Morgunblaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MIKIÐ líf hefur verið í sjónum við
Grímsey og norður fyrir Kolbeinsey
í sumar. Aflabrögð hafa verið með
ágætum og mikið um fugl og hval.
„Ég hef ekki sé svona mikið líf hérna
við eyna í 12 til 15 ár. Það er mikill
fiskur, miklar breiður af smáloðnu
sem hvalur og fugl liggur í,“ segir
Gylfi Gunnarsson, útgerðarmaður
og fiskverkandi í Grímsey.
Gylfi og áhöfn hans hafa verið að
róa á Þorleifi EA en auk hans gerir
fyrirtækið Sigurbjörn ehf. út bátana
Konráð og Nunna. „Við höfum verið
að sækja aðeins norður fyrir Kol-
beinsey, fimm, sex mílur, en end-
uðum svo hérna heima við eyna í
góðu fiskiríi. Þetta var rígafiskur og
góður miðað við árstíma. Vetr-
arvertíðin var hins vegar léleg. Lítið
af fiski og þurfti mjög djúpt til að
sækja hann. Hins vegar hefur þetta
verið óvenju gott í sumar og við er-
um búnir að taka upp netin í góðum
afla vegna kvótaleysis.
Það er búið að vera mikið líf í sjón-
um í sumar. Mikið um loðnu og fugl
og reyndar bara mjög líflegt. Það er
loðna hér frá eynni og fram yfir Kol-
beinsey, mikið af smáloðnu. Það er
svo mikið af hval í þessu. Ég hef ekki
séð svona mikið líf mjög lengi,
ábyggilega 12 til 15 ár, og svona
mikið af fugli. Fiskurinn er vel hald-
inn, sérstaklega þarna frammi við
Stein, eins og við köllum Kolbeins-
eyna. Svo höfum við séð dálítið af
ánetjaðri síld síðustu róðrana.
Við vorum að taka frá þremur upp
í sjö tonn í róðri og vorum ekki með
nema 70 til 80 net. Það hefði verið
allt í lagi eiga svolítið meiri kvóta,“
segir Gylfi.
Keyptur kvóti nýtist ekki
Gylfi keypti nýlega kvóta frá Flat-
eyri, 160 til 170 þorskígildistonn,
fyrir 480 milljónir. Hann horfir hins
vegar fram á það að sá kvóti nýtist
honum ekkert á næsta fiskveiðiári
vegna 30% niðurskurðar á þorsk-
veiðiheimildum.
„Ég missi eitthvað á þriðja hundr-
að tonn af þorski á næsta fiskveiðiári
af bátunum okkar. Ég er ekki viss
um að allar stéttir létu bjóða sér
þetta. Þetta er sennilega tekjuskerð-
ing fyrir mannskapinn hjá mér um
tvær milljónir. Ég er ekki farinn að
sjá að blaðamenn eða kennarar létu
sér svona lynda athugasemdalaust.
En það á víst að byggja fræðslusetur
á Hólum og malbika vegarspotta
vestur í Kerlingarfirði. Það bætir
þetta allt saman upp. Bjargar okkur
alveg.“
Sigurbjörn ehf. rekur einu fisk-
verkunina í Grímsey en þar er salt-
aður þorskur og ufsi. Aðrar fiskteg-
undir fara á markað inni á Dalvík.
Mikið af karfa við Kolbeinsey
Gylfi segir að það hafi verið leið-
inlegt að vinna þetta við Kolbeinsey
að undanförnu. Það sé svo mikið af
karfa á slóðinni, allt upp í þrjú og
hálft tonn í róðri, reyndar af stórum
og fallegum karfa. Það sé alltaf karfi
þarna á þessum árstíma og þeir séu
búnir að fá 54 tonn af karfa á árinu.
