Morgunblaðið - 01.06.2007, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Jeep Grand Cherokee Limited,
árg. 1994, ek.149 þús. km.
Verð 570 þús. kr.
MMC Galant ES V6,
árg. 2003, ek. 50 þús. km.
Verð 2190 þús. kr.
Renault Clio RT H/B,
árg. 2000, ek. 75 þús. km.
Verð 550 þús. kr.
Suzuki GSX-R,
árg. 2006, ek. 2 þús. km.
Verð 1200 þús. kr, áhv. 750 þús. kr.
Toyota Avensis,
árg. 2006, ek. 21 þús. km, disel.
Verð 2890 þús. kr.
Yamaha TDM 900,
árg. 2002, ek.10 þús. km.
Verð 850 þús. kr.
Kawasaki ZX6R Ninja,
árg. 2006, ek. 0. km.
Verð 1180 þús. kr.
Renault Megane Berline RT H/B,
árg. 1996, ek.143 þús. km.
Verð 250 þús. kr.
MMC Pajero 3200 GLS DIESEL
32” Antera, árg. 2003, ek.115 þús.
Áhv. 2969 þús.kr.
Jeep Grand Cherokee Laredo 2,7 DÍSEL,
árg. 2003, ek. 90 þús. km.
Verð 2890 þús. kr.
Funahöfða 1 • Opið virka daga kl. 10-18:30 og laugardaga kl. 12-16
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
Toyota Land Cruiser 120 GX 33”
(110156) 5/2005, ekinn 65 þús km,
ný breyttur 33”, vindskeið, filmur ofl.
Ásett verð 4,790 þús.
Toyota Land Cruiser 120 GX 33”
(190990) 4/2003, ekinn 97 þús km,
33” breyttur, dráttarkrókur, ofl.
Ásett verð 3,750 þús.
Toyota Hilux 3.0L D/C 35” (210992)
3/2007, ekinn 2 þús km, sjálfskiptur,
35” breyttur, leður, græjur og dvd,
xenon ofl. Ásett verð 5,290 þús.
TILBOÐ 4,950 þús.
Toyota Hilux 3.0L D/C (191014)
2/2007, ekinn 13 þús km, sjálfsk.,
17” land cruiser felgur, dráttarkrókur,
klæddur pallur, ofl.
Ásett verð 3,790 þús.
Ford F350 King Ranch (110277) 2007,
ekinn 17 þús km, leður, topplúga,
krómpakki, dráttarkrókur, VSK bíll, ofl.
Ásett verð 4,890 þús.
Ford F150 Lariat Super Crew (118910)
1/2005, ekinn 63 þús km, leður,
topplúga, klæddur pallur, lok á palli, ofl.
Ásett verð 3,290 þús.
Chevrolet Camaro Z28 Convertible
(133960) 2002, ekinn 67 þús mílur, 18”
ZR1 felgur, leður, rafmagn í öllu, ofl.
Geggjað flottur blæjubíll fyrir sumarið.
Ásett verð 3,380 þús.
Toyota Corolla H/B Sol (133780)
11/2003, ekinn 41 þús km, sjálfskiptur,
álfelgur, vindskeið, ofl.
Ásett verð 1,560 þús.
480 8000 480 8000
SELFOSSI
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
Frakkar búa yfir þó nokkurri
reynslu af því að nota heitt loft til að
knýja farartæki en hinir frönsku
Montgolfier-bræður voru þeir
fyrstu til að svífa um heiðbláan him-
ininn, þegar árið 1783, í bastkörfu
sem var borin af stórum belg úr
klæði og var belgurinn fylltur með
heitu lofti. Nú ber hinsvegar svo við
að um er að ræða bíl, sem einhvern
tímann hefði þótt afar fjarstæðu-
kennt, líkt og að knýja bíl áfram
með vatni – en þó er hvort tveggja
mögulegt í dag.
Útfærsla hugmyndarinnar hefur
verið lengi í þróun því það eru 14 ár
síðan Frakkinn Guy Negre byrjaði
að fikta við vélar og loft með það að
markmiði að geta knúið bíl áfram,
eingöngu með lofti í innanbæjar-
akstri, en geta svo gripið til hefð-
bundins eldsneytis þegar þörf er á
meira afli, til dæmis á þjóðvegum
þar sem hraðinn er meiri.
Tvær vélar í boði
MDI heitir franska fyrirtæki Guy
Negre og hefur það þróað tvær vél-
ar, eina sem eingöngu er ætluð til
notkunar innanbæjar, þar sem ekki
er þörf á meiri hraða en 50 km/klst.
og gengur hún eingöngu fyrir þjöpp-
uðu lofti.
Hinsvegar hefur MDI þróað
tvinnvél, sem notar þjappað loft upp
að 50 km/klst. en eftir það brennir
vélin bensíni, gasolíu, dísil, lífrænu
eldsneyti, gasi eða alkóhóli – eða
nánast hverju því sem finnst.
