Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.01.2007, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Það er ótrúlega gaman aðkenna sögu, og ég er ekkiviss um að sögukennarar áöllum skólastigum geri sér grein fyrir þeim möguleikum sem sögukennsla býður upp á,“ segir Súsanna Margrét Gestsdóttir sem heldur fyrirlestur á vegum Sagn- fræðingafélags Íslands í fyrirlestr- arsal Þjóðminjasafnsins næstkom- andi þriðjudag kl. 12.05. Yfirskrift fyrirlestrar Súsönnu Margrétar er Sögukennsla: Nema hvað? Hvernig? „Í umræðunni um sögukennslu hér á landi er oftast rætt um hvaða sögu fólk eigi að kunna, og hversu miklum tíma eigi að verja til sögu- kennslu. Hins vegar hefur minna farið fyrir umræðu um hvernig best sé að nota þann tíma, hvernig eigi að kenna sögu,“ segir Súsanna Mar- grét. „Fólk í öðrum löndum öfundar okkur af hversu áhugasamir Íslend- ingar eru um sagnfræði og ber hús- fyllir á öllum fyrirlestrum Sagn- fræðingafélagsins þessum áhuga glöggt vitni. Hins vegar stöndum við oft frammi fyrir því að fólk virð- ist hafa frekar óaðlaðandi mynd af sögukennslu, og sjá margir fyrir sér þurra fyrirlestra og upptalningu staðreynda þegar þeir eiga að gera sér í hugarlund kennslustundir í sögu. Staðreyndin er hins vegar sú að sagnfræði er líklega meðal þeirra kennslugreina sem bjóða upp á hvað mesta möguleika í fjölbreyttum og spennandi kennsluaðferðum.“ Súsanna Margrét segir nauðsyn- legt að kennarar tileinki sér sem flestar og fjölbreyttastar leiðir til að sagnfræðin nái til sem flestra. „Öll þau ár sem ég hef verið viðloðandi sögukennslu hef ég sífellt verið að rekast á hugmyndir og aðferðir sem gætu gagnast við kennsluna, og eru möguleikarnir í reynd óþrjótandi,“ segir Súsanna Margrét. „En ekkert er nýtt undir sólinni og gaman er að minnast t.d. á skrif Guðmundar Finnbogasonar, eins af okkar fyrstu uppeldisfræðingum, sem skrifaði ár- ið 1903 bókina Lýðmenntun. Þar talar hann um mikilvægi þess að höfða til tilfinninga nemenda í kennslu, og verður skólaspekingum austan hafs og vestan nú mjög tíð- rætt um kenningar af sama toga. Kennarar geta svo auðveldlega nýtt sér dægurmenningu og listir til að veita nemendum ekki aðeins stað- reyndir um söguna, heldur tilfinn- ingu fyrir henni líka, sem þarf alls ekki þýða að námið fari ekki fram með skipulegum og markvissum hætti og skili árangri.“ Súsanna Margrét segir því ekkert að óttast þó listir og dægurmenning rati inn í kennslustofuna: „Ég held að sumir séu hræddir við að námið verði of skemmtilegt, og í framhald- inu að námsgreinin gjaldfalli af þeim sökum,“ segir hún. „Því er ég algjörlega ósammála, því það er aldrei of gaman að læra, og þess ut- an lærir fólk best þegar námið er skemmtilegt. Það er von mín með fyrirlestrinum að hleypa af stað um- ræðu um sögukennslu frá öllum hliðum.