Morgunblaðið - 22.01.2007, Page 38
38 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Night at the Museum kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
Night at the Museum LÚXUS kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
Apocalypto kl. 5, 8 og 10.55 B.i. 16 ára
Litle Miss Sunshine kl. 5.50 B.i. 7 ára
Köld slóð kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 12 ára
Mýrin kl. 8 B.i. 12 ára
Eragon kl. 3.40 B.i. 10 ára
Artúr & Mínimóarnir kl. 3.40
Casino Royale kl. 10.10 B.i. 10 ára
Night at the Museum kl. 5.50, 8 og 10.10
Apocalypto kl. 8 B.i. 16 ára
Köld slóð kl. 6 B.i. 12 ára
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
eeee
MHG - FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
H.J. - MBL
eeee
LIB - TOPP5.IS
ATH: EKKERT HLÉ Á MYNDUM GRÆNA LJÓSSINS
FRÁBÆR GAMANMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ BEN
STILLER OG ROBIN WILLIAMS
FYRSTA
STÓRMY
ND
ÁRSINS
3 VIKUR Á TOPPNUM
Í USA!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
eeee
SVALI Á FM 957
eeee
Þ.Þ. - FBL
Myndlistarmaðurinn JóhannLudwig Torfason hefur vakið
mikla athygli fyrir stafræn málverk
sín þar sem hann hefur aðallega
fengist við ímyndir af leikföngum á
vettvangi mannlegrar tilveru. Verk
hans eru frásagnarkennd og vekja
m.a. upp áleitnar spurningar um
samskipti, skoðanir og hegðun
mannsins. Fyrirlesturinn hefst kl.
12.30.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Nú stendur yfir sýning ÞórhallsSigurðssonar í Galleríi Úlfi á
Baldursgötu 11. Þórhallur er sjálf-
menntaður málari fyrir utan að
hann var í eitt ár í fornámi MHÍ
og í ár á myndlistarbraut í lýðhá-
skóla í Danmörku. Þórhallur hefur
áður tekið þátt í samsýningu. Sýn-
inguna kallar hann „Fæðingu upp-
hafs“ og stendur hún til 20. febr-
úar.
Öll þriðjudagskvöld eru mann-ræktarkvöld í Laugarnes-
kirkju. Þau hefjast kl. 20 með
kvöldsöng í umsjá Þorvaldar
Halldórssonar og Gunnars Gunn-
arssonar. Sigurbjörn Þorkelsson,
framkvæmdastjóri safnaðarins,
hefur stutta hugvekju og leiðir
bæn.
Að kvöldsöngnum loknum,
næstkomandi þriðjudagskvöld
23. janúar, eða um kl. 20:30, halda kynningar á hinu vinsæla og árangurs-
ríka 12 spora starfi kirkjunnar áfram. Umsjón hefur Guðrún K. Þórsdóttir.
Hvert þriðjudagskvöld að loknum kvöldsöngnum er einnig boðið upp á
jafningjafræðslu og spjall um lífið, trúna og tilveruna. Nk. þriðjudagskvöld
fjallar Sigurbjörn Þorkelsson um mátt Biblíunnar í nútíma samfélagi hrað-
ans. Er Biblían lifandi og kröftug, máttugt orð innblásið af Guði eða er hún
óskiljanleg og leiðinleg, steinrunnin, úrelt og gamaldags? Allir eru vel-
komnir í Laugarneskirkju á þriðjudagskvöldum, án skuldbindinga.
Tónlist
Áskirkja | Miðvikudaginn 24. janúar kl. 20
heldur Kór Áskirkju tónleika til styrktar
gluggasjóði Áskirkju og helgaða minningu
séra Árna Bergs Sigurbjörnssonar. Kór Ás-
kirkju, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Hjör-
leifur Valsson og Hallveig Rúnarsdóttir.
Ágóði af tónleikunum rennur til glugga-
sjóðs Áskirkju.
Norræna húsið | Hljómsveitin LAVA heldur
tónleika í Norræna húsinu kl. 20. Meðlimir
hljómsveitarinnar eru frá Danmörku, Nor-
egi og Íslandi. Hljómsveitin flytur end-
urtúlkanir á íslenskum þjóðlögum, flutt í
þjóðlagastíl, auk frumsaminna laga. Miða-
verð á tónleikana er 1.000 kr.
