Morgunblaðið - 22.01.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 21. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
DÝRIN KVÖDD
HINSTA HVÍLA GUTTORMS OG
ANNARRA GÆLUDÝRA >> 21
GRÆDDUR ER
GEYMDUR EYRIR
FYRIRHYGGJA
FJÁRMÁL >> 19
SEIFSDÝRKENDUR, einn þeirra
klæddur sem Forn-Grikki, fara með
bæn við athöfn sem fram fór við
Ólympshof Seifs í Aþenu í gær. Beð-
ið var fyrir því að Ólympíuleikarnir í
Peking á næsta ári yrðu haldnir með
friðsamlegum hætti.
Athöfnin fór fram þótt menning-
arráðuneyti Grikklands hefði bann-
að hana, enda eru allar samkomur
bannaðar við merkar fornminjar þar
í landi. Athöfnin var á vegum hreyf-
ingar, sem vill endurlífga trú Forn-
Grikkja. Í hreyfingunni eru nokkur
hundruð manna.
Á bæn
við hof Seifs
Reuters
Belgrad. AP, AFP. | Róttæki flokkurinn
(SRS), sem er mjög þjóðernissinnað-
ur, fékk mest fylgi í þingkosningum í
Serbíu í gær, að sögn CeSID, óháðrar
stofnunar sem fylgdist með kosning-
unum.
SRS er flokkur Vojislavs Seseljs
sem hefur verið ákærður fyrir stríðs-
glæpi. Flokkurinn fékk 28,5% at-
kvæðanna og Lýðræðisflokkurinn
(DS), sem stefnir að aðild Serbíu að
Evrópusambandinu, fékk 22,9%.
Lýðræðisflokkur Serbíu (DSS),
íhaldssamur flokkur undir forystu
Vojislavs Kostunica forsætisráð-
herra, varð þriðji stærstur með 17%.
Búist er við að Lýðræðisflokkurinn
myndi stjórn með flokki Kostunica og
G-17, umbótasinnuðum flokki sem
fékk 6,8% atkvæðanna.
Þetta voru fyrstu kosningarnar í
Serbíu síðan Svartfjallaland fékk
sjálfstæði og frá dauða Slobodans
Milosevic, fyrrverandi forseta, í fyrra.
Þjóðernissinnar
með mest fylgi
VERIÐ er að kanna hvort Flugfjar-
skipti ehf. geti fengið til afnota fjar-
skiptamöstur sem bandaríski herinn
reisti við fjallið Þorbjörn við Grinda-
vík en hefur nú hætt að nota. Þetta
hefur Morgunblaðið eftir áreiðanleg-
um heimildum.
Brandur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfjarskipta, vildi
ekki staðfesta þetta í gær en sagði að
félagið væri enn að leita að landi
undir möstur sem nú eru á Rjúpna-
hæð í Kópavogi. Ýmsir möguleikar
hefðu verið kannaðir í því sambandi.
Í sumar keyptu Flugfjarskipti
jörð í Flóahreppi og hugðust reisa
þar tíu 18–36 metra há möstur en
urðu að hætta við vegna andstöðu
sveitarstjórnar. Kópavogsbær hefur
skipulagt byggð á hæðinni sem
möstrin standa á og verða þau að
vera farin fyrir næsta haust, eigi
framkvæmdir ekki að tefjast.
Ný not
fyrir
möstrin?
SNJÓFLÓÐ hrifsaði með sér mann á vélsleða
norðan skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli í gær og ligg-
ur hann þungt haldinn á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri (FSA). Seint í gærkvöldi var manninum
enn haldið sofandi í öndunarvél.
Um það bil tugur manna var saman á svæðinu,
allt þrautreyndir vélsleðamenn. Maðurinn barst
um 100 metra með snjóflóðinu en félagar hans
náðu að miða manninn út á skömmum tíma og
grafa hann upp vegna þess að þeir voru útbúnir
svokölluðum snjóflóðaýlum og þeim tækjum er
þakkað að það tókst að bjarga lífi mannsins. „Ann-
ars hefðum við aldrei fundið hann nógu snemma,“
sagði Finnur Aðalbjörnsson, einn vélsleðamann-
anna, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Maðurinn sem lenti í flóðinu var á tveggja
metra dýpi, meðvitundarlaus, en félagar hans
náðu að blása í hann lífi áður en lögreglu- og
sjúkraflutningamenn komu á staðinn. Maðurinn
var fluttur með þyrlu á FSA.
Hópurinn var á ferð talsvert norðan við skíða-
svæðið í Hlíðarfjalli; á milli Mannshryggs og
Stórahnjúks. Finnur telur að snjóflóðið hafi verið
um það til einn og hálfur kílómetri á breidd, nærri
þrisvar sinnum breiðara en í fyrstu var talið í gær.
„Hlíðin kom eiginlega bara öll niður,“ sagði hann
við Morgunblaðið. | Miðopna
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Björgun Komið með hinn slasaða að TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem lenti talsvert neðan slysstaðarins í Hlíðarfjalli og flutti manninn á FSA.
„Hlíðin kom bara öll niður“
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
YFIRVÖLD í Ástralíu hafa varað
við því að miklir þurrkar hafi orð-
ið til þess að tugir þúsunda snáka
hafi fært sig yfir á þéttbýl svæði í
leit að vatni.
Margar eiturslöngur hafa farið
inn í íbúðahverfi og atvinnusvæði,
að því er fréttavefur breska rík-
isútvarpsins, BBC, hafði eftir ástr-
ölskum embættismönnum í gær.
Mestu þurrkar í Ástralíu í 100
ár hafa orðið til þess að þyrstir
snákar hafa fundist í görðum,
svefnherbergjum og jafnvel versl-
unarmiðstöðvum.
Eiturefnafræðingar segja að 60
Ástralar hafi orðið fyrir alvarlegu
snákabiti frá því í september. Þrír
hafa dáið af völdum eituslöngu-
bits á síðustu vikum, þeirra á
meðal sextán ára unglingur sem
dó í Sydney í vikunni sem leið.
Snákar herja
á Ástrala
♦♦♦