Morgunblaðið - 22.01.2007, Page 8
8 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Blaðrið þið bara áfram, ég slöngva þá bara skjóðunni yfir.
VEÐUR
Sigur Guðna Ágústssonar, land-búnaðarráðherra og varafor-
manns Framsóknarflokksins í próf-
kjöri flokksins í Suðurkjördæmi
kemur ekki á óvart. Guðni hefur
lengi staðið traustum fótum í kjör-
dæmi sínu og ekki við öðru að búast
en að hann gengi með sigur af hólmi.
Hitt vekur meiri athygli, að Hjálm-ar Árnason,
formaður þing-
flokks Framsókn-
arflokksins, sem
stefndi á fyrsta
sætið og ætlaði að
velta Guðna úr
sessi skyldi lenda
í þriðja sæti á eft-
ir Bjarna Harð-
arsyni.
Hjálmar hefur ákveðið að hættaafskiptum af stjórnmálum, sem
er hreinleg ákvörðun hjá honum og
ekki allir sem taka ósigri með svo af-
gerandi hætti.
En hvað veldur því að Hjálmar náðiekki betri árangri? Er staða
Framsóknarflokksins á Suð-
urnesjum jafn slæm og atkvæðatala
Hjálmars bendir til?
Ekki er hægt að skýra þessi úrslit áannan veg. Hjálmar Árnason
hefur notið velvildar fyrir störf sín á
Alþingi og þess vegna er ekki hægt
að skýra úrslitin á annan veg en
þann, að flokkurinn standi svo illa á
Suðurnesjum, en þangað hlýtur
Hjálmar að hafa sótt mest af sínu
fylgi.
Staða Framsóknarflokksins álandsvísu er hörmuleg skv. skoð-
anakönnun Fréttablaðsins og árang-
ur Hjálmars í prófkjörinu gæti bent
til þess að fylgi Framsóknarflokks-
ins í kjördæmunum á suðvest-
urhorninu sé ekki upp á marga
fiska.
Það er ekki langur tími til kosn-inga. Skyldi Framsóknarflokk-
urinn ætla að láta ósigur yfir sig
ganga baráttulaust?
STAKSTEINAR
Guðni Ágústsson
Framsókn og Suðurnes
SIGMUND
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
!!
"
!!
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
#
"$$% &$&
9
)#:; $$
!""
" #"
"
"
"
"
"$%
"
& '
"
) ##: )
' (
) $ $( $#
*
<1 <
<1 <
<1
' ) $+ !$,-
;;1=
<6
. / !$ $# $()
$
$%$(# &
<
.#)$0$1$$$
# $ !! $ $$(# !0
#$ $ $&
2 !$%$-&
5
1
' (# $$0$#$ $
1$$$ # $ $&
'"!$# $!%$$$(#
(# $ !0$#$ $
# $*
&$$3$$$$0
$$4
* &
5 $$66$
$.#
$+ !
2&34 >3
>)<4?@A
)B-.A<4?@A
+4C/B (-A
0
0
1& 1& 7& 0
0
0
0
0
0
0
0
07
07
0
07
80
SAMHERJI er að kanna möguleika
á að byggja 2.000 fermetra verk-
smiðju á Dalvík. Myndi það þýða
að verksmiðjuhús fyrirtækisins í
bænum yrði samtals um 3.000 m²
en landvinnsla Samherja á Dalvík
er ein sú mesta hér á landi. Ekki
er stefnt að því að fjölga starfs-
mönnum við þessa stækkun en nú
þegar starfa um 150 manns hjá
Samherja á Dalvík. „En vænt-
anlega þýðir þetta að við getum
keyrt aukið magn í gegn,“ segir
Gestur Geirsson, framkvæmda-
stjóri landvinnslu Samherja. „Þetta
húsnæði á Dalvík er barn síns tíma
og við erum að skoða að tækni-
væða það enn frekar.“
Varðandi hráefni til vinnslunnar
segir Gestur að einn af möguleik-
unum sé að flytja inn frosinn fisk
sem skip Samherja veiða annars
staðar en við Íslandsstrendur.
Gestur segir að þessa dagana sé
verið að skoða tilboð í byggingar
og tæki og fullgera kostnaðar-
áætlun.
