Morgunblaðið - 22.01.2007, Page 40
40 MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
/ KEFLAVÍK
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 8 - 10:15 LEYFÐ
THE PRESTIGE kl. 10:15 B.i. 12 ára
KÖLD SLÓÐ kl. 8 B.i. 12 ára
/ AKUREYRI
BABEL kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
THE PRESTIGE kl. 8 B.i. 12 ára
CHILDREN OF MEN kl. 10:20 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:40 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
FORELDRAR kl. 6 - 8 - 10
BABEL kl. 6 - 9 - 10:30 B.i. 16 ára
THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
CHILDREN OF MEN kl. 5:50 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 - 8 B.i. 16 ára
THE DEPARTED kl. 10:30 B.i. 16 ára
THE HOLIDAY kl. 8 B.i. 7 ára
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 ára
Með stórstjörnunum BRAD PITT og CATE BLANCHETT.
Frá leikstjóra AMORES PERROS og 21 GRAMS
eeee
- LIB, TOPP5.IS
eeee
- PANAMA.IS
eeee
- FRÉTTABLAÐIÐ
EF ÞÚ VILT FÁ
ÞARFTU AÐ
HLUSTA
SKILNING…
GOLDEN GLOBE
BESTA MYND ÁRSINS
ÁHORFENDAVERÐLAUNIN Á CANNES.
LEIKSTJÓRAVERÐLAUNIN Á CANNES.FORELDRARKVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
6 TILNEFNINGAR
TIL BAFTA VERÐLAUNA.
1000
KR.
MIÐAV
ERÐ
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
GERÐU VERÐLAUNA-
MYNDINA BÖRN
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Strætó á Hlemmi
ÉG fer stundum í strætó stutta leið,
eða frá Hlemmi og niður Hverfisgöt-
una að Þjóðleikhúsinu. Í raun á ég
um 8 vagna að velja. Það er æðislegt
að þurfa nánast ekkert að bíða eftir
vagni vegna þess að þótt hver og einn
fari á 20 mínútna fresti þá er í mesta
lagi 10 mínútna bið eftir að næsti
vagn fari frá Hlemmi.
Þegar ég kem hins vegar gangandi
heiman frá mér niður á Hlemm blasa
við mér stundum 2–4 strætisvagnar
sem ég get tekið. Þá kemur vandinn,
hvaða vagn fer næst af þessum
þremur? Á meðan ég hleyp til að ná í
S1 sem er við skýlið næst umferða-
ljósunum við Snorrabraut þá fer S3
af stað en hann vísar í gagnstæða átt
eins og hann ætli í austurátt í borg-
inni en ekki vestur. Allt í einu upp-
götva ég að það er enginn bílstjóri í
S1 og að sá vagn er ekkert að fara
fyrr en kannski 15 mínútum seinna.
S3 keyrir nú fram hjá mér hvernig
sem ég veifa við umferðaljósin eftir
að hann er búinn að keyra hringinn í
kringum bygginguna á Hlemmi og
ætlaði þá aldrei í austurátt nema
bara í þykjustunni. Þetta gæti líka al-
veg eins verið S4, S5 eða S6.
Með reynslunni hef ég fundið út að
nr. 11, 12 og 13 stoppa á Hlemmi og
fara allir strax af stað án nokkurra
tafa, en S-vagnarnir eru þessir óút-
reiknanlegu af því að hjá þeim er
Hlemmur endastöð. Vitanlega gæti
maður farið fyrst inn í miðstöðina á
Hlemmi og spurt hvaða vagn fer
næst, en það tekur sinn tíma.
Væri ekki betra að allir S-
vagnarnir stoppuðu við biðskýlið á
Snorrabrautarhorninu sem vísar í
vesturátt en bílarnir sem eru í langri
biðstöðu, bílstjóralausir, gætu þá all-
ir snúið í austurátt þangað til kemur
að því að síga af stað.
