Morgunblaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 23
er því
n gjald-
vöruverð-
m við um
g yfir
annars
kki stór-
nir, heldur
m borgar
na krón-
talað
m en það
t og mér
da fólki
m mál-
i skref
lveg nýj-
ðað við
að vinna
il viðmið-
inni,“ seg-
strikar
ð fyrirætl-
-
vælaverðs með lækkun virð-
isaukaskatts og vörugjalda takist vel
til og allir taki á eðlilegan hátt þátt í
því. Það er mikilvægt að allir hafi
metnað til að það gangi eftir. Þá eig-
um við að rétta okkar hlut umtals-
vert,“ segir Árni.
Spurður hvort þessi samanburður
sýni að ganga þurfi enn lengra í að-
gerðum til lækkunar matvælaverðs
segir Árni að vissulega væri ástæða
til að ganga lengra. „En við verðum
að taka eitt skref í einu. Það hefur
komið mér svolítið á óvart hvað bæði
innlendar og erlendar greining-
ardeildir virðast hafa lítinn skilning
á því hversu mikilvægt það er fyrir
okkur að lækka matvælaverðið og
hafa frekar litið það neikvæðum
augum. Ég tel að lækkun mat-
vælaverðs muni bæta samkeppn-
isstöðu þjóðarinnar og styrkja efna-
hagslífið frekar, jafnvel þótt við
séum að upplifa endann á verð-
bólguskotinu frá í fyrravetur. Þess
vegna ætti þessi aðgerð að vera vel
tímasett en við sjáum að það horfa
ekki allir á það sömu augum. Þess
vegna verðum við að stíga varlega
þessi skref. Vissulega gefur þetta
tilefni til þess að íhuga frekari skref
en það verður að taka þau í sam-
hengi við það umhverfi sem við lifum
í og þau viðbrögð sem við getum bú-
ist við,“ segir fjármálaráðherra.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, minnir
á að búið sé að marka stefnuna um
lækkun virðisaukaskatts og tolla.
Menn hljóti að vænta þess að þær
aðgerðir muni hafa einhver áhrif á
matvælaverðið. „Við verðum auðvit-
að að vona að árangur náist en það
er mikilvægt að samtök neytenda og
ASÍ fylgist með vöruverðinu eins og
það er núna og að út úr þessu komi
það sem menn eru að stefna að, þ.e.
að ná niður matarverðinu,“ segir
hann. Guðjón Arnar segir að það
verði svo að koma í ljós hver árang-
ur þessara aðgerða verður áður en
næstu skref verði tekin. Ljóst sé að
óbreytt ástand sé með öllu óvið-
unandi til framtíðar litið. „Hinu er
ekki að leyna að það er fleira dýrt
hér á landi en maturinn. Bankarnir
eru með tvöfalt hærri vexti en tíðk-
ast í löndunum í kringum okkur. Það
er mjög víða sem íslenskir neyt-
endur bera ótrúlega háan kostnað
miðað við nágrannalöndin. Þetta
kemur m.a. fram í bensíni og olíu-
verði og í tryggingagjöldum.“
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, segir tölur Eurostat birta
kunnuglega mynd af því að mat-
vælaverð sé hátt á Íslandi. Það eigi
svo eftir að koma í ljós hvaða áhrif
aðgerðirnar 1. mars muni hafa á
þann mun sem er á matvöruverðinu.
„Ég held að það sé engin deila um að
það er mikilvægt markmið að ná
þessu bili eitthvað saman. Hins veg-
ar er ég þeirrar skoðunar að allar
viðmiðanir við meðalverð [í Evr-
ópulöndum] séu óraunhæfar, enda
sjáum við t.d. að Danir eru langt fyr-
ir ofan það,“ segir hann og bætir við
að raunhæft markmið hljóti að vera
að minnka verðmuninn sem er á
milli Íslands og nágrannalanda á
Norðurlöndum, sem búi við sam-
bærileg launastig og lífskjör og Ís-
lendingar. Við samanburð á mat-
vælaverði þurfi einnig að hafa í huga
gæði varanna. „Það hefur löngum
verið sagt að það væri kannski ekk-
ert við því að segja að það væri ein-
hver verðmunur á milli Íslands og
annarra landa, vegna smæðar mark-
aðarins, fjarlægða og flutnings-
kostnaðar o.fl.“
Steingrímur segir augljóst að það
sé keppikefli að saxa á þann verð-
mun sem sé á Íslandi og öðrum
Norðurlandaþjóðum. „Það viljum
við vinstri grænir gera en við viljum
leita leiða til þess sem ekki kosta
kollsteypur í íslenskum landbúnaði
og matvælaiðnaði. Þ.a.l. höfum við
ekki tekið undir hina popúlísku um-
ræðu um að það sé hægt að leysa úr
þessu með pennastrikum, með því
að henda burt allri vernd sem land-
búnaðurinn býr við og láta hann
mæta óheftri samkeppni við nið-
urgreidda og ríkisstyrkta fram-
leiðslu í nágrannalöndunum.“
atarverð þurfi að lækka
arna er um hlutfalls-
gan samanburð á alger-
ga ósambærilegum lönd-
m að ræða,“ segir Jón
gurðsson, viðskiptaráð-
rra og formaður Fram-
knarflokksins.
