Morgunblaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
SÖGULEGUR kosningaósigur
Frjálslynda lýðræðisflokksins í Jap-
an á sunnudag er talinn marka tíma-
mót í japönskum stjórnmálum.
Flokkurinn hefur nú loksins fengið
raunverulegt mótvægi eftir að hafa
verið við völd nær samfleytt í rúma
hálfa öld, eða frá stofnun hans árið
1955.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
galt mikið afhroð og helsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn, Lýðræðis-
flokkur Japans, náði í fyrsta skipti
meirihluta í annarri af deildum
þingsins. Er þetta jafnframt í fyrsta
skipti frá stofnun Frjálslynda lýð-
ræðisflokksins sem annar flokkur
fær meirihluta í efri deild þingsins.
„Japönsk stjórnmál standa á tíma-
mótum,“ hafði fréttastofan AFP eftir
Hidekazu Kawai, heiðursprófessor í
stjórnmálafræði við Gakushuin-
háskóla í Tókýó. „Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem fram koma merki
um breytingar í stjórnmálum Jap-
ans, en þetta virðist vera upphafið að
endalokum pólitíska kerfisins frá
1955.“
Kawai og fleiri stjórnmálaskýr-
endur í Japan bentu þó á að Lýðræð-
isflokkur Japans hefur ekki enn
sannað að hann sé fær um að stjórna
landinu. „Ef hann gerir það er þetta
skref í átt að heilbrigðu stjórn-
málakerfi í Japan, eins og í öðrum
þróuðum iðnríkjum,“ sagði Kawai.
Frá því að Frjálslyndi lýðræð-
isflokkurinn var stofnaður hefur
hann aðeins verið í tíu mánuði í
stjórnarandstöðu. Hefur hann eink-
um notið góðs af öflugum stuðningi
fyrirtækja og kjósenda í dreifbýlinu,
auk þess sem hann hefur embættis-
mannakerfið á bak við sig.
Hafnar afsögn
Fyrrverandi félagar í Frjálslynda
lýðræðisflokknum og gamlir sósíal-
istar stofnuðu Lýðræðisflokk Japans
árið 1998. Stefna flokksins þykir enn
mótsagnakennd og hann er því talinn
eiga fremur langt í land með að
ávinna sér traust japanskra kjós-
enda.
„Það er ekki niðurstaða kosning-
anna að Lýðræðisflokkur Japans eigi
að taka við völdunum,“ sagði Gerald
Curtis, sérfræðingur í japönskum
stjórnmálum við Columbia-háskóla í
New York. „Kjósendurnir greiddu
atkvæði gegn Shinzo Abe forsætis-
ráðherra.“
Stjórnarflokkarnir eru enn með
tvo þriðju þingsæta í neðri deildinni
og nógu mörg til að geta hnekkt sam-
þykktum efri deildarinnar. Nokkrir
stjórnmálaskýrendur spáðu því að
Abe neyddist til að flýta kosningum
til neðri deildarinnar ef hann segir
ekki af sér og stuðningurinn við hann
heldur áfram að minnka. „Ég spái
því að verði Abe ekki farinn fyrir lok
ársins verði boðað til kosninga. Og þá
er hugsanlegt að Frjálslyndi lýðræð-
isflokkurinn fái ekki meirihluta,“
sagði Curtis.
Abe forsætisráðherra neitaði í gær
að segja af sér eða flýta kosningum.
Hann sagði að kjósendurnir styddu
enn helstu markmið stjórnarinnar en
rakti kosningaósigurinn til hneyksl-
ismála sem hafa orðið til þess að tveir
ráðherrar hafa sagt af sér og þriðji
ráðherrann fyrirfór sér.
Tveggja flokka kerfi í Japan?
Japönsk stjórnmál
talin standa á
tímamótum
./01 023 4023.5 6
/%.2023678.90 02 ( :6162
/F P
), N9
2
A F P
0
),
2
A F P
), ,'
EF (,,0),
0
,' 62 2
A F P
),
,' EF (,,0),
0
,' 62 EF (,,0), N9
,5
0
),
F P
0
),
()0 0
A
#(# ?
