Morgunblaðið - 22.01.2007, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 22.01.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 9 FRÉTTIR            !   " # ÚTSALA - enn meiri verðlækkun - ÚTSALA Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16 Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433 FORSÆTIS- RÁÐHERRA Ís- lands, Geir H. Haarde, mun í dag sækja heim háskóla í Bergen og flytja þar er- indi. Erindið fjallar um norsk- íslenska sam- vinnu á nýjum tímum og verður haldið við Viðskiptaháskóla Noregs (Norges Handelshøyskole). Í netfrétt norska dagblaðsins Fiskaren er vakin athygli á því að Geir sé hálf-norskur að uppruna. Hann muni í erindinu fjalla um efnahag Íslands og íslensku útrás- ina, auk öryggismála með áherslu á Norður-Atlantshafssvæðið. Geir H. Haarde á heimavelli Geir H. Haarde VÉLSLEÐAMAÐUR slasaðist á fæti þegar hann ók sleða sínum á stein þar sem hann var á ferð í nágrenni Bláfjalla um kvöldmatarleytið í gær, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Maðurinn var jafnvel talinn hafa lærbrotnað við slysið. Í Kópavogshöfn klemmdist mað- ur illa á hendi í vinnuslysi þegar verið var að skipa upp gámi í Kópa- vogshöfn í hádeginu í dag, og mun önnur höndin vera nokkuð illa farin eftir slysið, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Yfir 15 umferðaróhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu í gær. Vélsleðamaður slasaðist á fæti TILKYNNING barst Lögreglunni á Sauðárkróki, klukkan 6.50 á laugardagsmorgni, um að innbrot hefði verið framið í Steypustöð Skagafjarðar. Starfsmaður stöðv- arinnar sem var að koma til vinnu uppgötvaði innbrotið. Gluggi hafði verið spenntur upp á skrifstofuhúsi stöðvarinnar og þjófurinn farið þar inn og haft á brott með sér rafeindatæki. Nokkrar skemmdir voru unnar á húsi og húsmunum. Lögreglan á Sauðárkróki rannsakar málið. Innbrot í Skagafirði BETUR fór en á horfðist í fimm bíla árekstri á gatnamót- um Þórunnarstrætis og Glerárgötu á Akureyri laust eftir hádegi á laugardaginn. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður vöruflutn- ingabifreiðar með festivagn missti stjórn á bifreiðinni í hálku á leið niður Þórunnarstræti og hafnaði aftan á fólksbifreið sem var kyrrstæð á rauðu ljósi við gatnamót- in. Fólksbifreiðin rann inn á Glerárgötu en vörubifreiðin rann áfram og hafnaði á jeppabifreið sem var kyrrstæð á gatnamótunum. Jeppabifreiðin lenti svo á fólksbifreið sem var ekið norður Glerárgötu en sú bifreið lenti svo á pallbifreið sem var kyrrstæð á rauðu ljósi austan við gatnamótin. Vörubifreiðin rann áfram yfir umferðareyju og stöðv- aðist á bifreiðastæði austan við Glerárgötu. Nota þurfti klippur til að ná ökumanni og farþega út úr jeppabifreiðinni en þau voru ekki alvarlega slösuð. Þau voru flutt á slysadeild til skoðunar. Ökumaður fólksbifreiðarinnar sem jeppinn lenti á kvartaði undan eymslum í hálsi og var fluttur á slysa- deild. Jeppabifreiðin og fólksbifreiðarnar voru fluttar af vett- vangi með dráttarbifreið. Nota þurfti stórvirka vinnuvél við að draga vörubifreiðina út af bifreiðastæðinu. Loka þurfti hluta Þórunnarstrætis og Glerárgötu vegna málsins en mikil umferð var á þessum tíma. Fimm bílar rákust saman Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Árekstur Óhappið varð með þeim hætti að ökumaður vöruflutningabifreiðar missti stjórn á bifreiðinni í hálku RÍKISÚTVARPIÐ fór ekki eftir stjórnsýslulögum þegar undanþága sem pólsk kona fékk frá því að greiða gjaldið var dregin til baka, án þess að konan væri látin vita. Hún fékk síðan bakreikning upp á rúmlega 50.000 krónur. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns Alþingis. Málavextir eru þeir að konan fékk í október 2003 gefins lítið sjónvarps- tæki sem hún sagðist nota til að ung dóttir hennar gæti horft á mynd- bönd. Konan skildi ekki íslensku og taldi sig því ekki geta notið útsend- inga íslenska sjónvarpsins. Eftir að starfsmaður innheimtudeildar í tækjaleit hafði heimsótt hana, sótti hún um undanþágu frá gjaldinu og féllst starfsmaður deildarinnar á það í apríl 2004. Hún fékk eftir þetta senda nokkra seðla en var tjáð af starfsmönnum afnotadeildar að skuldin yrði felld niður. Í lok mars 2006 barst henni síðan reikningur upp á rúmlega 50.000 krónur sem var fyrir afnotagjöldunum og drátt- arvöxtunum. Konan