Morgunblaðið - 22.01.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 39
Sími - 551 9000
Night at the Museum kl. 6, 8.20 og 10.40
Apocalypto kl. 6 og 9 B.i. 16 ára
Litle Miss Sunshine kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 7 ára
Köld Slóð kl. 5.50 og 8 B.i. 12 ára
Casino Royale kl. 10.10 B.i. 14 ára
ÍSLENSKT TAL
eee
SV MBL
- Verslaðu miða á netinu
* Gildir á allar sýningar
í Regnboganum merktar
með rauðu
450 KR.
Í BÍÓ
*
eeee
-ROKKLAND Á RÁS
eeeee
BAGGALÚTUR.IS
eee
(D.Ö.J. - KVIKMYNDIR.COM)
eeee
VJV TOPP5.IS KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eeee
Þ.Þ. Fbl.
eeee
Blaðið
Sýnd
kl. 6
ÍSL. TAL
ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 8 og 10:15 B.I. 16 ára
SCARLETT JOHANSSON - JOSH HARTNETT - AARON ECKHART - HILARY SWANK
Sýnd kl. 6 og 8
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 10:15
B.I. 12 ára
www.laugarasbio.is
3 VIKUR Á
TOPPNUM
Í USA!
FYRSTA
STÓRMYND
ÁRSINS
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15
Gullsmára, spilar í félagsheimilinu
Gullsmára 13 alla mánu- og fimmtu-
daga kl. 12.45. Bjartur salur. Góður
félagsandi. Aðgangur aðeins 200 kr.
Allir eldri borgarar velkomnir.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a. tréútskurður
og almenn handavinna. Kl. 9.50 sund
og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug.
Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.20
kóræfing. Kl. 15–16 er Herdís Jónsd.
hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslu-
stöð Efra-Breiðholts, m.a blóðþrýst-
ingsmæling. Uppl. á staðnum og í
síma 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 Kaffi, spjall,
dagblöðin, handavinna. Kl. 10 Bæna-
stund. Fótaaðgerð. Kl. 12 Hádeg-
ismatur. Kl. 15 Kaffi. Kl. 9 Hárgreiðsla,
sími 894 6856.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Ganga kl. 9.30. Pútt kl. 10. Gafl-
arakórinn kl. 10.30. Félagsvist kl.
13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16 hjá Sigrúnu, keramik, tau-
málun og kortagerð. Jóga kl. 9–11,
Sóley Erla. Frjáls spilamennska kl. 13–
16. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hæðargarður 31 | Kennsla í tölvuveri
þriðjud. og miðvikud. kl. 14–16. Kostar
ekkert. Skráning. Bókmenntahópur
miðvikud. 24. jan. kl. 20. Þórbergur
og Gunnar. Sparikaffi föstud. 26. jan.
kl. 14. Theódór og Hörður skemmta.
Þorrablót föstud. 2. feb. kl. 17. Fastir
liðir eins og venjulega. Láttu sjá þig!
Sími 568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug
klukkan 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund og léttar æfingar kl. 10.30.
Handavinnustofur kl. 13. Kaffiveit-
ingar.
Laugardalshópurinn Blik, eldri borg-
arar | Leikfimi eldri borgara mánu-
daga kl. 12 í Íþróttahúsinu Ármann–
Þróttur í Laugardal.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 10
boccia, kl. 10.30 ganga, kl. 13 postu-
línsmálun, opin fótaaðgerðastofa
sími 568 3838.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin
frá kl. 9–16.30 alla virka daga. Boccia
kl. 10. Félagsvist kl. 14 alla mánudaga.
Bókabíllinn frá kl. 13.30–14.30 alla
mánudaga. Hádegismatur alla virka
daga frá kl. 12–13. Miðdegiskaffi frá kl.
15–16.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9– 12. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30. Söngstund kl. 10.30. Félagsvist
kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, morgunkaffi og dagblöð, búta-
saumur, fótaaðgerð, samverustund,
hádegisverður, bútasaumur, kaffi. All-
ar nánari upplýsingar í síma
535 2760.
Dalbraut 18–20 | Mánudaga fram-
sögn og brids, þriðjudaga félagsvist,
miðvikudaga samvera í setustofu,
spjall, lestur og handavinna, fimmtu-
dagar söngur með harmonikkuund-
irleik. Kaffi og meðlæti alla daga. Allir
velkomnir. Sími 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Litlakot, kl. 13–16.
Grænlenskur perlusaumur undir leið-
sögn Guðrúnar. Perlur og annað sem
til þarf á staðnum. Munið lesgler-
augun. Auður og Lindi annast akstur,
sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
FEBK: Skrifstofan Gullsmára 9 er op-
in mánudaga kl. 10–11.30. Sími 554
1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er
opin á miðvikudögum kl. 15–16. Sími
554 3438. Félagsvist er spiluð í Gjá-
bakka á miðvikudögum kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Fræðslufundur um lífeyrissjóðsmál
verður haldinn 25. janúar kl. 17.30.