)H
3 0)
#
(#
( C ) ?
)
)A)( 0#,
# #
?
)H 3(#
(
P
P
P
P
P
P
P
;9/02368268 ( <80 =<09=0220
/F P
), N9
1
P
), 4'
+ )A
9 ) 2
,) 2
A F P
),
2 #
), )P 6
0
SANDLISTAVERKIÐ „Októbush“ er eitt af ellefu
verkum er prýða ströndina við Kemnade-vatn í Boch-
um í Þýskalandi. Listamaðurinn Urick Baentsch á heið-
urinn af „Októbush“ en hann líkir þar George W. Bush
forseta Bandaríkjanna við kolkrabba. Listaverkið sýnir
kolkrabba með andlit Bush og í gripörmum sínum held-
ur hann á maísstöngli, olíudós, krossi, Tvíburaturn-
unum og krossi. Túlki svo hver sem vill.
AP
Pólitísk ádeila mótuð í sand
Brussel. AFP. | Í löndum innan Evr-
ópusambandsins tóku gildi í gær
nýjar reglur um verð á símtölum á
milli landa. Samkvæmt nýju reglun-
um má nú ekki rukka farsímanot-
endur um meira en 49 evrusent, eða
42 krónur, fyrir mínútuna þegar
hringt er innan Evrópusambands-
ins. Þegar tekið er við símtali má
verðið ekki fara yfir 24 sent eða 21
krónu.
Áhrif reglnanna verða mismun-
andi eftir löndum enda er verð á sím-
tölum milli landa langt í frá eins í öll-
um 27 löndum Evrópusambandsins.
Fyrir þessa samræmingu var allt að
620 króna verðmunur á fjögurra
mínútna símtali á milli landa úr far-
síma, eftir því í hvaða landi viðkom-
andi var staddur.
Evrópusambandið mun hafa eftir-
lit með framkvæmd lækkunarinnar.
Mínútu-
verð lækk-
að í ESB
Evrópusambandið
setur þak á verð
YFIR 650 manns
hafa látið lífið af
völdum flóða og
aurskriðna eftir
langvarandi
rigningar í Kína í
sumar.
Úrhellið hefur
skaðað um 119
milljónir manna,
eyðilagt 450.000
heimili og nær
átta milljónir hektara ræktaðs
lands, að sögn BBC.
Alþjóða Rauði krossinn sagði
þetta á meðal skæðustu flóða í Kína
í áratug og óskaði eftir framlögum,
andvirði tæpra 500 milljóna króna,
til neyðaraðstoðar. Spáð er áfram-
haldandi rigningu víða í Kína næstu
daga.
Yfir 650 hafa
farist af völd-
um flóða í Kína
Kínverji reynir að
verja hús sitt.
TALSMAÐUR talíbana sem 19. júlí
rændu 23 ferðamönnum frá S-
Kóreu í Afganistan tilkynnti í gær
að einn gíslanna hefði verið tekinn
af lífi. Var þetta vegna þess að afg-
önsk stjórnvöld höfðu ekki orðið
við kröfum um að sleppa uppreisn-
armönnum úr röðum talíbana úr
fangelsi. Þetta er annar gíslinn úr
hópnum sem ræningjarnir myrða.
Hamid Karzai, forseti Afganist-
an, hefur fordæmt ránið og sagt
það brjóta gegn lögum íslams.
Talíbanar
myrða gísl
MEGINÞEMA
fundar George
W. Bush, Banda-
ríkjaforseta og
Gordon Brown,
forsætisráðherra
Bretlands, var
fyrst og fremst
að binda vina-
bönd. Þeir áttu
tveggja tíma
langan fund yfir
kvöldverði í Camp David í fyrra-
dag, án nærveru ráðgjafa sinna. Á
blaðamannafundi í gær sögðust
þeir hafa átt góðan fund og ítrek-
uðu m.a. að þeir væru samstiga í
stríðinu gegn hryðjuverkum og
sögðust einnig ætla að beita þrýst-
ingi til að stöðva ofbeldið í Darf-
ur.
