Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 15

Morgunblaðið - 10.01.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 15 ERLENT Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is MIKIÐ mannfall varð þegar Bandaríkjaher gerði loftárásir á fylgsni íslamista og meintra hryðju- verkamanna al-Qaeda í Sómalíu í fyrrinótt. Mark- miðið með árásunum var að fella menn sem grun- aðir eru um sprengjuárásir á sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa og Tansaníu árið 1998 þegar 224 biðu bana og þúsundir manna særðust. AC-130 árásarflugvél réðst á að minnsta kosti tvö þorp í sunnanverðri Sómalíu. Bráðabirgðafor- seti landsins, Abdullahi Yusuf Ahmed, varði loft- árásirnar og sagði að Bandaríkjaher hefði rétt til að ráðast á hryðjuverkamenn al-Qaeda. „Menn- irnir sem gerðu árásirnar á sendiráð Bandaríkj- anna í Kenýa og Tansaníu voru þarna, þannig að þetta var rétti tíminn til að gera slíkar loftárásir,“ sagði Ahmed. „Margir biðu bana og ég tel að hryðjuverka- mennirnir hafi verið felldir,“ sagði upplýsingaráð- herra sómölsku bráðabirgðastjórnarinnar. Sjónarvottar sögðu að minnst nítján óbreyttir borgarar, þeirra á meðal börn, hefðu látið lífið í loftárásunum. Bandarískir embættismenn hafa sagt að þrír menn, sem grunaðir eru um hryðjuverkin, hafi verið í felum á meðal sómalskra íslamista. Einn þeirra, Fazul Abdullah Mohamed, sem er frá Kómoreyjum, hefur verið ákærður í Bandaríkj- unum fyrir aðild að árásunum á sendiráðin og talið er að hann sé leiðtogi al-Qaeda í Austur-Afríku. Hermt er að Mohamed og félagar hans hafi ver- ið í Mogadishu þar til eþíópískir hermenn hröktu íslamista á flótta úr borginni 28. desember. Bandaríska sjónvarpið CBS sagði að ómönnuð njósnaloftför Bandaríkjahers hefðu fylgst með ferðum mannanna. Er þetta í fyrsta skipti sem Bandaríkjaher gríp- ur til ódulinna hernaðaraðgerða í Sómalíu frá hernaðaríhlutuninni þar á árunum 1992–94. Bandarískir hermenn aðstoðuðu sómalska stríðs- herra í leynilegum hernaði á liðnu ári þegar þeir reyndu að fella meinta hryðjuverkamenn og hindra að íslamistar næðu Mogadishu á sitt vald. Mikið mannfall í árásum Bandaríkjahers í Sómalíu Reuters Styður hernaðinn Abdullahi Yusuf Ahmed, for- seti Sómalíu (t.h.), varði árásir Bandaríkjahers. Ráðist á meinta hryðju- verkamenn al-Qaeda Peking. AFP. | Kínversk stjórnvöld segja að alþjóðlegir íslamskir hryðju- verkamenn séu farnir að hreiðra um sig í Norðvestur-Kína en yfirlýsing þessi kemur í kjölfar þess að lögregl- an í Xinjiang drap átján meinta hryðjuverkamenn í fyrradag. Kínverjar segja að mannfallið hafi orðið er lögreglan réðst á æfingabúðir hryðjuverkamanna í Pamir-fjallahér- uðunum, nálægt landamærum Kína að Pakistan og Afganistan. Segja Kínverjar að hryðjuverkamennirnir tilheyri Samtökum Íslams í Austur- Túrkestan, en njóti liðsinnis hryðju- verkanets Osama bin Ladens. Talsmenn Heimssambands Uig- hur-fólksins, sem er fjölmennasta þjóðarbrotið í Xinjiang, segja hins vegar að setja þurfi spurningarmerki við frásögn Kínverja. Þeir hafi lengi ofsótt Uighur-fólk. Forseti Heimssambandsins, Re- biya Kadeer, sem býr nú í Bandaríkj- unum, var tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels í fyrra en Kínverjar saka hana