Morgunblaðið - 22.01.2007, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Melabúðin, stofnuð: 1956
Fjöldi starfsmanna: 35
Soðin lambasvið: 749 kr. kg
Fjöldi kúnna á dag: 1148
Þín starfsemi skiptir okkur öll miklu máli
SANDRA Sif
Morthens hefur
verið ráðin sem
verkefnastjóri í
kynningar- og
markaðsdeild
Eimskips.
Sandra starfaði
hjá SPRON frá
árinu 2001 til
2003 við ýmis störf. Hún var ráðin
sem verkefnastjóri hjá Miðlun árið
2004. Árið 2006 gekk hún til liðs við
Eimskip sem sérfræðingur í inn-
flutningsdeild. en hefur nú verið ráð-
in sem verkefnastjóri í kynningar-
og markaðsdeild Eimskips. Sandra
útskrifaðist sem markaðsfræðingur.
frá Thames Valley University í
London árið 2004.
Nýr verk-
efnastjóri
hjá Eimskipi
HAGNAÐUR Lýsingar, dóttur-
félags Exista, nam 1.009 milljónum
króna eftir skatta í fyrra á móti
tæplega 690 milljóna króna hagn-
aði árið 2005. Þetta er besti
rekstrarárangur í sögu félagsins
að því er kemur fram í tilkynningu
til OMX á Íslandi en Lýsing hefur
starfað í rúma tvo áratugi.
Mikill vöxtur var í starfsemi fé-
lagsins í fyrra en útlán fyrirtæk-
isins jukust um 62% og námu nær
69 milljörðum um síðustu áramót.
Þá fjölgaði viðskiptavinum Lýsing-
ar um 37% á sama tíma í fyrra.
Staða vanskila var einnig mjög
góð og afskrifaðar tapaðar kröfur
voru 0,32% af útlánum í upphafi
árs en meðaltal síðustu þriggja ára
0,40%. Heildarniðurstaða efna-
hagsreiknings var í árslok 61,3
milljarðar króna.
Arðsemi eigin fjár var 28% sam-
anborið við 22,3% árið 2005. Eigið
fé Lýsingar nam tæpum fimm
milljörðum króna og 6,5 milljörð-
um með víkjandi lánum. Eigin
fjárhlutfall fyrirtækisins var tæp
11% um áramótin en var 11,4% í
árslok 2005.
Í fyrra keypti Exista allt hlutafé
í VÍS eignarhaldsfélagi, sem átti
meðal annars Lýsingu en aðal-
starfsemi Lýsingar er á sviði eign-
arleigu með fjármögnun á atvinnu-
tækjum, atvinnuhúsnæði og
bifreiðum fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga og er það stærsta fyr-
irtæki sinnar tegundar á Íslandi.
Í tilkynningu Lýsingar til OMX
á Íslandi segir að rekstur félagsins
gangi vel og staða félagsins sé góð
og innviðir traustir. Rekstri fé-
lagsins verður framhaldið með
sama sniði og áður með áframhald-
andi vexti.
Methagnaður af
rekstri Lýsingar
VÖRUFLUTNINGAR um höfnina í
Rotterdam í Hollandi slógu öll fyrri
met árið 2006 en þá fóru þar um 377
milljónir tonna af vörum. Er það sjö
milljónum tonnum meira en árið áð-
ur, eða 1,7% aukning.
Uppskipaðar vörur jukust um
0,9% og námu 284 milljónum tonna
en út voru fluttar 93 milljónir tonna,
sem er 4,4% aukning frá árinu áður.
Af uppskipuðum vörum voru olíuvör-
ur 99 milljónir tonn, sem jafngildir
2,7% samdrætti. Alls fóru um höfn-
ina 175,8 milljónir tonna af vörum í
fljótandi formi, sem er 2,6% aukning.
Minni hráolíu var dælt á land í
Rotterdam 2006 miðað við árið áður
en hins vegar jukust hreinsaðar olíu-
vörur um 8,4% og námu 45,7 millj-
ónum tonna, sem er met fyrir höfn-
ina. Flutningar lausavöru í föstu
formi dróst saman um 2,3% og nam
87,4 milljónum tonna.
Gámaflutningar jukust um 3,4%
og nam 94 milljónum tonna. Gefa
hafnaryfirvöld til kynna að það jafn-
gildi því að 9,6 milljónir 20 feta gáma
hafi farið um höfnina, sem er aukn-
ing um nær eittþúsund gáma á dag
hvern, eða 4%.
Metflutningar um Rotterdam
NETVERSLUN sló öll fyrri met á
nýliðnu ári í Frakklandi og sölusíð-
um fjölgaði hratt. Hafa viðskiptin
tvöfaldast frá 2004 en í fyrra nam
aukningin 40% miðað við veltuna
2005.
Alls versluðu Frakkar fyrir 12
milljarða evra á Netinu árið 2006,
eða rúmlega 1.000 milljarða króna,
samkvæmt upplýsingum frá svo-
nefndum Samtökum fjarsölufyr-
irtækja (Fevad).
Verslun á Netinu er einna mest í
aðdraganda jólanna, að sögn Fe-
vad. Nam hún um 2,5 milljörðum
evra í nóvember og desember á um
16.000 síðum. Er það meiri upphæð
en heildarvelta franskra netversl-
unarfyrirtækja nam árið 2002.
Morgunblaðið/Einar Falur
Verslun á Net-
inu eykst hratt
í Frakklandi
● KÍNA hefur farið fram úr Japan og
er nú í öðru sæti yfir mestu bílafram-
leiðslulönd heims á eftir Bandaríkj-
unum. Í frétt á fréttavef BBC-
fréttastofunnar segir að framleiðsla
annarra bíla en fólksbíla hafi aukist
um 37% í Kína á síðasta ári. Fólks-
bílaframleiðslan hafi hins vegar auk-
ist um 30%.
Sumir sérfræðingar eru sagðir spá
því að Kína muni fara fram úr Banda-
ríkjunum á árinu 2015 og verða þá
mesta bílaframleiðsluland í heimi.
Kína tekur fram
úr Japan