Morgunblaðið - 22.01.2007, Side 15

Morgunblaðið - 22.01.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 15 Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is HALLDÓR Björn Runólfsson var nýverið skipaður í embætti for- stöðumanns Listasafns Íslands til fimm ára af Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur menntamálaráðherra. Halldór er mjög ánægður með stöðuveitinguna og segir fólk mega búast við breyttum áherslum í rekstri safnsins í hans tíð. „Ég hugsa að ég muni setja mark mitt á stofnunina. Ég vonast til að geta aukið aðsókn að safninu enn meira og ætla að stuðla að því að sá ókeypis aðgangur að safninu, sem var tekinn upp nýverið, nýtist fólki sem best,“ segir Halldór sem ætlar að opna safnið meira útávið og efla rannsóknir innan þess. „Ég býst við að ég láti mjög til mín taka varðandi tölvu- og mar- miðlunarmöguleika, þannig að safn- ið verði líka aðgengilegt á lands- byggðinni. Þetta er safn allra landsmanna og ég ætla að stuðla að því enn betur og koma því þannig fyrir að safnið verði sýnilegt sem víðast. Ég vil líka að safnið nýtist meira, verði samkomustaður þeirra sem vilja fræðast um listir og vinna að verkefnum varðandi listir. Að það verði einhverskonar lista- miðstöð en það er í farvatninu. Þetta eru samt hlutir sem ég á eftir að skoða hvernig hægt verður að koma í kring,“ segir Halldór og minnir hlæjandi á að það séu aðeins örfáir dagar síðan hann var skip- aður í stöðuna og ýmislegt sem hann eigi eftir að hugsa út í. Listasafn Íslands er þjóðlistasafn og á merkt safn íslenskra verka, eft- ir alla helstu myndlistarmenn þjóð- arinnar. Safnið hefur þess vegna lagt mikla áherslu á listaverkaarf- inn en Halldór segist aðspurður ætli að leggja töluvert mikla áherslu á samtímann án þess þó að gleyma arfinum. Ber mikla virðingu fyrir safninu „Ég mun væntanlega stýra sýn- ingum þannig að það verði ekki ójafnvægi á milli stóru tímabilana.“ Halldór stefnir að því að sjá ekki sjálfur um sýningastjórnun safnsins heldur ráða utanaðkomandi sýning- arstjóra. „Ég er ekki ennþá búinn að setja niður hvernig það verður en ég mun reyna eftir föngum að fá ut- anaðkomandi sýningarstjóra, eða eins og fjárráð leyfa,“ segir Halldór sem ber djúpa virðingu fyrir Lista- safni Íslands. „Þetta er elsta og kannski mik- ilvægasta listasafnið okkar, það var stofnað upp úr 1880 og það eru fáar stofnanir hér sem eru jafn gamlar svo maður getur ekki annað en bor- ið mikla virðingu fyrir því.“ Hægt að byggja við safnhúsið Listasafn Íslands er nú staðsett á Fríkirkjuvegi 7 þar sem það hefur nú verið í tuttugu ár og er aðalbygg- ing þess reist árið 1916 sem íshús. Húsnæðið þykir nokkuð þröngt og segist Halldór ekki slá hendinni á móti stærra og hentugra húsnæði ef það byðist einhvern tímann. „Húsnæði safnsins er mjög þröngt og á þröngum stað í mið- bænum en þó eru sóknarfæri og ætti að vera hægt að vinna að því að stækka safnið á núverandi staðsetn- ingu. Það er mjög áríðandi að svona safn sé miðlægt og að það fari ekki úr miðbænum. Ég geng út frá því að það verði áfram á sínum á stað og er sáttur við það svo fremi að það séu áfram sóknarfæri og hægt að efla það og byggja. Stærð þess takmark- ar ekki möguleika mína á að gera það meira útávið en það takmarkar hins vegar möguleikana á að það sé hægt að halda úti sýningum sem spanna stórt tímabil.“ Á eftir að sakna Listaháskól- ans Halldór tekur við stöðu forstöðu- manns 1. mars næstkomandi, hann starfar nú sem lektor og yfirmaður listfræða við Listaháskóla Íslands. „Ég hætti ekki fyrr en í apríl í Listaháskólanum þannig að ég verð að skipta mér í smá tíma á milli beggja stofnana. Ég mun sakna Listaháskólans, þar er yndislegt starfsfólk og gaman að vera innan um nemendur en mér finnst líka ævintýri að hefja störf á Listasafn- inu, þar veit ég að starfar gott fólk þannig að ég kvíði ekki neinu,“ segir Halldór sem er þegar farinn að láta sig dreyma um hvaða sýningar hann vill setja upp í Listasafni Íslands. „Maður er farinn að láta hugann sveima,“ segir hann kátur að lokum. Nýskipaður forstöðumaður Listasafns Íslands ánægður Mun setja mark sitt á safnið Morgunblaðið/Árni Sæberg Forstöðumaðurinn Halldór Björn Runólfsson nýskipaður forstöðumaður Listasafns Íslands. EFTIR því sem fram kemur á vefsíðunni bjork.com mun Björk m.a. vinna með Antony Hegarty úr Antony and the Johnsons á nýrri plötu sem nú er í vinnslu. Þetta segir í færslu frá Meester Fly sem er „opinber fréttaritari“ síð- unnar. Hegarty og Björk munu syngja saman tvo dúetta. Aðrir tónlistarmenn sem eru nefndir til sögunnar eru Timbaland, Biran Chippendale og Mark Bell, Chris Cors- ano, Konono nr. 1 og Toumani Diabate. Samkvæmt Meester Fly er búist við að ný plata Bjark- ar komi út í sumar. Henni hefur ekki verið gefið nafn. Morgunblaðið/ÞÖK Björk Mun m.a. syngja tvo dúetta með Antony Hegarty á óútkominni plötu sinni. Björk starfar með Antony

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.