Morgunblaðið - 22.01.2007, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.01.2007, Qupperneq 20
lifun 20 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Það geturverið erfitt að einbeita sér að heimalær- dómnum þegar kalt er í veðri og dimmt úti og drungalegt. Þá er gott að fá hlýju í kroppinn með alvöru rjúkandi súkku- laði, skella sér svo í lopapeysuna og sjónvarpssokkana og grúfa sig yfir skruddurnar. Þegar augnlokin byrja að síga og svefninn sækir á er gott að hafa í seilingarfjarlægð handáburð með frískandi ilmi sem í leiðinni dregur úr þurrkinum sem kemur í kuldanum. Svo er um að gera að setja í eyrun seiðandi suðræna sveiflu og standa upp af og til og taka nokkur spor áður en sest er við lestur á ný. Á köldu vetrarkvöldi 1Hlýtt Þegar hroll sækir að manni kem-ur fátt í stað lopapeysunnar. Hand- prjónasamband Íslands á Skólavörðustíg. 11.400 kr. 3Fljótlegt Þegar tími gefst ekki til aðbræða súkkulaði í heitan drykk er hægt að setja tvær teskeiðar af þessu súkkulaðidufti í bolla og hella sjóðandi mjólk yfir. Te og kaffi á Laugavegi. Súkkulaðiduft 0.5 kg. 765 kr. 2Ástin Hjörtun minna á ástina og húner hlý. Þegar unglingurinn fær sér heitt að drekka er ekki verra að teygja sig eftir þessu handmálaða steintaui. Pipar og salt á Klapparstíg. 2.200 kr. 4Unaðslegt Gott hráefni gerir gæfu-muninn þegar búa á til heitt súkkulaði. Hér kemur sýnishorn af súkkulaðiúrvalinu sem fæst í Vínberinu á Laugavegi. 70% Líf- rænt Green og Black súkkulaði, 390 kr., 60% Guylian súkkulaði 465 kr, 70% Galler súkkulaði 435 kr. eða 70% Lindt súkkulaði á 295 kr. 5Kindin Það er gott að eiga svonakrúttlegan og mjúkan púða til að kúra með í kuldanum. Nici í Kringlunni, 2.900 kr. 7Frískandi Húðin þornar í kulda og trekkog þessi handáburður nærir hendurnar en frískar líka því lyktin er skemmtileg. Ilm- urinn af kertinu er sá sami og af handáburð- inum og hressir þegar þreytan gerir vart við sig. L’occitane í Kringlunni. Kerti 2.380 kr, handáburður 1.595 kr. 9Fætur Þegar manni er kalt á fótunumer allt ómögulegt. Þessir dásamlegu sokkar bjarga málunum. Handprjóna- samband Íslands á Skólavörðustíg. Sjón- varpssokkar 2.950 kr., Rósasokkar 3.300 kr. 8Seiðandi Augnlokin síga og svefninner að taka völdin. Þá er lausnin að spretta úr stólnum og taka suðræna sveiflu með Rhythms del mundo. Skífan Kringl- unni 2.199 kr. Morgunblaðið/Ásdís 6Rautt. Ómótstæðilegur súkkulaðibolli.Fæst í rauðu og grænu. Te og kaffi á Laugavegi. Bolli og undirskál 2.190 kr. Notalegt Rjúkandi súkkulaði, lopapeysa og sjónvarpssokkar halda hlýju á þessum unga MR-ingi sem lítur sem snöggvast uppúr efnafræðinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg         gæludýr ÍBANDARÍKJUNUM fjölgar sí-fellt þeim sem taka gæludýrinsín með sér í vinnuferðir – ogþað eru ekki bara hefðbundin gæludýr á borð við hunda og ketti sem fá að fljóta með í viðskiptaferðina. „Það er erfitt að finna gistingu þegar þú ert með tösku fulla af krókódílum og slöngum,“ hefur New York Times eftir Tim Williams sem starfar hjá Gator- land dýralífsgarðinum í Orlando í Flo- rída. Hann gistir því oftast á af- skekktum mótelum þar sem „þeir spyrja ekki of margra spurninga“. Fæst gæludýr eru hins vegar jafn yf- irþyrmandi og krókódílar Williams og leitast nú sífellt fleiri hótel og flugfélög við að mæta þörfum þeim vaxandi fjölda ferðalanga sem tekur gæludýrin með sér í viðskiptaferðir. Árið 2003 tóku 15 milljónir Banda- ríkjamanna gæludýrin með sér til næt- urdvalar fjarri heimilinu og á síðasta ári var talan komin upp í 29 milljónir. „Mun fleiri ferðast nú með hundana sína,“ segir Len Kain, einn aðstand- enda vefsíðunnar Dogfriendly.com, þar sem finna má upplýsingar um hunda- væn hótel víðs vegar í Bandaríkjunum. Upphaflega voru það helst ódýr mótel sem leyfðu gestum að taka með sér gæludýrin, en þeim fer nú sífellt fjölg- andi sem sjá sér hag í að bjóða gælu- dýrin velkomin. Sum hótel í dýrari kantinum bjóða jafnvel orðið upp á dýragæslu, -gönguferðir og jafnvel sér- stakan dýramatseðil. Flest bandarísk flugfélög heimila þá orðið að smærri dýr séu tekin með um borð svo framarlega sem búr þeirra rúmast undir sætinu – stærri dýr þurfa hins vegar enn að ferðast í farang- ursrýminu og flugfélagið Midwest Airl- ines tók jafnvel upp á því nýlega að bjóða upp á sérstaka poka með hunda- góðgæti á vissum leiðum. Gæludýr á ferð og flugi Reuters Hið ljúfa líf Tinkerbell hundur Paris Hilton nýt- ur væntanlega hins besta atlætis á vegum úti. Dýrum er margt til lista lagt. Um helgina tók þessi hund- ur þátt í keppni sem haldin var í Friedrichafen í Þýska- landi og sýnd var í þýska sjónvarpinu. Veðjað var um hvort hundurinn næði að ganga með vatnsglasið upp stigann. Reuters Flinkur hundur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.