“ Ókeypis er á fyrirlestraröð Sagn- fræðingafélags Íslands og aðgangur öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Nánari upplýsingar má finna á slóð- inni www.sagnfraedingafelag.net. Framundan er meðal annars fyr- irlestur Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar, Heimildargildi heimild- armynda, 6. febrúar næstkomandi, og fyrirlestur Ómars Ragnarssonar fréttamanns, Heimildarmyndir og þáttagerð, 20. febrúar. Saga | Fyrirlestaröð Sagnfræðingafélagsins í Þjóðminjasafninu á þriðjudag kl. 12.05 Sóknarfæri í sögukennslu  Súsanna Mar- grét Gestsdóttir fæddist í Reykja- vík 1966. Hún lauk meist- araprófi í sagn- fræði frá Há- skóla Íslands 2003. Hún hefur kennt sögu við Menntaskólann í Reykjavík og Fjöl- brautaskólann við Ármúla, og kennir nú jafnframt kennslufræði félagsgreina við Háskóla Íslands. Súsanna situr í stjórn Euroclio – Evrópusamtaka sögukennara, og í stjórn Sagnfræðingafélags Íslands. Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG ER MEÐ ÚRKLIPPUBÓK HÚN ER FULL AF HLUTUM SEM ÉG ER BÚINN AÐ KLÓRA EÐA... HÚN VAR ÞAÐ ÞAÐ ER KOMINN KVÖLD- MATUR. KOMDU INN... ALLT Í LAGI. ÉG ÆTLA BARA AÐ KLÁRA VEGINN... MAMMA SAGÐI ÞÉR AÐ KOMA NÚNA! OG ÞEGAR HÚN SEGIR NÚNA, ÞÁ MEINAR HÚN NÚNA!! ÆI... MAÐUR ÞRÆTIR EKKI VIÐ YFIRVALDIÐ MAMMA, MÁ HOBBES KOMA AÐ SYNDA MEÐ MÉR? NEI, ÞÚ VERÐUR AÐ SKILJA HANN EFTIR AF HVERJU ?? ÖÖ... TÍGRISDÝR KUNNA EKKI AÐ SYNDA ER ÞAÐ EKKI? ÉG ER EKKI VISS UM AÐ MAMMA ÞÍN VITI MIKIÐ UM TÍGRISDÝR ÉG VIL BARA EKKI AÐ HÚN FARI EITTHVAÐ AÐ RÍFA SIG ÉG ER BÚIN AÐ FÁ LEIÐBEININGAR UM ÞAÐ HVERNIG ER BEST FYRIR OKKUR AÐ KOMAST Í VEISLUNA HJÁ LALLA OG ÖDDU ÞAÐ ER FLOTT. BÚA ÞAU LANGT Í BURTU? NEI ÞAU BÚA BARA HÉRNA RÉTT HJÁ OKKUR Á MYNDASÖGUSÍÐUNNI NÆSTA BÓKIN MÍN KEMUR TIL MEÐ AÐ GEFA LESENDUM MÍNUM SVOLÍTIÐ SEM ÞEIR ERU BÚNIR AÐ VERA AÐ BIÐJA UM Í LANGAN TÍMA ENDURGREIÐSLU SKÓLINN Í HVERFINU OKKAR ER EKKI AÐ STANDA SIG EINS VEL OG ÉG HEFÐI VILJAÐ KANNSKI ÆTTUM VIÐ AÐ HUGSA UM ÞAÐ AÐ FLYTJA ÞAÐ ER KLIKKUN! VIÐ HÖFUM EKKI EFNI Á ÞVÍ AÐ FLYTJA Í HVERFIN SEM ERU MEÐ HÆRRI STIG VIÐ ÆTTUM AÐ MINNSTA KOSTI AÐ KANNA ÞETTA SJÁÐU, HÉRNA ER HÚS Á INNAN VIÐ 40 MILLJÓNIR LALLI, ÉG VIL EKKI BÚA Í HÚSI MEÐ ÚTIKAMAR! FARÐU ÚR SKYRTUNNI, TAKK ÉG GET EKKI LEYFT HONUM AÐ SJÁ BÚNINGINN ÞESSI BÍLL ÞARNA ÚTI! ÞAÐ ER EINN MÖGULEIKI HVAÐA HLJÓÐ ER ÞETTA? ÞETTA ER BENSINN MINN! ÉG BJÓST EKKI VIÐ AÐ KONAN Í MÓTTÖKUNNI ÆTTI HANN ÞETTA málverk Andy Warhols af Marx-bræðrum hangir um þessar mund- ir uppi í Park Avenue-bankanum í New York. Bankinn hefur einsett sér að hýsa reglulega sýningar af söfnum víðsvegar um Bandaríkin. AP Bankamenning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.