Myndlist
101 gallery | Stephan Stephensen, aka
president bongo. If you want blood …
you’ve got it! Sýningin stendur til 15. feb.
Opið þriðjudaga til laugadaga kl. 14–17.
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Guðrúnar Öyahals myndlistarmanns í
Artóteki, Borgarbókasafni. Á sýningunni
eru lágmyndir unnar í tré og ýmis iðnaðar-
efni s.s. gler, nagla, sand og rafmagnsvír.
Sýningin stendur til 18. febrúar.
Gallerí Auga fyrir auga | Ljósmyndasýn-
ing Davids McMillans á myndum frá
Tsjernóbýl. Myndirnar eru teknar eftir
kjarnorkuslysið 1986. Opið miðvikud. og
föstud. kl. 15–19 og laugard. og sunnud. kl.
14–17.
Gallerí Úlfur | Nú stendur yfir sýning Þór-
halls Sigurðssonar í Galleríi Úlfi á Bald-
ursgötu 11 (gegnt Þrem Frökkum). Þórhall-
ur er sjálfmenntaður málari fyrir utan að
hann var í eitt ár í fornámi MHÍ og í ár á
myndlistarbraut í lýðháskóla í Danmörku.
Þórhallur hefur áður tekið þátt í samsýn-
ingu. Sýninguna kallar hann „Fæðing upp-
hafs“ og er opið á virkum dögum frá kl. 14-
18, en um helgar frá 16-18. Sýningin stend-
ur til 20. febrúar.
Hafnarborg | Nú stendur yfir í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar,
málverkasýningin Einsýna List. Listamenn-
irnir eru Edward Fuglø, Astri Luihn, Sigrun
Gunnarsdóttir, Torbjørn Olsen, Eyðun av
Reyni og Ingálvur av Reyni. Til 4. febrúar.
Kaffi Sólon | Erla Magna Alexandersdóttir
– Veröldin sem ég sé og finn. Erla sýnir
málverk. Erla hefur lært hjá mörgum
þekktum listamönnum hérlendis og er-
lendis; Eggerti Péturssyni, Finni Jónssyni,
Birgi Birgissyni, Arngunni Ýri, Einari Gari-
balda og Roberto Ciabani í Flórens, Ítalíu.
Hægt er að kaupa verk á sýningunni með
Visa/Euro-léttgreiðslum. Til 2. febrúar.
Kling og Bang gallerí | Sirra Sigrún Sig-
urðardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ásdís
Sif Gunnarsdóttir og Daníel Björnsson
sýna í Kling & Bang galleríi, Laugavegi 23.
Sýningin heitir Ljósaskipti – Jólasýning
Kling og Bang og stendur til 28. janúar.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum
Jóns Óskars – Les Yeux de L’ombre Jaune
og Adams Batemans – Tyrfingar. Opið alla
daga nema mánudaga 12–17.
Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard
Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í
upphafi 20. aldar. Sýningin kemur frá Mu-
sée des beaux-arts í Bordeaux í Frakk-
landi, 52 verk eftir 13 listamenn.
Sýning á verkum Jóns Stefánssonar í sal
2. Opið 11–17 alla daga, lokað mánudaga.
Ókeypis aðgangur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Mál-
arahópurinn Gullpensillinn 2007. Tíu þjóð-
þekktir listmálarar sýna ný verk þar sem
blái liturinn er í öndvegi. Safnbúð og kaffi-
stofa. Til 11. febrúar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Sýning Hlað-
gerðar Írisar Björnsdóttur og Arons Reys
Sverrissonar í sýningarsal Listasafns
Reykjanesbæjar í Duushúsum. Sýningin
ber heitið Tvísýna og um er að ræða mál-
verk í anda raunsæisstefnu af börnum,
húsum og umhverfi.