gerði upp skuld- ina með afslætti en kvartaði undan innheimtunni til umboðsmanns Al- þingis. Forstöðumaður afnotadeildarinn- ar greindi umboðsmanni frá því, að mistök hefðu átt sér stað og að und- anþágueyðublaðið, sem konan fyllti út, hefði einungis verið ætlað fyrir- tækjum, ekki einstaklingum. Þá hefði gjaldið verið fellt niður á sínum tíma vegna þess, að konan hefði sagst ætla að flytja af landi brott inn- an tveggja mánaða, en ekki varð af því. Umboðsmaður áleit að RÚV hefði borið að láta konuna vita þegar und- anþágan var dregin til baka og gefa henni kost á andmælum. RÚV lét ekki vita þegar hætt var við undanþágu Pólsk kona fékk 50.000 kr. bakreikning fyrir afnotagjöldum FÉLAG grunn- skólakennara og launanefnd sveit- arfélaga hafa óskað eftir því að Ásmundur Stef- ánsson ríkissátta- semjari komi að viðræðum þeirra um endurskoðun- arákvæði gild- andi kjarasamn- ings og hefur hann þegar átt einn fund með aðilum. Kjarasamningur- inn rennur út um næstu áramót. Verða aðilar að segja honum upp með þriggja mánaða fyrirvara, ann- ars framlengist hann til maí á næsta ári. „Ef ekkert kemur út úr endur- skoðunarákvæði samningsins og ekkert nýtt gerist þá er honum sjálfuppsagt nánast,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunn- skólakennara. „Við óskuðum eftir því að Ásmundur myndi koma að málinu til að athuga hvort hann sæi einhvern flöt á því svo við næðum saman um þetta ákvæði.“ Ólafur segir hér ekki um eig- inlega kjaradeilu að ræða, heldur sé verið að endurskoða ákvæði samn- ingsins og því séu engar kröfur lagðar fram, líkt og í hefðbundnum kjaraviðræðum. Ákvæðið snúist um það hvort tilefni sé til að endur- skoða samninginn með tilliti til efnahags- og kjaraþróunar frá árinu 2004 til september 2006. „Sé litið svo á eiga aðilar að grípa til ráðstaf- ana sem þeir verða sammála um,“ segir Ólafur. „Um það snýst vanda- málið. Við erum ekki sammála um til hvaða aðgerða eigi að grípa.“ Kennarar og launanefndin hafi mjög ólíka sýn á það hvernig beri að bregðast við, „svo mjög að það var spurning um að hætta annað- hvort að ræða þetta eða finna ein- hverjar nýjar leiðir sem fólust í því að fá Ásmund til aðstoðar,“ segir Ólafur Fundað verður áfram næstu daga með ríkissáttasemjara og vonast Ólafur til að niðurstaða náist innan tveggja vikna. Endur- skoðun í hnút Ólafur Loftsson Ríkissáttasemjari fenginn til aðstoðar BANDARÍSK yfirvöld hafa ekki ótakmarkaðan aðgang að upplýsing- um úr rafrænu neti SWIFT heldur geta fengið tilteknar upplýsingar leiki grunur á að þær tengist hryðju- verkastarfsemi. Þetta segir Ólafur Ottósson, formaður landsnefndar SWIFT á Íslandi. Hann telur ekki ástæðu til að taka þetta fram í við- skiptaskilmálum íslenskra banka- stofnana. Danska dagblaðið Politiken sagði frá því á laugardag að Danir sem millifærðu inn á bankareikning í út- löndum gætu átt á hættu að upplýs- ingarnar bærust til bandarísku leyniþjónustunnar, CIA og að mati Datatilsynet, dönsku systurstofnun- ar Persónuverndar, bryti þetta í bága við lög um persónuvernd. Hefðu tapað málaferlum SWIFT er alþjóðlegt samskipta- net um 8.000 fjármálastofnana í yfir 200 löndum og segir Ólafur að nán- ast allir bankar sem millifæri fjár- magn yfir landamæri notist við kerf- ið, þ.á m. íslenskir bankar. Í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjun- um 11. september 2001 hafi banda- rísk stjórnvöld stefnt SWIFT fyrir dómstóla og gert kröfu um að fá að- gang að öllum upplýsingum í netinu í þeim tilgangi að koma í veg fyrir fjármögnun hryðjuverka. Lögmenn SWIFT hefðu talið víst að bandarísk stjórnvöld myndu hafa sigur í mál- inu, líkt og í öllum öðrum málum af sama toga, og því hefði verið ákveðið að ganga til samninga. Samkvæmt þeim geti bandarísk stjórnvöld feng- ið upplýsingar um millifærslur um netið, hafi þau upplýsingar sem bendi til þess að þær tengist hryðju- verkum. „Það eru mjög takmarkaðar upplýsingar sem yfirvöld í Banda- ríkjunum geta nálgast,“ segir Ólaf- ur. „Og það eru engar upplýsingar látnar af hendi nema undir eftirliti lögfræðinga og endurskoðenda SWIFT.“ Ólafur sagðist geta fullyrt að ekki væru allar persónuverndarstofnanir í Evrópusambandinu á því að þetta væri ólöglegt, líkt og Politiken hélt fram í sinni frétt. SWIFT knúið til samninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.