Morgunblaðið - 31.07.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2007 37
Pabbi, hvað varð um myndinasem var í Kringlunni?“spurði sonur minn níu ára
mig um daginn. Það tók mig örlít-
inn tíma að kveikja á því hvað hann
ætti við. „Áttu við stóru myndina
með öllum ofurhetjunum á?“ spurði
ég á móti. Jú, sú var myndin. „Hún
var tekin niður til þess að hægt
væri að koma fyrir nýrri verslun,“
svaraði ég spurningu barnsins um
örlög Erró-verksins, sem mikið var
haft fyrir að búa til og koma upp á
sínum tíma. Auka þurfti versl-
unarrými, og því var það tekið nið-
ur.
Drengurinn horfði forviða á migog spurði hvar myndin væri
núna. „Hún er örugglega í
geymslu,“ svaraði ég, minnugur
frétta af því. Skemmst frá að segja
varð sonur minn yfir sig hneyksl-
aður á þessu, sagðist ekkert botna í
þessum gjörningi. Erró-verkið var
dæmi um list í almenningsrými,
rými þar sem hver sem er getur
spókað sig. Nú liggja flísar Errós
væntanlega í kössum í einhverri
geymslu. Var ekki hægt að búa til
annan vegg fyrir verkið í Kringl-
unni? Ég veit ekki hver framtíð
verksins er, það er í það minnsta
hvergi sjáanlegt, aðdáendum of-
urhetja og popplistar til mikilla
vonbrigða.
Auðvelt væri að halda því framað þarna sé skýrt dæmi um
það hvernig peningar skipta meira
máli en listir. Gott ef ekki er. Fyrir
skömmu réðst hópur listamanna í
það verkefni að búa til listaverk út
frá rými Kringlunnar, þar sem
þetta musteri er eitt fjölsóttasta
hús landsins. Verkin verða þar
tímabundið, líkt og verk Errós.
Þetta er svokölluð list í almenn-
ingsrými. Oftast lýsa sýnendur yfir
markmiðum sínum með þeim hætti
að þeir vilji „vinna með rýmið eða
útfrá því,“ hvetja til „samræðna
listarinnar við rýmið,“ vekja fólk til
umhugsunar um rýmið og hlutverk
þess í því, hvernig það umgengst
það, tengsl verksins við það o.s.frv.
Oft heppnast þessi list afbragðs-vel. Sem dæmi má nefna styttu
Ólafar Nordal við Ægisíðu, geir-
fugl sem stendur á steini í fjöru-
borðinu og horfir í átt að Eldey,
þar sem síðustu fuglarnir af hans
tegund voru veiddir. Frá Nauthóls-
vík að Ægisíðu má finna forvitnileg
og hugmyndarík listaverk sem
gera ferðir eftir göngustígnum
skemmtilegri en ella. Annað dæmi
um vel heppnað og gefandi verk á
almannasvæði eru steinar Sigurðar
Guðmundssonar við Sæbraut, slíp-
aðir í Kína og fluttir til Reykjavík-
ur. Innri fegurð afhjúpuð, ekki
dæma bókina af kápunni einni sam-
an, ýmislegt flýgur manni í hug við
að skoða það. Hulinn gimsteinn í
borginni.
Hinum almenna borgara þykirkannski lítið til svona verka
koma, hvað veit ég? En víst er að
það er ekkert lítið mál að vinna
verk sem hentar ákveðnu almenn-
ingsrými þannig að fólk kunni að
meta það og taki eftir því. Lista-
maðurinn stendur frammi fyrir því
að sýna verkið á stað sem fólk sæk-
ir ekki sérstaklega til að skoða
listaverk. Það gerir verkefnið enn
erfiðara, gjörólíkt því að halda
hefðbundna myndlistarsýningu í
safni eða galleríi. Hvað er list í al-
menningsrými? Hún getur verið
minnisvarði, annað hvort um listina
sem slíka eða einhvern mann eða
viðburð. Það er þekktasta form
listaverka á opinberu svæði, a.m.k.