Listasalur Mosfellsbæjar | Sýning Bryn-
dísar Brynjarsdóttur, „Hið óendanlega
rými og form“, er samspil áhrifa listasög-
unnar og minninga frá æskuslóðum henn-
ar þar sem leika saman form og rými. Sýn-
ingin stendur til 17. feb. Listasalur
Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, opinn
virka daga kl. 12–19, lau. 12–15, er í Bóka-
safni Mosfellsbæjar.
Skaftfell | Melkorka Huldudóttir sýnir
„Beinin mín brotin“ á Vesturvegg Skaft-
fells í janúar. Sýningin er opin um helgar
frá 13–18 eða eftir samkomulagi.
www.skaftfell.is.
Framköllun, sýning Haraldar Jónssonar,
hefur verið framlengd til 20. febrúar. Sýn-
ingin er opin frá kl. 13–17 allar helgar eða
eftir samkomulagi. www.skaftfell.is.
Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í
Þjóðminjasafninu stendur yfir jólasýning
með myndum tvíburabræðranna Ingi-
mundar og Kristjáns Magnússona. Mynd-
irnar fanga anda jólanna á sjöunda ára-
tugnum.
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins eru til sýnis
þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta
Guðna Þórðarsonar í Sunnu, blaðamanns,
ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Mynd-
irnar tók hann við störf og ferðalög á tíma-
bilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið
frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar.
Í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýning á útsaumuðum handaverkum list-
fengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin
byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson
textíl- og búningafræðings. Myndefni út-
saumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna
og kynjadýraveröld fortíðarinnar.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu-
leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Landnámssýningin Reykjavík 871±2, Að-
alstræti 16, er lokuð í janúar og febrúar
vegna lokaáfanga forvörslu skálarúst-
arinnar. Opnað að nýju 3. mars.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn
| Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð-
deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög-
um til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar
á heimasíðu: www.landsbokasafn.is.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Skotið:
Menjar tímans – Sissú. Sýningin fjallar um
áferð og athafnir sem verða til við breyt-
ingar í umhverfi mannsins og eru mynd-
irnar brotabrot af menjum og tímasveiflu í
byggðu umhverfi á Reykjavíkursvæðinu.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns
| Í húsnæði Seðlabankans á Kalkofnsvegi 1
hefur verið sett upp yfirlitssýning á ís-
lenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu
safnsins. Þar er einnig kynningarefni á
margmiðlunarformi um hlutverk og starf-
semi Seðlabanka Íslands. Sýningin er opin
mán.–föst. kl. 13.30–15.30.
Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl-
breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning-
arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun,
með fatalínum frá níu merkjum eða hönn-
uðum í samhengi við íslenska náttúru.
Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi
rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín.
Fyrirheitna landið og Handritin að auki.
Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um
grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er æv-
intýralegt ferðalag gegnum 1.200 ár sem
hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í
flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar,
fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna.
Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihús.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Mannfagnaður
Húnvetningafélagið í Reykjavík | Laug-
ard. 3. febrúar er þorrablót í Húnabúð,
Skeifunni 11, 3. hæð (lyfta). Húsið opnað kl.
19.30, borðhald hefst kl. 20. Fjölbreytt
dagskrá, sungið, leikið og dansað, veislu-
stjóri sr. Hjálmar Jónsson. Miðapantanir í
síma 895 0021. Miðasala í Húnabúð fimm-
tud. 1. febr. kl. 20–21. Allir velkomnir.
Dans
Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Gömlu-
dansanámskeiðin eru byrjuð á mánudög-
um í sal félagsins Álfabakka 14a. Byrjendur
kl. 20, lengra komnir kl. 21.
Uppákomur
Thorvaldsensbar | Áhugaljósmyndarinn
Kristján Eldjárn er með ljósmyndasýningu
á Thorvaldsensbar, Austurstræti 8–10,
Rvík. Um er að ræða átta svarthvítar ljós-
myndir prentaðar á álplötur, 1,10 x 1,50 að
stærð. Til 15. febrúar.
