Morgunblaðið - 01.06.2007, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 01.06.2007, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 3 bæði á píanósónötum Beethovens og Volta, nýjustu plötu Bjarkar. Gera mætti langan lista yfir all- an þann búnað sem Audi Q7 býður upp á en ekki gefst pláss til þess hér. Áhugasömum er bent á grein- argóða lýsingu á audi.is. Vekur athygli Varla er hægt að setja út á nokkuð varðandi Audi Q7, þótt bíllinn sé auðvitað ekki fullkominn. Svolítið flókið er að læra á alla takkana, en það kemur eflaust fljótt. Bíllinn er mjög langur, 5086 mm, sem veldur því að erfitt getur reynst að leggja honum í stæði í miðbæ Reykjavíkur. Að vísu hjálp- uðu bæði fjarlægðarskynjarar og bakkmyndavél mikið til við það. Sjónsvið úr baksýnisspegli er fremur lítið, en stórir hliðarspegl- ar vega þó vel upp á móti því. Þá þykir undirrituðum bíllinn ekkert sérlega fallegur, og helst til klossaður að framan. Það breytti þó ekki því að horft var á eftir bíln- um hvar sem honum var reynslu- ekið. Loks eyðir bíllinn töluverðu, 13,6 lítrum á hverja 100 kílómetra í blönduðum akstri, enda er bíllinn bæði stór og þungur. Verð prófunarbíls er 12.528.000 en einnig er hægt að fá Audi Q7 með 3.0 TDI sex strokka dísilvél sem skilar alls 233 hestöflum og togi sem nemur 500 Newton-metr- um. Sá bíll kostar 7.990.000. Í stuttu máli er Audi Q7 stór- kostlegur lúxusjeppi og þótt hann sé nokkuð dýr fæst mikið fyrir peningana. Flott Aðstaða ökumanns er til fyrirmyndar og skjár er í miðju mælaborðs. Afl Audi Q7 ber það með sér að vera mjög kraftmikill bíll. Rúmgóður Farangursrýmið er stórt en þar eru einnig sæti fyrir tvo farþega. jbk@mbl.is Vél: 4,2 lítra V8-dísilvél Hámarksafl: 350-440 Nm Snerpa: 7,4 sek. upp í 100 km/klst. Eldsneytisnotkun: 13,6 l/100 km í blönduðum akstri Stærð: L: 5.086 mm. B: 1.983 mm. H: 1.737mm Eigin þyngd: 2.240 kg Staðalbúnaður: 6 örygg- ispúðar, ABS-bremsukerfi, aksturstölva, Bi-Xenon aðalljós með þvottasp- rautum, Bluetooth- handfrjáls símabúnaður, Cricket-leðuráklæði, ESP- stöðugleikastýring með spólvörn og spyrnustýr- ingu, fjarlægðarskynjari í stuðurum (hljóðrænn/ sjónrænn), loftkældar diskabremsur að framan og aftan, rafdrifin fram- sæti með mjóbaksstuðn- ingi, rafdrifnir og upphit- aðir útispeglar, regn- skynjari fyrir framrúðu- þurrkur, skyggðar afturrúður, tímastillt um- hverfislýsing, útvarp og geisladiskamagasín, velti- og aðdráttarstýri o.fl. Verð: Frá 7.990.000 kr. Umboð: Hekla Audi Q7 Forester 2.590.000,- Forester PLUS 2.890.000,- Forester LUX 3.190.000,- Subaru Forester sameinar það besta úr fólksbíl og jeppa. Hann er lipur í akstri eins og fólksbíll en hefur dráttar- og drifkraft á við marga stærri jeppa. „Mér finnst stundum eins og ég sé á tveimur bílum. Ég kemst í þröng stæði innanbæjar en dríf síðan í torfærum á landsbyggðinni eins og ekkert sé.“ Forester liggur mjög vel á veginum en er samt með mun meiri veghæð en aðrir jepplingar. Hann er á svipuðu verði og venjulegur fólksbíll þrátt fyrir að vera með 158 hestafla vél, sem er mun meiri kraftur en í mörgum stærri jeppum. „Maður er orðinn of góðu vanur á Forester. Það er í raun ótrúlegt hvað maður fær rosalega mikið fyrir lítið.“ Subaru hefur verið seldur á Íslandi í yfir 30 ár. Reynslan af bílnum við þær erfiðu og óvenjulegu aðstæður sem hér eru hefur gert Subaru að samnefnara fyrir endingu, hörku og úthald. Raunar er hvergi selt meira af Subaru miðað við höfðatölu en einmitt á Íslandi. Það ætti enginn að kaupa sér bíl án þess að koma fyrst og reynsluaka Subaru. Spyrðu bara Subarueigendur. Þeir vita af hverju Subaru eru sennilega gáfulegustu bílakaup sem þú gerir: „Hey, þetta er Ísland!“ Opið: Mán. 10 - 18, þri.-fös. 9 - 18, lau. 12 - 16.Sævarhöfða 2 Sími 525-8000 Akureyri 464-7940 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Umboðsmenn um land allt 200.000 kr. ferðapakki fylgir öllum nýjum Forester. innifalið: Upphækkun, heilsársdekk og dráttarbeisli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.