Morgunblaðið - 22.01.2007, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 13
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
HILLARY Clinton, fyrrverandi for-
setafrú Bandaríkjanna, hefur tekið
fyrsta skrefið í þá átt að sækjast eftir
því að verða forsetaefni demókrata á
næsta ári og síðan fyrsta konan í
embætti forseta Bandaríkjanna.
Hillary Clinton tilkynnti um
helgina að hún hygðist stofna svo-
nefnda könnunarnefnd, en það gerir
henni kleift að hefja formlega fjár-
söfnun og kanna stuðning sinn meðal
bandarískra kjósenda. Nokkrum
dögum áður hafði öldungadeild-
arþingmaðurinn Barack Obama lýst
því yfir að hann hefði stofnað slíka
nefnd og stefndi að því að verða
fyrsti blökkumaðurinn í forsetaemb-
ættinu. Gert er ráð fyrir því að hann
tilkynni framboð 10. febrúar.
Útlit er því fyrir mjög sögulega og
spennandi kosningabaráttu. Þótt
John Edwards, fyrrverandi þing-
maður í öldungadeildinni, sé einnig
talinn eiga möguleika á sigri er lík-
legt að athygli fjölmiðlanna beinist
einkum að baráttu Obama og Hillary
Clinton. Enda hefur það aldrei gerst
í sögu Bandaríkjanna að kona og
blökkumaður etji kappi í slíkum for-
kosningum.
Slagur tveggja risa
Obama þykir gæddur miklum per-
sónutöfrum og á auðvelt með hrífa
fólk með málflutningi sínum. „Obama
öldungadeildarþingmaður er með
töfrana en Hillary Clinton er með
kraftana,“ hafði The Washington
Post eftir Jamal Simmons, hlut-
lausum stjórnmálaráðgjafa úr röðum
demókrata. „Þetta verður slagur
tveggja risa, barátta milli krafts og
persónutöfra annars vegar og pen-
inga og skipulagningar hins vegar.“
Mark Corallo, stjórnmálaráðgjafi
úr röðum repúblikana, telur að Clin-
ton eigi góða möguleika á að verða
kjörin næsti forseti Bandaríkjanna.
„Enginn annar frambjóðandi,
hvorki úr röðum demókrata né repú-
blikana, getur gengið að annarri eins
flokksvél og safnað eins miklu fé,“
hafði breska ríkisútvarpið BBC eftir
Corallo. „Hún er með tvo kænustu
pólitísku ráðgjafana í Demókrata-
flokknum – þá Terry McAuliffe og
Harold Ickes. Nei, þrjá, vegna þess
að Bill Clinton er óárennilegastur
þeirra allra. Maðurinn er afburða-
snjall.“
The Washington Post segir líklegt
að Obama leggi áherslu á að valið
standi á milli framtíðarinnar og for-
tíðarinnar en Clinton hamri á því að
kjósendurnir þurfi að velja á milli
reynslu og reynsluleysis.
Skjótur frami
Obama er 45 ára og frami hans í
bandarískum stjórnmálum hefur ver-
ið mjög skjótur. Bakgrunnur hans er
einnig mjög óvenjulegur: faðir hans
var blökkumaður frá Kenýa, móðir
hans hvít bóndadóttir frá Kansas.
Obama fæddist á Hawaii en ólst
upp í Jakarta í Indónesíu. Hann hóf
nám í Columbia-háskóla í New York
og lauk laganámi við Harvard-
háskóla. Hann var kjörinn í öld-
ungadeild ríkisþings Illinois árið
1996 og sat þar til ársins 2004 þegar
hann var kjörinn í öldungadeild
Bandaríkjaþings.
Fréttaskýrendur Los Angeles
Times segja að með því að bjóða sig
fram eftir aðeins tveggja ára störf á
Bandaríkjaþingi gefi Obama lítið fyr-
ir þá viðteknu skoðun eftir hryðju-
verkin 11. september 2001 að banda-
rískir kjósendur séu tregir til að
kjósa forseta sem hafi enga reynslu
af utanríkismálum. Obama líti þvert
á móti svo á að reynsluleysið geti orð-
ið honum til framdráttar en ekki traf-
ala vegna þess að kjósendur hafi
fengið sig fullsadda á ráðandi öflum í
Washington og flokkadráttum
þeirra.
