Morgunblaðið - 22.01.2007, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Minni og meðalstór fyrirtæki gegna þýðingarmiklu
hlutverki í íslensku viðskiptalífi
Landsbankinn hefur á að skipa um 150 sérhæfðum
starfsmönnum í fyrirtækjaþjónustu sem kappkosta að
veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og
trausta fjármálaráðgjöf.
Þannig er minni og meðalstórum fyrirtækjum gert kleift
að dafna og ná settu marki og á sama tíma stuðlum við
saman að fjölbreyttu og kraftmiklu viðskiptalífi á Íslandi.
Landsbankinn er með víðtækasta útibúanet á landinu.
Það tryggir viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu og
persónulega ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers
og eins.
Hafðu samband í síma 410 4000 eða með tölvupósti
á fyrirtaeki@landsbanki.is og sjáðu hvað við getum
gert fyrir þig.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
35
82
2
01
/0
7
AFDRIFARÍKAR ákvarðanir á
sviði stóriðju geta ekki verið einka-
mál einstakra sveitarfélaga. Þetta er
álit Vinstri grænna sem héldu
flokksráðsfund um helgina.
„Stóriðjustefnan og virkjanafram-
kvæmdir í þágu stóriðju eru á kjör-
seðlum landsmanna 12. maí,“ segir
þá í ályktun. „Það er ekki einkamál
sveitarfélagsins Hafnarfjarðar,
Norðurþings, Reykjanesbæjar eða
annarra að taka einhliða ákvörðun
um virkjanakosti eða nýtingu auð-
linda fjarri sinni heimabyggð.“
Fjármálamisferli
léttvægt í samanburði
Önnur mál sem mjög voru hug-
leikin fundarmönnum eru sprottin
úr umræðu síðustu vikna vegna
Byrgisins. Samstaða ríkti um að
óviðunandi sé að „Ríkissaksóknari
og Sýslumannsembættið á Selfossi
hafi ekki brugðist þegar í stað við
þeim ásökunum sem komu fram … í
nóvember 2006, gegn fyrrverandi
forstöðumanni Byrgisins um meint
kynferðissamband hans við skjól-
stæðinga. Sýslumaður verði að hafa í
huga að „kærurnar varða mannrétt-
indi, friðhelgi einkalífs umræddra
kvenna og kynfrelsi þeirra.“ Meint
fjármálamisferli forstöðumanns
Byrgisins sé léttvægt í samanburð-
inum.
Í annarri ályktun lýstu fundar-
menn furðu á „ … andvaraleysi sem
ríkt hefur af hálfu hins opinbera
undanfarin ár um hag stórs hóps
vímuefnaneytenda og geðsjúkra …“
Um leið og skorin sé niður fagleg
þjónusta hafi þrjú ráðuneyti, öll und-
ir stjórn Framsóknarflokksins, án
gagnrýni og viðhlítandi eftirlits, látið
opinbert fé renna til meðferðarstarfs
trúfélaga.
Í umræðum við slit fundarins
gerðu vinnuhópar í ýmsum mála-
flokkum grein fyrir starfi sínu sem
miðar að mótun kosningastefnu.
Meðal annars kom fram í umræðum
um landbúnaðarmál að huga þyrfti
að sambandi launa og matarverðs.
Ekki mætti láta Samfylkingu og
Sjálfstæðisflokk einoka umræðuna
með áherslu á matarverð.
Þá kom fram í máli Svandísar
Svavarsdóttur borgarfulltrúa, að
landsfundur í febrúar yrði til að stilla
saman strengi fyrir kosningar, frem-
ur en að ræða heit ágreiningsmál.
Stóriðjustefnan verði á
kjörseðlunum þann 12. maí
Flokksráðsfundur
VG haldinn um
liðna helgi
Morgunblaðið/Golli
Ályktað Fundarmenn gagnrýndu að ekki skyldi brugðist strax við ásök-
unum á hendur forstöðumanni Byrgisins um kynferðislega misnotkun.
Í HNOTSKURN
» Landsfundur VG verðurhaldinn í Reykjavík 23.–25.
febrúar og á að marka upphaf
kosningabaráttunnar.
» Vinstri græn mældust með19,4% fylgi í könnun Frétta-
blaðsins um helgina sem er það
hæsta sem mælst hefur frá kosn-
ingum. Kjörfylgi í síðustu kosn-
ingum var hins vegar aðeins
8,8%.
» Kosningastýra VG í Suður-kjördæmi er tekin til starfa
en í síðustu kosningum náði
flokkurinn ekki inn manni þar.
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
VALDIMAR Leó
Friðriksson er
orðinn þingmað-
ur Frjálslynda
flokksins en hann
gekk úr Samfylk-
ingunni í nóvem-
ber sl. og hefur
verið óháður
þingmaður síðan.
„Ég byrja að
starfa strax með
þingflokknum í [dag],“ segir Valdi-
mar. „Í jólafríinu fór ég að skoða
stefnu Frjálslynda flokksins og það
er nú margt þar sem mér hugnast,
m.a. það að þeir eru ekki búnir að
gefast upp á kvótakerfismálinu. Það
er því stefnan og fólkið sem mér
líst mjög vel á að fara að vinna
með.“
Valdimar segir engar ákvarðanir
hafa verið teknar um hvert hans
kjördæmi verði. „Ég hef ekki sett
nein skilyrði,“ segir Valdimar en
hann var þingmaður Suðvesturkjör-
dæmis fyrir Samfylkinguna. „Ég vil
bara byrja að vinna og svo kemur
það í ljós hvort fólk vill að ég verði
í framvarðasveit eða ekki.“
Landsfundur Frjálslyndra verður
næstu helgi og ætlar Valdimar sér
að taka þar þátt í málefnavinnu.
Nýr þing-
maður
Frjálslyndra
Líst vel á stefnuna og
fólkið í flokknum
Valdimar Leó
Friðriksson