í Reykjavík. Oftar en ekki fær mað-
ur á tilfinninguna að listaverk sé
uppfyllingarefni, stoppi í ákveðið
gat á torgi, gangstétt eða lóð. Enda
ekki skrítið þar sem lög kveða á um
að 1% af byggingarkostnaði nýrrar
byggingar skuli fara í listaverk.
Tilgangurinn með list í almenn-ingsrými er jafn margvíslegur
og verkin eru mörg. Með verkinu
getur listamaðurinn verið að vekja
fólk til umhugsunar um hvernig
það notar þetta ákveðna svæði;
hann getur fært mönnum ró frá
amstri hversdagsins (gott dæmi er
verk Bruce Nauman á skúlptúr-
messunni í Münster í ár, öfugur þrí-
hyrningur sem menn geta farið of-
an í til að njóta næðis frá skarkala
götunnar og daglegu amstri); hann
getur fellt verkið svo vel að rýminu
að fólk tekur vart eftir því nema
fyrir tilviljun, líkt og að finna falinn
fjársjóð (verk Ólafs Elíassonar fyr-
ir utan bækistöðvar deCODE í
Vatnsmýrinni, hreinasta snilld).
Möguleikarnir eru endalausir.
Á Íslandi er mikil áhersla lögð ásteypu, hús og önnur mann-
virki. Fyrst er byggt, svo er lista-
verkum hent inn í húsið eða á lóð-
ina fyrir utan. Listaverk á ekki að
vera minnisvarði um þann sem
keypti það, þann sem byggði húsið
eða kom því fyrir á ákveðnum stað.
Það á að bæta einhverju við rýmið,
fegra það eða gera áhugaverðara.
Fyrir hvern var verk Erró í
Kringlunni? Var það ekki fyrir við-
skiptavini Kringlunnar? Hvaða
skilaboð eru það til listunnenda,
barna, aðdáenda Erró, að taka
verkið niður til að koma fyrir nýrri
verslun? Er listaverk einnota
skraut, gott til að vekja athygli á
einhverju en viðskiptahagsmunir
ganga þó fyrir? Kannski hafa eig-
endur Kringlunnar í huga að koma
verkinu upp á ný, og eru þá beðnir
afsökunar.
Í vor kviknaði í húsum við Aust-urstræti og Lækjargötu. Þegar
farið var að ræða um uppbyggingu
á svæðinu varð mest áberandi sú
hugmynd að byggja svipuð hús.
Fáum datt í hug að byggja ekki
hús, fáir ræddu um torgið sem
slíkt, að þar mætti t.d. setja lista-
verk borginni til sóma, gera torgið
fallegt með einhverjum hætti.
Nógu er nú torgið ljótt eins og það
er.
Nú fer fram hugmyndaleit fyrir
þetta svæði, forvitnilegt að sjá hvað
kemur út úr henni. Kæmi mér ekki
á óvart að þar væru hús öðru mik-
ilvægari. Eða kannski verður sett
þar stytta eftir listamann sem á
þegar styttur um alla borg. Þá
þurfa menn ekki að taka neina
áhættu. Á ekki einhver góðan vegg
til að setja verk Errós á?
Í öruggri geymslu
» Oftar en ekki færmaður á tilfinn-
inguna að listaverk sé
uppfyllingarefni, stoppi
í ákveðið gat á torgi,
gangstétt eða lóð.
Morgunblaðið/Kristinn
helgisnaer@mbl.is
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
Í geymslu Verk Erró í Kringlunni var sett upp fyrir tilstilli Listasjóðs atvinnulífsins fyrir sjö árum og var það heil-
mikið verk. Þá var ráðgert að það yrði þar til frambúðar en svo fór þó ekki.
-hágæðaheimilistæki
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna frá Miele
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
AFSLÁTTUR
30%
Miele gæði
ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri
og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele þvottavélar.
Gerð Listaverð TILBOÐ
Þvottavél W1514 142.714 99.900
1400sn/mín/5 kg
Þurrkari T7644C 135.571 94.900
rakaþéttir/6 kg