„Ég þeirrar skoðunar að
allar viðmiðanir við með-
alverð [í Evrópulöndum]
séu óraunhæfar, enda
sjáum við t.d. að Danir eru
langt fyrir ofan það,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
„Það er mjög víða sem ís-
lenskir neytendur bera
ótrúlega háan kostnað
miðað við nágrannalönd-
in,“ sagði Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins.
, var verð
ærra árið
jöti í 15
var þetta
í Noregi
var árið 2005 74% hærra en í ESB.
Til samanburðar má nefna að
verð á mjólkurvörum á Íslandi hef-
ur nánast ekkert breyst frá 2003 ef
marka má tölur Eurostat.
Eins og áður hefur komið fram
er verðlag á Íslandi, í Noregi og
Sviss hæst. Árið 2003 var verðlag í
Noregi aðeins hærra en á Íslandi.
Árið eftir var Ísland komið á topp-
inn með hæsta verðlag í Evrópu.
Sviss hefur öll árin verið með
þriðja hæsta verðlag í Evrópu.
Verðlag í Sviss hefur hins vegar
lækkað ár frá ári undanfarin ár.
Verðlag í Noregi hækkaði aftur á
móti árið 2005 líkt og á Íslandi. Það
var 51% hærra en í 15 ríkjum Evr-
ópusambandsins árið 2005 en var
43% hærra árið 2004. Gengi norsku
krónunnar hefur þarna áhrif líkt
og gengi íslensku krónunnar á
verðlag á Íslandi.
Samanburður Eurostat á vöru-
verði sýnir að Ísland er með dýr-
asta brauð, mjólk, ávexti, græn-
meti og föt í Evrópu. Kostnaður við
hótel- og veitingaþjónustu, tóm-
stundir og menningu er einnig
hæstur á Íslandi. Verð á kjöti er
mjög hátt á Íslandi, en það er þó
hærra í Sviss. Íslendingar eiga
einnig Norðurlandamet þegar
kemur að verðlagningu á fiski.
Fiskur er aðeins dýrari í Sviss en á
Íslandi, en fiskur á Bretlandi er um
40% ódýrari en á Íslandi.
Margar skýringar
á háu verðlagi
Í skýrslu hagstofustjóra eru
settar fram nokkrar skýringar á
því hvers vegna verðlag hér á landi
er mun hærra en í öðrum ríkjum á
Evrópska efnahagssvæðinu. Lega
landsins, óhagstætt loftslag og
fjarlægð frá alþjóðlegum mörkuð-
um valdi því að framleiðslukostn-
aður sé hár, flutningskostnaður
mikill og viðskiptakjör lakari en
ella. Smæð markaðarins skýri að
einhverju leyti hátt verðlag á Ís-
landi. Hún valdi óhagkvæmni í
framleiðslu, rekstri og viðskiptum.
Íslendingar njóti ekki stærðarhag-
kvæmni í framleiðslu og viðskipt-
um til jafns við nágrannaþjóðir
okkar. Hagstofustjóri bendir einn-
ig á að launastig á Íslandi sé til-
tölulega hátt og kaupmáttur mikill.
Laun séu verulegur hluti fram-
leiðslukostnaðar og hækkun launa
undanfarin ár þrýsti afurðaverði
upp á við. Kaupmáttur skipti þó
ekki minna máli í þessu samhengi
þar sem alþjóðlegir framleiðendur
hagi verðlagningu sinni með hlið-
sjón af kaupmætti og tekjum í
hverju landi.
Hallgrímur segir einnig í skýrslu
sinni að skattlagning matvæla geti
ráðið miklu um endanlegt verð.
Skattlagning matvæla hér á landi
sé tiltölulega mikil í samanburði
við mörg Evrópuríki.