Ímyndum okkur manneskju sem
er orðin hægfara, t.d svona 75–80
ára. Þá skiptir það ennþá meira máli
að þurfa ekki að hlaupa svona út um
allan Hlemm í leit að strætó sem fer
niður Hverfisgötuna.
Norðurmýrarbúi.
Jólagjöfin sem aldrei barst
MÉR heyrist á viðskiptavinum
Kaupþings að meira hafi mátt hlæja
að jólagjöfinni sem bankinn sendi
„sumum“ viðskiptavinum sínum en
jafnvel að Áramótaskaupinu sem
fæstum fannst lítið fyndið að þessu
sinni.
Þar sem ég er viðskipavinur Kaup-
þings þá þykir mér mjög miður að
hafa ekki fengið þessa spreng-
hlægilegu gjöf frá þeim og get því
ekki tjáð mig um það hvort þarna sé
um að ræða brauðpoka, höfuðklút
eða bara afþurrkunarklút. Mér heyr-
ist á fólki sem fékk þessa sér-
kennilegu jólagjöf að það sé algjört
túlkunaratriði um hvað sé að ræða og
hefur hver sína sýn á það. Það er nú
einmitt það sem gerir þennan tor-
kennilega hlut greinilega svo spenn-
andi.
Þess vegna vil ég hér með kvarta
yfir því að hafa verið skilinn út undan
og geta þar af leiðandi hvorki tekið
þátt í umræðunni, né boðið gestum
upp á þessa spennandi gestaþraut.
Stefán Guðmundsson.
velvakandi
Svarað í síma 569 1100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90 ára af-mæli. Í
dag, 22. janúar,
er níræður Pét-
ur Sigurðsson,
fyrrverandi
fram-
kvæmdastjóri
Hraðfrystihúss
Breiðdælinga,
Breiðdalsvík.
70 ára af-mæli. Í
dag, 22. janúar,
er sjötugur Páll
Jóhann Ein-
arsson (Palli
flug). Í tilefni
þessara tíma-
móta tekur Palli
á móti fjöl-
skyldu, vinum
og velunnurum í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju laugardaginn 27. janúar kl.
15–19.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynn-
ingar um afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum sínum
að kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnudags-
og mánudagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma 569 1100
eða sent póst á netfangið ritstjorn-
@mbl.is.
Hægt er að senda tilkynningar í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins,
mbl.is. Þar er smellt á reitinn
Senda efni til Morgunblaðsins, og
þá birtist valkosturinn Árnað
heilla ásamt frekari upplýsingum.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Víkverji hvetur fólktil að gleyma ekki
fuglunum nú þegar
þeir þreyja þorrann í
vetrarhörkum og jarð-
bönnum. Víkverji er
svo heppinn að vera
með garð og hefur
mikla ánægju af því að
fylgjast með smáfugl-
unum sem sækja í tré
beint fyrir framan
stofugluggann. Fugl-
unum stórfjölgaði þeg-
ar Víkverji byrjaði að
gefa þeim reglulega
fyrr í vetur og nú er
svo komið að hann
getur verið viss um að
sjá stóran hóp fugla gæða sér á
fóðrinu með tilheyrandi tísti og
söng í hvert sinn sem hann horfir út
í garðinn.
Þar eru aðallega auðnutittlingar,
starar og þrestir. Víkverji hefur
miklar mætur á auðnutittlingnum,
sem er sérlega fagur fugl, en hljóðin
í staranum láta best í eyrum.
x x x
Víkverji vill laða fleiri tegundirað garðinum og kappkostar því
að hafa matseðilinn sem fjölbreytt-
astan.
Auðnutittlingarnir eru sólgnir í
finku- og gárafræ og sækja einnig í
hirsistöngla sem ætl-
aðir eru búrfuglum.
Víkverja hefur gefist
vel að hengja fóð-
urbolta upp á trén,
setti til að mynda stór-
an og girnilegan fitu-
bolta um tvo metra frá
stofuglugganum.
Auðnutittlingarnir
kippa sér ekkert upp
við það þótt furðufugl-
inn Víkverji standi svo
nálægt þeim og dáist
að þeim.
