Morgunblaðið - 22.01.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 17
LANDIÐ
Eftir Guðfinnu M. Hreiðarsdóttur
Ísafjörður | Safnverðir Byggða-
safns Vestfjarða gátu ekki leynt
ánægju sinni þegar þeir fengu í
hendurnar gamla og ryðgaða June
Munktell-vél enda nokkurra ára leit
þar með lokið. Vélinni verður komið
fyrir í eikarbátnum Sædísi ÍS 67
sem safnið hefur verið að end-
ursmíða í upprunalegri mynd.
Í bátnum var upphaflega 45 hest-
afla June Munktell-vél og þótti mik-
ilvægt að fá svipaða vél til að full-
komna endurgerð bátsins. Það
reyndist hins vegar hægara sagt en
gert og þrátt fyrir eftirgrennslan
um víða veröld bar sú leit engan ár-
angur. Var útlit fyrir að setja yrði
vél af annarri tegund í bátinn eða
jafnvel nýrri vél. Til þess kom þó
ekki, því í ljós kom að Þjóðminja-
safnið átti í fórum sínum 32 hestafla
June Munktell-vél frá árinu 1937
sem hafði verið í Skarphéðni RE 29,
10 tonna fiskibáti sem smíðaður var
árið 1930. Hafði Jón Jóhannesson
frá Bíldudal gefið Þjóðminjasafninu
vélina árið 1985 en hann eignaðist
Skarphéðin í kringum 1945 og not-
aði til rækjuveiða á Arnarfirði. Þeg-
ar báturinn var rifinn árið 1950 var
vélin sett á hús og að sögn Jóns Sig-
urpálssonar, forstöðumanns
Byggðasafns Vestfjarða, er hún er í
nokkuð góðu standi og fylgir bæði
skrúfa og öxull.
„Vélin er nú komin í hendurnar á
Finnboga Bernódussyni, vélsmið í
Bolungarvík, sem ætlar að gera
hana upp fyrir okkur. Ef allt geng-
ur að óskum ætti því verki að vera
lokið í vor og stefnum við að því að
Sædís fari í sína fyrstu siglingu eft-
ir endursmíðina á sjómannadag-
inn,“ segir Jón.
Ein af fimm dísum Bárðar
Þegar Jón er spurður frekar um
sögu Sædísar ÍS 67 þá segir hann
bátinn teiknaðan og smíðaðan árið
1938 af Bárði G. Tómassyni, fyrsta
skipaverkfræðingi Íslendinga. Var
Sædís ein fimm báta sem smíðaðir
voru samtímis hjá Bárði og báru
nöfnin Ásdís, Bryndís, Hjördís, Sæ-
dís og Valdís.
Vilmundur Reimarsson í Bolung-
arvík afhenti Byggðasafninu Sædísi
til varðveislu árið 1998 og var þá
tekin ákvörðun um að reyna að
koma bátnum í upprunalegt horf.
Verkinu hefur miðað vel og segir
Jón að umfangsmikil viðgerð á
skrokknum sé að baki og aðeins eft-
ir ýmiss frágangur, s.s. á dekki,
spili, möstrum og reiða. Einnig þarf
að ganga frá rafmagni og uppsetn-
ingu ljósabúnaðar, sem Jón segir að
sé nauðsynlegt til að báturinn
standist kröfur Siglingastofnunar
til haffæris.
Gömlu veiðarfærin ennþá til
„Hjá Byggðasafni Vestfjarða hef-
ur verið unnið mjög markvisst að
varðveislu gamalla báta og reynum
við alltaf að gera þá sjófæra svo
framarlega sem það er mögulegt
enda teljum við að besta leiðin til að
varðveita báta sé að hafa þá á sjó.
Hvað Sædísi varðar, þá verðum við
með glæsilegt skip í höndunum þeg-
ar endurbótum á henni lýkur og
getum nýtt hana á ýmsa vegu. Ein
hugmyndin er sú að bjóða upp á
stuttar veiðiferðir þar sem fólk get-
ur upplifað stemningu liðins tíma,
annaðhvort með togveiðarfærum
eða bara dorgað með gamaldags
handfærum. Hin gömlu veiðarfæri
Sædísar eru til og bíða þess að kom-
ast í sitt gamla hlutverk um borð í
bátnum,“ segir Jón.