Vilja reisa nýja
verksmiðju
FÓLK sem slasast alvarlega í bíl-
slysum og er lagt inn á gjörgæslu-
deild eða aðrar deildir Landspítala
– háskólasjúkrahúss greiðir engan
kostnað af spítaladvöl sinni en öðru
máli gegnir um þá sem slasast og
fara í rannsóknir og myndatökur
en fá að fara heim samdægurs. Get-
ur kostnaðarhlutdeild sjúklings far-
ið upp í 18 þúsund krónur að há-
marki. Fyrir myndatöku og komu á
slysadeild þarf að greiða tæpar
5.300 krónur en ef sjúklingur þarf
að gangast undir höfuðmyndatöku
sem eru í flokki dýrustu myndataka
hækkar gjaldið töluvert. Þak er þó
sett á kostnaðarhlutdeild sjúklings
við 18 þúsund krónur eins og fyrr
gat. Umræddar reglur hafa verið
við lýði um árabil, samkvæmt upp-
lýsingum Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss.
Það getur því kostað fullorðinn
ökumann og farþega 36 þúsund
krónur að lenda í umferðarslysi
með tilheyrandi rannsóknum.
Slasaðir greiða
allt að 18 þús-
und eftir bílslys
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR hefur
rúmlega 40% fylgi samkvæmt nýrri
könnun Fréttablaðsins, Samfylking
rúmlega 21%, Vinstri græn 19,4%,
Frjálslyndi flokkurinn 10% og
Framsóknarflokkurinn 7,4%. Sam-
kvæmt könnuninni eykst fylgi VG
mest milli kannanna, en fylgi Sam-
fylkingar hefur aldrei mælst minna í
könnunum blaðsins, segir í frétt þess
í gær. Kemur fram að sérstaklega
dragi úr stuðningi við flokkinn á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem fylgið sé
tæpum 13% minna en í síðustu könn-
un.
Frjálslyndir tapa 1% fylgi milli
kannanna og Framsókn bætti við sig
0,6%. Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst
einnig lítillega milli kannanna, en sú
síðasta var gerð 7. nóvember sl.
Samanlagt fylgi ríkisstjórnar-
flokkanna tveggja, Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks mælist 47,6% í
könnuninni og fengju flokkarnir skv.
því þrjátíu þingmenn kjörna.
Ekki var spurt sérstaklega um
sérframboð aldraðra og/eða öryrkja
en nær allir þeirra 1,7% sem sögðust
myndu kjósa annað en þá flokka sem
nú sitja á þingi sögðust myndu
styðja slíkt framboð.
Hringt var í 800 kjósendur 20. jan-
úar sl. og var svarhlutfall milli kynja
jafnt. Spurt var: Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði til kosninga
nú? 57,3% tóku afstöðu.
VG bæta verulega við sig
Fylgi Samfylkingar ekki mælst minna hjá Fréttablaðinu
VÍSITALA íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu lækkaði um 0,7% á milli
nóvember og desember. Þetta er
mat Fasteignamats ríkisins en í frétt
þaðan kemur fram að síðastliðna
þrjá mánuði hafi vísitalan lækkað
um 2,2%, síðastliðna sex um 0,9% en
hækkað um 5,0% sl. ár.
„Fyrir mitt leyti get ég ekki sagt
að verð á fasteignum fari lækkandi,“
segir Ingibjörg Þórðardóttir, vara-
formaður Félags fasteignasala. „Það
getur verið að salan sé sveiflukennd
milli mánaða og þannig seljist stund-
um meira í hverfum sem hafa átt
undir högg að sækja og verið meira
framboð. Þá eru meiri líkur á að verð
náist niður.“ Einnig verði að taka til-
lit til þess að nóvember og desember
séu þeir mánuðir sem minnst umsvif
eru á íbúðamarkaði.
„Í hverfum þar sem um er að
ræða eftirsóttar eignir tel ég lækk-
anir alls ekki hafa átt sér stað. Hins
vegar hrærir Fasteignamatið bara í
öllum pottinum og gerir heildarmat
á allri þessari breidd,“ segir Ingi-
björg sem áréttar að félagið muni
fara betur í saumana á málinu sjálft.
„Við höfum nýstofnaða greining-
ardeild innan okkar vébanda og ætl-
um að skoða þetta betur sjálf.“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ólíkt mat Fasteignamat ríkisins segir húsnæðisverð á höfuðborgarsvæð-
inu hafa lækkað. Varaformaður Félags fasteignasala er ekki sammála.
Íbúðaverð hafi lækkað