Bílarnir eru á margan hátt óhefð-
bundnir og mjög sniðugir enda hafa
allar venjur – sem margir aðrir bíla-
framleiðendur eru sjálfviljugir
beygðir undir – verið látnar lönd og
leið. Bílarnir eru þannig í senn fis-
léttir, rúmgóðir, með stórt farang-
ursrými, geta náð 220 km/klst. með
tvinnvélinni og eru jafnframt ofur
hljóðlátir enda ekki mikill hávaði í
vélinni sem er knúin af lofti. Eini
mínusinn er útlit bílsins en vel er
hægt að láta það sér í léttu rúmi
liggja þegar hið göfuga eðli bílsins
er haft í huga. Hægt er að aka 200-
300 kílómetra á einni áfyllingu af
lofti, nokkuð sem er meira en nóg til
að dekka innanbæjarakstur þess
hóps sem bílnum er beint að. Það
tekur svo um 4 tíma að hlaða bílinn
með því að tengja hann við rafmagn
og er þá eini eldsneytiskostnaður
bílsins sá kostnaður sem verður til
við hleðslu hans en í Frakklandi er
sá kostnaður um 80 krónur fyrir
fyllinguna. Einnig er mögulegt að
fylla bílinn af lofti með háþrýstidæl-
um og þá tekur aðeins um 3 mínútur
að fylla bílinn af lofti. Það er þó
nokkru dýrara en að nota heimilis-
rafmagnið sem í Frakklandi er tíu
sinnum ódýrara en það kostar að
reka bílinn á bensíni. Með háþrýsti-
dælunni er samt þrisvar sinnum
ódýrara að reka bílinn en ef bensín
væri notað.
Skemmtileg aukaafurð, ef svo
mætti segja, er útblástur bílsins en
hann 0-15 gráða heitur og því er
hægt að nota útblástur bílsins í loft-
kælingu hans.
Olíuskipti með matarolíu
Það eru fleiri kostir sem fylgja
MDI-bílunum. Í þeim bílum þar sem
vélin gengur eingöngu fyrir lofti þá
er enginn bruni í vélinni og það þýð-
ir að eingöngu þarf að skipta um olíu
á 50 þúsund kílómetra fresti, og það
er gert með einum lítra af matarolíu.
Því miður er ekki ennþá vitað
hvað bílarnir kosta en ljóst er að
þeir ættu í það minnsta ekki að falla
undir hefðbundin innflutningsgjöld
þar sem þeir nota ekki bruna til að
knýja sig áfram. Til viðbótar eru bíl-
arnir mjög léttir og eins og áður hef-
ur komið fram, mengunarlausir.
Ekki bara
loftbóla
TENGLAR
..............................................
http://www.theaircar.com
Mengunarlaus Leigubíll sem mengar ekki hlýtur að vera fýsilegur kostur fyrir flestar borgir en slíkur bíll er
loksins í boði eftir að Frökkum tókst að nýta loft til þess að knýja bíla áfram.
Loftpressa Vélin í bílnum er í raun
tveggja strokka vél sem nýtir loft
undir miklu þrýstingi til þess að
hreyfa stimpla vélarinnar. Vélin er
einföld í smíði og því er hægt að
skeyta saman tveimur til þremur
vélum, allt eftir því hvað kaupand-
inn vill fá öfluga vél.
Fjallað hefur verið um Peking-
Parísar kappaksturinn, hinn goð-
sögulega kappakstur sem fór fyrst
fram fyrir hundrað árum, en hann
var endurtekinn nú á dögunum þar
sem 260 ökuþórar frá 25 löndum
lögðu upp frá Peking á 130 forn-
bílum og munu keyra þvert yfir As-
íu í tilefni af aldarafmæli kappakst-
ursins. Fjöldi keppenda hefur
aukist töluvert en upphaflega
kepptu eingöngu fimm bílar.
Ítalski prinsinn Scipione Borg-
hese sigraði með yfirburðum en bíll
hans var mikið tækniundur á sínum
tíma – af gerðinni Itala og var með
40 hestafla vél. Borghese var furðu
fljótur þessa löngu leið en hann var
62 daga á leiðinni og hafði þó tekið
á sig krók til St. Pétursborgar til að
komast á dansleik. Að leiðarlokum
hafði Borghese ekið hvorki meira
né minna en 16 þúsund kílómetra í
túrnum. Um það bil þremur vikum
seinna komu hinir þrír keppnisbíl-
arnir loks í mark.
Á myndinni hér að ofan má sjá
einn keppendanna við rætur Kína-
múrsins þegar kappaksturinn var
ræstur á þriðjudaginn sl.
Reuters
Frá Peking
til Parísar
Fréttir á SMS