Morgunblaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 36
Ég var mjög hræddur
þegar ég var barn og
sá Andlitið í fyrsta skipti, ég
gat ekki sofið … 40
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„STEYPA er nafn á heimildarmynd sem fjallar um
íslenska samtímamyndlist. Þar er fylgst með sjö
listamönnum, og þeirra störf skoðuð. Myndin tekur
púlsinn á þeirri senu,“ segir Ólafur Björn Ólafsson
tónlistarmaður sem hefur gefið út plötu með tón-
listinni úr Steypu. Leikstjórar myndarinnar eru
þau Markús Þór Andrésson og Ragnheiður Gests-
dóttir, en ekki er komið á hreint hvar og hvenær
hún verður frumsýnd. „Ég horfði á myndina og ég
fékk mikið af hugmyndum við að sjá það sem lista-
mennirnir voru að gera,“ segir Ólafur. „Þau voru
með mjög ólík listaverk en þar sem kvikmyndin er
mjög sjónrænn miðill hafði hún mjög bein áhrif á
mig þannig að ég fékk samstundis hugmyndir að
því sem ég vildi gera. Ef þetta hefði verið hefð-
bundin kvikmynd hefði ég þurft að fylgja eftir
dramatískri framvindu og þannig, en þetta eru
meira stemningar úr myndinni.“
Tónlistin á plötunni er að stórum hluta rafræn og
minnir jafnvel á köflum á Aphex Twin þegar hann
var á sínu léttasta skeiði. „Ég vil nú ekki gera mér
neinar grillur og fara að líkja mér við Aphex Twin,
en þetta er samt kannski í hans stíl, svona tilrauna-
kennd raftónlist,“ segir Ólafur. „Við komum okkur
saman um það, ég og framleiðandinn, að okkur
langaði að hafa svolítið af „teknótónlist“ í myndinni.
Þetta varð samt ekki beint „teknó,“ heldur mikið af
trommutöktum og svona, en samt ekki þung tónlist
heldur meira „up-beat.“
Yukatan 15 ára
Ólafur fékk kórinn Hljómeyki til liðs við sig en
hann má heyra í nokkrum lögum plötunnar. „Hann
var hugsaður til þess að brjóta þetta upp því mér
finnst kór og rafhljóð alveg geta unnið saman.“
En fyrir hverja er þessi tónlist? „Ég held að hún
sé bara fyrir forvitna, og þá sem hafa áhuga á til-
raunakenndri tónlist. Ég hafði ekki hugsað þetta til
útgáfu fyrr en ég var búinn að gera tónlistina. Upp-
lagið er ekki nema svona 100 diskar og flokkast lík-
lega undir það sem kallað er heimabrugg.“
Steypa er fyrsta sólóplata Ólafs, en hann hefur
lamið húðir með hinum og þessum í gegnum árin.
Fyrir skömmu var hann t.d. að koma frá Banda-
ríkjunum þar sem hann var á vel heppnuðu tón-
leikaferðalagi með Benna Hemm Hemm. Þá er
hann einnig í Stórsveit Nix Nolte, en sú sveit er að
ljúka upptökum á nýrri plötu um þessar mundir og
kemur hún líklega út með haustinu. Þá er Ólafur
einnig að vinna að útvarpsþáttum um kvikmynda-
tónlist sem verða á dagskrá Ríkisútvarpsins áður
en langt um líður.
Ekki er hægt að sleppa Ólafi án þess að minnast
á hljómsveitina Yukatan sem sigraði í Músíktil-
raunum árið 1993, en sveitin spilaði síðast á tón-
leikum í Nýlistasafninu árið 2001. „Það er nú gam-
an að segja frá því að við erum 15 ára á þessu ári.
Ég efast samt um að við munum koma saman og
spila á tónleikum. Það er frekar að við myndum
hittast og fá okkur bjór.“
Tónlist fyrir forvitna
Morgunblaðið/Kristinn
Rafrænn „Ég vil nú ekki gera mér neinar grillur og fara að líkja mér við Aphex Twin, en þetta er samt kannski í hans stíl,“ segir Ólafur Björn Ólafsson.