Í skýrslu norrænna samkeppn-
iseftirlitsstofnana um matvöru-
markaðinn, sem birt var 2005, seg-
ir að innflutningshömlur á
landbúnaðarvörum í Noregi og á
Íslandi „virðist vera meginástæða
þess að verðlag á matvörum í þess-
um tveimur löndum er mun hærra
en á hinum Norðurlöndunum og í
öðrum löndum Evrópu“. Í skýrslu
sem Hagfræðistofnun Háskóla Ís-
lands gerði um matvælaverð er
einnig dregin sú ályktun að hægt
sé að lækka verðið töluvert með því
að afnema tolla á landbúnaðarvör-
um. Hagstofustjóri komst einnig að
sömu niðurstöðu í skýrslu sinni og
segir að „ábatinn við að aflétta inn-
flutningsvernd gæti orðið ein
mesta kjarabót sem heimilum hér
á landi gæti áskotnast á næstu ár-
um“.
r verri útkomu
"%+
1
"$$
"(
"%&
"*
@"
(*
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"##
"$#
"%$
"$"
"""
&&
"'&
"('
""*
"#&
"""
"%#
"'&
"%+
")"
")%
"*%
"'(
"%#
"$&
"()
'%"
'')
"''
"#(
"$+
")#
""'
""&
"#+
"##
"#)
""%
""(
"%$
"#$
""#
""#
""%
""&
!"#$
""(
""%
"#*
&&
"#'
"$$
"$%
"%(
&+
""$
"'"
""(
"'$
4)0
"%#
"$%
"&(
"$(
"'#
"$"
"#+
"#"
&'
""$
"('
""&
"'"
)**
"##
+)
"#+
&$
"#%
&*
""'
"%%
"*&
+&
*&
"#"
"")
&0
,&0,,!"#*&, , #+,-)$,11
@"
(*
egol@mbl.is
Meira á mbl.is/ítarefni
AÐGERÐIR ríkisstjórnarinnar til
lækkunar á matvælaverði, sem
koma til framkvæmda frá og með 1.
mars, eru að mati stjórnvalda taldar
geta leitt til lækkunar á matvælalið
vísitölu neysluverðs um alls 14 til
16% þegar allt er talið og er þá verð-
lækkun á veitingastöðum meðtalin.
Aðgerðirnar eru margþættar og
fela meðal annars í sér lækkun virð-
isaukaskatts á matvæli úr 14% í 7%
og niðurfellingu vörugjalda af mat-
vælum.
Í svari forsætisráðherra til tals-
manns neytenda um áhrif aðgerð-
anna til lækkunar matvælaverðs 22.
desember sl. kemur fram að þessar
aðgerðir eru taldar geta leitt til rúm-
lega 10% lækkunar á matvælaverði.
„Þá er gert ráð fyrir allt að 40%
lækkun tolla af innfluttum kjötvör-
um auk þess sem fyrir liggur
ákvörðun Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði um raunlækkun á
heildsöluverði mjólkurafurða sem
verði náð með óbreyttu verði út
næsta ár. Að teknu tilliti til þessara
þátta má ætla að áhrif aðgerðanna
til lækkunar á matvælaverði geti
legið á bilinu 12–13%. Til viðbótar
mun virðisaukaskattur af veitinga-
þjónustu lækka úr 24,5% í 7%. Að
öllu samanlögðu má ætla að þessar
aðgerðir geti leitt til 14–16% lækk-
unar á matvælalið vísitölu neyslu-
verðs að viðbættri veitingaþjón-
ustu,“ segir í bréfinu.
Samkvæmt upplýsingum forsæt-
isráðuneytisins eru heildaráhrif
þessara lækkana ennfremur metin
til rúmlega 2% lækkunar á vísitölu
neysluverðs þegar þau eru að fullu
komin fram. Auk þess muni lækkun
virðisaukaskatts á annarri vöru og
þjónustu úr 14% í 7% geta leitt til
um 0,3% lækkunar vísitölu neyslu-
verðs þannig að samanlögð lækkun
vísitölunnar gæti numið rúmlega
2,5% þegar upp er staðið.
„Mikilvægt er að hafa í huga að
verðlagning á matvælum er að veru-
legu leyti frjáls og endanleg niður-
staða hvað varðar áhrif þessara að-
gerða til lækkunar vöruverðs fer
eftir aðstæðum á markaði hverju
sinni. Verðlagseftirlit almennings er
því mjög mikilvægt til að tryggja
framgang þeirra kjarabóta fyrir
heimilin sem felast í framangreind-
um aðgerðum. Miklu skiptir að ekki
verði hækkanir á almennu matvöru-
verði á næstu mánuðum þangað til
þessar aðgerðir koma til fram-
kvæmda. Viðskiptaráðherra hefur
af þessu tilefni mælst til þess við
Neytendastofu og verðlagseftirlit
Alþýðusambands Íslands að fylgjast
mjög náið með verðlagi í smásölu-
verslunum á næstu mánuðum.