Þá segir hann einnig inni í mynd-
inni að bjóða upp á stuttar siglingar
á Pollinum á Ísafirði, eða sólarlags-
ferðir á sumarkvöldum, því fátt sé
fallegra en sólarlag við Djúp. Mögu-
leikarnir séu margir, það þurfi bara
að skoða þá hvern fyrir sig og finna
það sem er hentugast hverju sinni.
Vantaði bara
gamla June Munk-
tell-bátavél til að
fullkomna verkið
Ljósmynd/Byggðasafn Vestfjarða
Báturinn Sædís ÍS 67 sem Byggðasafn Vestfjarða hefur verið að láta endursmíða.
Ljósmynd/Björn Baldursson
Ánægðir Jón Sigurpálsson, forstöðumaður Byggðasafns Vestfjarða, og Finnbogi Bernódusson vélsmiður virða
June Munktell-vélina fyrir sér.
Selfoss | Dagskráin á Selfossi
valdi Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða á Selfossi fyrirtæki ársins
2006 á Suðurlandi. Það var sam-
dóma álit ritstjórnar blaðsins að
Ræktunarsambandið ætti þennan
heiður skilinn fyrir frábært starf á
síðasta ári. Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða er um þessar
mundir eitt reyndasta og stærsta
fyrirtæki í almennri verktakastarf-
semi hér á landi. Meginhlutverk
þess er að sinna jarðvinnu af ýms-
um toga og nægir þar að nefna
vatnsboranir, vegagerð, þunga-
flutninga og lagningu varnargarða.
Hjá fyrirtækinu starfa um 90
manns.
Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða fyrirtæki ársins
2006 á Suðurlandi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Viðurkenning Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri Ræktunarsambands-
ins, tók á móti skjali sem segir að fyrirtækið sé fyrirtæki ársins 2006 á Suð-
urlandi úr hendi Magnúsar Hlyns Hreiðarssonar, ritstjóra Dagskrárinnar.
Húsavík | Flutningafyrirtæki Alla
Geira hf. á Húsavík fékk á dög-
unum afhenta þrjá nýja Mercedes
Benz Actros-bíla frá Öskju hf.
Fram kemur í tilkynningu að tveir
bílanna eru með kæliflutn-
ingakössum frá Ekeri í Finnlandi,
en sá þriðji er dráttarbíll sem er
ætlaður til gámaflutninga. Rúm
fimmtíu ár er eru síðan Aðalgeir
Sigurgeirsson hóf reglubundna
vöruflutninga á milli Húsavíkur og
Reykjavíkur og á þeim tíma hefur
fyrirtækið gert út marga Benz-
bíla, sem hafa reynst afar vel.
Fyrirtækið er með daglegar
áætlunarferðir á milli Húsavíkur
og Reykjavíkur, auk þess að sinna
daglegum akstri í Þingeyjarsýslum
og víðar um Norðurland. Þá sinnir
fyrirtækið ýmsum tilfallandi flutn-
ingum, meðal annars á fisk-
afurðum, landshluta á milli. Bílar
félagsins eru mjög vel búnir tækj-
um og búnaði og standast með
ágætum þær miklu kröfur er gerð-
ar eru til flutningaþjónustu í dag.
Hóf vörubílaakstur árð 1948
Húsvíkingurinn Aðalgeir Sig-
urgeirsson hóf eigin vörubílaakstur
árið 1948, þá á Ford árgerð 1942,
sem var í eigu Bifreiðastöðvar
Þingeyjarsýslu. Árið 1954 keypti
hann hins vegar Benz og stundaði
almennan vörubílaakstur.
Á Húsavík var í fyrstu vöru-
afgreiðsla fyrirtækisins hjá Bif-
reiðastöð Húsavíkur en síðan í
ýmsum húsum sem þó stóðu undir
þeim kröfum sem gerðar voru. Um
1970 var svo farið að huga að fram-
tíðarlausn á húsnæði fyrir starf-
semina. Það var svo í júlí 1974 að
flutt var í eigið húsnæði að Garð-
arsbraut 50 og þar var starfsemin
til loka árs 2005 eftir áratuga starf.
Alli Geira bætir nýj-
um bílum við flotann
Ánægð Mæðginin Sigurgeir Aðalgeirsson og Bergþóra Bjarnadóttir, eig-
inkona Aðalgeirs heitins Sigurgeirssonar, stofnanda Alla Geira hf.