Morgunblaðið - 10.01.2007, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
GRETTIR, MIG ER AÐ
DREYMA DRAUMINN AFTUR
ÞENNAN ÞEGAR ÉG ER LÆSTUR
ÚTI OG ER EKKI Í
NEINUM BUXUM
MIG ER AÐ
DREYMA, ER
ÞAÐ EKKI?
NÚNA
KEMUR
GÓÐI
HLUTINN
ÉG HELD
AÐ RÓSU LÍKI
VIÐ MIG
Í MORGUN ÞEGAR HÚN
VAR AÐ LESA UPP... HÚN
SAGÐI, „DAVÍÐ, BERGLIND,
KARL, TÓMAS, SÓLVEIG...“
...OG SÍÐAN SAGÐI HÚN,
„LÚLLI“... OG ÞAÐ VAR BARA Í
ÞVÍ HVERNIG HÚN SAGÐI
ÞAÐ... „LÚLLI“.... ÞAÐ VAR
BARA SVO FALLEGT...
ÉG HELD AÐ RÓSU LÍKI
Í ALVÖRUNNI VIÐ MIG
JÆJA, ÞÁ ERUM
VIÐ KOMIN
KALVIN, FARÐU ÚR
BÁTNUM OG TAKTU Á MÓTI
DÓTINU
OKKAR
EKKI MISSA ÞAÐ,
ÞAÐ ER MJÖG...
ÚPS
VATNIÐ ER
BARA 3 METRA
DJÚPT. ÉG SÉ
DÓTIÐ OKKAR,
MYNDAVÉLINA
OG ALLT
SAMAN
ÉG ÆTTI
AÐ SKILJA
ÞIG EFTIR
HÉRNA
SLAKAÐU
Á ELSKAN
ÞÚ ERT
ALLT OF
SEINN
ERTU
BÚINN AÐ
VERA AÐ
DREKKA
?!?
KUNNA
FUGLAR
AÐ
FLJÚGA?
AF HVERJU GETUR HANN ALDREI BARA
SVARAÐ MEÐ „JÁ“ EÐA „NEI?“
HERBIE HITTI
GODZILLA
LANGT SÍÐAN MAÐUR
HEFUR KOMIÐ HINGAÐ.
HÚSIÐ LÍTUR VEL ÚT
TAKK DODDI! VIÐ
VORUM AÐ LÁTA
MÁLA ÞAÐ
ÉG VAR EINMITT AÐ SPÁ Í AÐ
BREYTA UM LIT Í ELDHÚSINU, EN
FYRST ÉG OG LINDA ERUM AÐ FARA
AÐ SKILJA...
Ó, VAR ÉG EKKI BÚINN
AÐ SEGJA ÞÉR ÞAÐ?
KÓNGULÓARMAÐURINN ER
NÝBÚINN AÐ HANDSAMA
BÍLAÞJÓFA...
ÉG TÍMASETTI ÞETTA
MEIRA AÐ SEGJA RÉTT
ÞANNIG AÐ ÉG FENGI
GÓÐA MYND AF
HANDTÖKUNNI
ÉG ER ANSI GÓÐUR
EN EF ÉG ER SVONA GÓÐUR,
AF HVERJU ER KONAN MÍN
3.000 km Í BURTU
Samtök skelræktenda efna tilráðstefnunnar Skelrækt2007 á Hótel KEA 12. jan-úar.
Jón Baldvinsson er formaður sam-
takanna og einn af umsjónarmönnum
ráðstefnunnar: „Við viljum á ráðstefn-
unni kynna möguleika og framtíð-
arhorfur þessarar nýju sjávarútvegs-
greinar á Íslandi, en tilraunir með
bláskeljarækt á undanförnum árum
hafa gefið góða raun,“ segir Jón.
„Margra alda hefð er fyrir bláskelja-
rækt í Evrópu, en umhverfisaðstæður
eru farnar að þrengja að greininni
þar, og þörf fyrir nýja ræktunarstaði.
