Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 17
AKUREYRI
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
FRÁVEITA Hafnarfjarðar vinnur
nú að smíði dælu- og hreinsistöðv-
ar í Hraunsvík, milli álvers Alcan
og golfvallarins á Hvaleyrarholti.
Stöðin og útrás frá henni eru loka-
áfangar í hreinsun strandlengju
bæjarins.
Stöðinni er ætlað að taka á móti
því sem kallað er 64 þúsund per-
sónueiningar af skólpi, þar af
koma 47 þúsund frá dælustöð við
Óseyrarbraut og 17 þúsund frá
Áslandi og Völlum. Frá stöðinni
mun liggja útrás sem nær um 2
km frá landi og niður á 20 metra
dýpi. Áætlaður heildarkostnaður
við dælu- og hreinsistöðina er 660
milljónir og útrásina 280 milljónir,
samtals 940 milljónir. Heild-
arkostnaður við framkvæmdina er
tæpir tveir milljarðar með virð-
isaukaskatti. Stefnt er að því að
farið verði að dæla skólpi um út-
rásina um mitt næsta ár, að sögn
Kristjáns Stefánssonar, verkefn-
isstjóra Fráveitunnar.
Verktaki við byggingu dælu- og
hreinsistöðvarinnar er Ístak. Að
sögn Stefáns Sigurðssonar stað-
arverkfræðings eru aðstæður
mjög sérstakar á bygging-
arstaðnum og hefur það seinkað
framkvæmdinni. Grunnur stöðv-
arinnar er í hrauninu þar sem
Kaldáin rennur undir og flytur
mikið vatn af Bláfjallasvæðinu og
Reykjanesi til sjávar. Stefán sagði
hraunið á byggingarstaðnum mjög
gljúpt og vatnsþrýsting það mik-
inn að gera hafi þurft sérstakar
ráðstafanir. Frá grunninum er um
20 metra haft út í fjöru. Í grunn-
stæðinu gætir allt að 3,5 metra
munar flóðs og fjöru en vatns-
flaumur árinnar er svo mikill að
flóðvatnið er ferskt og flýtur ofan
á söltum sjónum sem er þyngri en
flóðvatnið. Stálþil var rekið niður
hringinn í kringum grunninn til
þéttingar. Ekki dugði að „grauta“,
þ.e. dæla steypu í sprungur í
berginu til að þétta það, því steyp-
an hvarf jafnóðum. Á endanum
var steypt 2,5 metra þykk plata,
eða tappi, í grunnbotninum innan
þilsins og fóru í það um 2.500
rúmmetrar af steypu.
Stöðvarhúsið verður 630 fer-
metrar að grunnfleti og á nokkr-
um hæðum. Í húsinu verða m.a.
þrær með hallandi veggjum og
stöðin talsvert flókin smíð, að
sögn Stefáns.
Dælu- og hreinsi-
stöð í Hraunsvík
Tölvuteikning/Gunnar og Reynir sf.
Útlit Svona mun suðurhlið nýju dælustöðvarinnar í Hraunsvík líta út.
Morgunblaðið/ÞÖK
Vatnsagi Gríðarmikill vatnsagi og gljúpt hraunið kröfðust sérstakra að-
gerða við grunn stöðvarinnar sem er milli álvers Alcan og golfvallarins.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SIGRÚN Björk Jakobsdóttir var í
gær ráðin bæjarstjóri á Akureyri,
fyrst kvenna. Hún leysir af hólmi
Kristján Þór Júlíusson, sem verður
í efsta sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Norðaust-
urkjördæmi við alþingiskosning-
arnar í vor. Kristján situr þó áfram
í bæjarstjórn og tekur við embætti
forseta af Sigrúnu Björk.
„Mér er efst í huga sú ábyrgð
sem mér er falin og ég tek áskor-
uninni; ég er afar stolt, full til-
hlökkunar og gleði, og ég hlakka
til að byrja að vinna,“ sagði Sigrún
í spjalli við Morgunblaðið eftir að
bæjarstjórnarfundi lauk í gær. Sig-
rún sagði það ennþá frétt að kona
væri ráðin í starf sem þetta, þó að
vonandi þætti það ekki mikil frétt í
framtíðinni, en ráðning sín væri
vissulega mikilvægt skref fyrir
konur.
