Morgunblaðið - 22.01.2007, Side 22

Morgunblaðið - 22.01.2007, Side 22
22 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. DÝR LYF Hvenær eru lyf svo dýr, að ekkier talið verjandi að kaupaþau með peningum skatt- greiðenda? Hversu langt nær sú sam- trygging, sem við höfum byggt upp í kringum heilbrigðiskerfið? Um þess- ar grundvallarspurningar hafa litlar umræður farið fram á opinberum vettvangi en það er tímabært að þær fari fram. Í samtali við Morgunblaðið í gær segir Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum við Háskóla Íslands og yfirlæknir á augndeild Landspít- ala – háskólasjúkrahúss, frá lyfi, sem kom á markað í Bandaríkjunum á síð- asta ári, sem hægt er að nota með góðum árangri til þess að koma í veg fyrir blindu vegna hrörnunar í augn- botnum. Einar segir að tæpast leiki nokkur vafi á því, að hægt væri að bjarga tugum ef ekki fleiri Íslending- um frá blindu á ári hverju með því að nota þetta lyf. Hins vegar er lyfið mjög dýrt og ekki hafi fengizt leyfi til að nota það hér. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að slíkt leyfi verður veitt. Hér er um að ræða eitt tiltekið lyf gegn tilteknum sjúkdómi. Auðvitað eru til mörg lyf, sem skila betri ár- angri en eldri lyf í sambandi við ýmsa sjúkdóma en eru ekki notuð hér. Hvenær á að leyfa notkun slíkra lyfja og hvenær ekki? Þetta er sið- ferðileg spurning, sem læknar standa frammi fyrir, heilbrigðisyfirvöld standa frammi fyrir og raunar þjóðin öll. Þessi spurning er hins vegar ekki rædd fyrir opnum tjöldum. Að þess- um umræðum koma fáeinir einstak- lingar í heilbrigðiskerfinu. Er það eðlilegt að svo veigamiklar spurning- ar, sem geta ráðið örlögum fjölda fólks, séu ekki ræddar á þann veg, að almenningur geti tekið þátt í þeim umræðum? Það getur ekki talizt eðli- legt. Það er þessi sami almenningur, sem borgar skattana, sem standa undir heilbrigðisþjónustunni í land- inu. Það er ekki til neitt eitt eðlilegt svar við þessum spurningum. Vel má vera, að hér geti verið um að ræða nokkra milljarða króna í viðbótar út- gjöld og þá er ekki fráleitt að skatt- greiðendur hafi nokkuð um það að segja, hvort þeir eru tilbúnir til að greiða aukinn kostnað. Það er hins vegar ekki hægt að ganga út frá því sem vísu að þeir vilji það ekki. Og raunar margt sem bend- ir til þess, að skattgreiðendur séu til- búnir til að greiða hærri skatta ef það yrði til þess að bæta þjónustuna. Fyrr eða síðar þurfa flestar fjöl- skyldur í landinu, ef ekki allar, á þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda. Það er líka hugsanlegt að það sé fleiri kosta völ. Hugsanlegt er að ein- hverjir sjúklingar, sem eru að verða blindir, séu tilbúnir til að greiða þennan kostnað sjálfir þannig að kostnaður, sem greiða þyrfti úr al- mannasjóðum, yrði mun lægri en ella. Er í raun og veru eitthvað sem mælir gegn því að bjóða upp á slíkan val- kost? GJAFMILDI Á laugardagsmorgun var skýrt fráþví, að hjónin Ingibjörg Krist- jánsdóttir landslagsarkitekt og Ólaf- ur Ólafsson, stjórnarformaður Sam- skipa, hefðu ákveðið að setja á stofn velgerðarsjóð með eins milljarðs króna stofnframlagi. Er gert ráð fyr- ir að árlegt ráðstöfunarfé sjóðsins verði um 100–150 milljónir króna og verði því annars vegar varið til verk- efna í þróunarlöndunum og hins veg- ar