Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
í Dublin
david@mbl.is
GAGNKVÆMUR áhugi er á því hjá
íslenskum og írskum ráðamönnum
að bæta og efla mjög samskipti þjóð-
anna tveggja en það er samdóma álit
þeirra Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra og starfsbróður hans á Írlandi,
Berties Aherns, að ýmis tækifæri
séu fyrir hendi í þeim efnum. Ahern
er raunar þeirrar skoðunar að líkur
séu á því að írskir ferðamenn myndu
flykkjast til Íslands ef beint flug
væri í boði.
Geir er í opinberri heimsókn til Ír-
lands og hitti hann Ahern á skrif-
stofu þess síðarnefnda síðdegis í
gær. Geir sagði að fundinum loknum
að þeir hefðu rætt ýmis tvíhliða mál,
m.a. Hatton Rockall-málið, en fjög-
urra landa fundur verður haldinn í
lok september í Reykjavík milli full-
trúa Danmerkur, Íslands, Bretlands
og Írlands um þau efni. Þá hefðu þeir
rætt málefni Sameinuðu þjóðanna,
m.a. framboð Íslands til öryggisráðs
SÞ starfsárin 2009-2010. „Írar styðja
okkur í því máli. Þeir voru sjálfir í ör-
yggisráðinu fyrir nokkrum árum og
telja að lítil lönd geti gert heilmikið
gagn á þeim vettvangi.“
Bauð Ahern til Íslands
Ahern hefur einu sinni í tíu ára
forsætisráðherratíð sinni sótt Ísland
heim. Það var fyrir sex árum en Geir
bauð Ahern í gær að koma aftur og
þá í opinbera heimsókn. Heimsókn
Geirs er sú fyrsta sem íslenskur for-
sætisráðherra fer í til Írlands og
vekur það nokkra athygli í ljósi gam-
alla tengsla milli landanna.
Tilgangur ferðar forsætisráðherra
til Írlands er að stuðla að því að sam-
skipti landanna eflist til muna. „Þau
hafa verið ótrúlega lítil miðað við ná-
lægð og skyldleika landanna,“ sagði
Geir. Um væri að ræða gömul tengsl,
sem næðu allt til landsnámstímans á
Íslandi. Ahern tók í sama streng í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins. „Áhuginn á frekari sam-
skiptum er sannarlega gagnkvæm-
ur,“ sagði hann. Viðskipti milli
landanna væru að vísu ekki mikil en
þau færu vaxandi. Íslenskir aðilar
væru þegar farnir að gera strand-
högg á Írlandi og Írar hefðu fyrir sitt
leyti ýmislegt að sækja til Íslands. „Í
öðru lagi og þetta skiptir ekki minna
máli: við þurfum að efla hin menn-
ingarlegu og sögulegu tengsl, sem
milli okkar eru,“ sagði Ahern svo.
„Þau voru mikil fyrr á öldum en af
ýmsum ástæðum dró mjög úr þeim.“
Sagði Ahern að Írar hefðu mikinn
áhuga á ferðalögum og án efa væru
tækifæri fyrir hendi til að laða írska
ferðamenn til Íslands. Til að slíkt
mætti verða þyrfti þó að komast á
beint flug milli landanna.
Geir tók undir að ýmis tækifæri
væru fyrir hendi í viðskiptalegu til-
liti. Hann hóf heimsókn sína til Ír-
lands í gær raunar með því að heim-
sækja tvö fyrirtæki sem lúta stjórn
Íslendinga, annars vegar Hiberna
Atlantica, en þar er Bjarni K. Þor-
varðarson framkvæmdastjóri. Hib-
ernia er í eigu fyrirtækis Kenneths
Petersons, fyrrverandi aðaleiganda
Norðuráls, en það sérhæfir sig í fjar-
skiptum og hyggst ljúka við að
leggja nýjan sæstreng til Íslands á
seinni hluta næsta árs. Þá heimsótti
Geir húsakynni Industria ehf. og tók
Guðjón Már Guðjónsson, forstjóri
fyrirtækisins, á móti honum en fyrir-
tækið er umsvifamikið á breiðbands-
markaðnum á Írlandi.
Geir H. Haarde hitti forsætisráðherra Írlands í Dublin í gær
Vilja efla gömul tengsl
Íslands og Írlands að nýju
Morgunblaðið/Davíð Logi
Gestakoma Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, er hann tók á móti Geir H. Haarde, íslenskum starfsbróður
sínum, úti fyrir skrifstofu sinni í Dublin. Lýstu þeir báðir áhuga á auknum samskiptum milli þjóðanna.
FUNDUR þeirra Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Berties Aherns, for-
sætisráðherra Írlands, átti upphaflega að fara fram á morgun, föstudag,
en á mánudag bárust þau tíðindi að Ahern hefði enn einu sinni verið kvadd-
ur fyrir sérstakan rannsóknarrétt sem falið var að skoða peningagreiðslur
sem Ahern hefur viðurkennt að hafa þegið frá auðmönnum fyrir rúmum
áratug. Er gert ráð fyrir því að Ahern komi fyrir réttinn í dag og á morgun
og því þurfti að færa fundinn.
