Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag mánudagur 22. 1. 200 íþróttir mbl. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA íþróttir Íslenska landsliðið fékk skell gegn Úkraínu á HM >> 4–7 TOPPLIÐIN TÖPUÐU MAN. UTD. OG CHELSEA AÐ GEFA EFTIR CHARLTON BRAUT ÍSINN Á ÚTIVELLI >> 8 tir Guðmund Hilmarsson mmih@mbl.is ÓHANNES Karl Guðjónsson, ndsliðsmaður í knattspyrnu, skrif- ði í gærkvöld undir þriggja og hálfs rs samning við enska 1. deildarliðið urnley. Jóhannes var samnings- undinn hollenska liðinu AZ Alkma- r, sem hann gekk til liðs við frá eicester á síðasta ári, en fékk fá ækifæri með því og óskaði hann eft- því að fá að komast frá félaginu. Z Alkmaar setti 50 milljón króna Alkmaar sættust félögin á að Burn- ley greiddi 35 milljónir króna. Jóhannes fer í læknisskoðun í hjá Burnley í dag. Hann mun svo í fram- haldinu æfa með liðinu og Steve Cot- terill, knattspyrnustjóri Burnley, hyggst tefla Jóhannesi fram í leik Burnley gegn Stoke annað kvöld. ,,Ég er bara ánægður að vera kominn aftur til Englands eftir þessa sex mánuði í Hollandi sem voru ekki nógu góðir hvað fótboltann varðar. Ég er líka ánægður að vera kominn til liðs þar sem knattspyrnustjórinn mig spila á móti Stoke og nú ríður bara á að koma sér í gang,“ sagði Jó- hannes Karl við Morgunblaðið í gær. Steve Cotterill, knattspyrnustjóri Burnley, stýrði liði Stoke um tíma en hann tók við liðinu af Guðjóni Þórð- arsyni, föður Jóhannesar. Cotterill hefur með tilkomu Jóhannesar feng- ið fjóra nýja leikmenn í janúarglugg- anum en hinir þrír eru Eric Djemba- Djemba, Ade Akinbiyi og Mike Pol- litt. Burnley, sem er um miðja deild, verður fjórða enska liðið sem Jó- hannes leikur með en hann hefur Jóhannes Karl samdi við enska liðið Burnley Morgunblaðið/Golli átt í höllinni Íslenska landsliðið í badminton sigraði á Evrópumóti B-þjóða sem fram lauk í Laugardalshöll í gær en þar lagði Ísland lið Íra í úrslitum. Tinna Helgadóttir og agna Ingólfsdóttir tryggðu íslenska liðinu sigur í tvíliðaleik kvenna og Magnús Helgason fagnaði sigrinum innilega. Ísland leikur á EM A-þjóða í Danmörku í apríl á næst ári. » 2-3 mánudagur 22. 1. 2007 fasteignir mbl.is Óendanlegir möguleikar FASTEIGNALÁN Í MYNTKÖRFU Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is 3,4% Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006 Bambusdreki er blóm vikunnar nú » 17 fasteignir „Í FJÖLBÝLI ER LÍFIÐ MÁLAMIÐLUN“, SEGIR SIGURÐUR HELGI GUÐJÓNSSON HRL., FORMAÐUR HÚSEIGENDAFÉLAGSINS. >> 32 Verslunin Kaffiboð sérhæfir sig í sölu kaffivéla, kaffis og ýmissa raftækja til eldhússins. Eigandinn Einar Guð- jónsson segir að öllu máli skipti hvernig staðið er að kaffi tilbúningnum. „Espresso-kaffi verður að vera rétt lagað,“ segir hann. » 46 Að drekka espresso er hugsjón Morgunblaðið/G.Rúnar Á árunum 1500-1600 setti Renessens-tímabilið svip sinn á Kaupmannahöfn. Einmitt í ár er tímabilsins minnst á mismunandi stöðum í borginni. „Renessans þýðir endurfæðing. Menn byrj- uðu að hugsa frjálsar,“ segir Fjóla Magnúsdóttir í Antikhús- inu, þar er margt til sölu frá þess- um tíma. »40 Morgunblaðið/Árni Sæberg Endurfæðing fornra tíma Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 22 Veður 8 Minningar 28/30 Staksteinar 8 Myndasögur 237 Viðskipti 11 Víkverji 40 Erlent 13 Staður stund 38/41 Vesturland 16 Leikhús 334 Daglegt líf 18/21 Dagbók 37/41 Umræðan 24/27 Bíó 38/41 Bréf 27 Ljósvakar 42 * * * Innlent  Maðurinn, sem lenti í snjóflóði norðan skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli um hádegisbil í