til þess að styrkja verkefni á sviði vísinda, mennta og lista á Íslandi. Þau Ingibjörg og Ólafur hafa kom- ið að verkefnum í Síerra Leóne, sem eru fólgin í því að reisa 50 samfélags- skóla í landinu með húsgögnum og öðrum búnaði en jafnframt hafa þau styrkt Landsnámssetrið í Borgarnesi í minningu foreldra Ólafs, þeirra Önnu Ingadóttur og Ólafs Sverris- sonar. Um afstöðu þeirra hjóna til slíks stuðnings, sagði Ingibjörg Kristjáns- dóttir á blaðamannafundinum: „Okkur finnst að öll berum við ákveðna samfélagslega ábyrgð. Við höfum bæði mikinn áhuga á að styðja við þá sem minna mega sín og til- gangur sjóðsins er að setja þennan áhuga okkar í ákveðinn ramma.“ Það er ánægjulegt að þeir Íslend- ingar, sem hafa efnast mikið í góðæri síðustu ára, skuli beina þeim fjár- munum að einhverju leyti í þann far- veg sem hér hefur verið lýst. Það er mikill vandi að úthluta slíkum pen- ingum. Á síðasta ári fóru fram tölu- verðar umræður um þau mál, þegar bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffet ákvað að leggja mikið af eign- um sínum í sjóð sem Bill Gates og kona hans hafa komið á fót. Rök Buf- fets fyrir því að ganga til samstarfs við Gates-hjónin voru þau, að sjóður þeirra hefði öðlast ákveðna reynslu í að úthluta styrkjum til margvíslegra málefna og hann vildi frekar að fjár- munum hans yrði dreift á meðal ann- arra af þeim sem hefðu orðið sér út um þekkingu á því sviði en að hann sjálfur og fjölskylda hans byrjuðu frá grunni. Þessi afstaða Warren Buffets vakti mikla athygli í Bandaríkjunum á sín- um tíma og þótti bera vott um mikla óeigingirni af hans hálfu. Með því að ganga til samstarfs við Gates-hjónin var Buffet í raun að útiloka þann möguleika að fjármunir þessir yrðu kenndir við hann og fjölskyldu hans um aldur og ævi. Í þessum umræðum kom líka fram, að Gates-sjóðurinn byggi nú yfir mik- illi þekkingu á því, hvernig ætti að ráðstafa fé til þróunarlandanna, þannig að það kæmi örugglega að notum fyrir þá sem þyrftu á því að halda en lenti ekki í höndum spilltra stjórnmálamanna. Tölulegar upplýsingar sýna að op- inberir styrkir til þróunarlandanna eru í mínus, þ.e. ríku þjóðirnar fá meira til baka en þær leggja fram. Hins vegar tryggja framlög einka- aðila að ríku þjóðirnar eru enn í plús. Framtak þeirra Ingibjargar og Ólafs er þakkarvert. MAÐURINN, sem lentií snjóflóði norðanskíðasvæðisins í Hlíð-arfjalli um hádegisbil í gær, liggur þungt haldinn á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri og var honum enn haldið sofandi í öndunarvél seint í gær- kvöldi. Hinn slasaði var í hópi vél- sleðamanna, sem hafði verið á svæðinu í um það bil hálfa aðra klukkustund þegar flóðið féll. Maðurinn barst um 100 metra með flóðinu en sleðinn hans stöðvaðist um það bil 20 metrum neðar. Maðurinn var á tveggja metra dýpi þegar félagar hans fundu hann fáeinum mínútum síð- ar. Þeir náðu að blása í manninn lífi áður en björgunarmenn komu á staðinn. Maðurinn, sem er á fimmtugs- aldri, fannst svo skjótt sem raun ber vitni vegna svokallaðra snjó- flóðaýla sem allir höfðu meðferðis og fullyrðir einn úr hópnum að vegna ýlanna hafi náðst að bjarga manninum á lífi. „Annars hefðum við aldrei fundið hann nógu snemma,“ sagði Finnur Að- albjörnsson, einn vélsleðamann- anna, í samtali við Morgunblaðið í