Vel fór á með
Bush og Brown
Bush og Brown í
Camp David í gær
HENRY Paulsson, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði Banda-
ríkin í gær hugsanlega ekki fær um
að greiða skuldir sínar nema þingið
gæfi ríkissjóði hærri lántökuheim-
ildir. Nú eru þær 8.965 billjónir
dala og duga ekki til.
Sama dag tilkynnti Condoleezza
Rice utanríkisráðherra fyrirætl-
anir um að Bandaríkin veiti 13
milljörðum dala til hernaðar-
aðstoðar við ríki fyrir botni Mið-
jarðarhafs, en Rice hyggst heim-
sækja bandamenn Bandaríkjanna
þar á næstu dögum.
Flókin fjármál
Bandaríkjanna
LAURENT Gbagbo, forseti Fíla-
beinsstrandarinnar, og Guillaume
Soro forsætisráðherra kveiktu í
vopnahrúgu í gær til að binda enda
á fimm ára stríð þeirra með tákn-
rænum hætti.
Er þetta í fyrsta skipti sem for-
setinn fer til norðurhluta landsins
sem uppreisnarmenn undir forystu
Soro náðu á sitt vald í stríðinu. Soro
varð forsætisráðherra eftir að frið-
arsamningur var undirritaður í
mars.
Vopnin brennd Peking. AP. | Chengdu
pöndu-ræktunarstöðin
í Kína hefur lagt fram
áætlun til þess að
græða á úrgangi um 40
risapandna. Úrganginn
hyggst stöðin nota til
að framleiða minja-
gripi. Fyrir liggur að
þeir muni ekki lykta
illa.
Minjagripirnir munu
verða margvíslegir, allt
frá bókamerkjum til
styttna af dýrunum.
Pöndurnar lifa á
bambusgreinum og
framleiða tæplega
tonn af taði á dag.
Talsmenn fyrirtæk-
isins segja tað pandn-
anna ekki lykta mjög
illa vegna þess að það
sé að miklum hluta
bambus sem þær geti
ekki melt.
Í Taílandi hefur
dýragarður selt lit-
aðan pappír gerðan úr
pöndutaði.
Vilja græða
á pöndutaði
Panda Er eitt sjaldgæf-
asta dýr veraldar
Amman. AFP. | Alþjóðlegu hjálpar-
samtökin Oxfam segja grundvallar-
þjónustu hafa hrunið til grunna í
Írak. Nærri þriðjungur þjóðarinnar,
eða átta milljónir manns, þarfnast
neyðarhjálpar, samkvæmt nýrri
skýrslu frá Oxfam og óháðum hjálp-
arstofnunum í Írak. Í skýrslunni
segir að íraska ríkisstjórnin geti ekki
séð fyrir grundvallarnauðsynjum
eins og vatni, mat, húsaskjóli og
sorphirðu fyrir um átta milljónir
manna. Samkvæmt skýrslunni lifa
um 43% þjóðarinnar langt undir fá-
tæktarmörkum og um fjórar millj-
ónir þurfa á matvælaaðstoð að halda.
Aðeins 60% þeirra hafa aðgang að
matarhjálp stjórnvalda.
Þeim sem ekki hafa aðgang að
hreinu vatni hefur fjölgað í 70% úr
50% árið 2003. 80% Íraka hafa ekki
aðgang að fullnægjandi hreinlætis-
aðstöðu.
Í skýrslunni kemur einnig fram að
fjórar milljónir Íraka hafa verið
flæmdar burt frá heimilum sínum í
átökunum. Rúmlega tvær milljónir
manna hafa flust búferlum innan
landsins en aðrar tvær hafa flust úr
landi.
Þriðjungur þarf
neyðaraðstoð