gær, liggur þungt haldinn á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og var honum enn haldið sofandi í öndunarvél seint í gær- kvöldi. Maðurinn barst um 100 metra með flóðinu en sleðinn stöðv- aðist um það bil 20 metrum neðar. Maðurinn var á tveggja metra dýpi þegar félagar hans fundu hann fá- einum mínútum síðar. Þeir náðu að blása í manninn lífi áður en björg- unarmenn komu á staðinn. »Mið- opna  Það kemur til greina að reisa fimmtíu manna vinnustað þar sem ál verður fullunnið, við fyrirhugað ál- ver í Helguvík. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ segir að viðræður standi yfir við tvö fyrirtæki um að reisa verksmiðju. »Baksíða  Hjálmar Árnason, sem hafnaði í þriðja sæti í prófkjöri Framsókn- arflokksins í Suðurkjördæmi í gær, ætlar ekki að taka sætið. Gaf hann út yfirlýsingu þess efnis þegar úrslit voru orðin ljós. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hafnaði í fyrsta sæti. »4  Rússneskir flugvirkjar frá Jakú- tíu í Austur-Síberíu eru nú á nám- skeiði til að afla sér viðhaldsréttinda á Boeing 757-200 vélar hjá Ice- landair á Keflavíkurflugvelli. Ja- kútía er með þessu að stíga sín fyrstu skref í notkun vestrænna flugvéla. »Baksíða Erlent  Róttæki flokkurinn, sem er mjög þjóðernissinnaður, fékk mest fylgi í þingkosningum í Serbíu í gær, sam- kvæmt fyrstu kjörtölum. Flokkurinn fékk 28,5% atkvæðanna en búist er við að Lýðræðisflokkurinn, sem fékk um 23% fylgi, myndi næstu rík- isstjórn með a.m.k. tveimur minni flokkum. »Forsíða  Hillary Clinton, fyrrverandi for- setafrú Bandaríkjanna, hefur tekið fyrsta skrefið í þá átt að sækjast eft- ir því að verða forsetaefni demó- krata á næsta ári og síðan fyrsta konan í embætti forseta Bandaríkj- anna. Talið er að helsti keppinautur hennar verði öldungadeild- arþingmaðurinn Barack Obama sem stefnir að því að verða fyrsti blökku- maðurinn í forsetaembættinu. »13  Sautján ára Tyrki var í gær sagður hafa játað á sig morðið á blaðamanninum Hrant Dink sem var skotinn til bana í Istanbúl á föstu- dag. Blaðamaðurinn hafði fengið morðhótanir frá tyrkneskum þjóð- ernissinnum vegna skrifa sinna um fjöldamorð Tyrkja á Armenum í fyrri heimsstyrjöldinni. »13 Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi kom saman á fundi í gær og staðfesti til- lögu kjörnefndar um uppstillingu á lista flokksins í kjördæminu vegna kosninganna í vor. Á fundinum kom fram breytingartillaga sem fól m.a. í sér að Árni Johnsen, sem hafnaði í öðru sæti í prófkjöri í haust, myndi víkja af listanum. Var tillög- unni hafnað með um 80% atkvæða. „Þetta er afbragðs niðurstaða að mínu mati. Þessi listi gefur mikla breidd og hefur tengingu við allt kjördæmið,“ segir Árni Johnsen. En skyldi breytingartillagan sem borin var fram á fundinum hafa komið Árna á óvart? „Já og nei. Það kemur manni að vísu á óvart að það komi tillaga því það var búið að treysta Sunn- lendingum til að velja á listann. Það val á auðvitað að standa. Það er nú hinsvegar þannig í pólitík að menn mega skiptast á skoðunum og tala mál- efnalega og tilfinningalega um hlutina og það er í góðu lagi. Svo kemur niðurstaðan og hún var í samræmi við það sem Sunnlend- ingar höfðu valið,“ segir Árni. Fundurinn, sem fram fór á Hótel Örk í Hveragerði var sóttur af um 170 manns. Að sögn Skapta Arnar Ólafssonar, framkvæmdastjóra kjördæmisráðsins, var stemning á fundinum góð. „Þetta var kraftmik- ill fundur. Kjörnefnd lagði fram sína tillögu að framboðslistanum og það kom breytingartillaga sem var felld með miklum meirihluta,“ segir Skapti. „Listinn