Obama kveðst ætla að leggja
áherslu á hefðbundin baráttumál
demókrata, hyggst meðal annars
lækka heilsugæslukostnað Banda-
ríkjamanna og stuðla að þróun nýrra
orkugjafa. Hann hefur þótt frjáls-
lyndur á þinginu, til að mynda stutt
réttindabaráttu samkynhneigðra og
rétt kvenna til fóstureyðingar.
Obama hefur tekið harðari afstöðu
gegn stríðinu í Írak en Clinton sem
studdi innrásina í landið. Obama átti
þá ekki sæti á þinginu en lagðist
gegn innrásinni. Þau eru bæði andvíg
áformum Bush um að senda fleiri
hermenn til Íraks.
Obama hefur sagt að hann sé
hlynntur því að bandaríska herliðið í
Írak verði kallað heim í áföngum.
Hann hefur hins vegar ekki viljað
setja nein tímamörk í þeim efnum og
hefur það vakið reiði andstæðinga
stríðsins sem reiddust honum einnig
á síðasta ári þegar hann studdi Joe
Lieberman, einn af helstu banda-
mönnum Bush í Íraksmálinu. Obama
hefur jafnvel verið uppnefndur „O-
bomb-a“ á vefsetri andstæðinga
Íraksstríðsins, Antiwar.com.
Margir álitsgjafar í Bandaríkj-
unum hafa sagt að stuðningur Clin-
ton við innrásina í Írak geti skaðað
hana í kosningabaráttunni en ný
skoðanakönnun sem The Wash-
ington Post birti í gær bendir til þess
að hún njóti jafnmikils stuðnings
meðal þeirra demókrata, sem telja
Íraksstríðið mikilvægasta kosninga-
málið, og annarra demókrata.
Rúm 40% styðja Clinton
Könnunin bendir einnig til þess að
Clinton njóti stuðnings 41% demó-
krata, Obama 17% og Edwards 11%.
Clinton nýtur góðs af því að nær
allir Bandaríkjamenn þekkja hana og
hún hefur sýnt að hún getur staðið af
sér mjög harkalegar árásir pólitískra
andstæðinga.
Hún er samt mjög umdeild og hef-
ur ekki getað eytt efasemdum
margra um að hún geti orðið næsti
forseti Bandaríkjanna. CBS-
sjónvarpið birti fyrr í mánuðinum
könnun sem bendir til þess að 38%
Bandaríkjamanna hafi neikvæð við-
horf til hennar.
Ýmislegt getur orðið Hillary Clin-
ton til trafala í kosningabaráttunni.
Hugsanlegt er til að mynda að marg-
ir kjósendur séu orðnir svo þreyttir á
Clinton-hjónunum að þeir geti ekki
hugsað sér að kjósa hana í Hvíta hús-
ið. Einnig er hugsanlegt að kjósend-
urnir hafi fengið sig fullsadda á
flokkadráttunum í Washington og
snúist á sveif með forsetaefni sem
hefur ekki tekið jafnmikinn þátt í
harkalegum deilum repúblikana og
demókrata síðustu fjórtán árin, fyrst
í forsetatíð Bills Clintons og síðan
George W. Bush.
Hillary Clinton hefur einnig getið
sér orð fyrir að vera kuldalegur og
útsmoginn stjórnmálamaður og hún
þarf að losa sig við það orðspor í
kosningabaráttunni.
Clinton nýtur hins vegar góðs af
því að hún er með meira fylgi en
keppinautar hennar meðal kvenna og
það gæti reynst henni mikilvægt
vegna þess að í síðustu forsetakosn-
ingum voru konurnar sem kusu um
níu milljónum fleiri en karlarnir.
Fréttaskýring | Demókratar í Bandaríkjunum búa sig undir sögulegar og tvísýnar forkosningar
„Obama er með töfrana
en Hillary með kraftana“
Clinton eða Obama? Líkur eru á að blökkumaður eða kona verði forsetaefni demókrata í fyrsta skipti.