Fyrirlestrar og fundir
Eirberg | Rannsóknastofnun í hjúkr-
unarfræði býður til málstofu um meðferð-
arheldni frá sjónarhóli sykursjúkra. Brynja
Ingadóttir flytur, kl. 12.10–12.50 í stofu 201,
hjúkrunarfræðideild, Eirbergi, Eiríksgötu
34. Allir velkomnir.
Hafnarfjarðarkirkja | 23. janúar nk. hefst
á vegum Fullorðinsfræðslu Hafnarfjarð-
arkirkju námskeiðið „Biblían og Kóraninn“.
Á námskeiðinu verður rakin saga þessara
trúarrita sem hafa haft áhrif samanlagt á
líf fleiri manna en nokkur önnur. Nám-
skeiðið hefst kl. 20. thorhallur.heim-
isson@kirkjan.is.
Listaháskóli Íslands Laugarnesi | Mynd-
listarmaðurinn Jóhann Ludwig Torfason
hefur vakið mikla athygli fyrir stafræn
málverk sín, þar sem hann hefur aðallega
fengist við ímyndir af leikföngum á vett-
vangi mannlegrar tilveru. Verk Jóhanns
eru frásagnarkennd og vekja m.a. áleitnar
spurningar um samskipti, skoðanir og
hegðun mannsins. Kl. 12.30.
Orkugarður | Miðvikudagserindi 24. jan. kl.
13: Árni Bragason, forstöðumaður nátt-
úruverndarsviðs Umhverfisstofnunar,
fjallar m.a. um friðlýst svæði á Íslandi,
náttúruverndaráætlun 2004–2008 og
áherslur næstu áætlunar, sérstöðu ís-
lenskrar náttúru, t.d. í augum erlendra
gesta og ágreining milli orkunýtingar og
náttúruverndar. Nánar á www.os.is.
Seljakirkja | Sameiginlegur fundur Kven-
félags Breiðholts, Fjallkvennanna, og Selja-
sóknar verður 23. jan. kl. 20 í safn-
aðarheimili Seljakirkju.
Fréttir og tilkynningar
Sunnusalur Hótels Sögu | Landssamtök
landeigenda á Íslandi verða stofnuð í
Sunnusal Hótels Sögu fimmtudaginn 25.
janúar 2007 kl. 16. Samtökunum er ætlað
að sameina krafta landeigenda gegn þjóð-
lendukröfum ríkisvaldsins.
Frístundir og námskeið
Landbúnaðarháskóli Íslands | Námskeið í
trjáklippingum – grisjun. Lögð verður
áhersla á grisjun og snyrtingu trjáa og
runna á stærri svæðum, í skjólbeltum,
skógarreitun og fleiri stöðum þar sem
náttúrulegt og snyrtilegt útlit trjáa og
runna skiptir höfuðmáli. Sjá www.lbhi.is –
Endurmenntun. Skráning fyrir 25. janúar.
Lesblindusetrið | Hraðlestur fyrir börn (9–
13 ára). Sérsniðið hraðlestrarnámskeið
fyrir börn og unglinga. Kolbeinn Sig-
urjónsson, Davis-ráðgjafi hjá Les-
blindusetrinu. kolbeinn@lesblindusetrid.is.
Sími 566 6664.
Málaskólinn LINGVA | Málaskólinn
LINGVA, Faxafeni 10, býður upp á örnám-
skeið í ítölsku, spænsku, ensku, þýsku og
frönsku á nýja árinu. Skráningar í síma
561 0315, eða á www.lingva.is. Icelandic
courses for foreigners at our school. Free
of charge for everybody! Book at
www.lingva.is or phone 561 0315.
Útivist og íþróttir
Garðabær | Vatnsleikfimi fyrir alla. Styrkj-
andi og hressileg hreyfing fyrir vinnu 4x í
viku kl. 7–8 á morgnana í innilauginni í
Mýrinni, Garðabæ. Hreyfing í vatni – til-
valin líkamsrækt sem eykur vellíðan. Upp-
lýsingar eða fyrirspurnir í síma 691 5508
og á netf. annadia@centrum.is. Anna Dia
íþróttafræðingur.
staðurstund
Myndlist
Þórhallur í
Galleríi Úlfi
Fyrirlestrar
Jóhann Ludwig
Torfason í LÍ
Kirkjustarf
12 spora kynning á þriðjudags-
kvöld í Laugarneskirkju
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is