Morgunblaðið - 22.01.2007, Page 16

Morgunblaðið - 22.01.2007, Page 16
16 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Í dag kl. 18 verður haldinn stofnfundur Margmenn- ingar, félags áhugafólks um fjölmenningu í Borg- arbyggð, í Safnahúsi Borg- arfjarðar. Þær stöllur Guðrún Vala Elísdóttir, mannfræðingur og náms- og starfsráðgjafi hjá Sí- menntunarmiðstöð Vesturlands og Ása Harðardóttir, landfræðingur og forstöðumaður Safnahúss Borg- arfjarðar, eru driffjaðrirnar í stofn- un félagsins. Fólk frá a.m.k. 15 löndum ,,Við höfum í vetur haft opið hús á sunnudögum í Safnahúsinu fyrir erlenda íbúa í Borgarbyggð,“ segir Guðrún Vala ,,og má segja að stofnun félagsins sé rökrétt fram- hald af því. Ég hef í nokkurn tíma kennt útlendingum íslensku og fundið fyrir því að mikið vantar upp á að þeir geti samlagast og notið þess sem íslenskt samfélag hefur upp á að bjóða. Ég áætla að í Borgarbyggð séu um 300 ein- staklingar af erlendum uppruna, börn og fullorðnir frá a.m.k. 15 löndum. Í kennslunni og í starfinu mínu sem ráðgjafi hefur fólk verið að spyrja mig um ýmislegt sem þarfnast úrlausnar.“ Guðrún Vala nefnir sem dæmi að fólk þekki ekki réttindi sín, þekki ekki íslenska löggjöf og skilji oft ekki launaseðla eða greiðsluseðla. Það veit ekki hvert það á að snúa sér með ýmis málefni sem fyrir Íslendingum eru einföld. ,,Ég hafði samband við Ásu og saman höfum við verið í sjálf- boðavinnu við að hafa opið hús í Safnahúsinu hvern sunnudag, þar sem við reynum að svara þeim spurningum sem brenna á fólki. Ekki síður hefur tilgangurinn verið félagslegur þannig að fólki gefst kostur á að hittast og kynnast inn- byrðis. Fólk talar saman á ensku, rússnesku og smávegis íslensku, en auðvitað þurfa þeir sem hingað flytjast og ætla að búa hér, að læra málið til þess að geta orðið sjálf- bjarga í nýju landi og til að ein- angrast ekki, tungumálið er und- irstaða alls.“ Félagið öllum opið Ása segir að fyrirmyndin af fé- laginu sé sótt til Ísafjarðar. ,,Þar er rekið afar gott félag sem heitir Rætur. Með því að stofna formlegt félag með kennitölu og öllu sem til þarf myndast annar farvegur. Þá er hægt að aðstoða fólk meira, sækja um styrki og gera þennan félagsskap sem við hófum óform- lega í haust virkari. Félagið er öll- um opið sem hafa áhuga á marg- menningu og vilja vinna að auknum skilningi og virðingu fyrir ólíkri menningu. Þetta félag er til að byrja með einungis hugsað fyrir íbúa Borgarbyggðar, framtíðin mun leiða í ljós hvort fleiri sveitarfélög vilji koma að þessu starfi og þegar hefur Borgarfjarðardeild Rauða krossins sýnt málinu mikinn áhuga. Á meðan kunnáttan á tungumálinu er ekki fyrir hendi þarf samt að miðla nauðsynlegum upplýsingum til fólks. Augljóst er að hinir nýju íbúar missa af einu og öðru og mis- skilja annað vegna kunnáttuleysis. Það sem þarf að byrja á að gera er að safna saman upplýsingum um þá einstaklinga í hópi nýbúa okkar sem tala þokkalega íslensku eða ensku til að koma upplýsingum á framfæri,“ segir Ása. ,,Fólkið þarf að kynnast reglum samfélagsins sem það býr í og einnig hvað er um að vera í Borgarbyggð. Gott væri að setja upplýsingar inn á heima- síðu Borgarbyggðar á fleiri tungu- málum, svo þær séu aðgengilegar fyrir alla íbúa sveitarfélagsins. Dæmi eru um að fólk missi af við- burðum hér vegna þess að það hef- ur ekki hugmynd um þá.