nú um að vilja grafa undan stjórn Kína með hryðjuverkum. Kadeer var meðal ríkustu kvenna í Xinjiang en var síðan fangelsuð, 1999–2005, fyrir stuðning við sjálfstæði Uighur-manna í A-Túrkestan í Xinjiang. Kínverjar slepptu henni eftir að hafa sætt þrýst- ingi á alþjóðavettvangi. Spenna í Xinjiang Kína sakar Uighur- menn um hryðjuverk HÆGRIÖFGA- MENN á þingi Evrópusam- bandsins ætla að sameina kraftana í næstu viku og mynda eigin hóp, að sögn vefsíðu breska ríkisút- varpsins, BBC. Sameining gefur þingmönnunum betri færi á valda- stöðum í þinginu en einnig fjárveit- ingum. Þingmenn geta aðeins myndað slíkt bandalag ef um er að ræða minnst 19 manns frá fimm aðildar- ríkjum. Það takmark náðist um ára- mótin þegar Rúmenía og Búlgaría fengu aðild að ESB, umskipti sem hægriöfgamenn í þessum tveimur ríkjum börðust reyndar gegn. Fimm liðsmenn Stór-Rúmeníu- flokksins taka sæti á þinginu en hann er þekktur fyrir andúð á gyðingum og sígaunum. Líklegt er talið að Bruno Gollnisch, úr Þjóðfylkingu Jean-Marie Le Pens í Frakklandi, verði leiðtogi þingmannahópsins. Hægri- öfgamenn sameinast Bruno Gollnisch YFIRVÖLD skattamála í Svíþjóð hafa lagt fram ýmsar tillögur sem miða að því að minnka undanskot og annað svindl, meðal annars að öll laun sem unglingar undir sextán ára aldri fá, skuli vera skattfrjáls. Að auki verður reynt að leiðbeina fólki til að koma í veg fyrir mistök í tengslum við skattaskýrslur. Á vef- síðu Dagens Nyheter er haft eftir talsmanni skattayfirvalda, Håkon Malmer, að stefnt sé að því að ein- faldara verði fyrir fyrirtæki að ráða fólk í vinnu. „Annað markmið er að það verði erfiðara að svindla með skatta og greiðslur,“ sagði Malmer. Tillögurnar verða til umræðu á næstunni en síðan munu stjórnvöld taka afstöðu til þeirra. Unglingar skattfrjálsir? ♦♦♦ UNGIR félagar SPÖ, flokks jafnaðarmanna í Austurríki, efndu í gær til mótmæla við þinghúsið í Vín þegar sáttmáli nýrrar samsteypustjórnar var kynntur. Jafnaðarmenn voru sigurvegarar kosninganna í október, fengu ívið meira fylgi en íhaldsmennirnir í Þjóðarflokknum. Ungliðunum finnst sem jafnaðarmenn hafi gefið allt of mikið eftir í samningunum við íhalds- menn þótt nýi kanslarinn, Alfred Gusenbauer, komi úr röðum jafn- aðarmanna. Fráfarandi kanslari, íhaldsmaðurinn Wolfgang Schüssel, verð- ur ekki ráðherra en tekur við embætti þingflokksformanns. Flokksbróðir hans, Karl-Heinz Grasser, sem var fjármálaráðherra, hættir í stjórn- málum. Reuters Ósáttir ungliðar Frönskunámskeið hefjast 15. janúar Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Taltímar og einkatímar. Viðskiptafranska og lagafranska. Námskeið fyrir börn. Kennum í fyrirtækjum. Tryggvagata 8, 101 Reykjavík, fax 562 3820. Veffang: www.af.is Netfang: alliance@af.is Innritun í síma 552 3870 8.-13. janúar  F l o k k u r Innlausnartímabil Innlausnarverð* á kr. 10.000,- 1989 2. fl. A 10 ár 15.1.2007 til 14.1.2008 46.223kr. Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.* Reykjavík, 10. janúar 2007 Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Lánasýslu ríkisins að Borgartúni 21, 2. hæð, hjá Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1 og í bönkum og sparisjóðum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.