Þrestir hafa góða
lyst á eplum og þau
eru líka tilvalin til að
laða að gráþresti,
svartþresti og jafnvel silkitoppur
þegar þær flækjast hingað til lands.
Fita er ein besta fæðan handa
fuglunum, enda þurfa þeir mikla
orku til að halda á sér hita í frost-
hörkum. Þess vegna er tilvalið að
gefa þeim tólg, kjötsag, flot, mör,
kjötafganga, osta, hangiflot og ann-
að feitt lostæti.
Aðrir matarafgangar, til að
mynda brauð og kökur, eru líka vin-
sælir, sérstaklega hjá störum sem
eru alætur, eins og fram kemur í
fróðlegri grein um vetrarfóðrun
fugla eftir Jóhann Óla Hilmarsson á
vef Fuglaverndarfélags Íslands,
www. fuglavernd.is.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er mánudagur
22. janúar, 22. dagur
ársins 2007
Orð dagsins: Því hungraður var ég, en þér gáfuð
mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér
ekki að drekka. (Mt. 25, 42.)
Dóttir Krókódíla-Steves, BindiIrwin, ætlar að feta í fótspor
föður síns og kynna umheiminum
töfra náttúrulífs. Bindi og móðir
hennar eru um þessar mundir á ferð
um Bandaríkin í því skyni að kynna
tilvonandi náttúrulífsþátt Bindi, en
fimm mánuðir eru síðan Steve Irwin
lést eftir að gaddaskata stakk hann í
hjartað. Móðir Bindi, Terri, sagði að
strax eftir dauða eiginmanns síns
hefði Bindi sagt sér að hún óskaði
einskis heitar en að byrja að búa til
sína eigin náttúrulífsþætti eins fljótt
og auðið væri.
„Hver og einn tekst á við sorgina
á sinn hátt,“ sagði Terri með dóttur
sína sér við hlið. „Það hefur verið
mikil hjálp fyrir okkur sem aðra að
halda áfram og geta um leið sagt að
það sem Steve gerði hafi verið ein-
hvers virði.“
Glaðbeitt lýsti Bindi nokkrum al-
ræmdum dýrum sem „svo sætum og
blíðum“. Hún lofaði m.a. krókódíla
fyrir að vera „svo frábærar mæður“
og sagði snáka „einfaldlega frá-
bæra“. Beðin um að bera saman eitr-
aða snáka og fréttamenn sagði
Bindi: „Ég held virkilega að ég
kunni vel við eitraða snáka.“ Upp-
skar hún mikil hlátrasköll.
Átján ára gamall piltur hefur ver-ið dæmdur í fjögurra ára fang-
lesi fyrir að sitja um söng- og leik-
konuna Hilary Duff auk þess sem
hann fékk fimm ára skilorðsbundinn
dóm.
Maksim Myaskovskiy var hand-
tekinn í nóvember sl. eftir að sjálf-
stæður rannsakandi í vinnu fyrir
hina nítján ára gömlu Duff staðfesti
að pilturinn hefði hótað að drepa
leikkonuna. Um
mánuði fyrr
höfðu Duff og þá-
verandi kærasti
hennar, rokk-
arinn Joel Mad-
den, krafist nálg-
unarbanns á
Maksim og her-
bergisfélaga
hans.
Duff varð fræg fyrir að leika í
Disney-þáttaröðinni Lizzie
McGuire. Auk þess að leika í mynd-
um hefur hún verið ofarlega á
bandarískum poppvinsældalistum.
Grínmyndin Little Miss Sunshine,sem sýnd er í íslenskum kvik-
myndahúsum um þessar mundir,
var óvænt valin besta kvikmynd árs-
ins af Samtökum bandarískra sjón-
varps- og kvikmyndaframleiðenda.
Valið var tilkynnt við hátíðlega at-
höfn í Hollywood á laugardaginn og
kom það nokkuð á óvart að þessa til-
Fólk folk@mbl.is