Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Jamaica í febrúar. Viðbótar-
gisting á Sand Castles sem við bjóðum á einstöku tilboði. Gríptu
tækifærið og tryggðu þér einstaka 10 daga ferð til Karíbahafs-
perlunnar Jamaica á frábærum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Karíbaveisla á
Jamaica
4. eða 13. febrúar
frá kr. 89.990
Síðustu sætin - 10 dagar (9 nætur)
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 89.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á
Sand Castles í 9 nætur.
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
GUÐNI Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra hafnaði í fyrsta sæti í próf-
kjöri Framsóknarflokksins í Suður-
kjördæmi en úrslit lágu fyrir í
gærkvöldi. Hjálmar Árnason þing-
maður sem einnig sóttist eftir
fyrsta sætinu hafnaði í þriðja sæti
og gaf í kjölfarið út þá yfirlýsingu
að hann hygðist ekki taka sætið.
Öðru sæti náði Bjarni Harðarson
blaðamaður og bóksali en hann hef-
ur ekki setið á þingi. Flokksmönn-
um í kjördæminu fjölgaði um nær
helming í aðdraganda prófkjörsins.
Mikil fjölgun flokksmanna
Framsóknarmenn hlutu tvo þing-
menn í Suðurkjördæmi í síðustu
kosningum en aðeins vantaði nokk-
ur hundruð atkvæði upp á að þeir
fengju þriðja manninn inn.
Alls greiddu 3.590 atkvæði í próf-
kjörinu en kosning fór fram á laug-
ardaginn. Kosið var um sex efstu
sætin á lista flokksins í kjördæminu
og var kosningin bindandi. Alls var
kosið á 26 stöðum. Veruleg fjölgun
varð á flokksmönnum í kjördæminu
í aðdraganda prófkjörsins og gátu
menn skráð sig í flokkinn allt þar til
kjörstaðir lokuðu.
„Prófkjörið fór allt samkvæmt
áætlun og allt gekk upp. Kjördeildir
stóðu sig afar vel. Það var byrjað að
telja á hádegi í gær og lauk talningu
kl. 19. Auð og ógild atkvæði voru
139. Við vorum mjög ánægð með
þetta fyrirkomulag og þetta gekk
ljómandi vel,“ sagði Skúli Þ. Skúla-
son, formaður kjörstjórnar.
Flokkurinn nálægt því að ná
þremur þingmönnum 2003
Niðurstaðan merkir að líklegt má
telja að einhver endurnýjun verði á
þingmannahópi Framsóknarflokks-
ins í kosningunum í vor. Fái flokk-
urinn tvo þingmenn sest Bjarni
Harðarson á þing en hann hefur
ekki tekið beinan þátt í stjórnmál-
um fyrr.
Þá getur farið svo að þriðji maður
á lista nái þingsæti og verður það
þá að öllum líkindum Eygló Harð-
ardóttir, framkvæmdastjóri í Vest-
mannaeyjum, en hún er miðstjórn-
armaður Framsóknarflokksins og
skipaði fjórða sæti listans í Suður-
kjördæmi fyrir síðustu kosningar.
Tólf ára þingmennsku lokið
Hjálmar Árnason, sem hverfur
frá þingstörfum í vor, hefur setið
óslitið á þingi síðan 1995. Hann hef-
ur verið þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins síðan 2003 og setið
í iðnaðarnefnd þar sem hann gegnir
formennsku, menntamálanefnd,
sjávarútvegsnefnd, efnahags- og
viðskiptanefnd, samgöngunefnd,
kjörbréfanefnd og hefur jafnframt
verið formaður félagsmálanefndar.
Þá hefur Hjálmar verið fulltrúi Ís-
landsdeildar ÖSE-þingsins, Evr-
ópuráðsþingsins, Vestnorræna ráðs-
ins og Alþjóðaþingmanna-
sambandsins.
