til að greina netsímtöl –
séu pappírsins virði. Búnaðurinn
metur streitu í rödd manna og Zvi
Marom, forstjóri BATM, segist ekki
efast um gildi hans, röddin sé besta
vísbendingin um hvað fólk hugsar.
Forráðamenn BATM segjast hafa
prufukeyrt búnað sinn á trygginga-
fyrirtæki og þar á bæ hafi menn
staðfest, að lygamælirinn greindi í
90% tilfella rétt. „Við prófuðum
þetta líka með ummælum [Bills]
Clintons [fyrrv. Bandaríkjaforseta]
um samband hans við Monicu Lew-
insky,“ segir Marom. „Þegar hann
segir, „Ég átti ekki í kynferð-
issambandi við Monicu Lewinsky“
fór nálin í lygamælinum af stað svo
um munaði.“
Lygamælir
á netinu