Sigrún var kjörin bæjarstjóri
með átta atkvæðum en þrír bæj-
arfulltrúar sátu hjá. Hún gegnir
starfi bæjarstjóra þar til í júní
2009, en fulltrúi Samfylking-
arinnar gegnir stöðu bæjarstjóra
síðasta ár kjörtímabilsins. Meiri-
hlutaflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur
og Samfylking, eiga samtals sjö
fulltrúa í bæjarstjórn en Oddur
Helgi Halldórsson, fulltrúi L-
listans, lýsti á fundinum í gær yfir
ánægju með að Sigrún Björk yrði
ráðin í starfið; hann sagðist ekki
muna hver hefðin væri í þessum
efnum en það skipti sig engu máli,
hann hefði ákveðið að kjósa Sig-
rúnu.
Nýráðinn bæjarstjóri er sá tíundi
í sögu Akureyrarkaupstaðar, og
fyrsta konan sem fyrr segir. Sig-
rún Björk hefur átt sæti í bæj-
arstjórn Akureyrar síðan eftir
kosningarnar 2002 og varð forseti
bæjarstjórnar sl. vor í stað Þóru
Ákadóttur, sem gaf ekki kost á sér
í kosningunum þá.
Sigrún Björk Jakobsdóttir fædd-
ist 23. maí 1966. Hún er stúdent
frá Menntaskólanum við Sund og
útskrifaðist úr IHTTI-hótelstjórn-
unarskólanum í Sviss árið 1990.
Einnig hefur hún lokið námi í
nútímafræðum við Háskólann á
Akureyri og stjórnunarnámi á veg-
um Símenntunar HA. Sigrún hefur
starfað sem hótelstjóri á Hótel
Austurlandi, í sölu- og markaðs-
deild Hótels Íslands, verið hót-
elstjóri á Hótel Norðurlandi, deild-
arstjóri hjá Úrvali-Útsýn,
verkefnastjóri hjá Mennta-
smiðjunni á Akureyri og verk-
efnastjóri hjá Price Waterhouse
Coopers. Hún er gift Jóni Björns-
syni og þau eiga tvö börn.
Sigrún sest fyrst kvenna í
stól bæjarstjóra á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tímamót Sigrún Björk og Kristján Þór skruppu á skrifstofu bæjarstóra eftir fundinn og Sigrún mátaði stólinn.
Fulltrúi L-listans
kaus Sigrúnu með
meirihlutanum
Í HNOTSKURN
»Sigrún Björk Jakobsdóttirúr Sjálfstæðisflokki er nýr
bæjarstjóri á Akureyri, sá tí-
undi í röðinni og fyrsta kon-
an.
» Kristján Þór Júlíussonhættir sem bæjarstjóri eft-
ir átta og hálft ár í starfi og
tekur við embætti forseta bæj-
arstjórnar af Sigrúnu Björk.
Umdeildar
breytingar á
deiliskipulagi
samþykktar
ÓHÆTT er að segja að engin logn-
molla hafi verið á síðasta fundi Krist-
jáns Þórs Júlíussonar sem bæj-
arstjóra á Akureyri í gær. Hart var
tekist á um tillögu að breyttu deili-
skipulagi lóðarinnar á milli íþrótta-
hallarinnar og Sundlaugar Akureyr-
ar og samþykkti meirihluti
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
tillögu skipulagsnefndar um breyt-
ingu og þar með er ljóst að bæjaryf-
irvöld geta heimilað byggingu heilsu-
ræktarmiðstöðvar á hluta svæðisins.
Fulltrúar Framsóknarflokks og
VG gagnrýndu meirihlutann harka-
lega í gær og sér í lagi framgöngu
bæjarstjórans í málinu. Jóhannes
Bjarnason, Framsóknarflokki, sak-
aði Kristján Þór um að hafa farið á
bak við framsóknarmenn, þáverandi
samstarfsmenn í meirihlutanum,
þegar hann gerði rammasamning við
eiganda Vaxtarræktarinnar um
væntanlega byggingu, rétt fyrir
kosningar. Kristján Þór þvertók fyr-
ir það.
LÖGREGLAN á Akureyri og skóla-
stjóri Síðuskóla hafa sent foreldrum
barna í skólanum aðvörun þess efnis
að svo virðist sem karlmaður reyni
að lokka börn upp í bifreið til sín í
hverfinu, en talið er víst að slíkt hafi
verið reynt í tvígang nýlega. Málið
er litið mjög alvarlegum augum og
því var viðvörunarbréfið sent í vik-
unni. Foreldrar eru hvattir til að
ræða við börnin um að fara ekki upp
í bifreið til ókunnugra, en gerist það
eða hafi gerst er fólk beðið um að til-
kynna það undantekningarlaust til
lögreglunnar.
Maður reynir
að lokka börn
upp í bíl sinn
Útsalan hefst í dag
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
ÚTSALA
♦♦♦