Guðni sigraði á Suðurlandi
Guðni Ágústsson sigraði Hjálmar Árnason í baráttu um fyrsta sæti á lista framsóknarmanna í Suður-
kjördæmi. Bjarni Harðarson hlaut annað sætið. Hjálmar lenti í þriðja en hyggst ekki verma sætið
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Handaband Eftir mikla baráttu takast þeir Guðni Ágústsson og Hjálmar Árnason í hendur. Hægra megin við
Hjálmar er Bjarni Harðarson, þá Björn Jónsson og lengst til hægri er Eygló Harðardóttir.
Í HNOTSKURN
»Alls greiddu 3.590 mannsatkvæði í prófkjörinu og
fór kosning fram á 26 kjör-
stöðum.
»Auð og ógild atkvæði voru139.
»Hjálmar Árnason var einiframbjóðandinn frá
Reykjanesi meðal þeirra sex
efstu í prófkjörinu. Guðni
Ágústsson, Bjarni Harðarson
og Elsa Ingjaldsdóttir eru bú-
sett á Selfossi en Eygló Harð-
ardóttir er búsett í Vest-
mannaeyjum og Lilja Hrund
Harðardóttir býr á Höfn í
Hornafirði.
»Hjálmar Árnason var fyrstkjörinn sem þingmaður
Framsóknarflokksins í
Reykjaneskjördæmi árið 1995.
Hefur hann setið óslitið á
þingi síðan en kjörtímabilið
1999 til 2003 var hann uppbót-
arþingmaður í Reykjanes-
kjördæmi.
!"
#
$
!
!"#!
!"$!
!"%!
!"&!
!"'!
„EFTIR svona afgerandi sigur er ég hrærður og þakk-
látur en síðustu daga hef ég fundið gríðarlegan stuðn-
ing úr öllu kjördæminu. Ég vissi að þessi ákvörðun
Hjálmars að bjóða sig fram gegn varaformanni flokks-
ins og ráðherra kjördæmisins væri áhætta fyrir hann.
Það hleypti hins vegar miklu lífi í þetta prófkjör. Okk-
ar barátta var drengileg en fólkið valdi þetta svona,“
segir Guðni Ágústsson, varaformaður Framsókn-
arflokksins, sem hlaut örugga kosningu í fyrsta sæti
prófkjörsins.
„Þegar tveir menn takast á um svona afgerandi sæti
þá hefst mikil pólitísk umræða um okkur Hjálmar sem
einstaklinga og fólk vegur okkur og metur. Ég er það heppinn að fólk
velur mig áfram og vill ekki að ég sé felldur. Hjálmar geldur fyrir þessa
ákvörðun sína. Við höfum verið vinir hérna í kjördæminu og samstarf
okkar hefur verið einstakt í þessi 12 ár sem hann hefur verið þingmað-
ur. Ég þakka honum alla þessa góðu daga,“ segir Guðni um brotthvarf
Hjálmars. Spurður um fjölgun í flokknum segir Guðni að vissulega hafi
barátta hans við Hjálmar dregið persónulega stuðningsmenn þeirra inn í
flokkinn. „Ég segi fyrir mig að með þessari miklu aukningu, að um
3.600 einstaklingar taki þátt, aukist líkur okkar verulega fyrir kosning-
arnar í vor,“ segir Guðni að lokum.
Mikið líf í prófkjörinu
Guðni
Ágústsson
HJÁLMAR Árnason þingmaður hlaut þriðja sæti í
prófkjörinu en sóttist eftir fyrsta sætinu. Í viðtali sem
sýnt var í beinni útsendingu á RÚV strax eftir að úr-
slit voru kunngjörð sagði Hjálmar m.a.: „Auðvitað eru
þetta vonbrigði en ég vil óska Guðna vini mínum til
hamingju með sigurinn. Þetta var afgerandi sigur. Ég
vil einnig þakka þann mikla stuðning sem ég fékk. Ég
iðrast þess ekki að hafa gefið kost á mér í fyrsta sæt-
ið. Það er glæsilegt að 3.500 manns hafi tekið þátt í
þessu prófkjöri og hefur það hleypt miklum krafti í
flokkinn,“ sagði Hjálmar.
