Morgunblaðið - 22.01.2007, Side 33
|mánudagur|22. 1. 2007| mbl.is
staðurstund
Breska dagblaðið Independent
telur Ólaf Ragnar Grímsson og
Dorrit Moussaieff dæmi um
fyrsta klassa par. » 34
fólk
Vernharður Linnet skellti sér á
djasstónleika með Ragnheiði
Gröndal og hljómsveit hennar
Black Coffee. » 35
djassdómur
Söngvakeppni Sjónvarpsins fór
af stað á laugardaginn. Átta lög
kepptu þá um þrjú laus sæti í
lokakeppninni. » 37
tónlist
Bindi Irwin er þessa dagana á
ferð og flugi ásamt móður sinni
til að kynna nýjan náttúrulífs-
þátt sinn. » 40
fólk
Hljómdiskur með Sigga Pálma
fær þrjár stjörnur hjá gagnrýn-
anda sem segir hann luma á
fullorðinspoppi. » 41
plötudómur
Félag kvenna í atvinnurekstri kom saman í
Súlnasal Hótel Sögu rétt fyrir helgi til að
heiðra framúrskarandi „business-konur“.
Konfekt í litlum öskjum merktum Glitni, sjúk-
legar snittur og léttvín glöddu skvísur eins og
Hafdísi Jónsdóttur í World Class, Katrínu
Pétursdóttur hjá Lýsi, sjónvarpsstjörnuna
Sirrý Arnardóttur, Önnu Þorsteinsdóttur á
O-Sushi og tískudrottninguna Svövu Johansen
sem var í pínu-stuttpilsi og með stóran, grófan
silfurkross um hálsinn. Annars var svartur lit-
ur dagsins í klæðaburði ofurkvenna og keppt-
ust dömurnar við að hrósa hver annarri fyrir
„lekkert“ útlit. Á meðal örfárra hugrakkra
karlmanna í kvennagerinu voru Jón G. Hauks-
son og Benedikt Jóhannesson frá útgáfunni
Heimur og svo iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Jón Sigurðsson. Setningar á borð við: „Hún
var ljóshærð síðast þegar ég sá hana …“
heyrðust pískraðar í hornum. Úr vöndu var að
ráða á föstudagskvöldið þegar í boði voru tvær
frumsýningar samtímis; íslenska kvikmyndin
Foreldrar og leikritið Sælueyjan. Leik-
húsgyðjugenið vann valdabaráttuna við bíó-
bakteríuna og Flugan mætti á Sælueyjuna eft-
ir Jacob Hirdwall sem er í leikstjórn
þokkagyðjunnar hæfileikaríku, Maríu Elling-
sen. Arnar Jónsson leikari mætti að sjálfsögðu
glaður í bragði til að sjá dóttur sína í aðal-
hlutverkinu, Sólveigu Arnar, og gagnrýnand-
inn Páll Baldvin Baldvinsson hnyklaði brúnir.
Aðrir gestir voru hinir klassísku fastagestir
sem missa ekki úr sýningu og þið vitið alveg
hverjir það eru!
Listamaðurinn Kristinn E. Hrafnsson opn-
aði sýningu í i8-galleríinu á Klapparstíg á
fimmtudaginn sem mikill fjöldi listunnenda
sótti; m.a. Sveinn Einarsson, list- og leikunn-
andi, og listamennirnir Birgir Andrésson, Er-
ling Klingenberg, Eggert Pétursson, Hulda
Hákon og Helgi Þorgils. Sjónvarpsmaðurinn
Sigmundur Ernir Rúnarsson og kontraten-
órinn Sverrir Guðjónsson héldu uppi heiðri
höfuðfatafýra og skörtuðu báðir fögrum hött-
um. Þegar undirrituð gekk hnarreist yfir gólf-
ið í humátt að gestabókinni, til að votta komu
sína, greip vinkona í öxlina á henni og sagði
með samúð: „Þú varst að ganga yfir listaverk.“
Fluga beindi margföldum sjónum sínum að
gólfinu og sá sér til skelfingar mjög greinileg
spor eftir nýju leðurstígvélin. Hún huggaði sig
þó við að í sýningarskránni er talað um að
„verk eigi sér stað“ og vísar það til tengsla
verksins við umhverfið. Talandi um sýn-
ingaskrár – sá nýlega eina slíka sem var í
formi glanstímarits – með flennistórum aug-
lýsingum frá framleiðendum amerískra snyrti-
vara, bifreiða og dömubinda. Skrá þessi er af
tilefni sýningar Jóns Óskars í Listasafni Ak-
ureyrar. Sýningagestir geta þá hæglega dáðst
að auglýsingu frá nektarbúllu: „Almanakið er
komið – stelpurnar á Goldfinger“ …
Morgunblaðið/Eggert
Kristín Ólafsdóttir, Nanna Kristín
Magnúsdóttir, Pétur Rögnvaldsson og
Nína Dögg Filippusdóttir.
Helga Thors og Hildur Hafstein.
Árni Ólafur Ásgeirsson
og Marta Luiza Macuga.
Lúðvík Bergvinsson og Þóra Gunnarsdóttir.
Mario Ruiz og Berglind Hólm Ragnarsdóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Jóní Jónsdóttir og Lilja Marteinsdóttir.
Maríanna Clara Lúthersdóttir, Ólafur
Björn Ólafsson og Reynir Lyngdal.
Elín Torfadóttir, Bjarni Haukur Þórsson,
Tómas Þorsteinsson og Þorsteinn J.
Þórhildur Þorleifsdóttir, Hall-
grímur Helgason, Sigrún Gylfa-
dóttir og Kristín Gunnlaugsdóttir.
María Ellingsen og Sóley Elíasdóttir.
flugan
… Leikhúsgyðjugenin
og bíóbakterían …
… nektarbúlluauglýsingar
,,sponsora“ listina …
Sunna Björk Hreiðarsdóttir, for-
stöðumaður búninga og förðunardeildar,
Ólafur Steinn Ingunnarson og Páll S.
Pálsson baksviðs í förðunarherberginu.
Ingibjörg Þ. Klemensdóttir
og Jakobína Ingibergsdóttir.
Elín Margrét Hallgrímsson, Kjartan
Helgason, Sigurður Kristinsson og
Guðfinna Þóra Hallgrímsdóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ragnar Sverrisson og Baldur Guðnason.
» Leikfélag Akureyrar frumsýndi leikritið Svartur köttur –sama mánaðardag og fyrsta leikritið, Ævintýri á gönguför,
var sett upp á fjölum leikhússins fyrir 100 árum.
»Kvikmyndin Foreldrar eftirRagnar Bragason var frum-
sýnd í Háskólabíói.
» Sænska leikritið Sælueyjaneftir Jacob Hirdwall var
heimsfrumsýnt í
Þjóðleikhúsinu.