Hreinleikinn skiptir þar lykilmáli,
enda fer skelin fersk á disk neytenda,
en víða í Evrópu ógnar mengun af
ýmsum iðnaði gæðum bláskeljar.“
Söluvæn afurð
Jón segir bæði hreinleika íslenska
sjávarins og eiginleika sjávarflór-
unnar við strendur landsins gera
kleift að rækta hér úrvalsbláskel:
„Auk þess að vera laus við meng-
unarvaldana sem hrjá skelræktendur
á meginlandinu eru íslensk rækt-
unarsvæði einnig lausari við ásætur
og sníkjudýr sem setjast á skelina og
gera hana að verri söluafurð. Íslenska
skelin er mjög hrein og falleg, en er
ekki síst bragðgóð og með háa fylling-
arprósentu, þ.e. hátt hlutfall af heild-
arþyngd skeljarinnar sem hægt er að
leggja sér til munns,“ segir Jón. „Við
sem ræktað höfum bláskel í tilrauna-
skyni hér á landi verðum varir við
vaxandi eftirspurn eftir afurðinni frá
evrópskum söluaðilum, sem bæði
kemur til vegna skorts á afurðinni og
einnig vegna orðspors Íslands fyrir
hreinar og góðar sjávarafurðir.“
Jón segir bláskeljarækt spennandi
möguleika fyrir íslenskan sjávar-
útveg: „Heildarneysla á bláskel á
Evrópumarkaði einum er um 800 þús.
tonn árlega, og fer vaxandi, og því
ljóst að um stórt tækifæri er að
ræða,“ segir Jón. „Þetta er einnig
mjög byggðavæn atvinnugrein, en
margir þeir staðir við strendur lands-
ins þar sem aðstæður eru bestar til
bláskeljaræktar eru í nágrenni
byggða sem síðustu ár hafa verið að
missa kvóta og leita nú að nýjum at-
vinnutækifærum.“
Aðstandendur ráðstefnunnar 12.
janúar hafa fengið til liðs við sig fjölda
virtra sérfræðinga og frumkvöðla á
sviði skelræktar, frá ýmsum löndum,
en dagskrá ráðstefnunnar er þrískipt:
„Við byrjum á faglegri úttekt með er-
lendum og innlendum frumkvöðlum,
skoðum stoðumhverfi ræktarinnar,
eftirlitskerfi og fleira, og sérfræð-
ingar segja frá þróun til þessa og
helstu möguleikum“ segir Jón. „Þá
skoðum við markaðsmál og reynum
að meta með raunhæfum hætti
hversu stórir markaðir geta verið
opnir íslenskum skelræktendum, og
hvaða sölustærðar má vænta. Í þriðja
lagi munu íslenskir skelræktendur
segja frá eigin verkefnum, en frá því
skelrækt hófst fyrst hér á landi hefur
mikið vatn runnið til sjávar og sér-
hæfð þekking orðið til auk þess sem
markaðs- og flutningsaðstæður hafa
batnað.“
Nánar má lesa um dagskrá ráð-
stefnunnar og skráningu á síðunni
www.skelraekt.is.
Sjávarútvegur | Ráðstefnan Skelrækt 2007
haldin á Hótel KEA á Akureyri 12. janúar
Möguleikar
bláskeljarinnar
Jón Baldvins-
son fæddist í
Hafnarfirði árið
1963. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Flensborgarskól-
anum 1983 og
BS-prófi í líf-
fræði frá Há-
skóla Íslands
1989. Jón starfaði sem líffræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun og Há-
skóla Íslands, síðar sem verk-
efnastjóri við nýsköpun í sjávar-
útvegi og tækniiðnaði. Hann
starfrækir nú skelræktarfyrirtækið
Breið ehf. Jón er kvæntur Arnheiði
Ólafsdóttur, félagsfræðingi og
kennara og eiga þau tvö börn.
LEIKARINN Will Smith bregður hér á leik með syni sínum Jaden á frum-
sýningu nýjustu myndar Smith, The Pursuit of Happyness, í Þýskalandi. Af
Smith er það annars að frétta að hann hyggst að sögn flytjast með fjöl-
skylduna til Suður-Afríku, en hann sagðist í viðtali hafa fallið fyrir landinu
við tökur á kvikmyndinni Ali þar sem hann fór með hlutverk hnefaleika-
kappans goðsagnarkennda Muhamed Ali.
REUTERS
Heimurinn á hvolfi