“ Fjölmenningarsamfélag eins og salatskál Guðrún Vala heldur áfram: „Eins og ég sagði áðan er tungumálið undirstaðan og íslenskunámskeiðin hafa verið fremur dýr, núna fyrir áramót kostuðu þau 45.000 kr. en ríkisstjórnin ákvað að veita 100 milljónum til íslenskunámskeiða fyrir erlenda íbúa og nú hefur 70 milljónum verið ráðstafað til kennslu þannig að núna kostar námskeiðið 11.000 kr. Stétt- arfélögin greiða svo niður um 75% þannig að kostnaður nemenda er tæplega 3.000 krónur. Verðið er þannig ekki lengur hindrun. En erfiðisvinnufólk mætir síður á þessi námskeið því staðreyndin er sú að eftir langan vinnudag er lítið þrek eftir. Til viðbótar við íslensku- námskeiðin er Símenntunarmið- stöðin einnig að fara af stað með s.k. Landnemaskóla sem er ætlaður þeim sem hafa búið hér í ákveðinn tíma og tala svolitla íslensku. Þar eru kennslugreinar m.a samfélags- fræði og lífsleikni en einnig tals- verð íslenskukennsla. Þetta nám auðveldar útlendingum að laga sig að íslensku samfélagi og atvinnulífi. Ég líki stundum fjölmenningarsam- félagi við salatskál þar sem mis- munandi grænmeti er ómissandi fyrir gott salat. Hver tegund nýtur sín án þess að skyggja á aðra,“ segir Guðrún Vala. ,,Ef okkur, Ís- lendingum, tekst að byggja upp þannig samfélag, græða allir. Við þurfum líka að undirbúa okkur sjálf til þess að minnka fordóma, stuðla að umburðarlyndi og að allir geti notið hæfileika sinna til heilla fyrir sig og samfélagið.“ Ása tekur undir þetta og hvetur allt áhuga- fólk um margmenningu að mæta á stofnfundinn í dag. Félag áhugafólks um marg- menningu stofnað í Borgarbyggð Morgunblaðið/Guðrún Vala Morgunblaðið/Guðrún Vala Skemmtun Gabriele, Rasa og Otil- ija frá Litháen og Artis frá Lett- landi skemmtu sér vel í alþjóðlegu jólaboði sem var haldið á öðrum degi jóla í Safnahúsinu í Borg- arnesi. Ása S. Harðardóttir Skemmtun Gabriele, Rasa og Otilija frá Litháen og Artis frá Lettlandi skemmtu sér vel í alþjóðlegu jólaboði sem var haldið á öðrum degi jóla í Safnahúsinu í Borgarnesi. Snæfellsbær | Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, og Benedikt Einar Gunnarsson frá Ólafi Gíslasyni & co skrifuðu undir kaup- samning á nýjum slökkviliðsbíl þann 11. janúar sl. Sagði Kristinn að um hreina viðbót væri að ræða en fyrir eru tvær eldri bifreiðar og væru þessi kaup til þess að styrkja öryggi bæjarbúa og þá sérstaklega fyrir íbúa sem búa að sunn- anverðu þar sem bíllinn kemst hratt yfir, auk þess sem stór fyrirtæki eru í bæjarfélaginu og einnig er unnið að byggingu stórra fyrirtækja. Nýja slökkviliðsbifreiðin er af gerðinni Scania 4x4 og er um öflugan bíl að ræða. Er bíllinn með 420 hestafla vél og hámarkshraðinn um 125 km á klst. Bíllinn er mjög vel útbúinn og tekur hann 4.000 lítra af vatni og er með 200 lítra froðu- tank, 3.200 lítra vatnsbyssa er á þaki bílsins og 6 kw rafall við vél. Yfirbygging er öll úr trefjaplastefni með eins mikið pláss fyrir búnað og mögulegt er án þess að það komi niður á vatnsmagni. Sæti eru fyrir fjóra í reykköfunarstólum en alls rúmast 9 menn í bílnum. Bíllinn er smíðaður í Póllandi og verður af- hentur í janúar á næsta ári. Kaupverð er 26 milljónir króna. Samningur um kaup á nýjum slökkviliðsbíl undirritaður Aukið öryggi Sams konar slökkviliðsbíl og Snæfellsbær hefur nú fest kaup á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.