gær. Enginn vafi er talinn á því að hávaðinn frá sleðunum hafi valdið flóðinu. Svokallaðir snjóflýðaýlar (í ein- tölu, snjóflóðaýlir) eru bornir inn- an klæða. Þegar menn eru á ferð- inni senda ýlarnir frá sér merki, en lendi menn í óhappi, eins og í gær, eru ýlarnir stilltir á móttöku og taka þá á móti merkjum frá öðrum ýlum á svæðinu. Hópurinn var á ferð talsvert norðan við skíðasvæðið í Hlíð- arfjalli; á milli Mannshryggs og brekkunni sá ég sleðann á ferð í flóðinu, en ekki man segir Finnur. Félagar mannsins náðu hann út á tveimur til þrem mínútum, að sögn Finns, m snjóflóðaýlunum sem áður nefndir. Maðurinn var á tv metra dýpi og hefði ýlann notið við hefði þurft að lei mannsins með því að sting stöngum í snjóinn, sem he ið margfalt lengri meiri. „Ýlan bjargaði lífi mann Við miðuðum hann út á tv til þremur mínútum eftir féll og höfum líklega verið til sjö mínútur að grafa ha upp.“ Vert er að geta þess að lenti í flóðinu keypti sér ý föstudaginn. „Einn í hópn í snjóflóði í fyrra og slapp undraverðan hátt úr því o hefur hvatt okkur mjög ti að nota þetta tæki.“ Félagar mannsins beittu hjartahnoði og blésu í han Eftir um það til tíu mínút maðurinn að anda á ný. Finnur segir að notagild anna hafi heldur betur ko ljós. „Þetta tæki vísar ma kvæmlega veginn.“ Tækið fyrsta lagi til kynna í hvað viðkomandi er og þegar k Stórahnjúks. Finnur telur að snjóflóðið hafi verið um það til einn og hálfur kílómetri á breidd, nærri þrisvar sinnum breiðara en í fyrstu var talið í gær. „Hlíðin kom eiginlega bara öll niður,“ sagði hann við Morgunblaðið. Finnur segist margoft hafa ek- ið á vélsleða á þessu svæði und- anfarin 20 ár. „Við höfum stund- um séð smá kögglahrun úr hlíðinni en aldrei snjóflóð.“ Hópurinn hafði ekið um svæðið í um það bil eina og hálfa klukku- stund, sem fyrr segir og áð var á hól um miðbik svæðisins og mennirnir fengu sér að borða. Finnur og sá sem lenti í flóðinu óku síðan af stað upp brekkuna, Finnur norðanmegin í skálinni en hinn í suðurhluta hennar. „Ég keyrði upp brekkuna og sá að félagi minn – sá sem síðar lenti í flóðinu – festi sleðann. Ég veitti því svo sem ekki frekar eft- irtekt þá, en þegar ég var kominn upp og sneri við þá var flóðið komið af stað og hafði hrifsað hann með sér.“ Finnur segir að flóðið hafi komið efst úr fjallinu og náð ótrú- lega langt niður; langleiðina niður að nyrsta enda göngubrautar skíðasvæðisins. Finnur segir að hinir úr hópn- um hafi enn verið uppi á hólnum þegar flóðið kom. „Flóðið var al- veg hljóðlaust; sleðarnir voru ekki í gangi en strákarnir sögðust samt ekki hafa heyrt neitt.“ Þegar þeir sáu flóðið hlupu mennirnir af stað eins og fætur toguðu. Einn þeirra sat reyndar enn á sleða sínum, flóðið lenti á honum, sleðinn færðist aðeins til en flóðið stöðvaðist á sömu stundu. „Þegar ég sneri við efst í Fumlaust TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, lenti töluvert neðan svæðisins þar sem snjóflóðið féll og Fannst á lífi veg hann keypti sér            !               %           '(( )))*  Vélsleðamaður sem lenti í snjóflóði norðan skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli er þungt haldinn. Skapti Hallgrímsson fylgdist með björgunar- aðgerðum og ræddi við ferðafélaga mannsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.