Morgunblaðið - 22.01.2007, Síða 19

Morgunblaðið - 22.01.2007, Síða 19
Yamaha píanó. Yamaha píanó og flyglar með og án SILENT búnaðar. Veldu gæði – veldu Yamaha! Samick píanó. Mest seldu píanó á Íslandi! Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 357.000 kr. Goodway píanó. Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 238.000 kr. 15 mán. Vaxtalausar greiðslur. Estonia flyglar. Handsmíðuð gæðahljóðfæri. Steinway & Sons Fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Til sýnis í verslun okkar. H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350                       ! "#$%& '(  ' )*+%& ,-& ./ 0''  111!23+22!&  4 4 5 fjármál heimilanna MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 19 Þ etta snýst fyrst og fremst um hugarfarið, “ segir Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við viðskiptaskor Háskóla Íslands og formaður Félags spari- fjáreigenda, um það hvað þarf til að hefja sparnað. „Það er ekki víst að við munum alltaf hafa það jafn gott og í dag og þá getur verið gott að hafa svolítið fé í bakhönd- inni. Fólk ætti líka að hafa í huga að það er miklu erfiðara að draga úr neyslu en að auka hana.“ Vil- hjálmur lýsir sparnaði sem lang- hlaupi. „Það þýðir ekki að byrja að spara í dag og hætta á morgun. Þótt lítið komi inn til að byrja með skiptir öllu máli að gefast ekki upp því reglubundinn sparn- aður getur orðið býsna drjúg upp- hæð þegar til lengri tíma er litið. Menn þurfa ekki að vera á neinum ofurlaunum til að spara því það munar um allar upphæðir í þessu sambandi.“ Yfirdráttur dýrasta lánsformið Sparnaði má skipta í fernt, að hans sögn. „Í fyrsta lagi þarf að spara til að mæta föstum stórum útgjöldum á borð við afborganir af lánum. Í öðru lagi þarf að spara fyrir sumarfríinu til að þurfa ekki að borga af sumarfríinu fram í næsta sumarfrí. Í þriðja lagi er sparað fyrir varanlegri neyslu, eins og heimilistækjum, bílum og húsnæði. Óvænt útgjöld falla síðan undir þessa varanlegu neyslu og hugsanlega verður maður að ganga á það sem ætlað er til lengri tíma til að jafna slíkar sveiflur. Síðast en ekki síst er líf- eyrissparnaður og undan honum kemst enginn lögum samkvæmt.“ Hann bætir því við að gullna regl- an sé að steypa sér ekki í of mikl- ar skuldir. „Hvert meðalheimili á Íslandi skuldar 700 þúsund krónur á hlaupareikningi sem þýðir að um 12 þúsund krónur fara bara í vexti á mánuði. Yfirdráttur er dýrasta lánsformið sem til er.“ Tvær meg- inleiðir eru til í sparnaði, að sögn Vilhjálms, annars vegar að leggja fyrir á bankareikningum og hins vegar verðbréfakaup. „Verðbréf hafa til lengri tíma gefið ívið betri ávöxtun en bankareikningar,“ seg- ir hann og svarar því neitandi að verðbréf krefjist þess að fólk sé sérstaklega vakandi fyrir ávöxtun og gengi bréfanna. „Ef maður kaupir í þokkalega eðlilegum fyr- irtækjum og sækir ekki í mikla áhættu þá bara mallar þetta. Það má vel vera að ég hafi sett af mér eitthvað í gegn um tíðina með því móti en ég hef þá örugglega farið á mis við einhver töp. Þetta jafnar sig út. Kostnaðurinn við að skipta bréfunum er síðan einhver en með því að halda sig við skapleg og traust fyrirtæki ætti það að vera í lagi.“ Lífeyrissparnaðurinn maraþon Hann segir hægt að dreifa áhættunni með því að kaupa bréf í nokkrum tegundum fyrirtækja. Þá ráðleggur hann fólki að skuldsetja sig ekki mikið fyrir hlutabréfa- kaupum enda geti falist talsverð áhætta í því. Þeir sem kjósa frem- ur að leggja fyrir á bankareikn- ingum ættu að bera saman inn- lánsvexti á mismunandi bankareikningum en að sögn Vil- hjálms segja vextirnir nokkurn veginn alla söguna auk verðtrygg- ingarinnar. „Maður á að geta treyst þessu enda er enginn kostnaður á innlánsreikningum. Binding getur verið vandamál en ef maður hefur reikninga á mis- munandi bindingu ætti það að vera í lagi. Maður ætti í öllu falli alltaf að vera með eitthvert sparifé tiltækt.“ Ýmsar nýjungar í sparnaði hafa vakið athygli, s.s. nýjasta auglýsingaherferð Glitnis sem gengur út á að borga rúmlega þegar greitt er með debetkorti og leggja mismuninn inn á reikning. Vilhjálmur segir þetta ekki nei- kvætt. „Þetta gæti hentað þeim sem vilja ekki skipuleggja sparn- aðinn fyrirfram heldur frekar gera það úti í búð og auðvitað er það jákvætt ef það leiðir til sparnað- ar.“ Loks bendir Vilhjálmur á líf- eyrissparnað. „Ef venjulegur sparnaður er langhlaup er lífeyr- issparnaðurinn maraþon,“ segir hann. „Það má ekki gleyma því að það er sparnaður líka þótt hann sé ekki skráður á skattskýrslur. Við- bótarlífeyrissparnaður borgar sig síðan alltaf, í fyrsta lagi vegna við- bótarframlags frá atvinnurekanda sem ella kæmi ekki. Hins vegar felst í honum frestun á skatt- greiðslum því maður borgar ekki skatt af þeim launum sem fara í viðbótarlífeyrissparnaðinn fyrr en við úttekt.“ Verðbréf með betri ávöxtun en bankareikningar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sparnaður „Þótt lítið komi inn til að byrja með skiptir öllu máli að gefast ekki upp því reglubundinn sparnaður getur orðið býsna drjúg upphæð þegar til lengri tíma er litið.“ „Sparnaður er lang- hlaup,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags sparifjáreigenda. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir fékk hjá honum ráð um hvernig best er að bera sig að við sparnaðinn. Í HNOTSKURN »Í fyrsta lagi þarf að sparafyrir föstum stórum út- gjöldum á borð við afborganir af lánum. » Í öðru lagi þarf að sparafyrir sumarfríinu » Í þriðja lagi fyrir var-anlegri neyslu, eins og heimilistækjum, bílum og hús- næði sem og óvæntum út- gjöldum. »Loks er lífeyrissparnaðurskylda lögum samkvæmt. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Reglulegt „Menn þurfa ekki að vera á neinum ofurlaunum til að spara,“ segir Vilhjálmur Bjarnason. ben@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.