„Vonandi fer þetta allt á uppleið
núna. Ég var nú eiginlega bara
hlynntur því að farið yrði eftir ráð-
leggingum Hafró. Hver á að vita
þetta betur en þeir? Ég vil að farið
verði að ráðleggingum þeirra næstu
fjögur, fimm árin, þannig að þeir
geti ekki skýlt sér á bakvið einhverja
aðra. Ef það skilar ekki árangri er
alveg eins gott að loka þessari stofn-
un. Þá verður bara sitjandi sjáv-
arútvegsráðherra að ákveða þetta í
samráði við einhverja sjómenn. Það
er hins vegar ljóst að það verður erf-
itt að þrauka næsta árið. Við erum
líka svolítið bundnir af verkuninni og
starfsfólkinu þar,“ segir Gylfi Gunn-
arsson.
Mikið um hval, fugl, fisk og loðnu á svæðinu milli Grímseyjar og Kolbeinseyjar
Morgunblaðið/Helga Mattína
Sjósókn Þeir á Þorleifi hafa gert það gott í sumar. Hér eru þeir Alfreð, Bjarni, Gunnar og Gylfi skipstjóri.
Langt síðan
ég hef séð
svona mikið líf
Gylfi Gunnarsson á Þorleifi EA hefur verið að
gera það gott í netin í sumar. Hjörtur Gíslason
ræddi við Gylfa um aflabrögð og lífið í sjónum,
sem er meira en mörg undanfarin sumur
hjgi@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Gylfi keypti nýlega kvótafrá Flateyri, 160 til 170
þorskígildistonn, fyrir 480
millj. Hann horfir samt fram á
það að sá kvóti nýtist honum
ekki á næsta fiskveiðiári
vegna 30% niðurskurðar á
þorskveiðiheimildum.
»Ég missi eitthvað á þriðjahundrað tonn af þorski á
næsta fiskveiðiári af bátunum
okkar. Ég er ekki viss um að
allar stéttir létu bjóða sér
þetta
»Ég vil að farið verði aðráðleggingum þeirra
næstu fjögur, fimm árin, þann-
ig að þeir geti ekki skýlt sér á
bakvið einhverja aðra
ustukjarna, samanber þann sem er
að finna í Glæsibæ, það er stutt í
heilsugæslu og fallegar gönguleið-
ir,“ segir Sigursteinn og bendir á að
nýja tillagan sé ákveðin málamiðlun
til að koma til móts við óskir og
AUGLÝST hefur verið ný tillaga að
breytingu á deiliskipulagi fyrir aust-
anverðan Laugardal vegna nýrrar
lóðar við Holtaveg á svæði sem af-
markast af Holtavegi, skólagörðum
og göngustíg og húsum við Álf-
heima. Tillagan gerir ráð fyrir að á
lóð númer 29b við Holtaveg verði
byggt eitt sambýli á tveimur hæðum
með sex einstaklingsíbúðum.
Í vor sem leið var auglýst deili-
skipulagstillaga sem gerði ráð fyrir
tveimur sambýlum með samtals tólf
einstaklingsíbúðum, en ráðgert var
að húsin væru á grænu svæði fyrir
neðan Langholtsskóla.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ólöfu Örvarsdóttur, aðstoð-
arskipulagsstjóra Reykjavíkur,
barst nokkur fjöldi mótmæla við
fyrri tillöguna. Segir hún at-
hugasemdirnar helst hafa snúið að
því að verið væri að breyta grænu
svæði í íbúðarsvæði, því þó umrætt
svæði væri skilgreint sem íbúasvæði
á aðalskipulagi þá var það skilgreint
sem grænt svæði á deiliskipulagi.