Fulltrúar frá LSR þær Þórey Þórð-
ard., forstöðumaður lífeyrisréttinda,
og Ágústa H. Gíslad., deildarstj. líf-
eyrisdeildar og frá Landssamtökum
lífeyrissjóða og Hrafn Magnússon
framkvæmdastj. koma og veita uppl.
um þessi mál og svara spurningum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Kaffitár kl. 13.30. Dans-
kennsla Sigvalda línudans kl. 18, sam-
kvæmisdans byrjendur kl. 19 og fram-
hald kl. 20. Námskeið í framsögn
hefst 30. janúar kl. 17. Leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson, skráning hafin í
síma 588 2111.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Fræðslufundur um lífeyrissjóðsmál
verður haldinn 25. janúar kl. 17.30.
Fulltrúar frá LSR þær Þórey Þórðard.
forstöðumaður lífeyrisréttinda og
Ágústa H.Gíslad deildarstj. lífeyr-
isdeildar og frá Landssamtökum líf-
eyrissj. og Hrafn Magnússon fram-
kv.stj. koma á fundinn og veita uppl.
um þessi mál og svara spurningum.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinna kl. 9–12. Boccía kl. 9.30. Gler-
og postulínsmálun kl. 9.30 og kl. 13.
Lomber kl. 13.15. Kanasta kl. 13.15.
Kóræfing kl. 17.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl.
10 ganga, kl. 11.30 hádegisverður
(panta fyrir kl. 10), kl. 13 handavinna,
kl. 13 brids, kl. 20.30 félagsvist.
Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK,
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–12
leikfimi. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13–16 kóræfing. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja op-
in fyrir alla kl. 9–12. Bókband kl. 9,
hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur
frá kl. 9, morgunstund kl. 9.30,
boccia kl. 10, handavinnustofa opin kl.
9–16.30, glerbræðsla kl. 13, fram-
haldssaga kl. 12.30, frjáls spil kl. 13–
16.30. Laus pláss á námskeið. Sími
411 9450.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 Fé-
lagsráðgjafi kemur (annan hvern
mánudag). Kl. 13 Opin salur. Kl. 13.15
Leikfimi.
Kirkjustarf
Áskirkja | Þorgils Hlynur Þorbergs-
son cand theol. verður með morg-
unsöng á vegum Áskirkju á Dalbraut
27, kl. 9.30 í dag.
Grafarvogskirkja | TTT fyrir börn 10–
12 ára í Grafarvogskirkju, kl. 17–18
TTT fyrir börn 10–12 ára í Húsaskóla,
kl. 17–18 Æskulýðsfélag fyrir unglinga
í 8.–10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20.
Grensáskirkja | Öll börn á aldrinum
6–9 ára eru velkomin í Grensáskirkju
alla mánudaga frá kl. 15.30–16.30 til
starfa með KFUM og KFUK.
Hjallakirkja | Tíu til tólf ára starf er í
Hjallakirkju á mánudögum kl. 16.30–
17.30. Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk er
hvert mánudagskvöld í Hjallakirkju kl.
20–21.30.
Hjálpræðisherinn á Íslandi | Heim-
ilasambandsfundur fyrir allar konur í
dag kl. 15. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK | Fundur verður í AD
KFUK, Holtavegi 28, þriðjudaginn 23.
janúar kl. 20. Bókaflóðið. Fundurinn
er í umsjá Sigrúnar Gísladóttur og
Herdísar Ástráðsdóttur. Kaffi. Allar
konur eru velkomnar.
Kristniboðssalurinn | Samkoma
verður í Kristniboðssalnum Háaleit-
isbraut 58–60 miðvikudaginn 24.
janúar kl. 20. „Máttur hans við oss.“
Sr. Gísli Jónasson talar. Fréttir frá As-
íu: Ragnar Gunnarsson. Kaffi. Allir
eru velkomnir.
„ÞEKKIÐ þér Finnbogason?“ Þessi
stutta spurnarsetning markar bæði
upphaf og lok þessarar bókar. Hún
átti vel við þegar henni var fyrst
varpað fram (á frönsku í Sorbonne-
háskóla) og hún á ekki síður við á Ís-
landi nú á dögum. Trúlega myndi
mikill meirihluti þjóðarinnar, há-
skólafólk sem aðrir, reka upp stór
augu, yppa öxlum í fáfræði og tóm-
læti og svara neitandi, nema vita-
skuld þeir sem kynnu að hafa lesið
þessa bók um jólin.
Eitt af einkennum okkar tíma er að
flestir láta sér lynda að lifa fyrir líð-
andi stund. Fyrri menn og konur
gleymast fljótt, menn og málefni
komast í tísku, eru á hvers manns
vörum um skamma hríð og gleymast
svo jafn skjótt, rétt eins og nærföt í
auglýsingum glanstímaritanna eða
gengisskráning gærdagsins.
