Morgunblaðið - 10.01.2007, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 10.01.2007, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ "SNJÖLL OG BRÁÐFYNDIN!" eeee HJ, MBL Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is KÖLD SLÓÐ kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára CHILDREN OF MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára FLAGS OF OUR FATHERS kl. 6 - 9 B.i. 16 ára FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 5:40 LEYFÐ DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára THE DEPARTED kl. 7:40 - 10:30 B.i. 16 ára BOSS OF IT ALL kl. 5:30 B.i. 7 ára / KEFLAVÍK EMPLOYEE OF THE MONTH kl. 8 - 10:10 LEYFÐ FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 B.i. 16 ára SAW 3 kl. 10:30 B.I. 16 ára STRANGER THAN FICTION kl. 8 LEYFÐ FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:40 - 8 B.i. 16 ára FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ / AKUREYRI FLUSHED AWAY eeee S.V. MBL. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI 20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings ef greitt er með korti frá Kaupþingi SANNKALLAÐ MEISTARAVERK SEM KVIKMYNDAÐ VAR AÐ MESTUM HLUTA Á ÍSLANDI eeee L.I.B. TOPP5.IS eee Þ.J. FRÉTTABLAÐIÐ eeee S.V. MBL. FRAMLEIDD AF STEVEN SPIELBERG EFTIR ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANN CLINT EASTWOOD FRÁ FRAMLEIÐENDUM WEDDING CRASHERS SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is GEGGJUÐ GRÍNMYND „TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG” „KÖLD SLÓÐ ER AFBRAGÐS SAKAMÁLASAGA SEM HÆGT ER AÐ MÆLA MEГ eeee VJV TOPP5.IS „KÖLD SLÓÐ ER AFBRAGS SKEM- MTUN, GÓÐ OG SPENNANDI SAKAMÁLASAGA. VEL GERT“ eee (AF 4 STJÖRNUM) árnað heilla ritstjorn@mbl.is Hvenær fer RÚV að senda breiðtjaldsefni? VIÐ erum orðin nokkuð mörg sem eigum sjónvarpstæki með breið- tjaldsskjá. Það er mjög gaman þeg- ar maður horfir á efni af disk. Nú er það líka þannig að mestallt efni BBC og sjónvarpsstöðva á Norð- urlöndum er sent í breiðtjaldsformi. En Ríkisútvarpið heldur ennþá fast í að hafa svartar rendur í kring- um myndefni í breiðtjaldsformi. Merkilegt nokk þá er slatti af því efni sem það framleiðir sjálft í breiðtjaldsformi. Þá fáum við með breiðtjaldsskjá svarta rönd allan hringinn og svo getur maður tekið til við að fikta í fjarstýringunni til að reyna að breikka myndina. Þegar það hefur tekist kemur síðan í ljós að textinn hefur lent fyrir neðan og svo þarf að fikta aftur í fjarstýring- unni. Það getur varla verið mikill kostnaður að breyta sendingum eins og menn gera úti í heimi og senda okkur almennilegar breiðtjalds- sendingar. Pétur Rasmussen. Þeir sem minna mega sín Varðandi málefni Byrgisins vaknaði sú spurning upp hjá mér hvort að siðferðislega sé rétt af ríkinu að hætta greiðslum til Byrgisins. Ég held að það megi ljóst vera að það bitnar aðeins á þeim sem síst skyldi eins og fréttir sýna af þeim skjól- stæðingum Byrgisins sem hafa yf- irgefið það vegna þessa og farið aft- ur á götuna. Hefði ekki verið betra að halda áfram greiðslum svo fólkið gæti verið þarna áfram og gera frekar aðrar ráðstafanir eins og að setja einhvern frá ríkinu yfir fjár- málin og með því hefði verið hægt að halda áfram að hjálpa þessu fólki sem þangað leitar? Hefur ekki sjálf- ur yfirlögregluþjónninn okkar lýst þungum áhyggjum af því að blessað fólkið sé aftur komið á götuna. Það getur tekið fólk óratíma að vinna sig út úr sínum vanda og ég held að þetta hjálpi varla. Vinur þeirra sem minna mega sín. Enga spilakassa Ég er hneykslaður á að Happdrætti Háskólans ætli að opna sal fyrir spilakassa í verslunarmiðstöð í Breiðholti. Það á ekki að hafa svona þar sem fólk kemur saman og ung- lingar dvelja. Vil ég þakka borg- arstjóra fyrir hans viðleitni til að stoppa þetta. Óli Þór. Lyklakippa týndist LYKLAKIPPA tapaðist 6. janúar s.l. einhvers staðar á hjólastígum og gangstéttum höfuðborgarsvæðisins (Kópavogur / Nauthólsvík/ Hlíð- arnar/ Miklatún/miðborg Reykja- víkur og víðar). Á kippunni eru lykl- ar að Volvóbíl, ásamt fjarstýringu, húslykill, Atlantsolíudælulykill og lykill að bílastæði. Skilvís finnandi komi lyklunum til lögreglu eða hringi í síma 861 7701. Fundarlaun! Dúlla er týnd DÚLLA er svört og hvít, 8 ára gömul læða, frekar smávaxin. Hún hvarf frá Lálandi í Reykjavík 5. jan- úar sl. Hún var með ól og merkt þegar hún