„Það sem mér finnst merkilegast
fyrir hönd Öryrkjabandalagsins er
að það takist sátt um þá uppbygg-
ingu sem nauðsynleg er í húsnæðis-
málum geðfatlaðra. Að það verði
hægt að koma upp sómasamlegu
húsnæði á góðum stöðum fyrir þessa
einstaklinga sem svo mjög þurfa á
þessu að halda,“ segir Sigursteinn
Másson, formaður Öryrkjabanda-
lags Íslands, þegar hann er spurður
um fækkun tveggja sambýla í eitt
samkvæmt nýju tillögunni. „Hvort
það eru tvö hús eða eitt skiptir ekki
öllu máli. Þarna er góður staður sem
hentar mjög vel þessum einstakl-
ingum, vegna þess að þarna er um
að ræða fólk sem mun þurfa að nýta
sér almenningssamgöngur og þjón-
gagnrýni íbúa svæðisins. „Ég treysti
því og trúi að um þetta skapist góð
sátt.“
Þess má geta að frestur til að skila
inn athugasemdum við auglýst deili-
skipulag rennur út 8. ágúst nk.
Ný tillaga auglýst fyrir
austanverðan Laugardal
%&'# (
&
) )#
*+
(
,)
&
#
-) +
.
%) &(
/0
'
#
1
#
HLAÐVARP (Podcast) er nýjung
sem mbl.is býður lesendum sínum
upp á frá og með deginum í dag.
Hlaðvarpssíða
mbl.is opnar leið
að útvarps- og
sjónvarpsefni
sem hægt er að
horfa á í tölvum,
tónhlöðum eða í
sjónvarpstækj-
um, það er öllum
opið sem hafa
aðgang að Net-
inu og er notkun
á því ókeypis.
Þjónustan
hleður sjálfkrafa
niður því efni
sem notandinn velur að horfa eða
hlusta á, í tölvuna eða tónhlöðuna.
Hlaðvarpið gerir notendum síðan
kleift að taka með sér það efni sem
í boði er og njóta þess þar sem
hann kýs.
Fjölbreytt innlent og
erlent dagskrárefni
Allt hljóð og myndefni mbl.is
verður aðgengilegt fyrir tölvur,
sjónvarp og tónhlöður á Hlaðvarp-
inu auk þess sem notendur hafa að-
gang að fjölbreyttu innlendu og er-
lendu dagskrárefni. Framboð
verður stöðugt í endurnýjun auk
þess sem notendur þjónustunnar
geta haft áhrif á framboð og fjöl-
breytni.
Ýmsir aðra möguleika er að finna
í Hlaðvarpi. Nú opnast tækifæri
fyrir alla sem áhuga hafa á að fram-
leiða sína eigin útvarps- og sjón-
varpsþætti. Það eina sem þarf til er
áhugi og frum-
kvæði, tölva,
hljóðnemi og
myndavél.
Á Hlaðvarps-
síðu mbl.is verð-
ur svæði fyrir þá
sem vilja hýsa
framleiðslu sína
á mest notaða
vefsvæði á Ís-
landi auk þess
sem Hlaðvarps-
þjónustuna verð-
ur hægt að nota í
tengslum við
bloggsíður mbl.is. Þannig geta
bloggarar starfrækt sína eigin fjöl-
miðla á netinu.
Virk umræða er á bloggsvæði
þjónustunnar; hladvarp.blog.is
Mælt er með forritunum iTunes
eða Miro fyrir þá sem vilja nýta sér
Hlaðvarp mbl.is. Bæði forritin eru
ókeypis á netinu og eru fyrir MAC
og PC stýrikerfin - http://
www.apple.com/itunes/download/ -
www.getmiro.com
Hlaðvarp mbl.is er bæði fyrir
MAC og PC stýrikerfi og fyrir
flestar tölvur og tónhlöður (mp3
spilara)
Hægt er að nálgast Hlaðvarps-
síðuna með því að smella á POD-
merkið efst í vinstra dálki á forsíðu
mbl.is eða slá inn slóðina http://
www.mbl.is/podcast
Hlaðvarp
á mbl.is
Opnar netverjum leið að útvarps- og
sjónvarpsefni og notkunin er ókeypis