Morgunblaðið - 01.06.2007, Page 2

Morgunblaðið - 01.06.2007, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ bílar NÝVERIÐ kynnti Hekla nýjustu kynslóð Q7 lúxusjeppans frá Audi. Um er að ræða bifreið fyrir þá allra kröfuhörðustu enda er vandað til verka allt niður í minnstu smá- atriði. Bíllinn sem prófaður var er með 4,2 lítra V8 quattro dísilvélinni sem er með beinni FSI-innspýtingu, skilar 350 hestöflum og togar að hámarki 440 Newton-metra. Þá er vélin búin sex gíra tiptronic-sjálf- skiptingu. Bíllinn var prófaður í þrjá daga og á þeim tíma var töluvert ekið innan höfuðborgarsvæðisins, en einnig austur yfir fjall. Engir lyklar Það fyrsta sem maður tekur eftir varðandi Audi Q7 er hversu gæða- legur hann er að öllu leyti. Þegar komið er að bílnum þarf ekki að taka lykilinn upp úr vas- anum því skynjarar í hurðinni „vita“ að viðkomandi er með lykla- völdin. Þá þarf ekki heldur að nota lykilinn til að setja bílinn í gang því hann er búinn sérstökum ræsi- hnappi líkt og margir bílar í þess- um gæðaflokki. Loks þarf ekki að nota lykilinn til að læsa bílnum, nóg er að styðja á hnapp á hand- fanginu. Einhverjir hugsa kannski með sér að þetta sé búnaður fyrir letingja og trúlega er eitthvað til í því. Það er hins vegar óneitanlega þægilegt að þurfa aldrei að leita að lyklinum í vösunum, svo ekki sé talað um þegar maður hefur báðar hendur fullar. Margir möguleikar Í stuttu máli er frábær tilfinning að keyra Audi Q7. Þrátt fyrir að um jeppa sé að ræða hefur hann klárlega aksturseiginleika sport- bíls. Krafturinn og snerpan eins og best verður á kosið, 350 hestöfl og 7,4 sekúndur að koma sér upp í 100 kílómetra hraða. Bíllinn er búinn sex gíra tiptronic-sjálfskipt- ingu sem er rennileg og mjúk og maður tekur nánast ekki eftir því þegar skipt er á milli gíra. Rými í bílnum er sérstaklega gott og geta sjö farþegar setið í honum í þremur sætaröðum. Hægt er að leggja báðar aftari sætaraðirnar flatar niður og fá þannig 2.035 lítra farangursrými, án þess að fjarlægja sætin. Séu fimm sæti í notkun er farang- ursrýmið 775 lítrar. Alls er hægt að raða sætum og hleðslurými upp á 28 mismunandi vegu, en það verður þó að viðurkennast að und- irritaður prófaði ekki allar þær leiðir. Hækkað og lækkað Í miðju mælaborðs er stór og góður skjár sem sýnir allar aðgerð- ir sem framkvæmdar eru. Þá sér ökumaður aftur fyrir bílinn þegar sett er í bakkgír, en bíllinn er bú- inn myndavél að aftan sem kemur sér ákaflega vel þegar bakkað er. Hægt er að hækka og lækka bíl- inn með einföldum hætti, og getur hann verið allt frá 180 til 240 milli- metra frá jörðu, þannig að bíllinn kemst yfir mjög háar ójöfnur. Þá er skottsyllan með þægileg- um útbúnaði, en hægt er að lækka hana til að setja þunga hluti áreynslulaust inn í farangursrýmið. Bíllinn er búinn 270 vatta hljóð- kerfi frá Bose með 14 hátölurum, og skilaði það frábærum hljómi, Stórkostlegur lúxusjeppi REYNSLUAKSTUR Audi Q7 Jóhann Bjarni Kolbeinsson Morgunblaðið/Eyþór Voldugur Þrátt fyrir að vera stór og mikill er Audi Q7 mjúkur og þægilegur í akstri. Gírar Sex gíra tiptronic-skipting. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA „HveR nenniR að Hanga Í bænUM á SUMRin?“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.