Steypa fæst í 12 Tónum og Kaffi Hljómalind.
ljósara að ef eitthvað er að marka
frammistöðu Magna í Rock Star
þáttunum þá eigi hann greiða leið
að hjörtum Bandaríkjamanna – en
þangað til verða íslensk hjörtu víst
að duga.
Magni kemur fram á sérstöku
Reykjavíkur-húkkaraballi annað
kvöld á Gauki á Stöng og með hon-
um verða ekki einungis félagar
hans í Á móti sól heldur einnig
Ástralinn og Rock Star-vinur
Magna, Toby Rand. Reikna má með
skemmtilegum tónleikum enda
Toby hrókur alls fagnaðar og hver
veit nema Magni taki akústíska út-
gáfu af Radiohead-laginu „Creep.“
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Bræðslan
fór fram um helgina og á meðal
þeirra sem komu fram var Magni
rokkstjarna sem frumflutti efni af
væntanlegri sólóplötu. Ágætur
rómur var gerður að tónleikunum
og ljóst að Magni hyggur á heims-
yfirráð eða ... eitthvað þaðan af
minna.
Til að hjálpa sér með heims-
frægðina ku Magni vera kominn í
samband við umboðsskrifstofu í
Bandaríkjunum sem sérhæfir sig í
að koma á framfæri hæfileikafólki
sem komist hefur langt í raunveru-
leikaþáttum á borð við American
Idol. Verður það að teljast deginum
Húkkaraball með
Magna og Toby
Ljósmynd/Danny Moloshok
Rokkstjarna Magni hefur enn ekki
gefið Bandaríkin upp á bátinn.
Ljósmynd/Matthias A. Ingimarsson
Ástralinn Toby stóð sig mjög vel í Rock Star: Supernova og komst alla leið í
úrslitaþáttinn þar sem hann beið lægri hlut á móti Lukas Rossi.
Brasspíurnar hennar Bjarkar
urðu enn öfundsverðari í síðustu
viku þegar Björk kom fram á tón-
listarhátíð í bænum Nyon í Sviss.
Þannig er nefnilega mál með vexti
að kanadíska súpergrúppan Ar-
cade Fire, sem einnig kom fram á
hátíðinni, hreifst svo af blásara-
sveitinni (sem hefur fengið viður-
nefnið Wonderbrass) að hún fékk
þær stúlkur til að spila með sér í
lokalagi sveitarinnar, „Wake Up“ –
og samkvæmt Valdísi Þorkels-
dóttur (vallarinn.blogspot.com) var
það heljarinnar „stöð“!
Evróputúr Bjarkar er nú í nokk-
urra vikna pásu en hefst aftur í
næstu viku með tónleikum í Frakk-
landi. Hópurinn fer síðan aftur til
Bandaríkjanna og Kanada en þar á
eftir er ferðinni líklega heitið til
Asíu.
Wonderbrass slær í
gegn með Arcade Fire
Eins og gestir
Bræðslunnar og
hlustendur Rásar
2 gátu heyrt á
laugardagskvöld
fór Megas á kost-
um á Borgarfirði
eystri. Var það mál manna að Meg-
as hefði aldrei verið betri og ekki
skemmdu Senuþjófarnir fyrir, en
þeir minntu, þegar best lét, á hina
stórkostlegu stoðsveit Dylans, The
Band. Auk þessa gleðjast Megas og
samstarfsmenn hans mjög yfir
vangaveltum Fréttablaðsins um
texta lagsins „Flóabitanótt“ en þar
hefur meintu ósætti Megasar við
Bubba verið velt upp. Þykir þeim
Fréttablaðið teygja sig heldur langt
í söguskýringum á textanum, sér-
staklega í ljósi þess að uppruna-
legur texti lagsins var 14 erindum
lengri en sá sem endaði á plötunni.
Yfir mörgu að gleðjast