„Ég túlkaði niðurstöðu kjördæmisþingsins þannig að
það vildi fá breytingar og þess vegna bauð ég mig fram sem valkost. Ég
lenti í þriðja sæti en sóttist eftir fyrsta. Ég tel það nokkuð skýr skilaboð
um að menn vilji breytingar og þess vegna mun ég draga mig úr. Ég tek
hins vegar fram að ég geri það í fullri sátt. Mér finnst þetta glæsilegur
hópur og ég óska honum alls hins besta og mun styðja við bakið á hon-
um en vona að það verði einhver enn sterkari en ég sem taki þetta sæti.
Ég ítreka að ég geri þetta í fullri sátt. Ég er búinn að vera tólf ár á
þingi, glæsileg ár og skemmtileg ár og ég fer saddur og glaður,“ sagði
Hjálmar Árnason þingmaður.
Fer af þingi saddur og glaður
Hjálmar
Árnason
„ÉG er fyrst og fremst afar þakklátur og hrærður á
þessari stundu. Auk þess finn ég líka fyrir því að
þessu fylgja miklar væntingar sem er ekki hrist fram
úr erminni að standa við,“ segir Bjarni Harðarson,
blaðamaður og bóksali, sem hlaut annað sæti í próf-
kjörinu, sætið sem hann stefndi að. Spurður að því
hvort að sú ákvörðun Hjálmars Árnasonar að stefna
á fyrsta sætið hafi aukið sigurlíkur hans segir Bjarni
að hann telji líkur til þess. „Það væri órökrétt að
segja annað eins og málin stóðu,“ segir hann og tek-
ur fram að hann virði og skilji þá ákvörðun Hjálmars
að taka ekki sæti á listanum. „Hér er um að ræða
mann sem hefur verið mjög lengi í stjórnmálum. Það hefði verið öðru-
vísi hefði hann náð öðru sæti,“ segir Bjarni. Spurður um fyrri þátt-
töku sína í pólitík segir Bjarni að hann hafi ekki tekið þátt í kosninga-
baráttu síðan árið 1980 þegar hann bauð sig fram til formennsku í
nemendafélagi í menntaskóla. Þá segist hann hafa verið liðsmaður
Framsóknarflokksins í á annan áratug og sinnt ýmiskonar blaðaútgáfu
fyrir flokkinn.
Fyrsti slagurinn síðan 1980
Bjarni
Harðarson
„ÉG er fyrst og fremst geysilega ánægð með þátttökuna
sem var stórkostleg hjá okkur miðað við að þetta var
lokað prófkjör,“ segir Eygló Harðardóttir framkvæmda-
stjóri í Vestmannaeyjum sem hafnaði í fjórða sæti í próf-
kjörinu en stefndi að öðru sætinu. „Ég er mjög sátt við
minn árangur. Ég var þriðja atkvæðamest yfir heildina
og fékk atkvæði úr öllu kjördæminu. Þetta sýnir að
framsóknarmenn eru ekki fastir í einhverri þúfna-
pólitík,“ segir hún.
Aðspurð um möguleika Framsóknarmanna á að ná
þremur þingsætum segir Eygló að þeir séu ágætir. „Við
erum í svipaðri stöðu í skoðanakönnunum nú og fyrir
fjórum árum. Þá vantaði aðeins nokkra tugi atkvæða til að ná þriðja mann-
inum inn,“ segir hún.
„Það eru glæsilegir fulltrúar á listanum og maður fann fyrir mikilli
stemningu á framboðsfundum með frambjóðendunum. Þetta var hörð
keppni en hún var málefnaleg og allir lögðu sig fram um að sækja fram
saman, en það var einmitt slagorð mitt í kosningabaráttunni og það er það
sem við ætlum að gera í vor,“ segir Eygló að lokum.
Geysilega ánægð með þátttökuna
Eygló Harð-
ardóttir