Sömuleiðis hefur viðskiptaráðherra
mælst til þess við Samkeppniseftir-
litið að það fylgist vel með þróun
samkeppnisaðstæðna á smásölu-
markaði með matvöru. Gert er ráð
fyrir reglubundnu samráði þessara
aðila og stjórnvalda á næstu mán-
uðum,“ segir þar.
Telja að smásöluverð gæti
lækkað um 9 til 10%
Samtök verslunar og þjónustu
(SVÞ) og Samtök atvinnulífsins hafa
talið að áhrif þessara lagabreytinga
á smásöluverð verði á bilinu 9 til 10%
ef miðað sé við skýrslu nefndarinnar
um matvælaverð sem kom út á sein-
asta ári. Í umfjöllun SVÞ um að-
gerðirnar kemur fram að áhrif
lækkunar virðisaukaskattsins komi
strax fram en vörugjald muni lækka
eftir því sem vörubirgðir seljast upp
og nýjar koma í verslanir. Þetta geti
tekið a.m.k. sex til átta vikur. Áhrif-
in á mjólkurverð í lágvöruverðs-
verslunum séu ekki ljós, enda sé
mjólk seld þar um eða undir inn-
kaupsverði. Óvarlegt sé að meta
áhrif verðbreytinganna 1. mars fyrr
en rétt fyrir þá dagsetningu því þeg-
ar sé ljóst að innkaupsverð vara sé
að hækka og tilkynningar um hækk-
anir séu væntanlegar fram til þess
tíma. Því sé mjög mikilvægt til að
réttmæt mæling sé gerð til að meta
verðlagið í lok febrúar og síðan aftur
í mars og apríl.
Fram kom í mati hagdeildar ASÍ
á tillögunum þegar ríkisstjórnin
lagði þær fram, að tollalækkanirnar
leiddu til a.m.k. 2–3% lækkunar á
matvælaverði, niðurfelling vöru-
gjalda sömuleiðis til 23% lækkunar
og breytingar á virðisaukaskatti til
8–9% lækkunar. Samtals mætti
áætla að aðgerðirnar leiddu til 12–
15% lækkunar á matvælaverði og
færðu vísitölu matvælaverðs á sam-
bærilegt stig og í Danmörku.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu hefur fjöldi fram-
leiðslu- og innflutningsfyrirtækja
tilkynnt verðhækkanir nú í byrjun
ársins og svo virðist sem birgjar séu
almennt að hækka verð um 3–5%.
Talið að heildar-
lækkun gæti
orðið 14–16%
Áhersla lögð á stíft eftirlit með verð-
lagi og samkeppni á smásölumarkaði
SAMKOMULAG hefur tekist
milli íslenskra stjórnvalda og Evr-
ópusambandsins um breytingar á
tollum á landbúnaðarvörum. Beðið
er eftir staðfestingu frá ESB um
að sambandið staðfesti það sam-
komulag sem liggur á borðinu.
Ríkisstjórnin kynnti í október
tillögur um lækkun á mat-
vælaverði, m.a. um allt að 40%
lækkun á tollum á kjötvörum frá
og með 1. mars 2007. „Samhliða
þessu verður áfram unnið að frek-
ari gagnkvæmum tollalækkunum
og bættum markaðsaðgangi gagn-
vart helstu viðskiptasamningum
Íslands í milliríkjasamningum
sem tryggja jafnframt útflutn-
ingshagsmuni íslensks atvinnu-
lífs.“
Valgerður Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra sagði að í framhald-
inu hefði verið haldinn fundur
með fulltrúum framkvæmda-
stjórnar ESB þar sem m.a. hefði
verið rætt um tvíhliðasamning
ESB og Íslands
um viðskipti
með landbún-
aðarvörur.
Samningurinn
átti að taka
gildi um ára-
mót, en ákveðið
hefði verið að
fresta gildistök-
unni til 1. mars.
„Það er sum sé
verið að reyna að freista þess að
ná samkomulagi fyrir 1. mars um
frekari lækkun á tollum og bætt-
an markaðsaðgang. Það kom fram
á þessum fundi vilji til að gera
viðbætur á samkomulaginu. Báðir
aðilar lögðu fram tillögur þar að
lútandi. Á fundinum náðist bráða-
birgðasamkomulag sem verður
lagt fyrir aðildarríki ESB um
miðjan janúar.“
Valgerður sagðist ekki geta tjáð
sig um samkomulagið efnislega á
þessu stigi.
Viðræður við ESB
um lækkun tolla
Valgerður
Sverrisdóttir