var svo samþykkt- ur samhljóða með lófaklappi,“ segir hann og telur niðurstöðuna stað- festa sterka stöðu Árna Johnsen og Árna Mathiesen í kjördæminu. „Þetta er sterkur listi og hefur mikla sigurmöguleika í vor,“ segir hann að lokum. Tillaga um að fella Árna af listanum ekki samþykkt Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi staðfestir lista kjörnefndar Í HNOTSKURN »Árni M. Mathiesen fjár-málaráðherra, Árni John- sen, fyrrverandi þingmaður, Kjartan Ólafsson þingmaður, Björk Guðjónsdóttir bæj- arfulltrúi og Unnur Brá Kon- ráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra skipa efstu fimm sætin á listanum. »Listinn er ekki endanlegurfyrr en miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins samþykkir hann, en búast má við að málið verði tekið fyrir á næsta fundi stjórnarinnar. Árni Johnsen ÞAÐ ERU enn þó nokkrar vikur í að það fari að vora á landinu en á næstu dögum er þó spáð hlýindum, að minnsta kosti hlýrra veðri en verið hefur. Dögum saman hefur hitastigið suðvestanlands og reyndar mun víðar verið vel undir frostmarki. Í fyrstu snjóaði og jörðin varð fagurhvít en nú hefur ekki snjó- að í nokkuð langan tíma og fönnin sem fyrir var orðin skítug og frekar óspennandi á að líta. Höfuðborgarbúar hafa, eins og aðrir sem hafa þurft að þola kuldann, dúðað sig ef þeir hafa þurft að bregða sér af bæ. Í dag spáir Veðurstofan því að það muni þykkna upp og hlána á vestanverðu landinu. Þá mun draga úr frosti austantil síðdegis sem og víðast hvar á landinu. Morgunblaðið/ÞÖK Bráðum kemur betri tíð BRESKI tónlist- armaðurinn El- ton John skemmti gestum í afmæli Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, sem haldið var í frysti- geymslu Sam- skipa á laugar- dagskvöld. Ólafur segir viðstadda hafa skemmt sér konunglega og El- ton John hafi líkað viðtökurnar vel því hann spilaði 20 mínútum lengur en um var samið. Ólafur segist með þessari uppákomu hafa viljað sýna traustu starfsfólki Samskipa í gegn- um tíðina þakklæti í verki. Var fleiri tugum þeirra og mökum boðið til veislunnar sem og vinum og vanda- mönnum. Elton í af- mæli Ólafs Vildi sýna tryggu starfsfólki þakklæti Elton John TÆPLEGA þrítugur karlmaður og unnusta hans voru í gær úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglunnar á Selfossi á bruna í parhúsi í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardags. Lögregla fór fram á gæsluvarðhald yfir þriðja manninum en dómari við Héraðsdóm Suður- lands tók sér frest til morguns til að kveða upp úrskurð. Íbúðin sem brann var mannlaus en í íbúðinni við hliðina svaf kona og tvö börn. Nágranna tókst að vekja þau og komust þau klakklaust út. Í fyrstu var talið að fremur litlar skemmdir hefðu orðið á íbúð þeirra en við nánari skoðun komu meiri skemmdir í ljós. Maðurinn sem nú situr í gæslu- varðhaldi var handtekinn á laugar- dag eftir að hann reyndi að nota greiðslukort í Reykjavík sem hafði verið stolið úr húsinu sem brann, samkvæmt tilkynningu frá lögregl- unni. Var hann úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Í tengslum við málið var gerð hús- leit á tveimur stöðum, í Þorlákshöfn og í Reykjavík og fannst þýfi úr hús- inu við leit á öðrum staðnum. Þar býr unnusta mannsins sem var handtek- inn með greiðslukortið og var hún í kjölfarið úrskurðuð í gæsluvarðhald í eina viku. Tvítugum karlmanni og 17 ára stúlku sem einnig voru hand- tekin var sleppt. Tvennt í gæslu vegna rannsóknar á íkveikju Greiðslukort varð meintum brennuvörgum að falli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.