hvarf. Kannski leynist hún í bílskúrum eða útihúsum. Ef einhverjir hafa orðið varir við hana vinsamlega hafið samband í síma 568 1680 eða 897 2854. velvakandi Svarað í síma 569 1100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg 70ára af-mæli. Í dag, 10. janúar, er sjötugur Jón Eysteinsson, fyrrum sýslu- maður í Kefla- vík og hæsta- réttarlögmaður. Hann og kona hans, Magn- úsína Guðmundsdóttir, eru að heiman í dag. Víkverji brá sér fyrirhelgi á sýningu Þjóðleikhússins á Bak- kynjum, sem hafa feng- ið blendnar viðtökur. Á sýningunni skiluðu nokkrir áhorfendur sinni umsögn með fót- unum meðan á sýningu stóð. Víkverja fannst þessir góðu áhorfendur fara nokkurs á mis því sýningin er sterk, þótt ekki sé hún hnökra- laus. Evripídes skrifaði Bakkynjur skömmu fyrir andlát sitt 406 eða 405 fyrir Krist og það segir sína sögu að verkið skuli enn eiga erindi 2.413 árum síðar. Þar er tekist á við dramblæti mannanna og refsigleði guðanna. Evripídes var uppi á átakatímum og heimssýn hans markast af því. Eins og bent hefur verið á hefur hann hvorki trú á að maðurinn geti stjórnað sjálfum sér né samfélaginu svo vel fari. x x x Augljóst er að dræmar viðtökurleikrits geta haft afgerandi áhrif á gengi þess, sérstaklega þegar verkið er þungt. Raunin er hins veg- ar sú að leikritið sjálft er eitt og sér þess virði að fara og sjá það og því má bæta við að ekki vantar í það dramatík. Og haldi fólk að leikritið sé barn síns tíma má benda á að at- burðir í Bakkynjum ganga ekkert síður gegn hefðbundnum við- horfum en skopteikn- ingar Hugleiks Dags- sonar gera á okkar tímum. Grískir harm- leikir eru ekki settir oft á svið hér á landi og það er synd að það skuli að mestu leyti fara fyrir of- an garð og neðan þegar kostur gefst á að líta í vöggu vestrænnar sið- menningar. Bakkynjur eru settar upp af metn- aði og þýðing Kristjáns Árnasonar er mergjuð. Víkverji græddi verulega á að hafa lesið formála og kynningu í útgáfu Penguin á Bakkynjum fyrir sýninguna og í raun má búast við að áhorfandinn verði eins og fiskur á þurru landi í upphafi sýningar gefi hann sér ekki tíma til að læra örlítið heima. x x x Svo má bæta við áskorun á Þjóð-leikhúsið um að gefa út leikrit sem þetta, helst með skýringum. Það myndi ýta undir skilning áhorfand- ans og gera honum kleift að njóta betur. Þjóðleikhúsið á þakkir skildar fyrir uppfærsluna á Bakkynjum. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is            dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er miðvikudagur 10. janúar, 10. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta. (Lk. 13, 24.) Sumir aðdáenda skoska „sjarmörs- ins“ Ewan McGregor munu eflaust verða fyrir vonbrigðum með þá yf- irlýsingu leikarans að hann sé orð- inn of gamall til þess að fletta af sér klæðum fyrir framan myndavél- arnar. McGregor hefur oftar en einu sinni klætt sig úr hverri spjör í þágu listarinnar. Eflaust er eina þekkt- ustu nektarsenuna að finna í kvik- myndinni Trainspotting. Hann seg- ist nokkrum sinnum hafa náð að blekkja myndavélina, en þess gerist þó ekki þörf lengur. „Ég hef uppgötvað leiðir svo svindla megi á öldrunarferlinu. Ég hef rakað á mér bringuna vegna þess að hárin gera mig ellilegan,“ sagði McGregor í viðtali við Radio One á Bretlandi. Leikarinn seg- ir hinsvegar að nektardagarnir séu að baki, og að þetta sé gert með áhorfendur í huga. „Ég gæti varið fólk frá því að horfa á mitt gamla hold í myndum í framtíðinni,“ segir hann.    Von er á enn einni kvikmyndinni um mannætuna Hannibal Lecter eftir nokkra mánuði. Að þessu sinni mun Anthony Hopkins þó ekki leika aðalhlutverkið heldur ungur fransk- ur leikari, Gaspard Ulliel að nafni, enda fjallar myndin um upp- vaxtarár Lecters í Litháen og Frakklandi. Myndin er gerð eftir nýrri skáld- sögu Thomas Harris, sem nefn- ist Hannibal Ris- ing og kom út í desember. Leikstjóri er Peter Webber, sem gerði m.a. myndina Girl with a Pearl Earring. Bók Harris fékk frekar slaka dóma gagnrýnenda líkt og bókin Hannibal, sem kom út fyrir nokkr- um árum, öfugt við bækurnar Red Dragon og Silence of the Lambs, sem fjölluðu einnig um Hannibal Lecter. Allar þessar bækur hafa ver- ið kvikmyndaðar.    Bandaríski kvikmyndaleikstjór- inn James Cameron hefur ákveðið að gera kvikmynd, sem nefnist Avat- ar og á að gerast eftir 150 ár. Came- Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.