’Þetta verður slagurtveggja risa, barátta
milli krafts og persónu-
töfra annars vegar og
peninga og skipulagn-
ingar hins vegar‘
Reuters
OLÍA lak í gær úr flutningaskipinu Napoli sem siglt
var í strand við suðvesturströnd Englands og tveir
gámar með hættuleg efni féllu í sjóinn þegar björg-
unarsveitir reyndu að afstýra mengunarslysi. Skipinu
var siglt í strand til að koma í veg fyrir að það sykki
eftir að hafa skemmst í óveðri. Skipið flutti 2.323 gáma
og þar af voru 158 með hættuleg efni. Alls féllu 158
gámar í sjóinn, þar af tveir með hættuleg efni. Um 200
tonn af olíu láku einnig úr skipinu, sem er skráð í Bret-
landi og í eigu svissnesks skipafélags.
Reuters
Olíumengun frá flutningaskipi
Reuters
Istanbúl. AFP. | Sautján ára Tyrki var
í gær sagður hafa játað að hafa myrt
tyrkneska blaðamanninn Hrant
Dink.
Fjölmiðlar í Tyrklandi sögðu að
ungi maðurinn, Ogun Samast, segð-
ist hafa skotið Dink til bana eftir
bænasamkomu í Istanbúl á föstudag
vegna þess að blaðamaðurinn hefði
móðgað tyrknesku þjóðina.
Dink hafði vakið reiði þjóðernis-
sinna með skrifum sínum um fjölda-
morð Tyrkja á Armenum í fyrri
heimsstyrjöldinni og hann fékk hálfs
árs skilorðsbundinn fangelsisdóm í
fyrra fyrir að móðga tyrknesku þjóð-
ina. Þjóðernissinnar lýstu honum
sem föðurlandssvikara og í nýlegum
greinum Dinks kom fram að hann
hafði fengið nokkrar morðhótanir.
Samast var handtekinn í rútu í
borginni Samsun þegar hann var á
leiðinni frá Istanbúl til heimabæjar
síns, Trabzon við Svartahaf. Hann
var með byssu sem talið er að hafi
verið notuð til að myrða Dink.
Lögreglan handtók Samast með
hjálp föður hans sem gaf henni
ábendingu um að sonur sinn kynni
að hafa framið morðið. Faðirinn
hafði séð mynd sem yfirvöld birtu af
meintum morðingja Dinks en hún er
úr öryggismyndavél banka nálægt
morðstaðnum.
Sagður hafa játað
á sig morðið á Dink
SÆNSKI bankinn Nordea hefur
skýrt frá því að hann hafi orðið fyr-
ir barðinu á netglæpamönnum sem
hafi stolið sjö til átta milljónum
sænskra króna, sem svarar 70–80
milljónum íslenskra. Veiruvarn-
arfyrirtækið McAfee segir þetta
„stærsta netbankaránið“ sem fram-
ið hafi verið.
Bankinn segir að viðskiptavinir
hans hafi síðustu fimmtán mánuði
fengið tölvupósta sem innihaldi svo-
nefnda trójuhesta, forrit sem villa á
sér heimildir. Sænska lögreglan
telur að rússnesk glæpasamtök hafi
verið að verki og að 250 við-
skiptavinir Nordea hafi orðið fyrir
barðinu á þeim, að því er fram kem-
ur á fréttavefnum CNET News.
Viðskiptavinunum var sendur
tölvupóstur í nafni bankans þar
sem þeir voru hvattir til að opna
viðhengi til að sækja forrit gegn
ruslpósti. Þeir sem opnuðu við-
hengið fengu trójuhestinn sem varð
til þess að þegar þeir reyndu að
fara inn á heimabanka Nordea var
þeim beint inn á ranga heimasíðu
þar sem þeir gáfu upp mikilvægar
upplýsingar og lykilorð. Tölvu-
þrjótarnir notuðu síðan upplýsing-
arnar til að komast inn á heima-
banka Nordea og taka út peninga
af reikningum viðskiptavinanna.
Stærsta netbankaránið