Guðmundur Finnbogason hefur
ekki átt því umdeilanlega láni að
fagna að komast í tísku meðal núlif-
andi Íslendinga. Á fyrri hluta 20. ald-
ar var hann hins vegar þjóðkunnur
maður og lagði gjörva hönd á plóginn
þegar reynt var að „byggja þjóðina
upp“, gera hana að sjálfstæðri menn-
ingarþjóð, sem staðið gæti á eigin fót-
um. Þá var hann þekktur af skrifum
sínum og útvarpserindum og þá
hefðu að líkindum flestir Íslendingar
svarað játandi spurningunni, sem
greint var frá hér að framan, a.m.k. ef
fornafnið hefði fylgt með.
Guðmundur Finnbogason var
Þingeyingur að uppruna, fæddur á
Arnarstapa í Ljósavatnsskarði 6. júní
1873. Hann var af fátæku fólki kom-
inn, en tókst með dugnaði og hjálp
góðra manna að komast í skóla. Að
loknu stúdentsprófi við Lærða skól-
ann í Reykjavík sigldi hann til náms í
Hafnarháskóla, þar sem hann lagði
stund á heimspeki og lauk meist-
araprófi árið 1901. Sérgrein hans var
sálfræði og í þeirri grein varði hann
doktorsritgeð við Hafnarháskóla árið
1911. Doktorsritgerðin nefndist á
dönsku Den sympatiske Forstaaelse
og er sígilt verk í norrænni sálfræði.
Síðar var hún þýdd á frönsku og afl-
aði höfundi sínum viðurkenningar á
meðal frönskumælandi sálfræðinga.
Hér á landi er hún miklu síður kunn,
enda leggja Íslendingar ekki í vana
sinn að þýða merkisrit landa sinna á
móðurmálið.
Jörgen L. Pind, prófessor í sál-
fræði við Háskóla Íslands, hefur sam-
ið þessa bók um ævi og störf Guð-
mundar Finnbogasonar. Að minni
hyggju getur hún trauðla talist ævi-
saga í hefðbundnum skilningi, miklu
frekar menntunar- og starfssaga
heimspekingsins og sálfræðingsins
Guðmundar Finnbogasonar. Í fyrstu
köflum bókarinnar segir rækilega frá
uppvexti og skólaárum Guðmundar
hér á landi og síðan taka við kaflar
um námsárin í Kaupmannahöfn og
námsdvalir í öðrum löndum. Þar seg-
ir einnig gjörla af kennurum Guð-
mundar við Hafnarháskóla og af þeim
heimspekingum, straumum og
stefnum í fræðigreininni, er mest
áhrif höfðu á hann á yngri árum. Les-
andinn fær þannig dágóða mynd af
því menningar- og menntaumhverfi
sem söguhetjan mótaðist af. Einnig
segir allnokkuð af Íslendingum á
Hafnarslóð á dögum Guðmundar og
þá vitaskuld mest af nánustu vinum
hans og félögum.
Í síðari köflum segir frá störfum
Guðmundar hér heima. Hann var að-
alhöfundur fræðslulaganna frá 1907,
þegar skólaskylda var lögleidd, og
hafði með þeim mikil og góð áhrif á ís-
lensk skóla- og uppeldismál. Þá
greinir frá embættisraunum og dag-
legu amstri, skammlífu prófessors-
embætti í sálfræði við Háskóla Ís-
lands, ritstörfum og starfi í embætti
landsbókavarðar.
Öll frásögn höfundar er vel samin
og hefur að geyma mikinn fróðleik,
enda hefur hann kannað fjölda heim-
ilda og er vel að sér í fræðigreininni
sem bókin snýst að verulegu leyti um.
Fyrri hlutinn er einkar ýtarlegur og
þar notar Jörgen mikið þá aðferð að
láta heimildirnar tala, birtir orðrétt
langa kafla úr bréfum og öðrum
heimildum. Það hugnast mér vel. Í
síðari hlutanum, þegar kemur að
þeim kafla í ævi Guðmundar er hann
hafði að miklu leyti sagt skilið við sál-
fræðina, er farið öllu hraðar yfir sögu
en þó ekki svo verulegt mein sé að.
Að minni hyggju er þetta rit þarft
framlag til íslenskrar menning-
arsögu. Það sem ég sakna helst er
rækilegri umfjöllun um þátt Guð-
mundar í menningarumræðunni á 3.
og 4. áratug 20. aldar og um nýyrða-
smíð hans. Guðmundur var meðal
orðhögustu manna á sinni tíð og höf-
undur margra snjallra nýyrða sem
hafa fyrir löngu unnið sér fastan sess
í málinu. Góður fengur hefði einnig
verið að ritaskrá Guðmundar.
Allur frágangur þessarar bókar er
smekklegur. Hún er fallega prentuð
og prýdd fjölda skemmtilegra ljós-
mynda. Eini gallinn er að bókarkápan
er, að mínu viti, frámunalega illa
heppnuð og lítt til þess fallin að vekja
áhuga á bókinni.
Saga sálfræðings
BÆKUR
Ævisaga
Eftir Jörgen L. Pind. Hið íslenska bók-
menntafélag, Reykjavík 2006. 474 bls.
Frá sál til sálar. Ævi og verk Guðmundar
Finnbogasonar sálfræðings
Jón Þ. Þór