Það gætti nokkurs titrings meðal aðstoðarmanna Aherns í gær vegna
málsins og lítill áhugi var á því að hleypa írskum blaðamönnum í nágrenni
við hann. Ahern hefur verið forsætisráðherra Írlands í tíu ár og nýverið
vann flokkur hans, Fianna Fáil, góðan sigur í þingkosningum í landinu.
Vandræði Aherns nú eiga rætur að rekja til þess tíma er hann var fjár-
málaráðherra en fátt bendir svo sem til að þau verði honum að falli nú, úr
því að þau hafa ekki gert það nú þegar.
Flýta þurfti fundinum
ALLT útlit er
fyrir að banda-
ríski fjárfestinga-
bankinn Goldman
Sachs og Ólafur
Jóhann Ólafsson,
rithöfundur og
framkvæmda-
stjóri hjá Time
Warner, eignist
8,5% hlut í Geysi
Green Energy. Í
tilkynningu segir að viðræður um
hlutabréfakaupin séu á lokastigi.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Ólafur Jóhann að hann hafi lengi
haft áhuga á málefnum tengdum um-
hverfisvænni orku. „Það er nauðsyn-
legt fyrir mannkynið að finna ein-
hverjar aðrar orkulindir en olíu og
kol eigi jörðin að geta hýst okkur í
framtíðinni.“ Segir Ólafur að Íslend-
ingar búi yfir þekkingu og hugviti á
þessu sviði og að á næstu árum muni
mikil tækifæri skapast erlendis.
„Íslendingar standa nú frammi
fyrir einstöku tækifæri til að nýta
sér það sem gert hefur verið heima
og flytja það út.“ Hvað varðar sam-
starfið við Goldman Sachs segir
Ólafur að hann hafi oft átt viðskipti
við Goldman og reynsla hans af
bankanum hafi alltaf verið góð.
Bankinn hafi auk þess fjárfest mikið
í fyrirtækjum tengdum umhverfis-
vænni orku og hafi því mikla reynslu
og þekkingu á þeim markaði. Að-
koma bankans sé gæðastimpill fyrir
Geysi Green og hann búist við því að
bankinn muni auðvelda Geysi Green
aðkomu að bandarískum markaði.
Hannes Smárason, stjórnarfor-
maður Geysis, segir að fjárfesting
Ólafs Jóhanns og Goldman Sachs sé
mikilvægt skref fyrir fyrirtækið og
styrki það á þeirri leið að verða leið-
andi jarðvarmafyrirtæki í heiminum.
Ólafur Jóhann Ólafsson
kaupir í Geysi Green
Segir aðkomu Goldman Sachs gæðastimpil fyrir fyrirtækið
Í HNOTSKURN
» Geysir Green Energy fjár-festir í jarðhitaverkefnum
og fyrirtækjum sem fást við
þróun á sviði jarðvarma-
vinnslu víða um heim.
» Helstu eigendur Geysiseru FL Group og Atorka
Group, með 75% hlut samtals.
Ólafur Jóhann
Ólafsson
MAÐURINN, sem lést í umferðar-
slysi á Suðurlandsvegi, rétt vestan
við veginn að Kirkjuferju, á þriðju-
dag, hét Sigurður Guðmarsson, til
heimilis að Ásvegi 11 í Reykjavík.
Sigurður var 62 ára, fæddur 22. júní
1945. Hann lætur eftir sig fjögur
uppkomin börn.
Tildrög slyssins eru enn í rann-
sókn lögreglunnar á Selfossi en Sig-
urður ók fólksbifreið sem skall
framan á vörubifreið sem kom á
móti.
Alls hafa átta manns látið lífið í
umferðinni það sem af er ári og
þetta var annað banaslysið á milli
Hveragerðis og Selfoss á árinu.
Lést í umferð-
arslysi í Ölfusi
♦♦♦
RÓBERT Wess-
man, forstjóri
Actavis, segist í
viðtali í Við-
skiptablaði
Morgunblaðsins í
dag ekki vera að
hætta hjá fyrir-
tækinu þó að
hann hafi selt öll
sín hlutabréf við
yfirtöku Novators. Hann ætlar að
endurfjárfesta í félaginu og kaupa
12% hlut, sem er þrefalt meira eign-
arhlutfall en hann var með áður.
Lykilstjórnendur munu kaupa 5%
til viðbótar. Róbert staðfestir í við-
talinu að fjárfestingafélag á hans
vegum hafi tekið frá tvær hæðir í
Turninum svonefnda við Smára-
lind. Hefur hann ráðið nokkra
starfsmenn til að sjá um fjárfest-
ingar sínar. | Viðskipti
Róbert stýrir
Actavis áfram
Róbert Wessman
VEGAGERÐIN varaði í gærkvöldi
við færð á Hellisheiði eystri. Auk
þess voru vegfarendur um Möðru-
dalsöræfi, Vopnafjarðarheiði og í
Oddsskarð beðnir að gæta fyllstu
varúðar en þar hefur myndast
krapi á vegum.
Hjá Veðurstofu Íslands fengust
þær upplýsingar að töluvert muni
snjóa á hálendinu næstu daga auk
þess sem jafnvel megi búast við
slyddu á Vestfjörðum í dag.
Þá verður að öllum líkindum
frost um allt land í nótt.
Hellisheiði
eystri ófær