Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 1

Morgunblaðið - 01.06.2007, Side 1
föstudagur 1. 6. 2007 bílar mbl.isbílar Ferrari lofar sigri í Kanadakappakstrinum í Montreal næstu helgi » 7 FRÁBÆR TILFINNING LÚXUSJEPPINN AUDI Q7 ER JEPPI SEM FULLNÆGIR ÞEIM ALLRA KRÖFUHÖRÐUSTU » 2 BÍLAFRAMLEIÐSLA jókst um 6,3% í Japan á síð- asta ári og með því tóku Japanir í fyrsta sinn við hlut- verki Bandaríkjanna sem mesta bílaframleiðsluland heims. Alls voru smíðaðar 11,43 milljónir farartækja af öllum gerðum í Japan árið 2006, miðað við 11,26 milljónir í Bandaríkjunum. Þar í landi dróst fram- leiðsla saman um 5,6% í fyrra á sama tíma og hún jókst í Japan. Samkvæmt upplýsingum heimssambands bíla- framleiðenda, Organisation des Constructeurs d’Automobiles (OICA), sem er með aðsetur í París, er framleiðsla í bílsmiðjum japanskra, kóreskra og evr- ópskra fyrirtækja í Bandaríkjunum taldar með í töl- um yfir bandaríska bílaframleiðslu. Þannig nemur bílasmíði erlendra bílafyrirtækja í Bandaríkjunum um þriðjungi af þarlendri bílafram- leiðslu. Og útlit er fyrir að það hlutfall eigi eftir að hækka á næstu árum. Þá tók Kína í fyrra við af Þýskalandi sem þriðja mesta bílaframleiðsluland heims með 6,75 milljónir bíla. Jókst smíðin þar um eina milljón bíla milli ára. Í Þýskalandi stóð framleiðslan í stað, 5,8 milljónir bíla. Af öðrum Evrópuríkjum voru smíðaðar 3,17 milljónir bíla í Frakklandi 2006 en var 3,54 árið áður og á Spáni 2,75 milljónir bíla sem er sama framleiðsla og 2005. Bílsmíði í Bretlandi dróst saman um 8,6% árið 2006, eða sem svarar 154.721 bíl og nam 1,65 millj- ónum bíla. Alls nam velta bílsmiða í ríkjunum 40, sem eiga að- ild að OICA, um 2.000 milljörðum evra. Jafngildir það sjötta stærsta hagkerfi heims. Reuters Japan mesta bílaframleiðslu- land heims FYRSTU sportbílarnir af gerðinni MG TF rúll- uðu af færiböndum MG Rover-verksmiðjunnar í Birmingham á þriðjudaginn var. Verk- smiðjan hefur ekki verið í notkun síðan MG varð gjaldþrota árið 2005. Misstu þá yfir 6.000 manns vinnu sína í Birmingham. Kínverski bílaframleiðandinn Nanjing Automotives keypti þá fyrirtækið og hóf framleiðslu MG- bíla upp á nýtt. Mikil eftirvænting hefur ríkt vegna opnunar verksmiðjunnar en MG Rover voru á meðal stærstu ensku bílaframleiðend- anna. Reuters Fyrstu MG TF-sport- bílarnir renna úr hlaði                           !!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.